Þjóðviljinn - 14.10.1979, Qupperneq 24
DJOÐVIUINN
Sunnudagur 14. október 1979
Aöalsími Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12. f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaöaprent 81348.
L 81333
Kvöldsimi
er 81348
nafn*
Undanfarna viku hefur allt
snúist um brotthlaup krata
úr rikisstjórninni, væntan-
legt þingrof og fyrirsjáan-
legar skammdegiskosning-
ar. Benedikt Gröndal, for-
maöur Alþýöuf lokksins,
veröur aö teljast upphafs-
maöur aö öllu þessu bram-
bolti. Hann bar fram tillög-
una um stjórnarslit og þing-
rof á þingflokksfundi föstu-
daginn 5. október sl. Viö tók-
um Benedikt tali i Alþingis-
húsinu siöd. á föstud.
— Benedikt, er Alþýöu-
flokkurinn tilbúinn meö
minnihiutastjórn?
— Viö erum tilbúnir aö
mynda hana, en viö höfum
ekki skipað mönnum á bása,
þaö gerum viö ekki fyrr en
viö sjáum hvort af slikri
stjórn veröur. En viö erum
reiöubúnir meö stuttum fyr-
irvara. Slik bráöabirgöa-
stjórn yröi ekki skipuö 9
mönnum eins og fráfarandi
meirihlutastjórn, heldur lik-
lega 5 eöa 6.
— Er þaö rétt, sem haldiö
hefur vcriö fram, aö þiö Al-
þýöuflokksmenn hafiö ekki
hugsaö máliö til enda þegar
þiö slituö stjórnarsamstarf-
inu?
— Jú, viö gátum búist viö
ýmsum útgáfum á þessu.
Viö höföum hugsaö máliö
nógu vel, en ekki samiö viö
einn eöa neinn. Engin áætl-
un var tilbúin og viö vitum
ekki hver rás atburöanna
veröur. Hver ákvöröun getur
leitt til mismunandi mögu-
leika, þetta er eins og i skák
aö þvi leyti til.
— Er Alþýöuflokkurinn
fyrst og fremst aö hugsa um
aö bjarga eigin skinni eins og
kostur er þessa dagana, meö
tilliti til væntanlegra þing-
kosninga?
— Ekkier þetta nú þannig
hugsaö, enda erfitt aö gera
sér grein fyrir stööu okkar
meöal kjósenda. Viö fengum
mikiö af lausafylgi siöast.
Ég held aö hitt sé raunveru-
lega ástæöan, vonbrigöi meö
árangursleysiö sl. ár, og viö
höfum fórnaö ráöherrastól-
unum fyrir þennan málefna-
lega ágreining.
— Hefur Sjálfstæöisflokk-
urinn brugöist ykkur nú meö
þvi aö tefja fyrir myndun
nýrrar stjórnar og þar meö
ákvöröun um þingrof og
kosningar?
— Hann skuldar okkur
ekkert, en viö höfum þetta
sameiginlega stefnumál aö
koma á kosningum i des-
ember. Þaö er énn von min
og margra annarra aö þaö
takist
— Hafa Alþýöufiokksráö-
herrarnir fengiö iausn frá
störfum?
— Viö höfum fengiö lausn
frá störfum, en forseti Is-
lands baö ráöuneyti ólafs aö
gegna störfum þangaö til ný
stjórn tekur viö.
— Veröur hart sótt aö þér I
prófkjöri fyrir næstu kosn-
ingar?
— Ég býst viö fjörugu
prófkjöri I Reykjavlk. — eös
Ólöf Sigurlaug Guð-
mundsdóttir er einn af
mörgum blaðberum í borg-
inni. Hún ber út Þjóðvilj-
ann i Neshagahverfi og í
Skjólin. Hún er nýbyrjuð
núna en er þó kunnug
starfinu/ því að i fyrra bar
hún út blaðið í þrjá mán-
uði# október/ nóvember og
desember.
Blaöberar eru fjölmenn stétt I
landinu, og hún hefur æöimikla
sérstööu á vinnumarkaönum.
Blaöberar eru mestmegnis börn
og fáeinir ellilifeyrisþegar og þeir
eru ekki i neinu stéttarfélagi. Ólöf
Sigurlaug er hvorki barn né gam-
almenni, hún er ung kona, nudd-
kona aö mennt og húsmóöir. Hún
hefur mikiö hugsaö um kjör blaö-
bera slöan hún fór sjálf aö bera út
blöö og hér segir hún lesendum
Þjóöviljans frá þessu starfi.
Börn 9-12 ára
— Blaöberarnir eru mestallt
litil börn, flest á aldrinum 9-12
ára, trúi ég. Þau þurfa aö rifa sig
upp eldsnemma á hverjum
morgni, hvernig sem viörar, og
vetrarveörin á tslandi finnst mér
enginn barnaleikur á stundum.
Þessi starfsstétt hefur engin rétt-
indi nema þau aö þurfa ekki aö
gefa tekjur slnar upp til skatts.
Þaö eru einu hlunnindin og
sennilega einu löglegu skatt-
Þetta
er
engin
frjálsu peningarnir i landinu.
Blaöberar mega helst aldrei
veikjast, ef þeir gera þaö er strax
fariö aö kvarta og ég held aö mjög
oft hlaupi einhver á heimilinu
undir bagga og komi blööunum til
skila þegar veikindi ber aö hönd-
um.
Rukkanirnar
leiðinlegastar
— Hvaö fá blaöberar mikiö i
kaup?
— Viö fáum i kaup 10% af
áskriftarveröi blaöanna, þaö eru
núna 400 kr. á blaö. Þá fáum viö
einnig 7% af þvi sem viö rukkum
inn og Þjóöviljinn greiöir orlof,
8.33%, mánaöarlega. Þaö gera
hin blööin ekki, þau greiöa orlof-
iö i einu lagi aö þvi ég best veit.
Þess vegna missa sumir sem eru
stutt I starfinu af orlofsgreiösl-
unni. Þjóöviljinn er Iika um þess-
ar mundir aö veita okkur kjara-
bætur, sem nefnist vetrarálag.
Þaö er 10% álag á hvert blaö og á
aö greiöa fyrir tlmabiliö okt.-
mars. Blaöafjöldi hvers og eins
blaöbera er mjög mismunandi og
kaupiö þvi lika. Ég er meö 40 blöö
og þaö er meira en meöallag
enda er ég meö tvö hverfi. Reynd-
ar ber ég lika út nokkur eintök af
Alþýöublaöinu mig munar ekkert
um þaö úr þvi aö ég er á feröinni á
annaö borö. Ennþá erfiöara er aö
finna út tímakaupiö. Ég fer nú
greitt yfir, ýmist hleyp viö fót eöa
hjóla. Ég á þetta forláta hjól, 20
ára gamalt. Undir venjulegum
kringumstæöum fara blaöberar
af staö milli kl. 7 og hálf átta á
morgnana og ég er tæpa tvo tima
I hvert sinn.
Ég kem nú til meö aö veröa
fljótari þegar ég er almennilega
búin aö læra á hverfin. Þaö tekur
vissulega sinn tima, þvi aö skipu-
lagiö er þarna viöa ákaflega
skringilegt, eintómir botnlangar
út og suöur og lika er merkingum
á ibúöum og póstlúgum sums
staöar ábótavant.
En þaö er ekki nóg aö koma
blööunum i húsin,viö veröum lika
aö rukka og þessar helvitis rukk-
anir þær eru bæöi leiöinlegar og
timafrekar og þær veröur aö
vinna um kvöld og helgar. Ætli
timakaupiö sé ekki ansi lágt þeg-
ar allt er reiknaö. Þess vegna
gæti ég alveg eins unniö þetta
LAUN:
10% af
áskriftaverði
blaöanna og
7% af inn-
heimtu
áskriftar
kauplaust. Ég er aö þessu fyrst og
fremst mér til heilsubótar en þaö
eru börnin áreiöanlega ekki aö
gera. Ég er viss um aö þau þurfa
á peningunum aö halda og þetta
eru alveg bráödugleg og sam-
viskusöm börn, miklu samvisku-
samari en margir fullorönir. Og
þetta starf er engin barnavinna
aö minu mati, nema kannski á
sumrin. Blessuö börnin eru yfir-i
leitt hundleiö á þessu og þreytt.j
Lítil saga
— En biddu við, ég er ekki búin
aö nefna þaö alversta viö kjör
þessarar stéttar.en þaö er hversu'
litilsvirt hún er og stundum einsk-
isvirt. Ég skal nefna eitt dæmi
frá I fyrra.
Ég var aö rukka eitt kvöldiö I.
desember, þaö var kolniöamyrk-
ur og beljandi rigning og rok. Ég
kem aö húsi einu og ber uppá og
þaö er komiö til dyra. Ég ber upp
erindiö og er spurö heldur kulda-
lega hvaö þetta sS mikiö. Ég segi
þaö og kvenmaöurinn fer innfyrir
aö sækja peningana. Meöan ég
blö er allti einu komin aö hliöinni
á mér litil tritla sem er aö rukka
fyrir VIsi. Hún nær mér varla
meira en I handarkrika og ég fer
að tala viö hana, spyr hvernig
henni liki starfiö o.s.frv. og henni
finnst allt svo ágætt. Nú, konan
kemur aö vörmu spori meö 5000.
króna seöil og fær mér, en sér þá
telpuna og spyr meö þjósti hvaö
hún vilji. Hún segir þaö. en þá
veröur konan hin versta og segir
telpunni aö hún borgi ekkert.
Blaöið sé of dýrt, dýrara en önnur
blöö. (Þetta var þegar siödegis-
blööin voru komin upp I 2500 krón-
ur en hin voru ennþá 2300 kr.)
Þannig fjasar hún yfir telpunni og
segir henni svo aö koma aftur á
morgun. Þá skuli hún borga. Ég
dauösá eftir þvi aö hafa ekki rétt
konunni peningana sem ég var aö
taka viö og sagst sjálf skyldi
koma á morgun.
Svona framkoma heyrir til und-
antekninga sem betur fer.en þess-
ar undantekningar eru samt of
margar. I næsta húsi voru þær
lika á allt annan veg. Þar var mér
boöiö uppá kaffi sem ég gat ekki
þegiö sökum tlmaskorts. Og núna
um daginn hringdi til min einn
áskrifandinn til *aö fá blaðiö, ég
haföi óvart gleymt honum þann
daginn. Þegar ég kom meö þaö,
þáöi ég hjá húsráöendum volgt
slátur.
Svona eru mennirnir misjafnir.
Slysahætta —
tryggingar?
— Eru blaöberar slysatryggö-
ir?
— Nei, þeir eru þaö ekki/svo ég
viti til. Ég veit ekki betur en viö
séum réttlaus ef viö slösumst I
vinnunni. Og þaö er svo sannar-
lega auövelt aö detta og jafnvel
hálsbrotna I verstu færöinni á
götum Reykjavikur.
— Hvaöa kjarabætur teluröu
brýnastar fyrir þessa stétt?
— Betur borgaö, vitaskuld, og
meiri hagræöingu og aö losna viö
rukkanirnar. Hvers vegna ekki aö
rukka i giró t.d ársfjóröungslega.
Og svo þarf viöhorfiö gagnvart
börnunum aö breytast úr þvi aö
þau eru i þessari vinnu.
— Ætlaröu aö halda áfram I
þessu starfi?
— Ég veit þaö ekki, þaö fer eft-
ir þvi hvernig liggur á mér. Mér
þykir gaman aö hreyfingu og úti-
veru og þessi vinna veitir mér
hæfilegt aöhald. Ég rak nuddstof-
una á Hótel Sögu I 5 ár en seldi
minn hlut I henni I vor. Fyrir and-
viröiö bauö ég fjölskydlu minni til
Sviþjóöar 1 sumar og þar vorum
viö i tvo mánuöi.
Þegar hér er komiö sögu er
langt liöiö á kvöld og blaöamanni
best aö fara aö hypja sigænda bú-
inn aö rekja garnirnar ótæplega
úr Ólöfu. En ekki má gleyma aö
þakka heimasætunni Hildigunni
fyrir veittan beina og vinkonum
hennar, tvfburunum Rannveigu
og Beggu, fyrir bestu pönnukökur
og sultutau I heimi. — hs
SPJALLAÐ VIO ÓLÖFU S. GUÐMUNOSDÓTTUR BLAOBERA