Þjóðviljinn - 02.03.1979, Blaðsíða 3
Föstudagur 2. mars 1979 ÞJ6ÐVILJINN — SIÐA 3
Leikin
• r
sjonvarps-
mynd um
Snorra
Sturluson
Samvinna viö
norska og
danska
sjónvarpið
Sjónvarpsdagskrá sem
ákveöið var 1977 aft gera í til-
efni 800 ára afmæiis Snorra
Sturlusonar hefur i meðför-
um Sjónvarpsins vaxiö uppi
90-100 minútna leikna kvik-
m vnd, sem kemur til með að
kosta 91 milj. króna sam-
kvæmt fyrstu kostnaðar-
áætlun, sem nýiega var lögð
fyrir útvarpsráð.
t stað klukkutima dag-
skrárinnar sem upphaflega
var ráðgerö hafa málin þró-
ast þannig, að leitað var
samstarfs viö sjónvarps-
stöövar Norðurlandanna og
hafa norska sjónvarpið og
það danska ákveðið aö taka
þátt i gerð myndarinnar með
fjárframlögum sem nema
um 24 milj. kr., en sænska
sjónvarpið ákveöur um aðild
er handrit liggur fyrir.
Framleiösla verður alger-
lega i höndum tslendinga og
fer fram hér á landi og allur
leikur verður á islensku.
Það eru Sigurður Sverrir
Pálsson og Erlendur Sveins-
son sem unnið hafa áætlun
um gerö myndarinnar, en
Jónas Kristjánsson forstöðu-
maöur Arnastofnunar hefur
verið sagnfræðilegur ráöu-
nautur auk þess sem hann
semur samtölin. Gert er ráö
fyrir aö kvikmyndatakan
taki um 3 mánuði, leikarar
verði 44, þaraf 3 i aðalhlut-
verkum, en statistar rúm-
lega 100.
Ekki mun nást að ljúka
myndinni á afmælisárinu
sjálfu.
— vh
Sóknarfundurmn
sprengdí húsnæðið
Eins og sagt var frá i Þjóð-
viljanum i gær var mikiö fjöl-
menni á félagsfundi Starfs-
stúlknafélagsins Sóknar i
Hreyfilshúsinu i fyrrakvöld. Eins
og sjá má á myndinni sprengdu
Sóknarkonurnar utan af sér
fundarhúsnæðiö. Oft er undan þvi
kvartaö að félagsmenn i verka-
lýðsfélögum séu sinnulitlir um
félagsfundi, en ekki virðist þurfa
að bera sig upp undan þvi i Sókn.
A fundinum voru samningar
Sóknar og atvinnurekenda, þ.e.
rikis og borgar , samþykktir með
192atkvæðum, en 122 félagsmenn
höfnuðu þeim. Ellefu atkvæöa-
seðlar voru auöir og ógildir. Auk
7-11% launahækkunar felast i hin-
um nýju samningum ýmsar
réttindabætur. —ekh.
Hafrannsókna-
stofnun:
Lokar
ræmu á
aðalloðnu-
veiði-
svæðinu
1 gær lokaöi Hafrannsókna-
stofnunin þriggja milna ræmu á
aðalloðnuveiðis væöinu frá
Ingólfshöföa að Skarðsfjöruvita.
Að sögn Ölafs Karvels Pálssonar
var þetta gert vegna ýsu og lýsu i
loðnuaflanum á þessu svæði.
Þrír
prófessorar
hætta
Forseti tslands hefur
samkvæmt tillögu menntamála-
ráðherra veitt tveim prófessorum
iheimspekideild Háskóla Islands,
þeim Birni Þorsteinssyni og
Halldóri Halldórssyni, lausn frá
embætti samkvæmt ósk þeirra
sjálfra frá 1. sept. nk. að telja.
Sömuleiðis dr. Lúðvik Ingvars-
syni prófessor I lagadeild
samkvæmt ósk hans sjálfs frá 1.
október nk.
—vh
Lausaskuldir bænda í föst lán
Nýr flokkur bankavaxtabréfa
1 nóv. s.l. skipaöi landbúnaðar-
ráöherra þriggja manna starfs-
hóp til þess að gera tillögu um að
breyta lausaskuldum bænda I föst
lán. Starfshópinn skipuðu Stef-
án Vaigeirsson alþm., formaöur,
Arni Jónasson, erindreki Stéttar-
sambands bænda og Bjarni Bragi
Jónsson, hagfræðingur.
„Hópurinn” hefur nú skilað
áliti og samið lagafrumvarp, sem
sent hefur veriö Búnaöarþingi til
umsagnar.
1. grein frumvarpsins kveður á
um að Veðdeild Búnaðarbankans
sé heimilt aö gefa út nýjan flokk
bankavaxtabréfa er eingöngu
skulu notuð til þess að breyta i
föst lán lausaskuldum bænda,
sem ekki hafa fengið nægileg lán
til hæfilegs tima vegna fjárfest-
inga,sem þeirhafa ráöist i á jörð-
um sinum á árunum 1970-1979 að
báöum árum meðtöldum, svo og
lausaskuldum vegna jaröakaupa,
véla-, bústofns- og fóöurkaupa á
sama tima.
Lánin skulu aðeins veitt gegn
veöi i fasteignum bænda ásamt
mannvirkjum á jörðinni. Láns-
kjör skulu ákveðin af stjórn Veð-
deildar i samráði við ráðherra.
Ráðherra er heimilt , með viss-
um skilyrðum, að leyfa ábúend-
um rikisjarða að veðsetja ábúð-
arjaröir sinar til tryggingar lán-
um samkv. lögunum.
Lánin, að viðbættum veðskuld-
um, sem hvila á fyrri veðréttum,
skulu ekki nema hærri fjárhæð en
75% af matsverði veðsins. Und-
antekningar eru þó heimilaðar og
skal þá matsverðið ákveðið af
dómkvöddum mönnum.
Ráðherra setur i reglugerð nán-
ari ákvæði um framkvæmd lag-
anna, svo og um frekari skilyrði
fyrir lánveitingum, ef þurfa þyk-
ir, i samráði við stjórn Veðdeildar
Búnaöarbanka tslands.
— mhg
Brot á mannréttindum
segir formadur
Félags starfsfólks
á veitingahúsum
Ég lit á þetta sem algert brot á
nannréttindum og auviröilega
'ramkomu, sagði Kristrún
Giuðmundsdóttir, formaður
Félags starfsfólks i veitingahús-
am, er Þjóðviljinn bar undir hana
ikvörðun yfirmanna á Hótel Esju
am leit á starfsfólki þar er það
yfirgefur vinnustaðinn.
Mikillar óánægju hefur gætt
meöal starfsfólks hótelsins vegna
tilkynningar sem aðstoðarhótel -
stjórinn hengdi upp i boröstofu
þess um eftirlit meö töskum og
innkaupapokum sem fólk kynni
að hafa með sér á vinnustað og
þykir gæta óþarfa tortryggni i
garð starfsliösins. Eftir að ein
starfsstúlkan haföi skrifaö um
máliö i lesendadálk eins dag-
blaðsins var tilkynningin tekin
niður af vegg borðstofunnar og
þess í stað hengd upp við stimpil-
klukku við útidyr.
— Þetta snertir aö sjálfsögðu
fleiri stéttarfélög en okkar, sagði
Kristrún Guðmundsdóttir, td.
bæði V. R. og þjónafélagið. Hins-
vegar eru karlmenn sjaldnast
með innkaupatöskur og þvi
konurnar sem taka þetta til sin.
—vh
itæfíiw
i
■< '
Til; HdteX ÉájuV.
Frá: AÍ*nto6<»r hót.olstjéra.
Starfsfólk hcteislns héfur aðgöng snyrti-og í kjaiiera,
Ntgar kcnLt «r tii vinnu ar akyU «6 ekiija «ítir £ bántnpnklei* t&ekjx-c<*
ÍMkaupapokA, e» «kki be.r& slíkt túeð su á vinnucta*.
yfirmonn Jiússunc úskila ser rétt til a6 lcita l uchúAun xem bornsí.eru cr
Viúsinu.
Lausaskuldir bœnda, sem sótt hafa um
skuldabreytingu:
Nema kr. 1.272.082
Þegar nefnd sú tók til starfa, sem unnið hefur að frumvarpi um
að breyta lausaskuldum bænda I föst lán, lágu fyrir umsóknir þar
um frá 406 bændum.
Hér fer á eftir tafla, sem sýnir fjölda umsókna eftir kjördæmum,
heildarskuldir bessara bænda. skuldir að meöaltali. hvað af þeim
eru lausaskuldir og hvað lausaskuldir eru aö meöaltali. Er hér mið-
að við fjárhagsstööu þessara bænda um áramótin 1977-1978.
Kjördæmi Fjöldi umsækj. Heildarsk. Meðalt. Þar af lausask. Meðalt.
Vesturland... 79 363.800 4.605 171.475 2.183 þús.kr.
Vestfj 27 136.100 5.040 78.465 2.906 þús.kr.
Norðurl.v. ... 47 305.570 6.501 165.193 3.514 þús.kr.
Noröur.e 93 776,542 8.350 418.496 4.500 þús.kr.
Austurland... 55 253.580 4.611 158.596 2.884 þús.kr.
Suðurland.... 105 528.968 5.038 216.674 2.064 bús.kr.
406 2364.660 5.824 1209.901 2.980 þús.kr.
Tilkynningin við stimpilklukkuna
Vist er, að þessar tölur eru mun lægri en þær verða endanlega,
þar sem 49 umsóknir hafa borist siðan þessi tafla var reiknuö út og
þeim á enn eftir aö fjölga.
Lausaskuldirnar skiptast þannig eftir fyrirtækjum og bönkum:
1. Kaupfélög..................................... 582.918 þús.
2. Búnaðarbanki.................................. 174.409 þús.
3. Landsbanki..................................... 84.969 þús.
4. Samvinnubanki.................................. 30.068 þús.
5. Útvegsbanki .................................. 22.854 þús.
6. Iðnaðarbanki.................................... 4.858 þús.
7. Verslunarbanki.................................... 528 þús.
8. Sparisjóðir................................... 124.998 þús.
9. Östaðsettirvixlar............................ 17.872 þús.
10. Einstaklingarogönnurfyrirtæki................ 228.508 þús.
Samtals 1.272.082 þús.
Umsóknirnar bera það með sér, að þeir bændur eru fjárhagslega
verst staddir, sem byrjað hafa búskap á siöustu árum eða staðiö I
verulegum framkvæmdum á sama tima.
Athyglisvert er, að þeir bændur, sem fengu skuldabreytingu
samkv. lögum frá 25. apr., 1969 virðast flestir hafa komist yfir erfið-
leikana þvi mjög fáir þeirra sækja nú um á ný. Sú skuldabreyting
hefur þvi náð tilgangi sinum og gefur þaö vonir um aö svo verði
einnig nú.
— mhg