Þjóðviljinn - 18.03.1979, Blaðsíða 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 18. mars 1979
þenslu alheimsins og á ýmsum
nýstárlegum fyrirbærum sem
hafa birst mönnum i óraviddum
geimsins meö nýrri tækni i athug-
unum.
Staða Einsteins
i vísindasögunni
baö getur aö sjálfsögöu veriö
varasamt aö leggja strangt mat á
sögulegt hlutverk manna, þvi aö
slikt vill oft reynast háö þeim
tima sem skrifaö er. Ég skal þó
ekki draga dul á þá skoöun mina
tog margra annarra) aö framlag
Einsteins til visindanna sé meöai
þeirra veigamestu sem einstakir
menn hafa innt af hendi. bar er
hann tvimælalaust I hópi meö
Kópernikusi, Galilei, Newton,
Darwin og Freud. Jafnframt
þessu vil ég minna á þaö hvernig
Einstein hefur breytt grundvall-
arviöhorfum okkar til þess hvern-
ig visindi og þekking þróast. Aður
en hann kom fram meö kenningar
sinar var eölisfræöin aö veröa aö
eins konar lokaöri heild sem var
fyrst og fremst reist á aflfræði
Newtons, ásamt rafsegulfræöi
Muxweils ofl. Menn héldu að þeir
væru aö nálgast einhvers konar
leiöarenda. Þessum hugmyndum
um endanleg mörk þekkingaröfl-
unarinnar var rækilega kollvarp-
aö meö afstæöiskenningunni og
raunar fleiru sem geröist i raun-
visindum um svipaö leyti. Or þvi
aö Einstein gat sett fram jafnrót-
tæka endurskoöun á hinni rót-
grónu hefðbundnu eölisfræöi og
raun bar vitni, hljótum viö aö
geta hugsaö okkur aö einhvern
timann seinna komi kannski fram
nýr „Einstein” eða hópur vis-
indamanna sem endurskoöi af-
stæöiskenninguna meö svipuöum
hætti. Við getum meö öörum orö-
um aldrei veriö viss um að hafa
höndlað einhvern algildan eða ei-
lifan sannleika i vlsindum sem
þessum.
Tilkoma afstæöiskenningarinn-
ar er lika glöggt dæmi um þaö aö
þekkingaröflun manna gerist
ekki nærri alltaf með beinum við-
bótum við einhvers konar forða
sem helst að ööru leyti óbreyttur,
heldur getur ný þekking oft og
tiðum gerbreytt þeim foröa sem
fyrir var sem og öllum viöhorfum
manna til hans. Má það vera
nokkurt umhugsunarefni þeim
sem kjósa helst aö skólarnir inn-
ræti nemendum viöhorf staönaör-
ar og staðlaðrar þekkingar.
Vísindamaðurinn og
samfélagið
Aílt frá barnæsku var Einstein
mjög næmur fyrir félagslegu um-
hverfi sínu. A fullorðinsárum lét
hann ýmis samfélagsmál til sin
taka. Hann vann þó yfirleitt aö
slikum málum utan allra sam-
taka enda mun honum ekki hafa
veriö sérlega lagiö aö vinna meö
öörum. Hins vegar jós hann
óspart af þeim áhrifamætti sem
honum var léður vegna einstæör-
ar visindafrægöar.
Eins og eölilegt er haföi Ein-
stein þungar áhyggjur af þróun
kjarnorkunnar á fjóröa áratug
aldarinnar þegar nasistar voru aö
hreiðra um sig i Þýskalandi.
Vegna hættunnar á því að þeir
NYTT ORÐ i hljómtækjaviðskiptum: ÞJONUSTA
Allar tengisnúrur
Seljum allar geröir
af hljóötengisnúrum
Landsins mesta úrval
af
HEYRNARTÓLUM:
Audio-technica AKG
Alba Sennheiser
Koss Stanton
Pickering Toshiba
30 geröir alls >
Gerið samanburð og veljið
heyrnartólið að yðar smekk.
JÓMTÆKJAÞJÓMSTA.N LAUFASVEGI 1.
Opiö 10-1 og 2-6
Simi 29935
J
LÆRIÐ ENSKU I ENGLANDI
12 skólar i Bournemouth, Poole, Wimborne og Blandford í Suður Englandi og í
London.
Skólar fyrir alla unga sem gamla, byrjendur sem aðra. Barnaskólar og unglinga-
skólar á sumrin, einnig fyrir fjölskyldur i sumarleyfi.
Lágmarksdvöl 3 vikur. Skólarnir starfa allt áriö.
Dvalist á enskum heimilum, heimavist eða hótelum eftir vali.
Einkaumboð á islandi:
€»
Ferdaskri/stota
KJARTANS
HELGASONAR
Skolavoróustíg 13A Reyk/avik simi 29211
ANGLO-CONTINENTAL EDUCATIONAL GROUP
Fuilkomnasta kennslutækni, kennslutæki
og kennslubækur sem völ er á í Englandi
í dag. Aðstaða til alls kyns íþróttaiðkana
og útileikja, skemmtanir, ferðalög o.fl.
Kennd er enska meðal Englendinga,
lifað lífi þeirra og kynnst sögu, menn-
ingu og þjóðlifi.
ótrúlegur árangur á skömmum tíma.
Fáið bæklinga hjá okkur.
Sérstakar hópferðir: 3. og 24. júní, 15.
júli, 5. og 26. ágúst og 16. september.
islenskir enskukennarar með hverjum
hópi ef næg þátttaka fæst.
Verð um kr. 200.000,-. Innifalið fæði,
flug, gisting, skoðunarferð og kennsla.
Pantið snemma.
25 ára gamall og starfsmaöur á einkaleyfaskrifstofunni i Bern: Hér
fæddist afstæðiskenningin.
yröu fyrri til aö búa til sprengju
skrifaöi Einstein undir frægt bréf
til Roosevelts forseta áriö 1939,
þar sem hann varaöi viö þessari
hættu og hvatti til viðbúnaöar af
hálfu Bandarikjastjórnar. Þar
sem Einstein var einlægur friöar-
sinni mun honum alls ekki hafa
verið ljuft að skrifa þetta bréf, en
sú ógn sem honum stóö af nas-
ismanum varö friöarviljanum
yfirsterkari.
Einstein geröist ákafur tals-
maður kynþáttajafnréttis I
Bandarikjunum og eftir striöið
baröist hann hatrammri baráttu
fyrir afvopnun og friöi, jafnframt
þvi sem hann varaöi þá viö beit-
ingu kjarnavopna. Hann var i
rauninni sósialisti en hélt þvi
e.t.v. ekki mjög á loft utan ræki-
legrar og róttækrar greinar sem
hann skrifaði um sósialisma árið
1949. Aí skrifum sem ég hef séö
um Einstein og jafnvel um félags-
málaheimspeki hans þykir mér
greinilegt að maður hafi gengið
undir manns hönd meöal hinna
amerisku gestgjafa til að þagga
þessa „sérvisku” gamla manns-
ins niður sem vendilegast. Hitt er
einnig vafalaust að sá leiöi gaur
McCarthy ýföi sig við marga
sem hötöu siöur til þess unniö en
Einstein en áttu kannski heldur
ekki eins mikiö undir sér.
Þótt Einstein hafi talið sig
sósialista var honum mjög litiö
gefið um þá útgáfu sósialismans
sem gat að lita ! Sovétrikjunum.
Var hann þar e.t.v. á undan sam-
tið sinni þótt hann væri stundum
talinn of barnalegur til aö átta sig
til fulls á refskák stjórnmálanna.
Þess má lika geta til gamans aö
visindakenningar hans höföu þvl
miöur fariö illilega fyrir brjóstið
á þeim félögum Lenin og Stalln,
til tjóns og hrellingar fyrir sov-
éska eölisfræði á þeim timum.
Lokaorð
Hér verðum viö aö setja amen
eftir efninu i þetta spjall um af-
drifaríkt ævistarf sérkennilegs
manns sem var i senn einfaldur
og margbrotinn persónuleiki.
Æöimargt hefur þvi miöur oröið
útundan i þessari blaöagrein um
visindamann sem fann sannar-
lega til i stormum sinnar tiðar. 1
þvi viðfangi sem öðru er hollt að
hafa i huga minnisstæð orð sem
hann hefur á einum staö eftir
þýska rithöfundinum Lessing:
,.Aö leita sannleikans er dýrmæt-
ara en að eiga hann”. En viö skul-
um samt láta Einstein sjálfan
eiga siöasta oröiö:
,,Eitt hef ég lært á langri ævi:
Að öll visindi okkar eru frumstæð
og barnsleg ef þau eru mæld viö
raunveruleikann sjálfan — en
samt eru þau þaö dýrmætasta
sem viö eigum.”
BORGARSPÍTALINN
Lausar stöður
HJÚKRUNAFRÆÐINGAR
Staða deildarstjóra við röntgendeild, um-
sóknarfrestur til 15. april n.k.
2 stöður aðstoðardeildarstjóra við lyf-
lækningadeild.
1 staða hjúkrunarfræðings við gjörgæslu-
deild, vinnutimi 9-13, virka daga.
SJÚKRALIÐAR
Stöður sjúkraliða við hjúkrunar- og endur-
hæfingardeildir og langlegudeildir spital-
ans.
Einnig vantar sjúkraliða til sumarafleys-
inga á flestar deildir spitalans.
Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra simi 81200.
Reykjavík, 24. mars 1979
Borgarspítalinn