Þjóðviljinn - 21.08.1979, Qupperneq 5
Þriöjudagur 21. ágúst 1979. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Úr
þjóöar-
djúpinu
Þenslan i
bankakerfinu
Nil vilja menn fara aö
setja á stofn alkó-banka fyrir
drykkjumenn sem drekka
ekki lengur. Fái alkó-bank-
inn starfsleyfi má búast við
þvi aö fólk meö hvurs konar
sérþarfir fariö aö hugsa sér
til hreyfings. Senn má þá
búast viö þvi aö migrenis-
sjúklingar bregöi undir sig
bankafætinum, og ugglaust
veröur þá skammt I aö viö -
kvefhrelldir mörlandar get-
um stofnað reikning I banka
háls- nef- og eyrnasjúkra.
Þannig mætti lengi telja. En
hvort sem þessir bankar fá
starfsleyfi eður ei, þá er nær
öruggt taliö, aö viö nyjustu
bankaumsókninni veröi fús-
lega goldiö jáyröi. En i henni
er sótt um aö stofna sæöis-
banka.
Sænska plottið
Allir vita hversu heiftúð-
ugur Svarthöföi er I garö
sænskra. t skrifum sinum
um „sænskar maflur” syöur
stundum og bullar svo niöri
honum aö maöur sér næstum
hvernig hiö biksvarta höfuö
veröur glóandi rautt af þeirri
reiöi, sem allt blindar og for-
heimskar. En nú hafa þeir
svensku endanlega goldiö
honum rauöan belg fyrir blá-
an. Frá Svlþjóð mun nefni-
lega koma innleggið I hinn
nýja sæðisbanka.
Enn um Björn —
leiðrétting
Velunnari Björns Bjarna-
sonar kom aö mdli viö öngul
og taldi hann ómaklega hafa
veist aö Birni fyrir aö vera
ritari á fundum rikisstjórn-
arinnar, þrátt fyrir aö hann
sé jaftiframt innsti koppur I
ihaldsbúrinu. „Björn er
máski voldugur” sagði
viömælandi vor, „en hann
setur sig þö fjandakornið
varla sjálfur i stööu einsog
þessa. Skammaöu frekar Óla
Jó og ráðherranefnurnar.”
Og þetta er auðvitaö rétt.
Það er fyrst og fremst ólafur
garpurinn Jóhannesson sem
veldur þvf að Geir vinur hans
Hallgrimsson hefur manna
bestar fregnir af stjórnar-
fundum. Ekki liggja ráö-
herrar Alþýöubandalagsins
og Alþýöuflokksins síöur
marflatir i súpunni, fyrst
þeir láta bjóöa sér svona.
Eöa ætli Ihaldsstjórn yndi
þvl, ef þaö væri ungur Al-
þýöubandalagsmaöur, sem
ritaði frásagnir af slikum
fundum? En þd væri líka
gaman aö vera blaðamaöur
á Þjóðviljanum.
ONGULL
Sósíalistar spurðir:
HVERS VIRÐI
ER ANDÓFIÐ?
Andófsmenn í Tékkóslóvakiu sœta nú vaxandi ofsóknum
af hálfu yfirvalda, eins og um er fjallað í opnu blaðsins.
En um leið hefur orðið vart meiri samstöðu með baráttu
þeirra meðal vinstri manna á Vesturlöndum.
Við spurðum því nokkra íslenska sósialista, hvaða þýðingu
þeir teldu að barátta andófsmanna i Tékkóslóvakiu hefði
fyrir sósíalistaá Vesturlöndum. Svörþeirra fara hérá eftir:
Hjörleifur Gutt-
ormsson iðnaðar-
ráðherra
Andófsbaráttan i Tékkó-
slóvakiu hefur ótvirætt gildi sem
liöur I mannréttindabaráttu hvar
sem er gegn skertum lýö-
réttindum I heiminum.
Þessi barátta I Tékkóslóvakiu
og i öörum Austur-Evrópurikjum
minnir sósialista á Vesturlöndum
á þann dapurlega veruleika og
afskræmingu sóslaliskra hug-
sjóna sem enn virðist hið daglega
brauö I Tékkóslóvaklu og viöar,
hugsjóna sem baröar voru niöur
meö vopnavaldi fyrir 11 árum.
Hún er jafnframt áminning til
okkar sósialista hér og I Vestur-
Evrópu um það, aö enginn sósiai-
ismi og jafnréttishugsjón fær
risið undir nafni án lýöréttinda,
fullkomnari en þau gerast I
borgaralegum þjóöfélögum, þar
sem mjög skortir á efnahagslegt
lýöræöi og skoöanamyndun er
háð fjármagni og auödrottnun,
svo ekki sé minnst á ástandið I
fasiskum einræöisrikjum sem
dafna I skjóli vestrænna stór-
velda. -
Ámi Björnsson
þjóðháttqfrœðingur
Þaö er ekki ljóst hvað orðið
heföi úr vorinu ’68 af þvi tilraunin
var kæfð I fæöingu. Andöfsmenn
sjálfir bæði heima og I útlegð vita
þaö ekki.
En sósiaiistar hvarvetna I
heiminum hljóta aö fagna slikum
tilraunum þvl aö árangurinn
getur varla orðið mikiö verri en
skrifræöiö og stöönunin sem rlkir
viöast hvar i Austur-Evrdpu. Ég
þekki ekki nógu vel til forsendna I
Asi'u og skal þvi ekkert fullyröa
um ástandiö þar.
Af sérstökum ástæöum vildi svo
til aö af vesturlandasósialistum
viröast islenskir sósialistar hafa
kynnst ástandi mála i
Austur-Evrópu einna best á sjötta
og sjöunda áratugnum vegna
þess aö þeir dvöldu þar sem
námsmenn og deildu kjörum meö
landsfólkinu. Annars var þar
varla um aö ræöa námsmenn frá
öörum Vesturlöndum, hinir voru
aðallega frá þriöja heiminum. Is-
land var aö vissu leyti taliö van-
þróaö land og menn héöan þvl
taldir álika hættulausir og fólk úr
þriöja heiminum.
Næstum allir þessir íslensku
sóslalistar töldu. aö tilraunin i
Tékkóslóvakiu stefndi i rétta átt.
Þegar Sovétrlkin kæföu hana
vakti það mikla aödáun hvaö
Tékkar þráuðust lengi viö aö
gefast upp, einkum menntamenn
og verkamenn. Ihaldinu haföi þá
ekki tekist aö reka fleyg milli
þessara aöila þar einsog hér.
Þvl var spáö aö þessi andstaöa
hlyti aö koöna niöur smám
saman. Svo virtist um tlma og
þaö fyllti menn vissu vonleysi.
Þess vegna er hugrekki andófs-
manna nú sérstakt fagnaöarefni
og áskorun til okkar hér'á Vestur-
löndum aö sætta okkur ekki viö
rikjandi ástand I heiminum eins-
og þaö séeitthvertnáttúrulögmál.
Þorgeir Pálsson,
formaður
Stúdentaráðs
„Það kviknaöi örlitil sósíalisk
ljóstýra i svartnætti stallnismans
þegar Dubcek og félagar voru við
völd i Tékkóslóvakiu. Nú þegar 11
ár eru Iiöin frá þvl aö herir
Varsjárbandalagsins slökktu
þessa vonarglætu eiga yfirvöld
fullt I fangi með að hemja
óánægjuraddir. Þau hafa iátiö til
skarar skríöa . Þaö sýna réttar-
höldin yfir 10 baráttumönnum
sem fara nú fram I Prag ásamt
þeirri staðreynd aö stöðugt kem-
, ur nýtt fólk til starfa I staö þess
sem handtekiö er.
Vinstri menn á Islandi mættu
standa sig betur viö aö kynna
baráttu andóísmanna I Tékkó-
slóvakíu sem og Austur-Evrópu
allri. Ef borgarapressan er látin
ein um hituna er þeim andófs-
mönnum sem berjast fyrir mann-
réttindum á grundvelli lýðræðis-
legs sósialisma sist hampaö.
Það er liöur i baráttunni fyrir
raunverulegum sóslalisma i
Au^tur-Evrópu aö vinstri menn I
Vesturheimi kynni málstaö
skoöanabræöra sinna þar eystra
— ekki slst þegar kommúnista-
flokkar I Evrópu viröast komnir
aö þeirri niöurstööu aö Evrópu-
kommúnismi og gagnrýni þeirra
á stjórnarhætti austantjalds færi
þeim ekki nægiiega mörg atkvæði
i kjörkassana.
Baráttumenn i Tékkóslóvakiu
hafa nú þörf fyrir stuöning frá
vinstri mönnum á Vesturlöndum.
Við getum sýnt hann i verki i dag
með þvi aö taka þátt I aögeröum
Samtaka herstöövaandstæöinga.
Guðrún Hall-
grimsdóttir mat-
vœlaverkfrœðingur
— Ég hef nú reyndar alltaf sett
þessa spurningu ööruvisi upp,
sagöi Guörún Hallgrimsdóttir, —
ég hef fremur hugsaö um það,
hvaðaþýöingubarátta sósialista i
Vestur-Evrópu gæti haft fyrir
andófsmenn i Tékkóslóvakiu, og
hvernig hægt væri aö veita þeim
Uö.
En úr því aö spurt er á þennan
veg get ég svarað þvi til, aö vegna
andófsbaráttunnar I Tékkósló-
vaklu og öörum rikjum
Austur-Evrópu hafa augu sóslal-
ista á Vesturlöndum opnast fyrir
göUum þessaraþjóöfélagaog þeir
hafa orðiö gagnrýnni i hugsun I
leit aö sinni framtiðarsýn.
Annars er þaö hugrekki þessa
andófsfólks sem hefur haft mest
áhrif á mig persónulega. Meiri-
hluti þess er fólk, sem haföi aUa
aðstööu til aö komast vel áfram
innan rikjandi kerfis, en hefur
lagt allt i sölurnar vegna barátt-
unnar fýrir fegurra mannlifi og
betra þjóðskipulagi.
Andófsbaráttan I Tékkósló-
vakiu minnir okkur sósialista I
Vestur-Evrópu á þaö, hve vlöa
félagsleg réttindi eru fótum troö-
in, og veröur okkur um leiö stööug
áminning um aö standa vörö um
þau réttindi sem viö höfum og
horfa jafnframt fram á viö og
berjast fyrir auknum lýðréttind-
um.
Helgi Guðmunds-
son trésmiður
Skilji ég spurninguna rétt, felur
hún I sér vangaveltur um það, aö
hvaöa gagni andófsbaráttan I
Tékkóslóvaklu getur oröiö fyrir
sósíalista á Vesturlöndum viö til-
raunir þeirra til aö umbreyta
eigin þjóöfélögum i átt til sósial-
isma.
Þaö er auövitaö mikilvægt fyrir
sóslalista hvar sem er I heiminum
aö gera sér grein fyrir þvi sem
gerist I öörum löndum ogdraga af
þvi skynsamlega lærdóma.
Eger hinsvegar lítill spekingur
i innanrlkismálum Tékkóslóvakiu
og hef næsta takmarkaba hug-
mynd um hvaö andófsmenn
austur þar eiga i raun og veru
sameiginlegt annað en ströggliö
viö þau lundlausu sluddmenni
sem nú standa fyrir málum þar I
landi.
Einhverjir andófsmanna stefna
þó vafalaust að breytingum i átt
til raunverulegs sóslalisma, aðrir
I þveröfuga átt hinir þriöju láta
sér þjóðfélagsskipanina væntan-
lega I léttu rúmi liggja ef þeir fá
tækifæri til aö skrifa þær bækur,
gera þær kvikmyndir, flytja þau
leikrit, mála þær myndir, fremja
þá tónlist o.s.frv. o.s.frv., sem þá
langar til. Vafalaust eru svo enn
abrir meö enn önnur markmið I
huga.
íslenskir sósialistar hafa um
langan aldur starfaö f þeim anda
að samfylkja ólíkum öflum til
baráttu fyrir einstökum málum,
sbr. hernámsandstöðuna og ný-
sköpunarstjórnina svo tvö kunn
dæmi séu nefnd. Fari andófs-
menn I Tékkóslóvaklu svipaö aö,
þá sýnist mér þeir vinna af miklu
viti, þó að leiðir þeirra hljóti svo
aö skilja þegar vissum áföngum
er náö (frelsi til aö berjast fyrir
skoðunum slnum leiöir eöli máls-
(ins samkvæmt tilþess aö fyrrver-
andi samherjar i baráttunni fyrir
skoðana- og tjáningarfrelsi
veröa I mörgum tilfellum and-
stæöingar í baráUunni fýrir þjóö-
félagsgerðnni).
Það eru sjálfsagt margir
Framhaid á 14. siöu