Þjóðviljinn - 21.08.1979, Blaðsíða 16
UOOVIUINN
Þriðjudagur 21. ágúst 1979.
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
L'tan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfs-
menn blaðsins i þessum simurn: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiðsla 81482 og Blaöaprent 81348.
Q81333
Kvöldsími
er 81348
Þeir Guðni og Tryggvi undu sér vel i sandinum úti fyrir nýja skóladagheimilinu sinu. Meö þeim á
myndinni eru Anna Bára fóstra og Soffia starfsstúika. Ljósm. Leifur.
Nýtt skóladaghcimili
viö Völvufell
Nýtt skóladagheimili er risiö i
Feliahverfi, þaö fyrsta hér á landi
sem hannaö er og byggt sérstak-
lega sem slikt. Þessa dagana er
veriö aö leggja siöustu hönd á
innréttingu hússins, sem stendur
viö Völvufell, og þrjú börn hafa
þar nú þegar aðsetur sitt.
Nýja skóladagheimilið er hluti
af heilmikilli „barnamiðstöð”
sem risin er i hverfinu, þvi auk
þess eru starfrækt þarna dag-
heimili, leikskóli og gæsluvöllur.
Dagheimilið og skóladagheimilið
eru rekin að nokkru leyti á sám-
eiginlegum grundvelli, t.d. er
Selma Þorsteinsdóttir forstöðu-
kona beggja heimilanna og mat-
urinn sem skóladagheimilisbörn-
in fá kemur úr eldhúsi dagheimil-
isins.
Um næstu mánaðamót verður
skóladagheimilið formiega opn-
að, og bætast þá fleiri börn i hóp-
inn, en skóladagheimilið er byggt
fyrir 20 börn.
Húsið er snoturt steinhús,
hannað af arkitektunum Guð-
mundi Kr. Guðmundssyni og
Ólafi Sigurðssyni. Stór lóð fylgir
húsinu og er nú verið að ganga frá
henni og koma þar fyrir leiktækj-
um. Reynir Vilhjálmsson hefur
hannað lóðina.
Innanhúss eru setustofa, borð-
stofa, föndur- og smiðaherbergi,
púðaherbergi þar sem hægt er að
ærslast að vild og skemmtilegt
leikloft undir súð, auk eldhúss og
snyrtiaöstöðu. Elin Pálsdóttir er
yfirfóstra heimilisins og með
henni starfa fóstra og tvær starfs-
stúlkur, önnur i hálfu starfi.
Ekki er að efa að skóladag-
heimilið við Völvufell bætir úr
brýnni þörf i barnmörgu hverfi.
— ih
Skiptafundur i þrotabúi Breið-
holts hfi í gœr:
Rannsókn bók-
halds ólokið
lgær varhaldinn skiptafundur f
þrotabúi Breiöholts h.f. en þar
sem bókhaldsrannsókn er ekki
lokiö var þvi slegiö á frest til 9.
október aö kanna kröfur I þrota-
búiö til þess aö hægt væri aö bera
þær saman viö endanlegar niöur-
stööur bókhaldsrannsóknarinnar.
Unnsteinn Beck skiptaráöandi
sagöi I samtali viö Þjóöviljann i
gæraökröfurnarværuá 7. hundr-
aö mQjón króna en fljótt á litiö
viröist þar eitthvaö vera oftaliö.
Algjörlega vonlaust er taliö aö
eignir félagsins standi undir kröf-
unum.
Unnsteinn sagöi aö á fundinum
i gær hefði verið farið vandlega
ofan i kröfu lögmanns Breiðholts
h.f. á hendur Alþýðubankanum
um að vextir hefðu verið ofreikn-
aðir um nær 6 miljónir króna og
heföi komiö i ljós að krafan
Framhald á 14. siðu
Alvarlegt slys
á Þingvöllum
Um 5-leytið i gær fór blæjubill
út af veginum heim að bænum að
Þingvöllum við öxará og valt
þannig að hann endastakkst.
Gerðist þetta á móts við svo
kallaðan Arnesingakrók. í bilnum
voru nokkrir Þjóöverjar og
sluppu þeir litt meiddir nema
einn þeirra sem fékk högg á
höfuöið. Var hann fluttur
meðvitundarlaus til Reykjavikur
og talinn mikið slasaður að sögn
lögreglunnar á Selfossi. -GFr.
Asgeir Pétursson
Asgeir Péturs-
son í Kópavog?
Steingrimur Hermannsson,
dómsmáiaráöherra hefur afgreitt
umsóknir um bæjarfógetastööuna
I Kópavogi, en þar sem forseti
hefur ekki afgreitt skipunarbréf
vildi Steingrimur I gær ekki láta
neitt uppi um hver hinna 9
umsækjenda heföi veriö valinn.
Þjóöviljinn hefur þó öruggar
heimildir fyrir því að það hafi
verið Asgeir Pétursson, sýslu-
maður I Borgarnesi, og enn-
fremur að starfsreynsla hafi
verið látin ráða I þetta sinn. Mun
skipunin til þess ætluð að lægja
nokkuð þær óánægjuraddir sem
uppkomu þegar gengið var fram-
hjá reynslumiklum starfs-
mönnum rikisins við veitingu
yfirborgarfógetaembættisins I
Reykjavik.
Krafa sveitarfélaga sem reka
heimavistarskóla:
RMð kosti upphitun
og yidhald að hluta
Nœr 8 sinnum dýrara að kynda Nesja-
skóla en skóla i Reykjavík
Um siöustu helgi efndi Sam-
band islenskra sveitarfélaga til
fundar á Húnavöllum meö full-
trúum þeirra sveitarfélaga, sem
standa aö rekstri heimavistar-
skóla. A fundinum var einkum
rættum þann vanda, sem þessum
sveitarfélögum er á höndum
vegna mikilla olluveröhækkana,
sem auka mjög verulega upphit-
unarkostnaö skólahúsnæöisins.
Ennfremur var fjallaö um
viöhald og endurnýjun skólahús-
næöis og búnaöar, rekstur mötu-
neyta og ræstingu skólahúsnæöis,
. akstur skólabarna svo og húsa-
leigu og hlunnindi starfsfólks
heim a vistarskóla.
Fundurinn taldi óhjákvæmi-
legt, aö dregið yrði úr þeirri út-
gjaldaaukningu, sem fámenn' og
fjárvana sveitarfélög veröa fyrir
vegna upphitunar.
1 framsöguerindi Þrúðmars
Sigurðssonar oddvita Nesja-
hrepps kom m.a. fram, aö
kostnaöur við upphitun Nesja-
skóla er 1850 kr. á hvern rúm-
metra skólahúsnæöisins á einu
ári. A sama tima kostar hver
„ársrúmmetri”238 krónur á hita-
veitusvæðinu Reykjavlk.
Upphitun Nesjaskóla er þvi nær
áttfalt dýrari en upphitun skóla-
húsnæðis i Reykjavik. „Þetta
finnst fulltrúum strjálbýlishrepp-
anna meiri munur en svo, að
sanngjarnt sé að ætlast til þess að
hrepparnir taki á sig olíuverö-
hækkunina einir og bótalaust”,
sagði Unnar Stefánsson starfs-
maður Sambands Isl. sveitarfé-
laga i samtali við Þjóðviljann i
gær, en Unnar sat fundinn á
Húnavöllum.
Með tilliti til þeirra breytinga,
sem stórhækkað oliuverö hefur
haft á hlutfallslega skiptingu
rekstrarkostnaöar heimavistar-
skóla milli rikis og sveitarfélaga
krafðist fundurinn þess, aö rikis-
sjóöur kosti framvegis upphitun
húsnæðis fyrir heimavistir og
mötuneyti. Að öðru leyti lýsti
fundurinn stuðningi við tillögu,
sem borin var fram á seinasta
Alþingi um jöfnun upphitunar-
kostnaðar I skólum.
Fundurinn fór fram á, aö þær
endurbætur sem geröar yrðu á
skólahúsnæði gagngert til þess að
spara orku, verði ekki kostaöar af
hreppunum einum, heldur fái þeir
einhvern stuöning frá rikinu til
þeirra aögeröa. Veröi þessar úr-
bætur ekki skoðaðar sem venju-
legt viðhald, heldur aö hluta til
sem stofnkostnaður.
Þá lagði fundurinn til að
viðhaldskostnaöur á heima-
vistarhúsnæði verði borinn jafnt
af riki og sveitarfélögum. Fund-
urinn áleit aö sú breyting, sem
gerövar á verkaskiptingurikis og
sveitarfélaga varöandi þetta atr-
iði meö lögum 1975, hafi kœniö
mjög illa við þau sveitarfélög,
sem stóðu að rekstri heimavistar-
skóla. Þvi sé eðlilegt, að skipta
þessum kostnaöi á mÚli rikis og
sveitarfélaga.
—eös
vetur. — Ljósm.: Leifur.
Grunnskólarnir að hefjast
Nemendum fækkar
um 400 í Reykjavík
Reykviskir grunnskólanem-
endur munu veröa um 400 færri
næsta vetur en I fyrra. Fækkunin
nemur þvi sem svarar um 20—30
bekkjardeildum, og að • sögn
Ragnars Georgssonar hjá
Fræösluskrifstofu Reykjavikur
munu nýráðningar kennara i
Reykjavík minnka sem þvi
nemur.
Ragnar sagði að fækkunin
kæmi alls staöar fram I bænum,
nema I Breiðholti, þar sem fjölg-
un ætti sér stað á grunnskólastigi
fremur en hitt. örust væri fækk-
unin I gamla bænum, þar sem
ekkert væri byggt, þannig að
barnafólki bættist lltill liðsauki.
Hann sagði að fækkunin væri þó
ekki eins mikil og siðustu ár, en
börnum i grunnskóla hefur fækk-
aö um 500 að meðaltali undanfar-
ið, en fækkunin nú væri þó ekki
nema 400.
Ekki kvað Ragnar þetta leiða
til þess aö leggja þyrfti niöur
skóla, en sagði að þó væri ákveöiö
að leggja af kennslu á grunn-
skólaátigi I Armúlaskóla. Grunn-
skólum fækkaði þó ekki I Reykja-
vík, þvl I Seljahverfi bættist viö
einn nýr i haust.
1 stuttu viötali við Hjalta Jóns-
son skólastjóra i hinum nýja
Seljaskóla kom fram, að I haust
verður kennt 7—10 ára börnum og
jafnframt haldið uppi forskóla-
kennslu. Kennarar yrðu um 10
talsíns, og myndu kenna umþað-
bil 375 börnum. 1 framtiðinni mun
þó nemendum i Seljaskóla f jölga
mjög, þvi enn er bara búið að
byggja fyrsta skólahúsið af
mörgum sem fyrirhugað er að
risi þar.
—ÖS