Þjóðviljinn - 14.10.1979, Side 5
Sunnudagur 14. október 1979 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 5
Sívaxandi yfirburðir Áustur-Evrópu skákmanna
Hvað veldur?
Sú merkilega staða er
komin upp, að nú virðist
enginn skákmaður á
Vesturlöndum geta ógnað
veldi í fyrsta lagi Sovét-
manna og i öðru lagi
Austurblokkarinnar. Allt
útlit er fyrir að keppendur
i komandi Áskorenda-
keppni verði svo til allir
frá Austur-* Evrópu, og þó
eins og venjulega einkum
frá Sovétríkjunum.
Spasskí, Tal, Polugjajevski og
Kortsnoj hafa þegar tryggt sér
réttinn, og ljóst er sá fimmti
veröur annarhvor Ungverjanna
Ribli eöa Adorjan. I Rio de
Janeiro viröist Portisch nokkuö
öruggur um sæti i Askorenda-
keppninni, og I humátt á eftir
honum koma Sovétmennirnir
Vaganian og Petrosjan ásamt V-
Þjóöverjanum Hilbner og ungum
brasiliskum skákmanni sem
komiö hefur mjög á óvart.
Hvorugur þeirra viröist þó eiga
mikla möguleika ef til kæmi þátt-
taka þeirra i Askorendaeinvigj-
unum. Meö hvarfi Fischers af
sjónarsviöinu var varla nokkur
maöur eftir sem ógnaði veldi
Sovétmanna. Larsen sem lengi
vel haföi veriö von vestursins var
enn i sárum eftir einvigiö gegn
Fischer og hefur enn ekki náö sér
verulega á strik. I dag hefur boriö
mikiö á framgangi hollenska
stórmeistarans Jan Timman, en
árangur hans á mótum er mjög
ójafn, t.a.m. hefur hann engan
veginn náö sér á strik á milli-
svæöamótinu i Rio. í þvi
sambandi veröur þó aö hafa þaö i
huga aö Timman er oft geysi-
sterkur á endasprettinum, á þaö
tilaö vinna 5—6 siöustu skákirnar
i hverju móti. Hann er nú um
miöbik mótsins i Brasiliu, en meö
H'úbner: Einifulltrúi Vesturlanda
I Askorunarkeppninni?
góöum endaspretti gæti hann náö
sér á strik og tryggt sér sæti. Hol-
lendingar binda miklar vonir viö
þennan unga mann, og fyrir til-
stuölan Max Euwe, fyrrum
heimsmeistara, var komið á
laggirnar i Hollandi sérstakri
nefnd, Timman-nefnd, en hún
hefur það verkefni m.a. aö hlúa
sem best aö stórmeistaranum svo
hann veröi tilbúinn ef til einvigis
um heimsmeistaratitilinn kæmi.
Sviinn Ulf Anderson sem náö hef-
ur mjög góöum árangri á skák-
mótum undanfariö viröist ekki
hafa ýkjamikinn áhuga á heims-
meistarakeppninni. Hann tók
ekki þátt i svæöamótinu I Luzern,
en er engu aö slöur staddur i Rio
— sem aöstoöarmaöur Timmans.
Englendingurinn ungi Tony
Miles sýndi ekkert á millisvæöa-
mótinu I Riga og hefur upp á
siökastið ekki náö neitt sambæri-
legum árangri miöað viö frammi-
stööuna á árinu 1977 þegar hann
vann hvert mótiö á fætur ööru.
Robert HTlbner hefur alla hæfi-
leika til aö bera til aö ná langt, en
einhvernveginn viröist Þjóöverj-
ann skorta nauösynlegan áhuga,
auk þess sem hann sinnir skák-
inni I hjáverkum, en hann hefur
meö kennslu i papýrusfræöum viö
háskólann i Köln aö gera.
Þessir sem upp hafa veriö tald-
ir hafa verið hvaö mest I sviös-
ljósinu og ættu samkvæmt þvi aö
eiga mesta möguleika á aö skáka
veldi Austurblokkarinnar, en
einhvernveginn viröist eitthvaö
skorta á, hvaö sem þaö nú er. I
þessari upptalningu var Viktors
Kortsnoj ekki getiö. Að sjálfsögöu
er hann I dag stærsta von vesturs-
ins, en með dálitiö öðrum hætti en
hinir sem upp voru taldir. Skýr-
ingin á yfirburöum A-Evrópu-
þjóöanna liggur raunverulega 1
augum uppi. Rétt eins og knatt-
spyrnuliö getur ekki veriö
þjálfaralaust, þarf skákmaður
skák
einnig á tilsögn aö halda. I
Sovétrikjunum, Ungverjalandi og
Kúbu er þegar settur þjálfari til
aöstoöar efnilegum skákmönnum
og algerlega komiö i veg fyrir aö
einhverjar meinlokur slæöist i
koll nemandans. Allt skákstarf er
geysivel skipulagt og fjöldi
manns sem hefur þaö aö atvinnu
sinni aö leiöbeina og þjálfa efni-
lega skákmenn. Keppni á meöal
skólabarna er fyrsti visirinn, og i
þvi sambandi er það mjög gleði-
legt hvernig byrjaö er aö halda á
málum hérlendis. Eftir 10—15 ár
fer sllkt starf aö skila umtals-
veröum árangri. Aö sjálfsögöu
eru alltaf einhverjir byrjunar-
öröuleikar á feröinni, en þegar
slik keppni fer aö fá á sig fast
form og öll skipulagning komin i
fastar skoröur er oröiö ljóst mál
hversu mjög er unniö á i islensk-
um skákmálum. 1 V-Evrópu
þekkist skipulögö skákkeppni á
meöal skólabarna ekki og öll
áhersla lögö á aörar greinar
iþrótta. Aö visu hafa t.d. Eng-
lendingar unnið mjög gott starf i
unglingamálum og hafa á aö
skipa sterkasta unglingaiiöi utan
Sovétrikjanna, en i öörum lönd-
um er breiddin meöai sterkustu
unglinganna litil og þvi viröast
Islendingar hafa alla buröi til aö
bera til aö geta oröiö enn meira
stórveldi i skákinni en orðiö er, og
þá er ekki bara miöað við fólks-
fjölda.
Kennslubók
í jóga
Bókaútgáfan örn og öriygur
hefur gefiö út fyrstu Islensku bók-
ina um Hatha-Yoga eftir Skúla
Magnússon, en hann á aö baki
margra ára æfingar i Hatha-
Yoga og hefur hiotiö margháttaö-
ar viöurkenningar fyrir hæfni
sina.
A bókarkápu segir aö margir
hafi kynnst Yoga i sjónvarpinu
fyrir nokkrum árum og gert sér
grein fyrir ágæti þess, en fyrir þá
sem fengu áhuga hafi vantaö
islenska kennslubók. Þessari bók
sé ætlaö aö bæta úr þeirri þörf.
Skúl'
A/a?
?>élí ælí^ap u»
1 bókinni eru fleiri tugir ljós-
mynda af yoginunni Mariu
Einarsdóttur viö yoga-æfingar.
Myndirnar voru teknar af As-
grimi Agústssyni. Þá eru i bók-
inni fleiri tugir skýringateikninga
gerðar af Geir Agústssyni.
Upplag bókarinnar er 1108
tölusett og árituö eintök og er
bókin seld á kostnaöarveröi.
Skyndiferð Þjóðviljans
ttt Íriands <é>
DUBLIN - BELFAST, 25.-29. OKT. VERÐ KR. 118.000,-
Dagferð tfl Belfast
Þjóðviljinn skipuleggur dagsferð til Belfast sérstaklega
fyrir farþega sina. Fararstjóri í þeirri ferð verður Berg-
steinn Jónsson sagnfræðingur.
Listviðburðir
Á þessum tima verða ýmsir merkir listviðburðir í Dublin,
óperuhátiö, þjóðlagahátið, myndlistasýningar og fjölbreytt
leikhúslíf.
Irska pundið
er 10% hagstæðara en það breska.
/
Irsku krárnar
og hinn margrómaði bjór heimamanna á hverju götuhorni.
Innifalið í verði:
-Flug, hótel m/morgunverði og íslensk fararstjórn, sem
m.a. skipuleggur skoðunarferðir um borgina og vísar tón-
listarunnendum á frábær írsk þjóðlagakvöld.
Vegna mikillar eftirspurnar er mönnum bent á að bóka sig i
ferðina sem fyrst í sima blaðsins, 81333.
___________________________________________________IZ_____________J