Þjóðviljinn - 31.03.1979, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 31.03.1979, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 31. mars 1979 Frá Kennaraháskóla Islands Kennarar athugið! Upplýsingar um fræðslufundi og sumar- námskeið hafa verið sendar i alla grunn- skóla. Umsóknarfrestur fyrir júninámskeið er til 15. april, en til 15. mai fyrir ágústnámskeið nema annað sé tekið fram. Útboð Byggingasamvinnufélag Kópavogs óskar eftir tilboðum i að steypa upp og gera fok- helt 8 hæða fjölbýlishús við Engihjalla i Kópavogi. útboðsgagna má vitja á skrif- stofu félagsins Nýbýlavegi 6 gegn 50 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 10. april kl. 11 f.h. Byggingasamvinnufélag Kópavogs Nýbýlavegi 6 Pípulagningamenn Sveinafélag pipulagningamanna heldur aðalfund sunnudaginn 8. april n.k. að Hótel Loftleiðum, Leifsbúð, kl. 2 e.h. Venjuleg aðalfundarstörf, atvinnumálin, önnur mál. Mætið vel og stundvíslega. Stjórnin. Sögufélag Aðalfundur Sögufélags verður haldinn laugardag 7. april i stofu 201 i Árnagarði og hefst kl. 14. Dagskrá: 1. venjuleg aðalfundarstörf 2. lagabreytingar 3. fyrirlestur Helga Þorlákssonar Stjórnin. Vébleðakeppni til ágóða fyrir 3 björgunarsveitir á höfuð- borgarsvæðinu, verður haldin á Rauða- vatni á morgun, sunnudaginn 1. april. Keppt verður i tveimur greinum. Einnig mun hinn óviðjafnanlegi ofurtiugi Scott Eilertson stökkva á vélsleða yfir 6 bila. Uoiteklúbburinn FREYR BLAÐBERAR ÞIÓÐVIUANS Rukkunarheftin eru tilbúin. Vinsamlegast sækið þau á afgreiðslu blaðsins sem fyrst. Afgreiðslan er opin i dag frá kl. 9—12 f.h. Þjóðviljinn, Síðumúla 6, simi 81333 Faktorshúsið var reist árið 1765 og er viðgerð á þvi langt komin. Eins og sést á myndinni er þetta hið glæsiiegasta hús (Ljósm.: Leifur) Hið 214 ára gamla faktorshús á ísafirði: Gert upp fyrir 30 miljónir króna Verður leigt út j sem íbúðarhús 1 Fyrtr tveimun árum var faktorshúsið I mikitH niðurniðslu. Það vai éopphHað og negtt fyrir alla glugga (LJésm.: GFr) Á húsfriöunarárinu 1975 var bæjarstjórnin á ísafirði svo fram- takssöm að friða 5 gömul hús frá timum einokunarverslunarinnar sem enn standa þar. Nú hefur þessari friðun verið fylgt eftir með því að veita um 30 miljónum króna á þremur árum til endurbóta á þvi húsi sem verst var fariö og færa það til þess horfs sem þaö var i um miðja siöustu öld. Þetta er faktorshúsiö sem reist var árið 1765 og hefur tekiö algjörum stakkaskiptum og er nú orðið hið fegursta á aö lita. Bolli Kjartansson bæjarstjóri á Isafirði sagði i samtali við Þjóðviljann að þegar væri búið að eyða um 20 miljó'num i viögerft á húsinu og verftur lokaátakið unnift á þessu ári með um 10 miljónum til viftbótar. Viftgerftin er framkvæmd skv. tillögum Hjörleifs Stefánssonar arkitekts sem fenginn var af húsfriftunar- nefnd til aft gera úttekt á þessum gömlu húsum. Friftun faktorshússins er skv. svokölluöum A-flokki húsfrift- unarlaganna og er ætlunin aft leigja húsift út til Ibúftar þegar viftgerftinni er lokift. Bolli Kjartansson sagfti aft endurbætur þessara stórmerki- legu gömlu húsa væru mjög fjár- frekar eins og sæist á þessu og ísfirftingar væru afar óhressir meft daufar undirtektir rikis- valdsins aft taka þátt i þessum kostnaði. Alþingi hefur veitt 2 miijónum króna i viðgerftinaar. Þá sagfti hann aft næsta skref yrfti væntanlega aft gera svokall- aft Turnhús upp en þaft var reist árin 1784—85 og er ekta bjálka- hús. Reyndar hefur verift gerft smáviftgerö á ytra byrfti hússins. Hugmynd er um aft gera þaft aft safnhúsi þar sem sýnd væru veiftarfæri og annar búnaftur sem fylgdi fiskvinnslu á Vestfjörftum á siftustu öld. Verkstjórahúsift I Neskaupstaft efta gamla krambúftin er fra 1757 efta 1761 og er þaft I allgóftu ástandi en þar býr núna skóla- stjóri Iftnskólans á Isafirfti. Fjórfta húsift i Neftstakaustaft er svokallaö Beykishús og er þaft langelst. Þaft var reist árift 1734 og er þvi hvorki meira né minna en 245 ára og Hklega elsta hús á Islandi sem vitaft er um meft öruggri vissu. Ekki hefur verift tekin nein ókvörftun um þaft en húsift hefur verift notaft sem véla- hús aft undanförnu. Fimmta friftafta húsift á Isafirfti er Hæstakaupstaðarhúsift frá 1788. Lengi hafa verift hugmyndir á lofti um aft flytja þaft til hinna húsanna i Neftstakaupstaö en Bolli sagfti aft óvlst væri aft húsift þyldi slikan flutning. Þá hefur þaö komift i ljós i rannsókn Hjörleifs Stefánssonar aft afteins hluti hússins er frá 1788 og kæmi þá til greina aft endurreisa afteins elsta hluta þess. I Hæstakaup- staftarhúsinu er búift. I húsfriftunarnefnd á Isafirfti sitja þrir menn og eru tveir tilnefndir af Sögufélaginu, þeir Guftmundur Sveinsson, sem bar fram tillöguna um friftun þessara húsa i bæjarstjórn 1975, og Jón Páll Halldórsson en Gunnar Jóns- son er tilnefndur af bæjarstjórn. —GFr Leiðrétting Víðishúsið var allt keypt á 259 miljónir Meinleg villa var á forsiöu Þjóðviljans I gær, þar sem skýrt var frá kauptilboðum I Viðishús- ið, en þar sagði að menntamála- ráðuneytiö hefði keypt 3 efstu hæðir þess á 259 miljónir króna, haustið 1977, en Rikisútgáfan og Skólavörubúðin tvær neðstu hæð- irnar árinu áður. Rétt er að menntamálaráðu- neytiö festi kaup á öllu húsinu haustið 1977 og greiddi fyrir það 259 miljónir króna. Neðstu tvær hæðirnarvoru þá metnar til 110,2 miljóna, en þrjár hinar efri á samtals 148.8 miljónir, og voru þær auglýstar til sölu fyrr i mán- uðinum. Tilboftin sem bárust námu sam- tals 103 miljónum króna svo þau eru ekki eins fjarri upprunalegu kaupvirfti eins og ætla mætti af frétt Þjóftviljans i'gær. Hins veg- ar hefur verðlag margfaldast á þvi eina og hálfa ári sem siftan er liftift, svo ljóst er aft fjárfesting ráöuneytisins I Viftishúsinu er ekki þaft sem kallaft er „arftvæn- leg”. Þess ber einnig aft geta aft þegar húsið var boðið til kaups 1976 var söluverðið ákveðið 259 miljónir og breyttist þaö ekki þó nærri ár liöi uns samningar voru undirritaðir, þrátt fyrir verð- bólgu. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á þessum mistökum. — AI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.