Þjóðviljinn - 18.03.1979, Síða 9
Sunnudagur 18. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
011 matar og drykkjarföng koma
meðbátnum sem sækir rækjuna.
tbúarnir eru mest karlmenn á
besta aldri, eitthvaö af konum,
fáeinir rollingar og smábörn og
einn öldungur sem fræðir mig á
þvi að ég sé fyrsti ferðamaðurinn
á þessum slóðum i nær tvö ár.
Þeir koma flestir frá Las Palmas,
litlu þorpi litlu ofar og nær Aca-
petagua.
t fjöruboröinu voru óteljandi
fleytur : holaðir trjábolir ofan úr
fjöllum Chiapas. Ég stökk i land
meðpokann minn, settist niður og
tók utan af appelsínu. öldung-
urinn spuröi hvort ég ætlaði að
gista. Ég játaði þvi og bað hann
að segja mérhvortekkiværihægt
að koma fyrir stóru hengirúm
einhversstaðar. Kvaö hann engin
vandkvæði á þvi.
Eins og hver annar túristi hóf
ég myndavélina á loft og með
hennar hjálp var ég brátt kominn
i hörku samræður við innfædda.
Allir vildu ljá mér stráþak yfir-
höfuðið. Það var miður dagur.
Fiskimennirnir biðu eftir að sólin
lækkaði á lofti, en þá ætluðu þeir
aðýta frá landi. t morgunsvalan-
um og kvöldgolunni var rækjan
duglegust við aö hreyfa sig. Ég
var þreyttur eftir langa ferð og
lagði mig undir þakinu hjá hress-
um félögum. Aður en ég sofnaði
bað ég þá að vekja mig þegar þeir
færu aö veiða. Moskítóflugurnar
kunnu svo sannarlega að meta
nýtt og ferskt blóð frá annarri
heimsálfu.
Veiðar
Það var farið aö rökkva þegar
ég rumskaði. Eintrjáningunum
var ýtt frá landi einum af öðrum.
Ég fékk að fara með. Fiskimenn-
irnr voru ekki lengi að stjaka
fleytunum út á rækjumiðin, enda
leiðin ekki nema 200 metrar.
Veiðiaðferöin var einföld.
Hringlaga kastneti var hent út i
vatnið og það dregið inn i bátinn
jafn skjótt aftur. Fáeinar rækjur
sem voru svo óheppnar að lenda i
netinu, fellu á bátsbotninn. Aflinn
gat oröiö ein 10 kiló i hverri veiði-
ferð, og á þeim tima var hægt að
fá um 130 pesur (460 ikr.) fyrir
kilóið. En aflinn gat látið standa á
sér og veiðitiminn var aöeins þrir
mánuðir.
i u.þ.b. þrjá klukkutima var
stanslaust kastað. Þegar myrkr-
iö lagðist yfir lóniö, var kveikt á
litlu oliuljósi i stafni bátanna. Þaö
var hátiðlegt um að litast þegar
fleyturnar fimmtiu héldu að
landi, allar með lifandi ljós i
stafni. Hversu litilfjörleg verða
öll neonljósin á Broadway i sam-
anburði við þessa sjón.
Gestrisni
Afturmeðfast landundir fótum
fann ég að vera min i Chantuto
hafði vakið athygli. Forvitnin og
gestrisnin knúðu einn ungan
mann til að bjóða mér i mat og
allt það besta sem til var i kotinu',
að islenskum sið. Undir stráþaki
bjó hann með barnshafandi konu
og mágkonu. Brátt var fjölmennt
undir þakinu. Mér var fenginn
gitar i hendur og spurt hvort ég
kynni ekki eitthvað frá landi
minu. Visan um Nonna sjóara
vakti fögnuð og hlátur.
Þegar flestir höfðu svalað for-
vitni sinni og gítarinn var aftur i
höndum eiganda sins, sátum við
fjögur eftir. Ég þakkaði fyrir mig
og hélt i næsta hús þar sem mér
hafði verið boðið uppá steikta
banana og kaffi.
Fram eftir kvöldi sátum við
yfir kaffibollum og ræddum mál-
in. tfari gestgjafa minna fann ég
greinilega fyrir vanmáttarkennd
gagnvart mér hvítum útlendingn-
um sem hafði farið viða, verið i
skóla og kunni tungumál. Þeir
áttu engan Egil eða Gunnar á
Hlíðarenda einsog kotungar á Is-
landi fyrr á öldum. Vestrænni
menningunútimanskynntust þeir
gegnum Pepsikóla, hveitibrauð,
sigarettur og transitorútvarp,
sem flutti rafmagnaða tónlist
daginn út og inn. Þetta var arð-
rænt, glaðvært og gestrisiö fólk
sem fiskaði rækju við strendur
Kyrrahafsins. Þetta var litið
samfélag þar sem allir urðu að
treysta öllum. Það voru ekki til
læstar dyr i þessu þorpi. Sólin
skein lika jafnt á þá alla.
T.F.
Ingibjörg Haralds-
dóttir skrifar um
k vikmyndir
Ameríski
draumurinn
Alltaf jafn einbeittur
á svipinn —
og aldrei haggast
hárgreiðslan
Það hefur varla farið
framhjá neinum, að í
Bandaríkjunum er um
þessar mundir mikið
framleitt af rándýrum og
rækilega auglýstum „stór-
myndum". Við höfum
fengið smjörþefinn af
þessari framleiðslu:
Okindin 1 og 2, King Kong,
Stjörnustríð og Close En-
counters eru bestu dæmin.
Myndir af þessu tagi eru ekki
nýjar i kvikmyndasögunni, þær
hafa verið að koma á markaðinn
af og til allt frá bernskudögum
kvikmyndanna. En þessi tilhneig-
ing hefur þó aldrei verið eins
áberandi og siöan samkeppnin
viö sjónvarpiö varð að verulegu
vandamáli. Þá þótti ýmsum auð-
sætt að kvikmyndin gæti aöeins
keppt við sjónvarpið með þvi að
þenja sig út á þann hátt sem
imbakassanum er fyrirmunaö að
gera. Þessi samkeppni varð stöð-
ugt harðari, með tilkomu full-
komnari sjónvarpstækja og loks
litasjónvarps.
En samkeppnin við sjónvarpið
er ekki eina ástæðan fyrir þvi að
gerðar eru stórmyndir af þvi tagi
sem hér um ræðir. Þar kemur
margt fleira til.
Stórslysamyndir og ævintýra-
myndir eru til þess gerðar —
meðvitaö eður ei — aö hjálpa fólki
til aö gleyma raunveruleikanum,
og það er engin tilviljun aö þær
veröa tilá timum efnahagslegrar
og siöferðilegrar kreppu.
Nýjasta stórmyndin heitir
Superman(USA 1978). Af þessari
mynd hafa þegar borist hingað
miklar sögur, og verður hún
páskamynd Háskólabiós i ár.
Þeir eru nefnilega ekkert blankir,
bióstjórarnir okkar, þegar svona
myndir eiga i hlut!
Auglýsingaherferðin i kringum
Superman er dæmigerð. Hún
hófst tveimur árum áður en byrj-
að var aö kvikmynda. Fyrst
komu fréttir af þvi að myndin
væri i bigerð, að hún ætti að kosta
mikið og verða algjört tækniund-
ur. Svo komu fréttir af hrossa-
kaupum með stjörnur. Það var
ekkert smáræði sem Marlon
Brando þurfti til að láta sannfær-
ast. Næst koma ótal kjaftasögur
— einsog af tilviljun. Þegar jarð-
vegurinn hefur verið plægður
þannig árum saman kemur svo
myndin sjálf. Samkvæmt ná-
kvæmlega útfæröum áætlunum
fjármálasnillinganna sem á bak
við fyrirtækið standa eiga áhorf-
endur þá aö vera orðnir nógu for-
vitnir til aö hópast i biðraðirnar.
1 febrúarhefti danska timarits-
ins Levende Billeder er fjallaö
itarlega um Superman — the
Movie. Þar er m.a. að finna upp-
lýsingar um tæknibrellurnar,
sem notaöar eru i myndinni. Að-
standendur myndarinnar hafa
veriö meira en litið tregir til að
upplýsa fólk um þessar brellur,
og mætti halda að þær væru
splunkunýjar og dularfullar. Svo
er þó ekki. Mikið af tækninni er
gamalt, og hefur verið óspart not-
að allt frá upphafi kvikmynda-
geröar. Hinsvegar hefur þessi
tækni liklega ekki I annan tima
náö slikri fullkomnun.
Flug „súpumannsins” er i
flestum tilvikum kvikmyndað
meö sömu aðferð og notuð var I
myiidinni Lestarrániö mikla, sem
gerö var 1903. Aðferöin er i stuttu
máli fólgin i þvi, aö tvær sjálf-
stæðar upptökur eru tengdar
saman á eina filmu. Leikarinn
„flýgur” i upptökusalnum og er
kvikmyndaður á svörtum grunni,
sem siðan er máður út af filmunni
Myndin um Superman er að
langmestu leyti byggð upp á
brellum, eða „special effects”
einsog þær heita á ensku, og á hún
það sameiginlegt með öörum
stórmyndum samtimans. Sé horft
framhjá þeim verður harla litið
bitastætt i myndinni. Það sem þá
verður eftir er (einsog t.d. i
Stjörnustriði) fremur barnalegt
ævintýri „fyrir alla fjölskyld-
una”.
Sagan um Superman varð til
árið 1938, og allar götur siðan hef-
ur þetta fljúgandi stálmenni verið
einskonar tákn Bandarikjanna,
álika þekkt og Coca-Cola. Super-
man er tæknivætt ofurmenni, sem
kemur af himnum til að „frelsa”
okkur auma jarðarbúa. Þetta er
3ú imynd sem Bandarikjamenn
vilja snúa aö hinum fátækari
þjóöum heims.
En ef við reynum lika að horfa
framhjá alvarlegum fyrirbærum
einsog heimsvaldasinnaöri inn-
rætingu viröist gagnrýnendum
bera saman um það. að i mynd-
inni um Superman sé að finna
pokkalegan húmor. Hetjan sjálf
?r leikin af Christopher Reeve,
sem sagöur er hafa til að bera
dágóðan skammt af sjálfshæöni.
Enda þýddi vist litið að bjóða
ihrofendum nútimans upp á þaö
lúmorleysi sem lengstaf ein-
kenndi teikniseriurnar um Super-
r.an. Sagt er að myndin veki mik-
inn fögnuð áhrofenda, ekki sist
vegna fyndinna tilsvara og
skemmtilegra atriða.
Þaö þarf vist ekki að taka það
sérstaklega fram, að Superman
nr. 2 er þegar kominn i fram-
leiðslu. Sjálfsagt finnst fjármála-
snillingunum ekki taka þvi að
leggja út i svo kostnaðarsamt fyr-
ir tæki nema útkoman veröi
a.m.k. tvær stórmyndir.
Fljúgandi stálmennið Superman er væntanlegt i Háskólabió um pásk-
ana.
meö sérstökum lýsingaraðferð-
um, þannig að við framköllun
verður filman glær allt i kringum
leikarann. Hinsvegar er hinn
raunverulegi bakgrunnur kvik-
myndaður, og er þá kvikmynda-
vélin staðsett i þyrlu sem flýgur
t.d. milli skýjakljúfa i New York.
Með nokkrum framköllunum og
mikilli vandvirkni næst svo sá ár-
angur sem til var ætlast: Super-
man flýgur.
önnur helsta tæknibrellan I
Superman er litiö yngri en sú
fyrri: það er módelsmiöi. Þegar
kjarnorkuhlaðin eldflaug dembir
sér niður i Kaliforniu og leggur
allt i rúst er um aö ræða ná-
kvæma eftirlikingu af iandslagi
og mannvirkjum, sem smíöuð var
og sett upp i Pinewood-kvik-
myndaverinu i Englándi.
Enn aukin þjónusta
Höfum opnaó
Smurstöð í GarÖabse
Við hliðina á SHELL bensínstöðinni við Vífilsstaðaveg
Þar bjóðum við bifreiðaeigendum fjölbreytta
þjónustu, meðal annars:
• alhliðasmurningsvinnu
• loft-og olíusíuskipti
• endurnýjun rafgeyma og tilheyrandi hluta
• viftureimaskipti, rafgeymahleðsla, ofl. ofl.
Olíufélagið Skeljungur hf.
Smurstöð Garðabæjar
Þorsteinn Ingi Kragh
Sími: 42074
Verið velkomin og reynið þjónustuna hjá liprum og vönum mönnum.