Þjóðviljinn - 14.10.1979, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 14. október 1979
*af erlendum
vettvangi
Breytíngar
á norsku
ríkis-
stjórnínni
Odvar Nordli, forsætisráðherra Noregs, gerði
viðamiklar breytingar á ríkisstjórn sinni í síðustu viku.
Með þessum umskiptum er Nordli orðinn nær einráður í
Verkamannaflokknum, og ríkisstjórnin eina pólitíska
miðstöð flokksins. Kratarnir hafa þarmeð veðjað öllu á
einn hest fram að þingkosningunum 1981
Það eru einkum þrennar ástæður fyrir breyting-
um forsætisráðherra á ríkisstjórninni: Slæm útkoma
Verkamannaflokksins eftir byggðakosningarnar nýver-
ið, vaxandi andstaða Alþýðusambandsins gegn stefnu
rikisstjórnarinnar og tilraun Nordlis að styrkja eigin
stöðu innan stjórnarinnar, þingflokksins og verkalýðs-
hreyfingarinnar. Þessar breytingar eru m.ö.o. enginn
fyrirboði umskipta á pólitískri línu flokksins.
Siðasta embættisverk fráfarandi fjármáiaráð-
herra, Pers Kleppe var að leggja f járlög komandi árs
fyrir Stórþingið. I þeim koma fram fyrstu verulegu
áhrif olíutekna norska ríkisins í Norðursjó, og gera rík-
inu kleift að greiða skuldirnar erlendis. Samfara stór-
auknum oliutekjum gætir einnig jákvæðra áhrifa frá
kaup- og verðstöðvuninni sem til framkvæmda kom
fyrir tveimur árum.
Takmark ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum á
komandi ári er þríþætt: Sporna við frekara atvinnuleysi,
halda verðhækkuninni neðar en hjá viðskiptavinum
erlendis, og stórminnka neikvæðan viðskiptajöfnuð við
útlönd.
Þeirri spurningu er þó enn ósvarað, hvort
hinn pólitíski kapall kratanna gangi upp. Heldur hin
jákvæða efnahagsþróun Noregs áfram næstu tvö árin,'
og rís Odvar Nordli undir hinu nýja forystumerki? A
þessum tveimur spurningum stendur eða fellur
núverandi ríkisstjórn í þingkosningunum 1981.
Kaballinn hans Nordlis
Nýafstaönar byggðakosningar i
Noregi gáfu skýrlega hinar
pólitisku linur: Vinsældir Verka-
mannaflokksins snarminnkuöu en
sókn Hægra flokksins jukust aö
sama skapi. Miöflokkarnir svo og
sósialistar (SV) njóta æ minna
fylgis. Þaö má þvi tala um
tviflokka kerfi I Noregi i dag,
kerfi sem siglir i sterkum
hægrivindi.
Byggöakosningarnar gáfu
einnig ótvirætt merki um niöur-
stööur komandi þingkosninga
1981. Þaö var því búist viö
afgerandi breytingum innan
rikisstjórnarinnar eftir úrslit
byggðakosninganna, sérstaklega
meö tilliti til þess, hve veikt for-
sætisráöherrann stóö innan
Verkamannaflokksins og ekki sist
vegna hinnar harðskeyttu gagn-
rýni Alþýöusambandsins á stefnu
krata.
Svar Verkamannaflokksins við
kosningaósigrinum og hægrihætt-
unni kom svo i siðustu viku.
Rikisstjórnin hafði veriö stokkuö
upp á nýtt; breytingar sem
byggjast á einskoröaðri forystu
Nordlis og gera stjórnina að
ótviræðri valdamiöstöð Verka-
mannaflokksins.
Þeir einu sem halda stólum sin-
um eru utanrfkisráöherrann
Knut Frydenlund, oliu- og orku-
SYNING
Afmælissýning Volvo á íslandi.
Fimmtugasti árangurinn, sem fluttur er til
landsins.
Við nefnum Volvo 1980
ALDAMÓTABÍLINN
billinn, sem endist til næstu aldamóta!
Við sýnum sérstaklega
VOLVO 345
í fyrsta sinn hérlendis,
Laugardag, 13/10, kl 14-19, og
•sunnudag, 14/10, kl. 10-19
i Volvosalnum við Suðurlandsbraut.
NÝIR BÍLAR,
NÝIR LITIR,
NÝIR MÖGULEIKAR.
VOLVO
-þjónusta við íslenska ökumenn í hálfa öld!
málaráðherra Bjartmar Gjerde,
landbúnaðarráöherrann óskar
öksnes og sjávarútvegsráöherra
Eyvind Bolle.
En litum á nýju riddarana hans
Odvars Nordli .
A Iþýðusambandið
fær sitt
Hugmyndin bak viö ráöherra
umskiptin var i sjálfu sér einföld:
Aö safna saman óánægjuröddum
frá helstu valdastöövum Verka-
mannaflokksins i einn hóp og
eyöa gagnrýninni meö virkri
ábyrgö og þátttöku.
Og þar var Alþýöusambandiö
efst á blaöi. Helstu forystumenn
verkalýöshreyfingarinnar hafa
haldiö uppi háværri gagnrýni á
efnahagsstefnu stjórnarinnar.
Ekki hefur kaup- og veröstöövun-
in veriö slst til umræðu. Nordli
valdi tvo menn úr Alþýöu-
sambandinu i nýju stjórnina, þá
Ulf Sand, formann fjármála-
deildar Alþ.-sambandsins sem
hann geröi aö fjármálaráöherra
og Lars Skytöen, formann
málmiönaöarmanna sem settur
var i embætti iðnaöarráöherra.
Per Kleppe, sem gegnt hefur
lengst embætti fjármálaráöherra
i sögu Noregs, eöa I sex ár
samfleytt, var komiö fyrir i nýju
ráöuneyti, sem myndað hefur
veriö, eftir aö Hafréttarráöuneyt-
iö var lagt niöur. Per Kleppe er
þvi áætlunarráðherra, en ráöu-
neytið nýja nefnist Ráöuneyti
fyrir heildarstjórn og langtima-
áætlanir. I raun má þó kalla Per
Kleppe yfirríkisritara, eins konar
heila bak viö forsætisráöherra.
En vikjum aftur að Alþýöu-
sambandskrötunum. Ulf Sand er
læröur félagshagfræöingur, hefur
veriö rikisritari I Neyslu- og
skipulagsráöuneytinu hækk-
aöi á hans tima verö-
lagiö um 72%) en áöur farið
gegnum hin heföbundnu svipu-
göng kratanna til vegs og
viröingar: virkur I æsku-
lýöshreyfingunni síöar i
stúdentapólitikinni (fyrir Verka-
mannaflokkinn auövitaö) og loks
i æöri stööur sem rlkisritari og
formaöur Fjármáladeildar
Alþ.samb.. Ulf Sand er sagður
flokkshollur, sumir kalla hann
flokkskaninu. Aörir segja aö hann
sé erfiður I samvinnu sökum
ósveigjanleika og stiröleika.
Leikur Nordlis er klókur: Sand
veröur fyrst og fremst aö byggja
upp aö nýju góö tengsl milli fjár-
málaráöuneytisins og fyrri kunn-
ingja i Alþ.sambandinu. Þetta
getur oröiö þungur róöur þareö
sjóöir sambandsins eru tómir og '
svör ráöuneytisins hafa aö
undanförnu veriö: „Sýniö
hófsemi i kröfum”.
Lars Skytöen er ekki háskóla-
maöur eins og Ulf Sand, heldur
logsuöumaöur aö iön. Hann hefur
veriö formaöur málmiönaöar-
manna frá 1976 og einn af forystu-
mönnunum innan Alþ.sambands-
ins. Hann er einnig meölimur i
miöstjórn Verkamannaflokksins
og hefur áöur verið á lista yfir
ráöherra. Þegar hann tekur nú
viö embætti iðnaðarráöherra eru
þaö margir sem spyrja: Veröur
þaö Alþ.sambandiö sem fær tögl
og hagldir i iönaöarmalum lands-
ins?
Hægri og vinstri
kokteill
Nordli hefur einnig blandað
hanastéliö rétt meö tillit til hægri
og vinstri vængsins innan Verka-
mannaflokksins. Þaö kom mörg-
um á óvart aö hann geröi Einar
Fördefað kiirkju- og menntamála-
ráöherra. Förde er aðeins 35 ára
gamall og talsmaður vinstri
vængsins i Verkamannaflokkn-
um. Hann er eindreginn and-
stæöingur NATO og EBE og hing-
að til hafa róttækar skoöanir hans
staðiö honum fyrir þrifum innan
flokksins, þó þvi sé ekki aö leyna
aö hann er meö færari yngri
mönnum krata. Sissel Rönbeck,
sem einnig er andstæöingur
Atlantshafsbandalagsins, var
gerö aö neytendamálaráöherra.
Hún er aöeins 29 ára og yngsti
ráöherra I sögu Noregs. Hún og
ingólfur
IVlargeirs-
son
skríf ar
Förde hafa verið nefnd sönnunar-
gögn róttækni Verkamanna-
flokksins og þvi þótti forysta
flokksins hæfa aö kippa þeim inn i
stjórnina til aö þagga niöur i
gagnrýni vinstri vængsins. Þau
eru einnig fulltrúar yngri
kynslóöarinnar I flokknum. Þaö
var einnig nauösynlegt fyrir
Nordli aö fá kvenmann I stjórn-
ina, þar eö hinni vinsælu Gro
Harlem Brundtland, sem fariö
hefur meö völd umhverfismála-
ráðherra, var snaraö úr rikis-
stjórn og komiö fyrir á Stórþing-
inu. Aöeins Inger Louise Valle,
sem fór meö embætti dómsmála-
ráöherra og nú hefur veriö gerö
aö byggöarmálaráöherra var
eftir sem fulltrúi kvenna i stjórn-
inni. Meö þvi aö velja Sissel Rön-
beck sem ráöherra sló Nordli
tvær flugur i einu höggi.
Til aö vega upp á móti vinstri-
vindum innan stjórnarinnar dró
forsætisráöherrann fram einn
Ihaldssamasta kratahöföingjann,
Andreas Cappclen háyfirréttar-
dómara i Stafangri. Cappelen var
eindreginn fylgismaður aöildar
Noregs að EBE á sinum tima (og
beið mikiö skipbrot I þeim
efnum) og hefur átt mestan þátt i
þvi aö sveigja kratastefnu Verka-
mannaflokksins til hægri á
undanförnum áratugum. Þessum
manni kom Nordli nú fyrir i
dómsmálaráðherrastólnum.
Þetta vakti mikla hrellingu meöai
frjálslyndari afla innan flokksins,
einkum þeirra, sem hafa barist
fyrir mildun refsilöggjafarinnar,
og sem fagnaö hafa endurbótum
sem gerðar hafa veriö i tiö Inger
Louise Valle. Cappelen hefur tvi-