Þjóðviljinn - 21.08.1979, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 21. ágúst 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Stöðugur þrýstingur frá hægri öflunum um
samdrátt í heilbrigðis- og tryggingakerfinu er farinn
að rjúfa skörð í varnarmúra vinstri manna.
Millistéttin
A siöustu timum hafa komið
upp margvislegar umræður um
efnahagsmál iðnþróaðra
vesturlanda.
Það virðist ljóst að nú eru að
verða viss skil i þessum efnum.
Sú staðreynd er að renna upp
fyrir leikum og lærðum að hag-
vöxturinn getur ekki haldið
áfram. Og sumir halda því hik-
laust fram að grundvöllurinn
fyrir auknum hagvexti sé löngu
brostinnef á heildina erlitið. Af
ýmsum orsökum, sem ekki
verða raktar hér, hefur kapp-
hlaupið ekki stöövast, heldur
hafa auðlindirnarogýmis önnur
verðmæti, verið blóðmjólkaðar i
þágu hagvaxtarins.
Einstaka iðnvæddar þjöðir
með háþróaða tækni og harð-
neskjulegt stjórnarfar hafa
ennþá haf t möguleika á að fly tja
efnahagsvanda sinn út. Dæmi-
gerðast fyrir þessa leið er Vest-
ur-Þýskaland og Japan, sem
teygja anga sina um allan
heiminn.
En flestar þjóðir sitja uppi
meö ótraustan grundvöll i efna-
hagsmálum og i tengslum viö
þessar ný ju staðreyndir er verið
að stokka upp I hugmynda-
fræðinni.
Þessi umræða er aðeins á
frumstigi en hún mun teygja
anga sina inn i hagfræðina og
faglegar einingar og verkalýös-
hreyfing vesturlanda i heild
mun þurfa að taka afstöðu til og
glíma við nýjar aðstæður og ný
vandamál á næstu áratugum.
Kraftaverkið
Þvihefur veriðhaldið fram aö
efnahagslif Islendinga sé utan
allra þeirra kerfa sem ráöa
höfuðþáttum I fjármálum
heimsins. Þaö er visst sann-
leikskorn i þessu. En auðvitaö
hljóta íslendingar að lenda inn i
alþjóðlegum straumi méira og
minna I þessum efnum þó aö
stundum hafi þeir b jargast með
þvi að keyra á móti öllum lög-
málum og allri skynsemi i
fjármálum.
Ég vil þó i þessu sambandi
benda mönnum á þá staðreynd
að sá timi sem liður á milli
kollsteypanna i efnahagsmálum
íslendinga verður stööugt
styttri. Og ég vil einnig benda á
þá staðreynd að kraftaverk
Islendinga I efnahagsmálumeru
þónokkuð auðskýrð.þegar allt
kemur til alls. Þau felast i þvi,
aðallega, að ganga á auölindirn-
ar og nýta lánamöguleikana án
nokkurrar yfirsýnar i nútið eða
framtið. Þegar litið er á þessar
staðreyndir dofnar nokkuð yfir
kraftaverkinu.
Þarna hefur raunar litið gerst
annað en það aö gálausir
st jórnmálamenn hafa teflt
afkomu fólksins og þjóðarinnar
I tvísýnu fyrir þröng persónuleg
og fíokksleg sjónarmið. Þetta
vita allir þó að fæstir hafi hug-
rekki til að viðurkenna það.
A5 rotta sig saman
Þegar þaö blasir nú viö aö
„ævintýrinu” fer að ljúka þá
hefst umræðan um þaö á hvern
hátt samdrátturinn eigi að fara
fram. Hvernig eigi að lifa viö
minnkandi hagvöxt og spila úr
þeim raunverulegu gæðum sem
fýrir hendi eru. Um þessi atriði
mun verða rætt og ritað á næstu
árum. En þó raunveruleg
umræða sé aðeins i buröarliön-
um virðast vissar höfuðllnur
byrjaðar að skýrast. Og þaö
sem blasir við er heldur dapur-
legt.
Éghef ofthvattvinstri sinnað
fólk til að vera á verði. Nú er
alveg sérstök ástæða til
viövarana vegna þess að hætt-
urnar koma nú úr fleiri áttum.
Óvinurinn er ekki aðeins gegnt
okkur, heldur verðum við nú að
glima viðhann i ýmsum mynd-
um að baki viglinunnar.
Þaö er útilokað aö gera þess-
um málum nema óveruleg skil I
stuttri blaðagrein. Þó langar
mig að benda á örfáa þætti sem
nú virðast vera aö koma i ljós.
Ef draga ætti málin saman i
hnotskurn þá sést nú þegar að
vissir aðilar i þjóöfélaginu eru
byrjaðir að rotta sig saman. Og
þessir aðilar eru af óliku sauða-
húsi, þó aö þeir eigi einn hlut
sameiginlegan. Þetta eru þeir
sem orðið hafa ofaná i efna-
hagsmálunum á undanförnum
árum.
Þarna er ekki eingöngu um að
ræöa svokallaða bisnesmenn,
sem hlotið hafa nöfn eins og
verðbólgubraskarar, milliliðir
og afætur. Til viðbótar þessu
fólki er mætt til leiks þónokkuð
breið millistétt, sem telur sig
þurfa að verja stöðu sina og þá
möguleika og sérréttindi sem
hún hefur helgaö sér undanfarin
ár.
Innyflin eru lík
Eins og égsagðiþáer útilokað
að draga upp heildarmynd af
þessum nýju vandamálum I
stuttu máli. En til að sýna hvað
innyflin eru lik i bisnesmönnun-
um og þessari millistétt, þá
langar mig að nefna dæmi úr
einum þætti fjármálanna sem
raunar vegur ekki þungt. Það
eru skattamálin.
Þegar skattskrá er flett sést
að þar eru margir tekjuskatts-
lausir eöa borga óverulega til
samneyslunnar. Og þarna eru
ekki eingöngu „peningamenn”
á ferðinni, heldur einnig
launþegar og jafnvel forustu-
menn þeirra. Þarna er ekki
verið að stela neinu. Lögin eru
bara svona.
\ Að losna við að greiða tekju-
skatt gerist ekki á annan hátt en
aði skattalögum eru frádráttar-
liðir sem menn nýta. Og margir
þessara frádráttarliða byggjast
ekki á neinum siöferðislegum
rökum. Þetta er litið dæmi, en
sýnir einkar vel hvað lagst er
lágt þegar um einkafjármál er
að ræða. Og þegar menn hafa
geð til að nýta þessa möguleika
sem eru fyrir allra augum,
hvernig er þá hinu varið sem
samtrygging þessa fólks felur
undir yfirborðinu, bæði lögleg
og ólögleg skattsvik.
En þarna er á ferðinni svo
sterkur þrýstihópur að ekki
verður mýgjað við honum.
Alþingismennirnir ganga þar
fremstir. Þeir gætu einfaldlega
lokað þessu gati i skattalögun-
um með einfaldri lagasetningu.
En þeir vilja þaö ekki. Þá
pólitisku áhættu þora þeir ekki
að taka.
Skörð í múrana
En eins og ég sagði, vegur
skattadæmið ekki þungt I
fjármálum rikisins. Það er
aðeins nefnt hér til skýringar.
Hitt er alvarlegra að bisnes-
menn og millistéttin virðast
vera aö ná samkomulagi um að
samdrátturinn skuli lenda með
þunga á samneyslunni og
félagslegu og fjárhagslegu
öryggi þeirra verst settu.
Ég held að þarna sé á ferðinni
þegjandi samkomulag sem þró-
ast hefur upp úr áralangri fyrir-
greiöslupólitik þar sem leiðir
þessara aðila hafa oft legiö
saman.
Til að rökstyðja þetta má
nefna þaö að ótrúleg deyfð rikir
meöalforustu vinstrimannaum
aö tryggja hlut hinna verst
settu. Dæmið um lifeyrissjóð
allra landsmanna, vaxtamálin
og heildarlausn húsnæð-
ismálanna er skýrten þessimál
öll eru eitt af þvi fáa sem mögu-
leiki væri að gera meö tilfærslu
og breyttu skipulagi I þvi
kreppuástandi sem nú er að
skapast. Með lausn þessara
mála myndilosna um spennuog
það ástand væri hægt að nota
sem stökkpall til áframhaldandi
tekjuöflunar.
1 staö þessarar þróunar eru
aðrir hlutir farnir að gægjast
fyrir hornið. Stööugur þrýst-
ingur frá hægrí öflunum um
samdrátt í heilbrigöis og trygg-
ingakerfinu er farinn að rjúfa
skörð I varnarmúra vinstri
manna. Það er byrjaö aö gefa I
skyn I málgögnum þeirra þó að
varlega sé farið I þaö, að
einhversstaðar verði nú að setja
mörkin. A meöan er einn og einn
þáttur sem áunnist hefur klipinn
af án neinna raunhæfra mót-
mæla.
Óvinafagnaður
Þetta eru staðreyndir sem
vinstri sinnað fólk ætti ekki að
lita framhjá.
Við vitum auövitað, að i rikis-
rekstri er ýmsu ábótavant. Það
hefur hinsvegar farið fram hjá
mörgum að rikisreksturinn hef-
ur verið notaöurmiskunnarlaust
til þess að sanna þá kenningu
hægriaflanna að einkaframtak-
ið standi framar. Þetta hefur
ekki verið erfitt vegna þess að
megnið af rikisrekstrinum er
stjórnað af andstæðingum hans.
Svo sterkur og lævis hefur
þessi áróöur verið gegnum árin
að fjöldinn allur af vinstra fólki
hefur ánetjast honum. Þaö etur
upp áróðurstugguna eftir „pen-
ingamönnunum”, sem nú sjá
sér leik á borði.
Ég vil eindregið vara við
þessari þróun. Hún stefnir
þjóðfélaginu aftur til þess
ástands þegar öryggisleysið
rikti og með þvi að ganga þess-
um áróðri á hönd er verið að
eyðileggja þann árangur sem
unnist hefur i mannréttindum
og jafnrétti undanfarna áratugi.
Og við gerum aðeins óvina-
fagnað meö þvi aö sýna það
hugleysi aö þora ekki að horfa á
þá staðreynd að i okkar röðum
eru einnig sterkir aðilar sem
vilja tryggja stöðu sina áfram
og hika ekki viö aö fórna
réttindum litilmagnans fyrir
áframhaldandi sérréttindi sln.
Þarna eru á ferðinni greinileg
einkenni. Þaðer kominn af stað
þrýstingur á mænu hreyfingar-
innar sem orðið getur að veru-
legri skemmd ef ekkert veröur
aö gert.
Það tekur auðvitað lengri
tima fyrir okkar hreyfingu að
úrkynjast en aðrar stjórnmála-
hreyfingar á Islandi. Til þess
liggja söguleg rök. En nóg eru
vitin að varast þegar horft er til
annarra flokka, og Kópavogs-
dæmið ætti einnig að vera okkur
viðvörun um það hvernig farið
getur ef engir öryggisventlar
eru hafðir opnir.
Það er að minu viti raunsaá að
benda á þessa hluti. Ég held að
við töpum ekki á þvi þegar til
lengri tima er litið að ætla þeirri
gagnrýni rúm i umræðum okkar
um stöðu hreyfingarinnar.
Hrafn Sæmundsson.
„Þetta er besti og ódýrasti farkosturinn I landinu”, sagði Stefán frá
Mörðudal, listmálari og skáld, þar sem blaöamaöur hitti hann I Vatns-
mýrinni. Hann var þá aö reiöa um 300 pund af nýslegnu grasi á reiö-
hjóiinu sinu, en Stefán heyjar ofan I 9 hross sin meö þeim hætti aö hann
hiröir af grasblettum og úr Gamla kirkjugarðinum og brciöir til þerris
á Vallavöilum. Þar standa nú hinar myndarlegustu sátur. Ljóan-... Ai
Kynnið ykkur leigjendalögin
Félagsmálaráöuneytið hefur
sent frá sér séfprentun húsa-
leigulaganna sem samþykkt voru
á alþingi siðast liöið vor.
Samkvæmt lögunum á ráðu-
neytið að sjá um kynningu á þeim
og er það algjör nýjung I Islensk-
um lögum. Ráðuneytið hefur hins
vegarekkienn þá komið kynning-
unni I framkvæmd og er boriö við
fjárskorti. Þaö mætti benda þeim
góðu mönnum á aö blaðamanna-
fundir reynast oft vel þó að annað
sé látið bfða.
Þeir sem vilja kynna sér lögin
og hafa þau handbær, ef á þarf aö
halda, geta nú gengið sig niður i
ráðuneyti eða á skrifstofu Leigj-
endasamtakanna og fengiö eintak
af lögunum þar.
— ká
Eyðublöðin
komin
— fyrir húsaleigu-
samninga
Nú eiga aö liggja frammi hjá
skirfstofum bæjarfélaga, ráöu-
neytis féiagsmála, Leigjenda-
samtökunum og þeim aöilum
öörum sem láta sig leigjendamál
varða, eyöublöö fyrir húsaleigu-
samninga sem félagsmálaráðu-
neytiö hefur látiö útbúa.
A eyðublaðinu er tekið fram allt
þaö sem varðar leigusala og
leigjanda og á þvi hér eftir ekkert
að fara milli mála, hver leigan er,
hvernig ástand ibúðar er þegar
hún er leigð, hvað greitt er i
tryggingu o.s.frv.
Það er ástæða til að benda
leigjendum á að hér eftir telst
þessi samningur vera sá eini lög-
legi sem hér er I gildi. —ká
Söngvaka í
I kvöld kl. 21 hefst i Norræna
húsinu sjötta og siðasta söngvaka
Félags islenskra einsöngvara á
þessu sumri.
Þá munu Njáll Sigurðsson og
Magnús J. Jóhannsson, félagar úr
kvæðamannafélaginu Iðunni,
fara með nokkrar stemmur viö
visur úr Númarimum eftir Sigurð
Breiðfjörð.
A söngvikunni syngja Elisabet
Erlingsdóttir og Ingveldur
Norræna
Hjaltested islensk þjóölög og ein-
söngslög. Agnes Löve og Jónina
Gisladóttir annast undirleik.
Söngvökur þessar hafa verið
vel sóttar og gefst fólki þar tæki-
færi til þess að hlusta á fjöl-
breytta og skemmtilega dagskrá.
Eftir eina söngvöku i fyrra-
sumar var þeim Ingveldi og Jón-
ínu boðið i söngför til Sviþjóðar og
munu þær fara þangað i tónleika-
ferð I haust.