Þjóðviljinn - 21.08.1979, Page 11
Þriðjudagur 21. ágúst 1979. ÞJQDVILJINN — StÐA 11
iþróttir 0 íþróttirgl íþróttir
annað
Breiðablik vann Fylki
1 gærkvöldi fór fram einn leikur
i 2. deild í knattspyrnu. Breiða-
blik vann Fylki með 2 mörkum
gegn engu. Leikurinn fór fram á
Laugardalnum.
íslandsmet i 1500 m
1 fyrradag setti Jón Diöriksson
glæsilegt íslandsmet i 1500 metra
hlaupi á stórmóti sem hann tók
þátt i í Þýskalandi en hann dvelur
nú við æfingar i þvf landi. Timi
hans var 3.43.2 mínútur og er það
rúmri sekúndu betri timi en
gamla islandsmetið sem hann
átti sjálfur.
Mörg óvænt úrslit i 1.
umferðinni.
Fyrsta umferð ensku deilda-
keppninnar var á laugardaginn
oguröu þessiiirslitl 1. og2. deild:
1. deild
Bolton-Aston Villa 1-1
Brighton-Arsenal 0-4
Bristol C-Leeds 2-2
Everton-NorwichC. 2-4
Ipswich-Nottingham F 0-1
Manch.City-CrystalP. 0-0
Southampton-Manch. Utd. 1-1
Stoke-Coventry 3-2
Tottenham-Middlesborough 1-3
WBA-Derby 0-0
2. deild
Birmingham-Fulham 3-4
Charlton-Preston 0-3
Chelsea-Sunderland 0-0
Leicester-Watford 2-0
Luton-Cambridge 1-1
Newcastle-Oldham 3-2
NottsCounty-Cardiff 4-1
Orient-Burnley 2-2
QPR-Bristol Rovers 2-0
Swansea-Shrewsbury 2-0
Wrexham-West Ham 1-0
Hannes bætti enn einni
skrautfjörður í hattinn
Afrekskeppni F1 i golfi var
haldin um helgina með þátttöku
allra bestu kylfinga landsins. ís-
landsmeistarinn Hannes Ey-
vindsson sigraöi, lék á 297 högg-
um. Annarvarð JónHaukur Guð-
laugsson á 298 höggum og þirðji
Óskar Sæmundsson á 299 högg-
Hugi setti íslandsmet
Selfyssingurinn Hugi Harðar-
son setti gott Islandsmet i 100 m
baksundi á Norðurlandamótinu
um helgina. Hann synti vega-
lengdina á 1:05.9 min.
Pétur kominn á Skot-
skóna
Pétur Pétursson og félagar hjá
Feyenoordfóru vel á stað i fyrstu
umferöhollensku 1. deildarinnar.
Þeir léku á heimavelli gegn PEC
Zwolleog sigruðu 2-0. Pétur gerði
sér litiö fyrir og skoraði annað
mark liðsins.
KR-Þróttur I kvöld
1 kvöld verða 2 leikir i 1. deild-
inni i knattspymu. A laugardals-
velli keppa KR og Þróttur og i
Kaplakrika leika Haukar og ÍBV.
Báöir leikirnir hefjast kl. 19.
•
Jafnt hjá Celtic
og Rangers
Þriðja umferð skosku úrvals-
deildarinnar var leikin á laugar-
daginn og urðu úrslit leikjanna
þessi:
Rangers-Celtic 2-2
Aberdeen-Hibernian 3-0
Dundee-St. Mirren 4-1
Kilmarnock-DundeeU 1-0
Morton-Dartick 2-1
i ■■■■■■ mm ■■■■■»■■■■■■■■■!■ aJI
Austri að tryggja
sæti sitt í 2. deild
Austri vann góðan sigur um
helgina I hinni hörðu fallbaráttu.
2. deildar. Þeir Eskfiröingarnir
skruppu til Sandgeröis, léku þar
viö Reynismenn og fóru til baka
með bæöi stigin. Þessi úrslit gera
þaö að verkum aö IBt og Reynir
standa mjög illa að vigi.
Leikur Reynis bar öll merki
fallbaráttunnar. Heimamenn
léku á móti strekkingsvindi I fyrri
hálfleiknum, en reyndu samt
að sækja. Þeim varð þó nokkuð
hált á þeim sóknaraögerðum þvi
hraðaupphlaup austanmanna
voru hættuleg. Úr tveimur slikum
sky ndiupphlaupum skoraði
Bjarni Kristjánsson, hinn eld-
snöggi, 2-0 fyrir Austra i hálfleik.
Reynismenn sóttu látlaust allan
seinni hálfleikinn, en tókst aðeins
að skora einu sinni og var þar
Ómar Björnsson að verki, 2-1.
Fleiri urðu mörkin ekki og fögn-
uöu Austramenn ákaft I leikslok.
A Grenivik áttust við Magni og
Þór frá Akureyri. Þðrsararnir
Framarar komnir á skrið
Rótburstuðu ótrúlega slaka
Keflvíkinga 4:0
Kristinn Jörundsson náði sér
heldur betur á strik i leiknum
gegn IBK og skoraði 2 mörk. Hér
að ofan er hann i kunnuglegri
stellingu, að berjast um frákast i
körfuboltanum.
Framarar hristu a11--
hressilega af sér slenið/
sem hef ur hrjáð þá undan-
farnar vikur, þegar þeir
mættu ÍBK á Laugardals-
velli (Valbjarnarvöllum) á
sunnudagskvöldið. Eftir
nokkuð rólegan og jafnan
fyrri hálf leik hrundi leikur
Kef Ivíkinganna, Framar-
arnir gengu á lagið, og
þegar upp var staðið hafði
Fram unnið stórsigur, 4-0.
Strax I byrjun leiksins skoraöi
Fram mark, sem kom eins og
köld vatnsgusa framan I Keflvik-
ingana. Pétur Ormselv tók auka-
spyrnu, gaf vel fyrir, og Asgeir
átti ekki i miklum erfiðleikum
með að skalla boltann i netið, 1-0.
Um miöbik hálfleiksins fékk IBK
3 góð færi sem öll mistókust.
Fyrst lét Ólafur Júl. verja frá
sér , og hið sama henti Einar As-
björn. Nokkru seinna komst Guð-
mundur inn fyrir ÍBK-vörnina, en
Þorsteinn varði.
í seinni hálfleiknum fór ’að fær-
ast líf i tuskurnar. Framararnir
náðu nokkrum sinnum skemmti-
legum sóknarrispum. Upp úr
einni slikri fengu þeir horn, sem
Rafn tók. Hann gaf vel fyrir, bolt-
inn barst • til Asgeirs og hann
negldi og i markið fór boltinn þó
að Þorsteini tækist aö slæma
hendi i hann, 2-0. Eftir betta
komst vörn ÍBK hvað eftir annaö i
vandræði, og á 71. min. munaði
minnstu aö Marteini tækist að
skora eftir eina stóruvitleysu
IBK-varnarinnar. Nokkru seinna
geröi Þorsteinn þá reginskyssu
að æöa út fyrir vitateig án þess aö
ná knettinum. Asgeir plataði
hann, gaf fyrir, en Kidda Jör.
tókst að skalla yfir af markteig.
Kiddi bætti um betur á 85. mln.
þegar hann skoraði af stuttu færi
eftir aö Pétur hafði neglt i stöng
og siöan rennt á hann, 3-0. A
næstu min. stóö Kiddi frir á
markteig með boltann og átti ekki
I miklum erfiðleikum með aö
skora, 4-0 fyrir Fram.
Keflvikingar náðu sér aldrei T
strik i þessum leik, enda ekki
nema furöa eins og þjálfarinn,
Tom Tranter, er sifellt að breyta
liðsuppstillingunni. Hann tók við
liðinu á velgengnistimabili á
miðju sumri og fór að breyta leik-
skipulagi og liösuppstillingu eftir
eigin höfði. Slikt kann ekki góðri
lukku að stýra.
Annars voru IBK-leikmennirnir
allir fremur daufir i þessum leik,
enginn skar sig úr. Þó verður þess
að geta að vandséð er hvernig
Þorsteinn Ólafsson á að halda
stööu sinni I landsliðinu vegna
þess að hann hefur verið slakur i
siðustu leikjum IBK.
Framararnir koma sterkir frá
þessum leik. Þaö sem e.t.v. er
mikilvægast fyrir þá er aö þeir
virðast hafa öðiast sjálfstraust á
nýjan leik. Guömundur var
öruggur i markinu og vörnin
traust. I framlinunni bar mest á
Pétri að vanda, en hann er sann-
kallaður gullspilari og á skilið
tækifæri meö landsliðinu i hasust.
Þá var Kristinn réttur maður á
réttum tima i þessum leik.
—IngH
höfðu að litlu að keppa i' þessum
leik, en Magnamenn reyna aö
hala inn eins mörg stig og þeir
geta til þess að sleppa við fall.
Magni hafði undirtökin I fyrri
hálfleiknum og rétt fyrir leikhlé
tókst Hringi Hreinssyni að ná for-
ystunni fyrir þá. Nokkru fyrir
leikslok jafnaði Sigtryggur Guð-
laugsson fyrir Þór eftir að þeir
Þórsarar höfðu sótt af miklu
kappi aö marki Magna, 1-1.
Þrótti frá Neskaupstaö tókst að
forða sér af mesta hættusvæði
deildarinnar með þvi að sigra
Selfoss 2-1 á laugardaginn.
Þróttur haföi yfir i hálfleik 1-0
og var það Björgúlfur Halldórs-
son, sem markið skoraði. Bjarni
Jóhannesson bætti um betur i
upphafi seinni hálfleiks og skor-
aði gott mark. Undir lok leiksins
rétti Sumarliöi Guðbjartsson hlut
Selfyssinganna.
A tsafiröi fengu heimamenn
kennslustund I knattspyrnu þegar
Framhald á 14. siðu
Þessi mynd var tekin á leik KR og Þórs I 3. flokki og sækja Þórsararnir
hart að marki Vesturbæinganna.
Mynd:— eik—
Tvöfalt hjá Val
Valsmenn urðu Islandsm í 3. og 4. flokki
Þó að meistaraflokkur Vals
hafi tapað i Eyjum á sunnudaginn
gátu áhangendur félagsins glaðst
mjög þvi 3. og 4. flokkur sigruðu i
úrslitakeppninni sem lauk sama
dag.
Úrslitakeppni 3. flokks fór fram
i Kópavogi voru Valsmenn þar i
riðli meö Þór og Armanni.t hinum
riölinum voru KR, Fylkir og
Þróttur, Neskaup-,
stað.Valsararnir sigruðu Þór 3—1
og Armann 4—1 og voru þar með
komnir i úrslitaleikinn. I hinum
riðlinum var meira fjör. KR
sigraði Þrótt 5—1, en tapaöi fyrir
Fylki 1—2, en Fylkismenn höfðu
áður gert jafntefli viö Þrótt,
1—1.
1 úrslitaleiknum milli Vals og
Fylkis var hart barist. 1 fyrri
hálfleiknum hafði Fylkir undir-
tökin, en hvorugu liöinu tókst að
skora. Valsmenn hresstust mikið
i seinni hálfleiknum og skoruðu 2
mörk gegn 1 Fylkismanna. Fyrir
Val skoruöu Jóhann Holton, fyrir-
liði,og GIsli Bjarnason. Hörður
Guðjónsson skoraði mark Fylkis.
KR varö i 3.sæti, Þór i 4.sæti,
FTamhald á 14. siöu
Stewart Johnson horfir hér hinn rólegasti á aðfarir Einars
Bollasonar i leik Ármanns og KR á Reykjavikurmótinu i fyrra-
vetur. Ekki er enn ljóst hvort Johnson mun leika með KR eða
Ármanni eba hvort hann leikur yfirleitt nokkuð hér á landi næsta
vetur.
Leikur Johnson
ekki með KR?
Likur benda nú til þess að Stewart Johnson leiki ekki með
KR-ingum næsta vetur þvi heyrst hefur að hann hafi gert 10
mánaða samning viö argentinska liöiö sem hann hefur leikið með I
sumar. Hann hefur aðeins verið 3. mán. af þeim 10 sem hann á að
leika með liðinu. Til þess aö Johnson fái aö ieika hér á landi þarf
liðiö, sem hann fer til, að borga 5 þús.dollara.
Þetta hefur ekki fengist staðfest, en Bob Star, sá sem annast
samninga fyrir Johnson,mun hafa látið þessi orð falla.
KR-ingarnir munu hafa f höndunum bréf frá Johnson, hvar
hann segist ætla að koma hingað 1. sept.og leika með liðinu.
Samskonar bréf hafa Armenningar einnig upp á vasann og er ekki
vitaö um þaötil hvors iiðsins Johnson fer ef hann kemur hingað i
haust.
„Ég hef ekkert heyrt um þetta, alla vega hefur Johnson ekki
látið þaö uppi viö okkur,”sagöi Helgi Agústsson, varaformaður
körfuknattleiksdeildar KR. Helgi sagöist ennfremur hafa heyrt
um bréf Johnsons til Ármanns.
Mái þetta mun væntanlega skýrast um næstu mánaðarmót þvi
þá er Stewart Johnson væntanlegur tii landsins. IngH.