Þjóðviljinn - 15.03.1979, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 15. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 17
Róbert
Hjalti
Gubmundur
Leynilegar
siglingar
útvarp
í kvöld kl. 20.50 verður
flutt leikritið „í afkima”
eftir William Somerset
Maugham. Þýðinguna
gerði Torfey Steinsdótt-
ir, en leikstjóri er Rúrik
Haraldsson. Með
stærstu hiutverkin fara
Róbert Arnfinnsson,
Guðmundur Pálsson og
Hjalti Rögnvaldsson.
Flutningur leiksins tek-
ur um 100 minútur.
Leikurinn gerist að mestu i
Austur-Indium, þar sem Nichols
skipstjori siglir skútu sinni milli
eyja i leynilegum erindagerðum,
sem hann sjálfur veit næsta litið
um.
William Somerset Maugham
fæddist i Paris árið 1874. Hann
stundaði nám iheimspeki og bók-
menntum viö háskólann i Heidel-
berg og læknisfræðinám um tima
i Lundúnum. I heimsstyrjöldinni
fyrri var hann læknir á
vigstöðvunum i Frakklandi, og
má rekja sum verk hans þangað,
m.a. leikritið „Hve gott og fag-
urt", sem sýnt var i þjóðleikhús-
inu. Nokkur fleiri leikrit hans
hafa verið sýnd á Islensku sviöi,
og yfir 20 flutt i útvarpinu, en af
þeim eru raunar mörg samin upp
úr smásögum eftir hann. A seinni
strfðsárunum dvaldist Maugham
i Bandarikjunum, en siðan að
mestu i Frakklandi, þar sem
hann lést árið 1965 i hárri elli.
Stökkbreyting-
arí tónlistinm
Þeir Asmundur Jóns-
son og Guðni Rúnar
Agnarsson sjá um
Áfanga kl. 23.10 i kvöld.
Að sögn Guðna Rúnars
er þessi þáttur tengdur
hinum siðasta, en þar
var f jallað um breyting-
ar sem orðið hafa hjá
ýmsum tónlistarmönn-
um á siðari árum.
— I siðasta þætti var um að
ræða einskonar endurhvarf til
upprunans. Þetta voru tónlistar-
menn sem komu upp um miöbik
siðasta áratugs og þróuð-
ust úr þjóðlagatónlist gegnum
rokkið og voru komnir aftur i
þjóðlögin. Tekin voru dæmi, sér-
staklega af breskum tónlistar-
mönnum, sem búnir voru að fjar-
lægjast upprunann talsvert mik-
iö, en hafa nálgast hann aftur á
siðustu tveimur árum.
1 kvöld verður aftur á móti
fjallaö um tónlistarmenn sem
hafa tekiö stökkbreytingum frá
einni plötu til annarrar. Stund-
um er um einskonar hlið-
arstökk að ræöa. Viö tökum
sem dæmi þrjá tónlistar-
menn sem voru áöur meölimir
hljómsveitarinnar Byrds. Sú
hljómsveit kom fram á sjónar-
sviðiði byrjun slðasta áratugs og
var aðallega i bandarisku þjóð-
lagarokki. Nú fyrir nokkrum vik-
um gáfuþessir þrir, sem kalla sig
McGuinn, Hillman og Clark, út
nýja plötu saman eftir nokkuð
langan aðskilnað, og má segja að
sú plata beri ekki sterkan keim af
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. Um-
sjónarmenn: Páll Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir
ýmis iög aö eigin vaU. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Geir Christensen heldur
áfram að lesa „Stelpurnar
sem struku” eftir Evi Böge-
næs (3).
9.20 Leikfimi
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir
ýmis lög, frh.
11.00 Vcrslun og viöskipti.
Umsjón: Ingvi Hrafn Jóns-
son.
11.15 Morguntónleikar:
Dietrich Fischer-Dieskau
syngur lög eftir Giacomo
Meyerbeer. Karl Engel
leikur á pianó/Liv Glaser
leikur Pianósónötu op. 7 i
e-moU eftir Edvard Grieg.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Viö vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Námsgreinar I grunn-
skóla. Birna Bjarnleifs-
dóttir tekur saman þáttinn.
FjaUaö um kennslu i' stærð-
fræöi og eðlis- og efnafræði.
Rætt við námsstjórana
önnu Kristjánsdóttur og
Hrólf Kjartansson.
15.00 MiðdcgistónleUiar:
Itzhak Perlman og FII-
harmoniusveit Lundúna
leika Fiðlukonsert nr. 2 i
d-moU op. 22 eftir Henryk
Wieniawski. Seiji Ozawa stj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
16.40 Lagiö mitt: Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Pofli, égog allir hinir” eft-
ir Jónas Jónasson. Höf-
undur les (2).
19.00 Fréttir. Fréttaauki. TU-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Arni
Böðvarsson flytur þáttinn.
19.40 Viö erum öll heim-
spekingar. Þriðji þáttur Ás-
geirs Beinteinssonar um
lifsskoöanir og mótun
þeirra. Rætt viö Bjarna
Bjarnason lektor,.
20.30 Sellósónata I C-dúr op. 65
eftir Benjamin Britten.
Mstislav Rostropovitsj og
höfundur leika.
20.50 Leikrit: ,,t afkima” eftir'
Wiiliam Somerset Maug-
ham. Þýðandi: Torfey
Steinsdóttir. Leikstjóri:
Rúrik Haraldsson.
Persónur og leikendur:
Nichols skipstjóri: Róbert
Arnfinnsson. Saunders
læknir: Guðmundur Páls-
son. Fred Blake: Hjalti
Rögn valdsson. Patrick
Ryan: Erlingur Gislason.
Erik Christensen: Helgi
Skúlason. Swan: Valdemar
Helgason. Louise: Ragn-
heiöur Steindörsdóttir. Frú
Hudson: Þóra Friöriks-
dóttir. Patrick Hudson:
Hákon Waage. Frú Nichols:
Guðrún Stephensen. Aðrir
leikendur: Guöjón Ingi
Sigurðsson og Emil Guð-
mundsson.
22.30 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passiusálma (28).
22.55 Viðsjá: Friörik Páll
Jónsson sér um þáttinn.
23.10 Afangar Umsjónar-
menn: Asmundur Jónsson
og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
því sem þeir gerðu áöur; þetta er
mun léttari músik. Eitt lagið sem
viö leikum af þessari plötu er þó i
hefðbundnum Byrd-stil, og má
lita á það sem tengingu við siö-
asta þátt.
Annað dæmi er Mike Heron,
sem áður var meðlimur The
Incredible Stringband, en það var
skosk þjóðlagahljómsveit sem
kom fram um 1965. Heron hefur
sagt skilið viö þessa þjóðlegu
skosku hefð, og er kominn nær
rokki samtimans.
Viö verðum með ýmis fleiri
dæmi, sem oflangt yrði upp að
telja, sagði Guöni Rúnar aö lok-
um.
ih
Rostropovitsj
Snillingar
Tveir stórlaxar i músikinni ætia
að gleðja eyru hlustenda I kvöld:
Benjamin Britten og Mstislav
Rosh-opovitsj. Þeir leika saman
Sellósónötu I C-dúr op. 65 eftir
Britten og eru þessi herlegheit á
dagskrá kl. 20.30.
Benjamir? Britten var sem
kunnugt er eitt þekktasta tón-
skáld okkar tima, en hann lést
fyrirtveimur árum. Nokkru áður
haföi hann verið aðlaður, en hann
náði ekki að setjast I Lávarða-
deildina. Að sögn Guðmundar
Gilssonar hjá tónlistardeild út-
varpsins var Sellósónatan sem
flutt verður i kvöld i undirbúningi
haustið 1960, þegar Britten dvald-
ist i friii Grikklandi, oglauk hann
við hana i desember-janúar i
Aldenburgh. Verkið er „inspirer-
að” af Mstislav Rostropovitsj og
tileinkað honum. Það má þvi
segja að verkið fái réttanflutning
i höndum þessara tveggja meist-
ara.
ih
PÉTUR OG VÉLMENNIÐ
G-ER'Jto ÞÖ1 Motií) oR K(J'
- KL-öéJÁ 1
Eftir Kjartan Arnórsson
.CV— —-— ..
_... • —1.
fiTH- 'JecmPi ^5 flj?Kí.o/Aí
-Q-ÖrJGU &R ORKU, £R HM öhy’tiilEG
Umsjón: Helgi Olafsson
Deildar-,
keppni SI
Taflfélag Reykjavikur hef-
ur nú svo gott sem tryggt sér
sigur i Deildarkeppni
Skáksambands tslands eftir
6tu og næstsiðustu umferðina
sem tefld var um helgina. Að
visu hafa ekki öll taflfélög 11.
deild lokið 6 umferöum, en
þau taflfélög sem sterkustu
sveitunum hafa á að skipa
eru langt komin meö aö ljúka
keppni. TR sendi mjög
sterka sveit austur á Egils-
staði þar sem teflt var við
Skáksamband Austurlands.
Úrslitin uröu 8-0, TR I vil en
þess má þó geta aö nokkra af
sterkustu skákmönnum
Austurlands vantaði. Liö TR
var skipaö eftirtöldum
mönnum eftir borðaröö: 1.
borð: Helgi Ólafsson 2. borð:
Margeir Pétursson 3. borð:
Sævar Bjarnason 4. borð:
Björn Þorsteinsson 5. borð:
Jóhann Hjartarson 6. borð:
Jónas P. Erlingsson 7. borð:
Jóhannes G. Jónsson 8. borð:
Elvar Guömundsson.
En önnur viðureign fór
fram i 1. deildinni. Mjölnir
sigraöi Taflfélag Kópavogs
með 5 l/2v. gegn 2 1/2. Staða
efstu taflfélaganna er þessi:
1. TR 36 1/2.
2. Mjölnir 29 l/2v.
3. Akureyri 27v.
4. Kópavogur 22v. (6 viður-
eignir)
Eins og sjá má þarf
Mjölnir aö vinna TR 8-0 i
siðustu umferð til aö tryggja
sér sigur i keppninni. Þáttinn
endum við á 1. borös viöur-
eigninni i keppni TR og
Skáksambands Austurlands.
Lesendur eru aö sjálfsögöu
beðnir velviröingar á að
greinarhöfundur skuli eiga
hér hlut að máli:
Hvftt: Helgi Ólafsson
Svart: Trausti Björnsson
Kóngsindversk vörn
1. C4-RI6 6. dxc5-dxc5
2. Rc3-g6 7. Dxd8+-Kxd8
3. e4-d6 8. Be3-Rfd7
4. d4-Bg7 9. 0-0-0-Bxc3?
5. f3-c5
(Ótimabær leikur. Betra er
9. -b6 10. f4 Bxc3 11. bxc3 Bb7
12. Rf3 Ke8 13. e5 Bxf3 14.
gxf3 f5 15. exf6 Rxf6 16. f5!
sbr. skákina Spasski —
Gheorghiu, Moskvu 1971.)
10. bxc3-b6
11. h4-h5
12. e5-Ke8?
(Onnur ónákvæmni. 12. -e6
var skárra þó veikleikarnir á
svörtu reitunum séu óneitan-
lega iskyggilegir.)
I*A ¥ 1
m iiiii
i i
II ■ S i
ÍM^ &
n A n
riS? o mm
!g§ Ð wé A *
ÉM & Æ
13. e6!-fxe6
14. Bd3-Bb7
(14. -Re5 strandar á 15. Be4
o.s.frv.)
15. Bxg6+-Kf8
16. Rh3-Kg7
17. Bc2-Re5
18. Rg5-Kf6
(Eöa 18. -Rxc4 19. Rxe6+
Kf6 20. Bg5! Kxe6 21. Hhel+
Kf7 22. Hxe7+ Kf8 23.
Hd8 mát.)
19. Hhel-Rbc6
(19. -Rxc4 20. Bxc5! o.s.frv.)
20. Bf4!-Had8
21. Hxd8-Hxd8
22. Bxe5+-Rxe5
23. Rh7 + !
— Svartur gafst upp. Hann
tapar manni án nokkurra
bóta.