Þjóðviljinn - 01.07.1979, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 01.07.1979, Blaðsíða 4
4 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júll 1979 pmv/u/m Málgagn sósialisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir LJmsjónarmaöur Sunnudagsbiaös: Ingólfur Margeirsson. Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiðslustjóri: Filip W. Franksson Blaöamenn: AlfheiÖur Ingadóttir, Einar örn Stefánsson, Guöjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir SigurÖsson. Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristín Pét- ursdóttir. Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún BárÖardóttir HúsmóÖir: Jóna Siguröardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavlk, ifmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Um eldrí konur á vinnumarkaöi • Fyrir viku voru sagðar á jafnréttissiðu blaðsins nokkrar dapurlegar sögur af hlutskipti eldri kvenna á vinnumarkaði. Dæmisögur þessar voru mjög i sama dúr. Konur sem komnar eru á fimmtugsaldur eða eldri mega búast við þvi, að leit þeirra að vinnu verði löng og ströng og kannski árangurslaus, og svo þvi, að þeim verði sagt upp á undan öllum öðr- um. Þetta öryggisleysi leiðir svo aftur til þess, að konurnar sætta sig við að gengið er á rétt þeirra með ýmsum hætti, láta óttann við atvinnuleysið neyða sig til að taka ýmsum þeim kostum sem brjóta i bága við sjálfsögðustu réttindi verkafólks. • í annan stað eru sagðar sögur af þvi, hvernig ákvæðisvinnukerfi ýmiskonar flæma þær konur sem teknar eru að reskjast burt úr frystihúsum og saumastofum, vegna þess að þær hafa ekki lengur heilsu eða viðbragðsflýti til að risa undir þvi álagi sem þessi kerfi heimta. Þessi launakerfi reynast ekki aðeins mjög arðbær vinnukaupendum, sem að öðrum kosti hefðu ekki tekið þau upp eins og liggur i augum uppi. Þau hafa um leið sundurvirk áhrif, rjúfa samstöðu þeirra sem starfa hlið við hlið eins og sést best af dæmi þeirrar konu sem hrakin var milli borða i frystihúsi vegna þess að hún þótti of sein og „dró niður bónusinn fyrir hinum”. Þessi hlið málsins er reyndar, þegar til lengdar lætur, jafnvel enn alvarlegri en meira eða minna dulbúin kjara- skerðing sem ýmsir atvinnurekendur láta sér sæma að koma á með öryggisleysi illrasettrahópa verka- fólks að vopni. • Þessi mál minna mjög rækilega á að kaupgjald er i sjálfu sér ekki nema takmarkaður mælikvarði á kjör alþýðu, um þau verður ekki fjallað að gagni nema að spurt sé um réttinn til vinnu og hvernig hann er virtur i raun. Og þetta þjóðfélag sýnist i þessumefnum i þeirri hættu að sogast æ lengra inn i þróun sem mjög langt er komin i löndum allt i kringum okkur. Þar hafa fjöldaatvinnuleysi og kröfur gróðans um hagræðingu leitt til þess, að starfsaldur dregst stöðugt saman: Mjög ungt fólk fær ekki vinnu sökum reynsluskorts eins og það heitir, og sá sem er fertugur, karl og kona, fær ekki nýtt starf, né heldur þvi gamla, ef harðnar á daln- um i hans starfsgrein. Reyndar er oft gripið til þess að benda á riflegar atvinnuleysisbætur, sem bjargi þessu fólki frá framfærsluvandræðum — a.m.k. i þeim þjóðfélögum sem rikust eru. Að sjálfsögðu er ekki ástæða til að gera litið úr atvinnuleysisbótum. En þær mega aidrei verða til þess, að menn eins og sætti sig við þá þjóðfélagsþróun sem dæmir fólk úr leik, frá virkri þátttöku i samfélaginu, brýtur niður sjálfsvirðingu manna og persónuleika. En þessi eru einmitt helstu félagsleg og sálræn áhrif langvarandi atvinnuleysis. • Samantektin á laugardaginn var f jallaði um eldri konur við láglaunastörf. Þeirra mál eru brýn i sjálfu sér og krefjast viðbragða verkalýðshreyfing- ar og vinstrisinna. Einnig vegna þess, að hlutskipti þessara kvenna er um leið illur fyrirboði um þróun sem vofir yfir æ fleiri konum og körlum — ef menn ekki kunna önnur ráð en þau sem i raun hefur verið fylgt i nálægum rikjum. — áb • úr aimanakínu Svo viröist sem islenska sósialista skorti allan dug til aö andmæla „flokksforystunni” um þessar mundir. A skömmum tima hafa þverstæöur stjórnar- samstarfsins komið skýrt fram: Alþýðubandalagið á þátt i aö setja bráöabirgðalög gegn lög- lega boðuöu verkfalli, Walter Mondale þakkar rikisstjórninni góðan skilning á nauösyn her- stöðvarinnar, Svavar Gestsson tekur aö sér formennsku EFTA-ráösins, Hjörleifur Gutt- ormsson opnar Grundartanga- verksmiðjuna. Stjórnarþátttaka Alþýöu- bandalagsins var I fyrstu um- deild jafnvel i þingliði flokksins. Þeirrar deilu sér ekki staö á síö- Karl Marx þungbúinn yfir bráöabirgöalögunum. Þjóðviljinn og stjórnar- þátttakan um Þjóðviljans. Oánægjuraddir bæra varla á sér i Dagskrár- greinum: Þörf ádrepa Vésteins Lúövikssonar fyrir viku er eina undantekningin. I forystugreinum blaösins og öörum stefnumótandi skrifum er stefna stjórnarinnar réttlætt. Þó heföi verið gullið tækifæri fyrir Þjóöviljann til aö sýna sjálfstæði, láta gagnrýnisraddir heyrast, spyrja flokksforystuna erfiðra spurninga. Á þann hátt hefði hann getað sýnt vilja sinn tíl aö vera opiö blaö allrar verkalýöshreyfingarinnar, ekki aöeins stjórnarmálgagn. Þaö hefur alltof litiö borið á viðleitni i þá átt. Þess i staö berast okkur sem viljum teljast til vinstri slitur úr söngnum gamalkunna til eyrna. Hvaö segir ekki um bráöa- birgðalögin I stjórnmálagrein blaösins s.l. sunnudag: ,,En hvort sem við erum fylli- lega sátt viö þær aðgerðir eða ekki, þá skiptirþað mestu að við snúum bökum saman og séum ekki aö skemmta skrattanum meðsundrungu i okkar röðum”. Þennan söng ætti að taka út af vinsældalistanum. Þaö er með þessum röksemdum sem Alþýöubandalagiö hefur viljað þagga niöur i röddum til vinstri viö sig, vlsað til þess aö menn ættu aö gleypa allar ráöstafanir möglunarlaust — annars fitnar ihaldið einsog púkinn forðum. Þaö er einmitt nú sem umræöa um stjórnlist er áriðandi fyrir sósíalista á tslandi: Róttækir vinstri sinnar þurfa aö benda á aöra leiö en þetta stjórnarsam- starf. Siöustu atburöir og rétt- læting þeirra I Þjóðviljanum ætti að undirstrika nauösyn slikrar umræöu, vera vinstri hreyfingu hvatning til athafna. t leiðara Þjóöviljans þriðju- daginn 19. júni gat að lita rök- semdir til stuönings bráða- birgðalögunum sem eru jafn heiðarlegar og þær eru nýstár- legar i þessu blaöi. Dæmi: „Auk þess eru efnahagsmálin i heild ákaflega vandmeðfarin um þessar mundir, og aðrir hópar launþega hafa fallist á aö axla sinn hluta af þeim byrbum sem á þarf aö leggja i barátt- unni við veröbólguna”. „Ef eitthvert miö veröur tekið af tíllögum Sáttanefndar virðist sem farmenn megi sæmilega viö una, auk þess sem sú lausn mála viröistekki gefa tilefni tíl viöbótarkröfúgeröa frá öörum hópum launþega”. „Þar með ættí aö myndast svigrúm hjá rikisstjórninni til mótunar tillagna um heildar- lausn þess efnahagsvanda sem við blasir”. Þaö þarf að leggja byrðar á launþega, koma i veg fyrir aö aðrir kröfuhópar fari af stað, svo rikisstjórnin fái svigrúm til sinna hluta. Og þaö má ekki skemmta skrattanum með þvi aö berjast gegn þessari stefnu. Væri ekki nær að láta hrein- ræktaða hægri stjórn annast þessa árás á verkalýðshreyfing- una (sem þá mætti brýna til baráttu) og láta Morgunblaðiö um aö birta leiðara af þessu tagi? En hér viröist vera fundin baráttuviömiöun Alþýöubanda- lagsins: Aö annast stjórnunar- Halldór Guðmunds- son skrifar störf fyrir auðvaldiö. Og ekki stendur á góöum ráðleggingum úr sósialisku herbúöunum. Þannig kom einn flokksmaður eftirfarandi ábendingu til islenskra útgerðarmanna á þessum staö fyrir viku: „Fiskurinn okkar er orðinn eftirsótt vara sem við eigum að selja voldugum og auðugum þjÆum dýru veröi”. Ætla má aö litiö yrði um aö- flutninga til tslands ef allar þjóöir hefðu sama viöhorf til sinna útflutningsafurða (hvað meö Norðmenn og oliuna?). Þessi dæmi voru tilfærð til að ýta við sósialistum i Alþýöu- bandalaginu. Hversu langt eru þeir reiðubúnir til að fylgja forystu sinni? Það er ástæðulaust að hafa alltaf uppi hávær hróp um svik. Alþýðubandalagið er sósial- demókratiskur fiokkur og þann grundvöll sinn er það á engan hátt að svikja. Og sé miðað við þær forsendur að mestu skipti að halda núverandi atkvæða- magni og stöðu i þinginu, jafn- vel þó það kosti aðgerðir sem þessar, er það sjálfsagt rétt að Alþýðubandalagið hafi orðið að standa að bráðabirgðalögunum. Hreyfingin er allt, markmiðið ekkert, er haft eftir Bernstein gamla erkikrata. En þaö er aftur á móti full ástæða til þess að benda á að stjórnlist Alþýðubandalagsins markar ekki þá frægu „leið ts- landstil sósialismans”. Viðsem utan þess stöndum ogteljum að byltingarsinnaður sósialismi eigi ennþá erindi til verkalýðs- stéttarinnar, erum oft sakaðir um óraunsæi og draumóra- mennsku. Mér sýnist þessu þveröfugt farið: Við reynum að benda á að Alþýðubandalagiö er að reyna að feta stig endurbóta- stefnunnar þegar hann er orðinn ófær. Kreppa islensks og alþjóð- legs auðvalds er slik aö innan ramma þjóðskipulagsins er ekki rúm fyrir veriúegar endurbæt- ur. Rikisstjórnir þessara landa fá, hvort sem sósialdemókratar taka þátt i' þeim eða ekki, það hlutverk að skerða kjör verka- fólksins, svo „atvinnuvegirnir” getí rétt úr kútnum. Með slikum aðgerðum búa vinstri stjórnir i haginn fyrir sigur hægri aflanna — dæmið af Bretlandi á að þessu leyti við tsland. Róttækir sósialistar benda á að islensk verkalýðs- hreyfing fær ekki risið undir þjóðfélagslegum völdum einsog nú er ástatt. Verkefni þeirra er að búa hana i stakk til þess. Þátttaka I stjórn, sem ræöst gegn sjálfum verkfallsréttin- um, slær vopnin úr höndum vinstri manna. Þá fyrst er skrattanum skemmt. h6

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.