Þjóðviljinn - 14.10.1979, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 14. október 1979
Leikfléttur
á Hótel
Loftleiðum
A f immtudagskvöld
boðaði Stúdentafélag
Reykjavíkur til borgara-
fundar á Hótel Loftleið-
um að góðum og gömlum
sið. Fundarefni var
stjórnmálaástandið og
voru málshef jendur f jór-
ir riddarar af skákborði
stjórnmálanna.
Þeir voru Geir Hallgrimsson,
Steingrlmur Hermannsson,
Ragnar Arnalds og Eiður
Guðnason. Reyndar hafði
Benedikt Gröndal ætlað að
mæta til leiks en af ókunnum á-
stæðum voru boðuð forföll hans.
í fundarsalnum voru mættar
ýmsar alþekktar fundahetjur
svo sem eins og Pétur Guöjóns-
son, Markús B. Þorgeirsson og
Haraldur Blöndal. Nokkrir ung-
ir og galvaskir þingmenn létu
sjá sig þarna t.d. Vilmundur
Gylfason og Ellert Schram og
þarna voru lika hryggbrotnir
vonbiðlar frá því í síðustu kosn-
ingum sem eygja nú von undir
kjörorðinu: Aldrei að gefast
upp. Má þar nefna Guðmund G.
Þórarinsson, Jón Armann
Héðinsson og Jón Skaftason.
Svo voru hinir og þessir karlar
og kerlíngar.
Útlit var þvl fyrir skemmti-
legan fund og kannski yrði ein-
hverju uppljóstrað um næstu
leiki I stjórnmálataflinu. Ég
varð fyrir vonbrigðum. Að vísu
var fundurinn skemmtilegur á
köflum en ræöumenn héldu sig
að mestu við pex um fortlðina
og gagnkvæmar ásakanir um
hverjum var hvað að kenna.
Fátt var þvi fréttnæmt.
Ég veitti Geir Hallgrlmssyni
nokkra athygli. Hann er orðinn
hálf utanveltu karlgreyið.
Þarna sat'hann upp við háborðið
og horfði dreymnum og alvar-
legum augum upp I loftið og
öðru hvoru var eins og innri
hlátur heltæki hann sem var i
engum takti við það sem gerðist
á fundinum.
Svo fór hann I ræðustól og
hætti sér út I einhverjar
filósoflskar hugleiðingar sem
enduðu meira eða minna I blind-
götum svo að mál hans fór i
óskiljanlega þvælu. Ég dauö-
kenndi I brjósti um hann og
klappaði ákaft I lok ræðu hans
til þess að ,„peppa” hann upp.
Mest vorkenndi ég þó Sjálf-
stæöisflokknum fyrir að eiga
ekki almennilegan foringja i
sigurgöngunni miklu sem hann
væntir sér núna.
Svo kom Vilmundur i pontu og
likti brotthlaupi krata úr
rikisstjórn núna við uppgjöf
Hermanns Jónassonar I vinstri
stjórninni 1958 sem hann sagði
hafa verið karlmannlega.
En málið var greinilega
einhverjum skylt, enda fór
Steingrimur meö gusti i pontu
og sagði að pabbi sinn hefði ekki
veriö trúður. „Ariö 1958 leitaði
Hermann eftir stuðningi hjá
verkalýðshreyfingunni en fékk
hann ekki og sagði af sér. Núna
leitar verkalýðshreyfingin eftir
þvi að rlkisstjórnin sitji áfram
en þá hlaupa kratar,” sagði
Steingrlmur illgirnislega til Vil-
mundar sem strauk sér ákaft
um lokka meðan á þessu stóð.
Nú fannst mér nóg komið og
fór á barinn og fékk mér einn
campari. Þar sat fullt af fólki
sem hafði engu ómerkari
boðskap að flytja og var ekki
minna niðri fyrir. Mér fannst
eiginlega skemmtilegra að sitja
Þar- Guðjón
Hver
var ástæðan til aö kratarnir
sögðu sig úr stjórninni? spyrja
margir. Alþýöuf lokksmenn
halda þvi sjálfir stift fram að
samstarfsflokkar þeirra hafi
skellt skollaeyrum viö efna-
hagsúrræöum þeirra við verð-
bólguvandanum. En ástæöan
kynni að vera önnur. Daginn
áður en kratarnir tilkynntu
ákvörðun sina um að draga sig
úr stjórnarsamstarfinu, varþað
ljóst að Eyvind Bolle sjávarút-
vegsmálaráðherra Noregs
mundi lifaaf hreinsanir Nordlis
og sitja áfram I stjórninni (sjá
grein bls. 14)
Eyvind Bolle hefur verið einn
harðasti baráttumaður
Norðmanna i Ján Mayen-deil-
unni. Samtimis er það ljóst að
komiö er að skuldadögum fyrir
kratagullið fræga, sem Alþýöu-
flokkurinn hefur þegið frá
Noröurlöndum og þá aðallega
Noregi. Benedikt Gröndal
treysti sérhreint ekki aö mæta
lánardrottnum sinum I liki
utanrikisráöherra til að semja i
þessu viðkvæma máli. Bolle er
þekktur fyrir að vera harður og
ósveigjanlegur i samningum, og
þaö er ekki burðugt fyrir Bensa
að mæta með reisn til leiks. Þaö
er ekki hlaupið að þvi að vera
I tveggja þjónn...
ólafur og Birgir: Nii er herskyldunni lokið.
Matthias: Illt að þurfa að Benedikt: Komið að skuldadög-
framlengja sjávarútvegsmála- um.
ráðherratið Kjartans.
Sjálfstæöis-
flokkurinn
hefur loksins fengist til að
samþykkja minnihlutastjórn
krata. Það er Matthias Bjarna-
son sem lengst þrákelknaðist
viö. Astæðan mun vera sú að
Matti treysti sér ekki aö fara
heim I Vestfjar.ðakjördæmi og
tilkynna kjósendum sinum að
hann hafi framlengt tið
Kjartans Jóhannssonar sem
sjávarútvegsmálaráðherra.
Ennfremur eru dreifbýlis-
þingmenn Sjálfstæöisflokksins
ekki sérlega hressir með að
sitja undir þvi að hafa búið til
landbúnaöarráöherra úr
Alþýðuflokknum. En þeir þurftu
að lúta að lokum.
Tvo
unga iramagosa innan Sjálf-
stæöisflokksins fýsir nú I
prófkjör fyrir kosningarnar I
desember. Eru það þeir Birgir
Isleifur og Ólafur B. Thors, sem
báðir þykjast nú hafa gegnt
herskyldu sinni i borgarstjórn
og vilja nú komast til æðri
metoröa. Hins vegar er sá
ljóöur á, að ekki er pláss fyrir
þá báða á listanum. Samnings-
makkið er nú komið i fullan
gang, og ræddust ungherjarnir
lengi við sl. föstudag, án þess þá
aðritari skráargatsins viti hver
niöurstaöan var...
Leikfélag
Akureyrar er á förum til
Sviþjóðar fyriráramót. Dagana
3.-9. desember verður haldið
Norðurlandamót byggða-
leikhúsa, i örebro og mun LA
vera eina leikhússtofnunin sem
getur státað að þvl heiti
hérlendis. A mdti þessu verða
haldin námskeið og fyrirlestrar
fyrir tæknimenn leikhúsanna og
(h-amatúrga, en einnig fer fram
kennsla i' leikhússtjórnun. Aö
sjálfsögðu veröur mikiö um
leiksýningar og mun LA flytja
verkið „Fyrsta öngstræti til
hægri” eftir örn Bjarnason, en
þaö verður frumsýnt fyrir
noröan 2. nóvember. Leikstjóri
verður Þórunn Siguröardóttir,
en leiktjöld og búninga hefur
Sigurjón Jóhannsson gert.
Sviarnir bjóða, en engu að
siður er það kostnaðarmikil ferð
sem biður LA, og er vert aö geta
þess að það er hinn nýi
framkvæmdastjóri félagsins
Friðgeir Guðmundsson sem
hefur átt stóran þátt i að gera
þessa ferð að veruleika.
íþróttablað
Frjáls framtaks kemur alltaf á
óvart. I slðasta tölublaði er
grein um lyf jamisnotkun
iþróttamanna eftir Ólaf
Guðmundsson, lækni. Svo
skemmtilega vill til að i' Sunnu-
dagsblaðinu i sumar var þessu
efnigerð ýtarleg skil og aö ólaf-
ur notar að stofni til sömu
heimildir og sá sem tók saman
greinina i Sunnudagsblaöinu.
Þetta er vist þaö sem kallað er
frumlegblaðamennska.
Hér
eru stórfréttir fyrir Kópavogs-
búa. Til stendur að Manchester
City láti leggja hitavatnsrör
undir vöh sinn, Maine Road.til
þess að betra verði að leika á
vellinum yfir vetrarmánuöina.
Þetta ætla þeir hjá City að gera
vegna þess aö góö reynsla hefur
fengist af sllkum lögnum I
Noregi, Sviþjóö og á ISLANDI
eða öllu heldur I Kópavogi. Já,
hróðurinn berst viða.
Forsíðu-
myndin
Forslöumyndin er að þessu
sinni eftir Hallgrlm
Tryggvason og ber nafnið „I
skyndilegum stjórnarslit-
um”. Hallgrimur er fæddur
1936 á Akureyri og læröi þar
prentverk (setningu) hjá
Prentverki Odds Björnsson-
ar. Hann stundaði siðan
framhaldsnám I Danmörku
sumarlangt áriö 1957. 1964
hélt hann til Bandarikjanna
og kynnti sér prentverk og
verkaýðsmal. A árunum
1969-70 var hann við nám i
Graphic Design við
Folkstone School of Art i
Kent I Bretlandi.
Hallgrimur vinnur nú i
Blaðaprenti en fæst einnig
viö sjálfstæð verkefni.