Þjóðviljinn - 25.03.1979, Page 17

Þjóðviljinn - 25.03.1979, Page 17
Sunnudagur 25. mars 1979. 'ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 17 Dádýraveiðarinn (The Deer Hunter) heitir bandarísk kvikmynd sem fer um þessar mundir eins og eldur í sinu um kvikmyndahús Vesturlanda og vekur ýmist hrifn- ingu eða viðbjóð. Margir telja öruggt að þetta verði sú mynd sem flest verðlaun hlýtur þegar óksars-af- hendingin fer fram í næsta mánuði. Nú þegarhafagagn- rýnendur stórblaða kallað hana #/bestu mynd ársins"# !,,eina af bestu myndum okkar tíma" osfrv. Ingibjörg Haralds- dóttir skrifar um kvikmyndir En ekki eru allir sammála þessum hrósyröum. Þegar myndin var sýnd utan keppni á kvikmyndahátiðinni i Berlín nú i febrúar mótmæltu sendinefndir Sovétrikjanna, Kúbu og fleiri rikja og vildu aö hætt yröi viö sýninguna, en þegar þaö var ekki gert drógu þessar sendinefndir sinar myndir út úr keppni og fóru heim i fússi. Hvaö skyldi þaö nú vera sem veldur slikum geösveiflum? Víetnamstríðið Dádýraveiðarinn er ein örfárra mynda sem Bandarikjamenn hafa gert um striðiö i Vietnam. Þaö striö er enn viökvæmur blett- ur á bandarlskri þjóðarsál, ekk- ert annað striö hefur valdiö öör- um eins sviptingum I þjóölifinu þar vestra, enda eiga þeir á- reiöanlega eftir aö súpa seyöiö af þvi enn um stund. Myndin segir frá þremur vin- um, Michael (sem leikinn er af Robert de Niro), Nick og Steve. Þeir eru afkomendur rússneskra innflytjenda og i byrjun sjást þeir viö verkamannastörf i stáliöju- veri i Pennsylvania. Þeir hafa skráö sig I herinn af frjálsum vilja og eiga aö fara til Vétnam. Aður en þeir kveöja heimahagana fara þeir saman á dádýraveiöar, en þær eru þeirra lif og yndi. Þetta eru hraustir og sprækir bandariskir strákar, góöir vinir og karlmannlegir til orös og æöis. Svo fara þeir til Vietnam aö berjast, llklega meö þvl hugarfari aö þar hljóti veiðarnar aö vera ennþá meira spennandi. En Vlet- nam er helviti á jöröu. Vinirnir eru teknir til fanga og pyntaöir af skæruliöum, sem spila um llf þeirra svokallaöa „rússneska rúllettu”. Þeim tekst aö flýja og komast til Saigon. Steve missir fæturna og fer heim i hjólastól. Michael fer einnig heim, niöur- brotinn maöur og hefur ekki leng- ur yndi af dádýraveiöum. Nick veröur eftir I Saigon og veröur þar eiturlyfjum aö bráö. Sannfæringar- kraftur Tæknilega séö mun mynd þessi vera framúrskarandi vel gerö. Sagt er aö jafnvel harösoðn- ir gagnrýnendur i New York hafi ekki getað hamiö tárin þegar hvaö mest var þjarmað aö strák- unum, slikur sé sannfæringar- kraftur myndarinnar. Leikstjórinn, Michael Cimino, hefur marglýst því yfir aö boö- skapur myndarinnar sé „mót- mæli gegn striöi”. Hann segir aö ætlunin hafi veriö aö sýna „áhrif striðsins á bandariska verkalýös- stétt” og er afskaplega hissa á Rússum aö vera á móti slikri mynd, ekki slst vegna þess aö þetta sé „fyrsta bandariska myndin sem lýsi á skikkanlegan hátt rússnesku innflytjenda- umhverfi”. Cimino segir þaö hafa verið ætlun sina aö senda mynd- ina á kvikmyndahátiöina i Moskvu i sumar, en „þaö var vist barnalega hugsaö” bætir hann viö, og nú veröur aö leggja þau á- form á hilluna (sbr. viðtal viö Cimino I norska Dagblaöinu 26. feb. s.l.). Óljós hugtök Af skrifum gagnrýnenda og yfirlýsingum leikstjórans má ráöa, aö myndin lýsi „striöi yfir- leitt”, „ofbeldi yfirleitt” fremur en Víetnamstriðinu sem sliku. Eöa einsog segir I breska blaðinu Socialist Challenge (15. mars s.l.): „1 augum Ciminos er strlö einfaldlega ruddalegur, óhlutlæg- ur og tilgangslaus tilviljanaleik- ur, þar sem blind forlög ráöa: ekki ákveöinn sögulegur viöburö- ur sem stjórnast af raunveruleg- um efnahagslegum og pólitiskum öflum (auk mannlegra ákvarð- ana) og sem hægt er að skilja og breyta. Strlöiö er tekiö úr sögu- legu samhengi — enginn ber sök á þvi, enginn er ábyrgur, og af þvi þarf ekkert að læra. A.m.k. þurfa Bandarikjamenn ekkert aö læra af þvii’. Staðreyndum snúið við Margir gagnrýnendur hafa bent á þá óhrjálegu mynd af Vi- etnömum, sem dregin er upp i Dádýraveiöaranum. Þeir eru sýndir sem grimmir, ómennskir, haldnir sjúklegum kvalalosta. 1 pyntingaratriöunum eru sýndar aöferöir sem vissulega voru not- aöar i Vietnamstrlöinu, en ekki af skæruliöum Þjóöfrelsisfylkingar- innar, einsog sýnt er i myndinni, og ekki af Noröur-VIetnömum, heldur af hermönnum Suður-Vi- etnams, undir dyggum verndar- væng Bandarikjamanna. Ýmislegt fleira af þessu tagi ku hafa snúist viö og skolast til. Þannig er skæruliöi Þjóöfrelsis- fylkingarinnar sýndur er hann sallar niður suöur-vletnamska þorpsbúa af grimmd mikilli, og er þá Calley gleymdur, og My Lai. Þeir eiginleikar sem Cimino stillir upp sem andstæðu „strlös og ofbeldis” eru vinátta, hug- rekki, tryggö og ást — allt ópóli- tiskir og ótlmabundnir eigin- leikar sem aðeins er aö finna i fari bandarisku hermannanna. 1 ljósi þeirra atburöa sem raun- verulega gerðust I Vietnam og bandarlskir ráðamenn báru alla ábyrgö á virðast þessir eiginleik- ar óneitanlega ekki vera annaö en fánýtt oröaglamur. Höfundar Dá- dýraveiöarans taka i raun enga afstööu gegn strlöinu I Vietnam sem sliku. Hver er tilgangurinn? Hvaöa tilgangi þjónar slik kvikmynd? Aö sögn Socialist Challenge þjónar hún þeim til- gangi einum aö hressa upp á sjálfsimynd Bandarlkjamanna. Robert de Niro I hlutverki Michaels Víetnamstriöið er tekiö aö fyrnast i hugum þeirra, en vandamálin sem þaö skapaöi lifa enn: sektar- kenndin, efinn og óvissan um heimssögulegt hlutverk hins bandariska lýöræöis. Dádýraveiöarinn er svolitill plástur á þaö sár. Flugfreyjufélag íslands Aðalfundur verður haldinn að Hótel Loftleiðum, Kristalsal, mánudaginn 2. april kl. 20.00. Fundarefni samkvæmt félagslögum. Stjórnin Utboð Framkvæmdanefnd byggingaáætlunar óskar eftir tilboðum i eftirfarandi verk- þætti i 15 parhúsum i Hólahverfi i Breið- holti: 1. Skápar, sólbekkir 2. Eldhúsinnréttingar 3. Innihurðir útboðsgögn verða afhent þriðjudag inn 27. marz á skrifstofu F.B. Mávahlið 4, Reykjavik, gegn 20 þús. kr. skila- tryggingu. s reiknaðu medS4CIT SÚ VINS/ELASTA Á MARKAÐNUM ELDHRÖÐ PAPPÍRSF/ERSLA OG PRENTUN Þ/EGILEGT VALBORÐ - STÓR LJÓSAGLUGGI SVIPIST UM i NÝJUM GL/ESILEGUM HÚSAKYNNUM GÍSLI J. JOHNSEN HF. Ilt1l1l Smiðjuvegi 8 - Sími 73111

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.