Þjóðviljinn - 15.03.1979, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 15. mars 1979
V erslunarstjóri
Kaupfélag Vopnfirðinga óskar að ráða
verslunarstjóra i kjörbúð sem fyrst.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist Halldóri Halldórssyni
kaupfélagsstjóra eða starfsmannastjóra
Sambandsins, sem gefa nánari upplýs-
ingar.
KAUPFÉLAG VOPNFIRÐINGA
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar
vegna vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. mars 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir október, nóvember og desem-
ber 1978, og ný-álagðan söluskatt frá fyrri
tima, stöðvaður, þar til þau hafa gert full
skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt
áföllnum dráttarvöxtum og kostnaði.
Þeir, sem vilja komast hjá stöðvun, verða
að gera full skil nú þegar til tollstjóra-
embættisins við Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavik
14. mars 1979
Sigurjón Sigurðsson
AÐSTOÐARLÆKNIR
Staða aðstoðarlæknis á augndeild spital-
ans er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf skulu send yfirlækni deild-
arinnar fyrir 15. april n.k.
St. Jósefsspítalinn Landakoti
KqnvMgniiKMjjrE!
Skjalavarsla
Skjalavörðúr ósakst til starfa á Bæjar-
skrifstofurnar i Kópavogi. Æskilegt er að
viðkomandi hafi menntun i bókasafns-
fræðum.
Umsóknarfrestur er til 31. mars og skal
skila umsóknum á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Bæjarskrif-
stofunum. Allar nánari upplýsingar veitir
undirritaður.
Bæjarritarinn i Kópavogi.
Lúsaleit á Akureyri
Nýiega gerði gamall
fylgifiskur islensku þjóð-
arinnar# höfuðlúsin, vart
við sig á Akureyri. Vitn-
eskja um lúsaganginn
barst læknum á Lækna-
miðstöðinni og hjúkrun-
arkonum tveggja skóla í
siðustu viku. Við nánari
leit fannst lús hjá u.þ.b.
fimmtán einstaklingum,
fullorðnum og börnum.
A6 sögn ólafs H. Oddssonar,
héraöslæknis á Akureyri, viröist
lúsin ekki hafa náö aö breiöast
út. Lúsaleit var gerö i skólum
bæjarins, en þar fannst ekkert
umfram þaö sem áöur er getiö.
Nokkurs óróa mun hafa gætt 1
bænum þegar kvikindiö geröi
vart viö sig, en héraöslæknir lét
þau boö út ganga aö engin
ástæöa væri til aö örvænta, þvi
aö meö árvekni ætti aö vera
hægt aö uppræta lúsina.
ih
SAMFYLKING 1. MAÍ
Almennur liðsfundur
á miðvikudag
1 samræmi viö samþykktir
þátttakenda I Samfylkingu 1. mai
1978, hefur stjórn hennar ákveðiö
aö boöa til almenns liösfundar, til
aö ræöa undirbúning og tilhögun
1. mai aögeröa I ár.
Stjórnin telur rétt aö leggja
mesta áherslu á málefni, sem
tengjast kjararáns- og sam-
dráttarstefnu auövaldsins, en þvi
næst baráttuna gegn heimsvalda-
stefnunni. Meöal kjöroröa, sem
stjórnin telur rétt aö lögö veröi
áhersla á eru eftirfarandi:
Eining á grundvelli stétta-
baráttu. — Gegn stéttasamvinn-
unni, endurreisum stéttarfélögin
sem baráttutæki. — Gegn kjara-
ráns-og niöurskuröarstefnu rikis-
valds og atvinnurekenda. —
Samningana i gildi. Til baráttu
gegn allri kvennakúgun.
Gegn allri heimsvaldastefnu.
Til baráttu gegn yfirgangs- og
striösstefnu risaveldanna. —
Island úr NATO*herinn burt.
Styöjum baráttu alþýöunnar i 3ja
heiminum. (Sérstaka áherslu
þarf aö leggja á Eritreu,
Kampútseu, Palestinu, Zimbabve
og Grænland) — Gegn erlendri
stóriöju. — Gegn eyöingu fiski-
stofna. Auk ofangreinds veröi
krafan: Til baráttu fyrir sósial-
isku tslandi.
Sem áöur segir, boöar Samfylk-
ing til fundar liösmanna sinna.
Hann veröur haldinn miöviku-
daginn 21. þ.m. kl. 20:30 stundvis-
lega aö Hótel Esju. Þar er ætlunin
aö þessi mál veröi rædd og endan-
legar niöurstööur fyrir starfiö
mótaöar.
(Fréttatilkynning)
MS-félag íslands 10 ára
M.S. FÉLAG ISLANDS hefur nú
starfaö I rúm 10 ár, og gaf fyrir
skömmu út afmælisrit af því til-
efni. t ritinu er m.a. aö finna
grein um M.S. félagiö og verkefni
bess eftir Sverri Bergmann, sem
var formaöur féiagsins árin
1973-78.
Segir þar aö félagiö sé styrktar-
félag sjúklinga meö sjúkdóminn
heila- og mænusigg (Multiple
Sclerosis). Frumkvööull aö
stofnun þess var Kjartan R.
Guömundsson fyrrum prófessor
og yfý-læknir, en hann var braut-
ryöjandi i vefrænni taugasjúk-
dómafræöi á tsiandi.
Frá árinu 1946 og fram undir
þennan dag hafa sem næst 250
einstaklingar veriö djúkdóms-
greindir með öruggan eöa lik-
legan MS hér á landi. Konur eru i
meirihluta — þannig, aö 10 konur
hafa sjúkdóminn fyrir hverja 7
karla. Algengi sjúkdómsins, þ.e.
hversumargireruá lifi meöhann
á hverjum tima, er sem næst 60
fyrir hverja 100.000 ibúa. Svarar
þetta til þess, aö hér séu lifandi á
hverjum tima meö sjúkdóminn
135 manns. A hverju ári má búast
viö 12 nýjum einstaklingum. Al-
gengast er aö sjúkdómurinn byrji
á aldrinum 25-35 ára. Ættgengi
finnst hjá 7% sjúklinganna. -
U.þ.b. 12% sjúklinganna eiga viö
sjúkdóminn aðstriöa i svo erfiöri
mynd aö þeir þarfnast fyrr eöa
siöar vistunar áh júkrunar og/eöa
endurhæfingarstofnunum. Þeim
88% sem þá veröa eftir má skipta
i tvo hópa nokkuö jafna aö stærö.
I öörum hópnum eru þeir, sem
þrátt fyrir nokkra og jafnvel
umtalsveröa bæklun á stundum
geta I öllum tiivikum dvalist á
heimilum meöal sinna, gengiö að
einhverjum heimilisstörfum eöa
jafnvel unniö valin störf utan
heimilis. 1 hinum hópnum eru svo
þeir, sem hafa enga eöa þá svo
litla bæklun af sjúkdómnum, aö
engin umtalsverö röskun veröur á
lifi þeirra.
Sverrir lýsir siöar I greininni
helstu einkennum sjúkdómsins
M.S., en tekur fram aö mjög erfitt
sé aö útskýra hann, enda sé
enginn sjúkdómur, jafnalgengur
og M.S., eins óútreiknanlegur og
hann.
I grein um heila- og mænusigg,
sem birter i afmælisritinu, segir
Guömundur Pétursson aö fá
mannleg mein séu og hafi verið
meira rannsökuö en MS, en þó sé
lausn gátunnar um orsakir þess
enn ófundin.
Fyrsti formaöur M.S. félagsins
var Haukur Kirstjánsson yfir--
læknir, og gegndi hann for-
mennsku i' 5 ár, eöa þartil Sverrir
Bergmann tók viö. Núverandi
stjórn var öll kosin á siöasta ári,
enhana skipa: GrétaS. Morthens
formaöur, Sigriöur Marinósdóttir
varaformaður, Eirikur Einarsson
gjaldkeri, Ingibjörg Aradóttir
ritari og Sigriöur M. Stephensen
meöstjórnandi.
ih
Menningartengsl Islands og Ráðstjórnarríkjanna:
Kvikmyndasýningar
og fyrirlestrar
A næstu vikum, i mars og april,
gengst MtR, Menningartengsl ts-
lands og Ráöstjórnarrikjanna,
fyrir flutningi nokkurra erinda I
MtR-salnum, Laugavegi 178.
Stuttar heimildarkvikmyndir
veröa sýndar meö hverjum fyrir-
lestri.
Erindi þessi veröa sem hér
segir:
Fimmtudaginn 22. mars kl.
20.30 gerir Georgi Faranfonov,
sendiherra Sovétrikjanna á ts-
landi, grein fyrir sovéskum viö-
horfum á sviöi utanrikismáia i
ljósi hinnar nýju stjórnarskrár
Sovétrikjanna, sem tók gildi i
október 1977.
Laugardaginn 24. mars kl. 15
segir Höröur Bjarnason fyrrv.
húsameistari rikisins frá ferö
sinni til Sovétríkjanna i fyrra I
boöi samtaka sovéskra arkitekta.
Laugardaginn 31. mars kl. 15
ræðir Vladimir K. Vlassov,
sovéski verslunarfulltrúinn á ls-
landi, um efnahagssamvinnu
sósialiskra rikja og störf „Ráös
gagnkvæmrar efnahagsaö-
stoöar” (KOMEKON), en um
þessar mundir eru liöin 30 ár frá
þvi ráöiö tók til starfa.
Laugardaginn 7. april kl. 15
segir Guörún Kristjánsdóttir
læknir, sem stundaöi nám og
starfaöi um nokkurt árabil i
Sovétrikjunum, frá ýmsu er
varðar stööu og kjör sovéskra
barna.
Laugardaginn 28. april kl. 15
segir Oskar B. Bjarnason, efna-
verkfræöingur, feröaminningar
frá Alma-Ata, höfuöborg sovét-
lýöveldisins Kazakhstan, og
einnig veröur greint frá „Sovésk-
um dögum MIR” sem fyrirhug-
aöir eru i september i haust meö
þátttöku listamanna frá þessu
sovétlýöveldi i Miö-Asiu.
Siöar veröur tilkynnt um
erindaflutning fyrirlesara sem
væntanlegur er hingaö til lands
frá Sovétrikjunum á vegum MIR i
vor.
MtR hefur i vetur sýnt sovéskar
kvikmyndir fullrar lengdar hvern
laugardag i salnum aö Laugavegi
178, nú aö undanfömu t.d. nokkrar
gamlar sovéskar barnamyndir,
og veröur þessum sýningum
haldiö áfram fram á vor. Þær
falla þó niöur þá laugardaga sem
fyrirlestrar veröa. Um páskana
verða sýndar nokkrar styttri
heimildarkvikmyndir um ýmis
efni og eru allmargar myndanna
meö skýringartali á Islensku.