Þjóðviljinn - 18.03.1979, Page 11
Sunnudagur 18. mars 1979 ÞJÓDVILJINN — SIÐA II
Umsjón: Helgi ólafsson
Max Euwe. Þannig Iltur hann út I dag.
EinvigiA kemst á laggirnar. Euwe er meö kringlóttu gleraugun, en Aljékln situr brosandi viö hliöina á
honum. A myndinni eru einnig nokkrir framkvæmdaaöiiar einvigisins.
MAX EUWE
hinn fráfarandi forseti FIDE
Krýndur heimsmeistari. Sama dag var lýst yfir þjóöhátiö f Hollandi.
Þegar Heimsmeistaraein-
vlgiö milii Spasskis og Fischers
var háö hér áriö 1972 þurfti
gamall og greinilega lúinn
maöur oft aö kveöa sér hljóös.
Hann hét Max Euwe, þáverandi
forseti FIDE. Ýmsar ákvarö-
anir hans þá og siöar þóttu ákaf-
lega vafasamar.
Ég efast um aö öllum sem
fylgdust meö einviginu sumariö
góöa hafi veriö fullljóst aö
þarna fór fyrrum heims-
meistari i skák, skákmeistari
sem teflt hefur viö aila 11
heimsmeistarana aö þeim
Karpov og Steinitz, fyrsta
heimsmeistaranum ■ undan-
skildum.
Um störf Euwe sem forseta
FIDE hefur mikiö veriö rætt og
ritaö og margt misjafnt látiö
flakka. Bent Larsen er sá
stórmeistari sem hvaö haröast
hefur gagnrýnt störf Euwe,
enda ekkert stórfuröulegt þvi
margar ákvaröanir Euwe I
starfi forsetans hafa reynst
Larsen illa svo ekki sé meira
sagt. Milli þeirra andar köldu og
Larsen hefur ekkert fariö leynt
meö álit sitt á gamla mann-
inum:
Elliær, er einkunnarorö
danska stórmeistarans um
gamla manninn og raunar hafa
fleiri tekiö upp hanskann fyrir
Larsen og enn fleiri telja
Friörik ólafsson heppnasta for-
seta FIDE frá upphafi. Störf
hans veröi fyrst og fremst
miöuö viö störf fráfarandi for-
seta og þar sé um hagstæöan
samanburð aö ræöa, I meira
lagi. Þvi sem Euwe hefur látiö
gott af sér leiöa er enganveginn
hægt aö gleyma. Þannig er
vafasamt aö einvigi Fischers og
Spasskls heföi farið fram án
þeirra stórvafasömu ákvaröana
sem Euwe tók.
En þaö eru ekki störf Euwe
hjá FIDE sem ég ætla aö gera
skil i þessum þætti, heldur skák-
ferli hans. Sögu Heimsmeistara-
keppninnar á fjóröa áratugnum
veröur helst likt viö þaö fyrir-
komulag sem ræöur rlkjum i
hnefaleikakeppnum vorra daga.
Heimsmeistarinn gat i raun
valiö hvern hann vildi tefla viö
og FIDE gat engin áhrif haft
þar á. betta kom mjög illa viö
Capablanca sem i upphafi 4öa
áratugsins var sá skák-
maöur sem næst stóö Aljékín aö
styrk og voru reyndar mikil
áhöld hvor var sterkari. Þeir
háöu sitt sögufræga einvlgi áriö
1927 og frá þvi sauð allt uppúr.
Hvorugur mátti heyra á hinn
minnst og einvigi viö Capa kom
ekkitilálita hvað þá meira hjá
Aljékin. Seinni tima menn hafa
álasaö Aljékin fyrir afstööu sina
og óneitanlega hafa þeir eitt-
hvaö til sins máls. A.m.k. var sá
andstæöingur sem Aljekin valdi
sér næst, þýski stórmeistarinn
Bogoljubov, langtum lakari
skákmaöur en Capablanca.
Einhverntimann á árinu 1934
féllst Aljékin á aö tefla viö Max
Euwe. Heimsmeistaratitillinn
var lagöur undir. Einviginu var
valinn staöur i Hollandi, nánar
tiltekið Amsterdam.og sjálfsagt
hefur Aljékin búist viö auö-
veldum sigri. Fyrstu skákirnar
virtust renna stoöum undir þá
vissu hans þvi áöur en varöi var
hann kominn með þriggja vinn-
inga forskot. Viö hiö mikla for-
skot geröist hann værukær um
of og tók að bergja á uppáhalds-
drykk sinum skosku viskii
meira en góöu hófi gegndi.
Euwe lét áföllin hinsvegar
ekkert á sig fá, undirbjó sig fyr-
ir hverja skák af alúö og ein-
beitni og smátt og smátt náöi
hann aö saxa á forskot Aljékins.
Undir lokin tókst honum jafnvel
að komast uppfyrir heims-
meistarann og þegar allar
skákirnar 30 talsins höföu veriö
tefldar, haföi Euwe hlotiö 15 1/2
vinning en Aljékin 14 1/2. Nýr
heimsmeistari var tekinn viö.
Heimsmeistaratiö Euwe var
stutt, aöeins tvö ár. Þegar ein-
viginu viö Aljékin var lokiö
féllst Euwe á aö þeir reyndu
aftur meö sér. Einhver benti á
aö nær væri aö gefa Capabianca
kost á aö tefla um titilinn en
Euwe var á ööru máli. 1 seinna
einviginu kom Aljékin a.m.k.
tviefldur til leiks og vann meö
gífurlegum mun, 15 1/2 — 9 1/2.
Þaö einvigi reyndist siöasta ein-
vigi Aljékin þvi nú braust seinni
heimsstyrjöldin út og skákinni
var þokað til hliðar.
Þegar Aljékin lést svo áriö
1946 var ákveöiö aö breyta um
reglur varöandi HM-keppnina.
Fyrst var ákveðiö aö halda
keppni 6 sterkustu skákmanna
heimsins, Botvinnik , Euwe,
Reshevski, Keres, Smyslov og
Fine. Fine mætti ekki til leiks en
i keppni hinna 5 vann Botvinnik
yfirburðasigur og staöfesti
ægistyrkleika sinn.
Mótiö olli Euwe gifurlegum
vonbrigöum þvi hann varö lang-
neöstur, hlaut aöeins 4 vinninga
af 20 mögulegum. Eftir þá
frammistööu náöi hann sér
aldrei á strik, hann tefldi aö visu
oft i mótum meö ágætum
árangri en varö aldrei framar
gjaldgengur i hópi sterkustu
stórmeistaranna. Arið 1970 var
hann kjörinn forseti FIDE og
fjórum árum siöar endur-
kjörinn.
Hvaö sem mönnum þykir um
þennan hávaxna og látlausa
mann þá mun nafn hans óum-
deilanlega veröa tengt skák-
sögunni langt fram i aldir. Skák
þáttarins er aö sjálfsögöu tefld
af hinum fráfarandi forseta.
Hún var tefld i fyrra einviginu
viö Aljékin og meö sigri I henni
hratt Euwe úr vegi afar mikil-
vægri hindrun á leibinni til
Heimsmeistaratignarinnar:
Amsterdam 1935
26. einvigisskák:
Hvítt: Max Euwe
Svart: Alexander Aljékin
llollensk vörn
1. d4-e6
2. C4-I5
( Þannig tefldu menn (og
tefla enn) hollensku vörnina i
gamla daga. 1. — f5 er taliö
áhættusamt vegna gambitsins
2. e4.)
3. g3-Bb4 +
4. Bd2-Be7
(Einkennandi fyrir Aljékin.
Hann haföi þá trú aö biskupinn
væri engu betur staösettur á d2
en cl.)
5. Bg2-Rf6
6. RC3-0-0
7. Rf3-Re4
8. 0-0-b6
(1 24. skák þessa einvigis lék
Aljékin 8. — Rc6.)
9. Dc2-Bb7
10. Re5-Rxc3!
(Aljékin er samur viö sig.
Hann sér ( — eöa öllu heldur sá)
aö 11. Bxb7 Rxe2+ 12. Kg2 Rxd4
13. Dd3 Rbc6 14. Bxa8 Dxa8 er
svörtum i hag.)
11. Bxc3-Bxg2
12. Kxg2-Dc8
13. d5-d6
14. Rd3-e5
15. Khl-c6
16. Db3-Kh8
17. f4-e4
18. Rb4-c5
19. Rc2-Rd7
20. Re3-Bf6?
(Aljékin uggir ekki aö sér.
Textaleikurinn gefur hvitum
Framhald á 22. siðu
ftireittár
æflumvið...
Hvaö er langt síöan fjölskyldan
astlaði sér aö kaupa uppþvottavél,
nýtt sófasett, litasjónvarp, jafnvel
ferö til útlanda eða ... ?
Sparilánakerfi Landsbankans er
svar viö þörfum heimilisins, óskum
fjölskyldunnar eða óvæntum út-
gjöldum.
Með reglubundnum greiðslum
inn á sparilánareikning í Lands-
bankanum getur fjölskyldan
safnað álitlegri upphæð í um-
saminn tíma. Að þeim tíma loknum
getur hún fengið sparilán strax eða
siðar. Sparilán, sem getur verið
að 100% hærra en sparnaðar-
iphæðin og endurgreiðist á allt
4 árum.
Þegar sparnaðarupphæðin og
arilánið eru lögð saman eru
,upin eða útgjöldin auðveldari
ifangs.
Biðjið Landsbankann um
kllnglnn um sparilánakerfið.
Sparífjársöfnun tengd rétti til lártíö
SparnaÖur
þinn eftir
Mánaöarleg
innborgun
hámarksupphæö
Sparnaöur í
lok tímabils
Landsbankinn
lánar þér
Ráöstofunarfé
þitt 1)
Mánaöarleg
endurgreiösla
Þú endurgreiöir
Lands bankanum
12 mánuöi
18 mánuöi
24 mánuöi
25000
25.000
25.000
300.000
450.000
600 000
300 000
675.000
1 200 000
627.876
1 188.871
1.912.618
28.368
32.598
39.122
á 12 mánuöum
á 27 mánuöum
á 48 mánuöum
1) í tólum þessurtf cr reiknað með 19% vöxtum af innlögðu fé, 24% vöxtum af lánuðu fé, svo og kostnaði vegna lántöku. Tölur þessar geta
breytzt miðað við hvenær sparnaður hefst. Vaxtakjör sparnaðar og láns eru háð vaxtaákvörðun Scðlabanka íslands á hverjum tíma.
LANDSRANKINN
Sparilán-tiy’gging í Jhuntíð