Þjóðviljinn - 30.10.1979, Page 7
ÞriOjudagur 30. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Þrjú svædi
ákveðin
Nánari athugun á tveimur
Borgarráb samþykkti i gær ab
fela Þróunarstofnun að undirbúa
deiliskipulag fyrir fbúðarhús á
þremur þéttingarsvæöanna, — á
Laugarási, utan þess svæðis sem
unnið er að friölýsingu á, — á
stofnanasvæðinu við Hafnar-
fjarðarveg, þó þannig að tekiö
verði tillit til eðlilegra þróunar-
möguleika öskjuhliðarskóla, og á
stofnanasvæðinu við Eyrarland
með sama fyrirvara vegna
þróunar Borgarspftaians.
Var þetta samþykkt með 5
samhljóða atkvæðum, en með 3
atkvæðum að kannað verði nánar
hugsanlegt byggingarmagn og
afmörkun byggðar á athugunar-
svæöunum vestan Glæsibæjar og i
Sogamýri, austan Skeiðarvogs.
Greiddu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins atkvæöi gegn þessu og
vildu aö hugmyndum um ibúða-
byggingar á þessum svæðum yrði
hafnað en þó gert ráð fyrir opin-
berri stofnun vestan Glæsibæjar.
Athugun Þróunarstofnunar á
þéttingu byggöarinnar á þessum
5 svæðum er nú þaö langt komln
að unnt er að hef ja deiliskipulags-
vinnu á þremur þeirra, en stofn-
unin hefur unnið að þessum at-
hugunum frá i vor.
Sagði Sigurður Haröarson for-
maður skipulagsnefndar i sam-
tali við Þjóðviljann i gær að
hugsanlega yrðu svæðin 3 bygg-
ingarhæf fyrri hluta næsta árs, en
það færi eftir þvi hvernig samn-
ingar vegna öskjuhliðarskóla og
Borgarspitala gengju. Sam-
kvæmt tillögum Þróunarstofnun-
ar ættu að rúmast um 330 Ibúðir á
þessum svæðum.
Athugunarvinnunni veröur hins
vegar haldið áfram við hin tvö
svæöin vestan Glæsibæjar og I
Sogamýri og verða gerðar nánari
tillögur um magn og staösetningu
byggöar á þeim svæðum, áöur en
endanleg ákvörðun verður tekin
um hvort þau verði tekin undir
byggingar að einhverju leyti.
Borgarráðsfulltrúar Sjálf-
stæöisflokksins báru i gær fram
breytingartillögu v'egna þessara
tveggja svæöa og er hún svohljóð-
andi:
„Borgarráð samþykkir að
hverfa nú þegar frá hugmyndum
um Ibúöabyggingar á svæðinu
vestan Glæsibæjar og I Sogamýri
austan Skeiðarvogs. Svæðið I
Sogamýri verði áfram útivistar-
svæöi og verði Þróunarstofnun i
samráði við garðyrkjustjóra falið
aö gera nánari tiljögur um nýt-
ingu svæðisins semútivistarsvæð*
is ' svo og um nánara skipulag
þess . Jafnframt samþykkir
borgarráð að láta fara fram hug-
myndasamkeppni um nýtingu og
skipulag Laugardalsins allt að
mörkum við Suðurlandsbraut. I
þvi skipulagi verði gert ráö fyrir
þvi að Laugardalur veröi úti-
vistarsvæði með iþróttamann-
virkjum, grasgarði, ræktunarstöð
og skrúögarði auk hugsanlegrar
stofnunar, sem færi vel i sliku úti-
vistarsvæði.” Þessi tillaga var
felld með atkvæðum meirihlutans
og sú sem aö ofan greinir sam-
þykkt meö 3:2. —ai
Sjómannafélag Eyjafjarðar
Takmarkanir ber að
ákveða í ársbyrjun
Frá Sjömannafélagi Eyjafjarð-
ar hefur borist svohljöðandi
ályktun:
Fundur haldinn i stjörn og
trhnaöarráði Sjömannafélags
Eyjafjaröar miövikudaginn 24.
október 1979 mótmælir harðlega
þeim takmörkunum á þorskveið-
um togara, sem ákveönar eru i
nóvember og desember.
Fundurinn telur, að svo stór-
kostlegar veiðitakmarkanir eins
og átt hafa sér stað á árinu, beri,
ef nauðsynlegar eru, aö ákvarða i
upphafi hvers árs.
F ylkingarframboð
Fylkingin hefur ákveðið fram-
boð i Reykjavik tii alþingiskosn-
inganna, eins og sagt var frá i
Þjóðviljanum I gær. Framboðs-
listi hefur nii borist blaðinu og er
þannig skipaður:
Ragnar Stefánsson, jarö-
skjálftafr., Asgeir Daníelsson
kennari, Guömundur Hallvarðs-
son byggingaverkam., Birna
Þóröardóttir, RUnar Sveinbjiýns-
son rafvirki, Hildur Jönsdöttir
skrifstofum., Jósef Kristjánsson
iðnverkam., Dagný Kristjáns-
dóttir kennari. Arni Hjartarson
jarðfr., Þorgeir Pálsson námsm.,
Sólveig Hauksdóttir leikari, Ein-
ar Ólafsson skáld, Þóra MagnUs-
dóttir námsm., Arsæll Másson
uppeldisfltr., Erlingur Hansson
gæslum., Berglind Gunnarsdóttir
námsm., Haraldur S. Blöndal
prentmsm., ólafur H. Sigurjöns-
son liffr., Sigurjön Helgason
sjUkraliði, Vilborg Dagbjarts-
dóttir rith., Róska kvik-
myndagm., Halldór Guðmunds-
son námsm., og Vernharður
Linnet kennari.
Þetta er þvinær sami listinn
og við siðustu kosningar.
Elsta átthagafélagið 75 ára
Elsta átthagafélagið í
Reykjavík, Austfirðinga-
félagið, er 75 ára um þess-
ar mundir. Afmælisins
verður minnst með Aust-
firðingamóti á Hótel Sögu
föstudaginn 2. nóvember
n.k. og kemur samkórinn
Bjarmi á Seyðisfirði gagn-
gert til Reykjavíkur til að
skemmta í afmælishófinu.
Félagið hefur undanfarið ár
styrkt eitthvert ákveöið málefni á
Austurlandi.Aðþessusinni veröur
allur hagnaður af Austfirðinga-
mótinu látinn renna til sumar-
búða að Eiðum sem Prestafélag
Austurlands hefur rekið s.l. 11 ár.
Sumarbúðirnar eru aðallega ætl-
aðar börnum úr kaupstöðum og
þéttbýli eystra.
Aðalhvatamaöur að stofnun
Austfirðingafélagsins og fyrsti
formaður þess var Jón ólafsson
ritstjóri.
Núverandi stjórn skipa: Guð-
rún K. Jörgensen formaöur, Sig-
rún Haraldsdóttir, Brynjólfur
Ingólfsson, Gunnar Valdimars-
son, Bergsteinn Ólason, Gunnar
Guðjónsson og Eirikur Lárusson.
— eös
DÁLÍTIÐ DEKUR
DREGUR
ÚREYÐSLU
ORKUSPARNAÐUR
ÞINN HAGUR
ÞJÓÐARHAGUR
Starfshópur um eldsneytisspamað í bílum:
Orkuspamaðamefnd iðnaðarráðuneytisins
Bílgreinasambandið
Félag íslenskra bifreiöaeigenda
Olíufélögin
Strætisvagnar Reykjavíkur
Umferðarráö
Margt, sem á þátt í að draga úr bensíneyðslu, geta
menn gert sjálfir: Skipt um kerti áður en þau eru orðin
slitin, hreinsað loftsíxma og athugað ástand kveikju og
kveikjuþráða o. fl. Hafir þú ekki gert þetta er ráð að
fletta upp í handbókinni sem fylgir bílnum. Fylgstu
með bensíneyðslunni. Skráðu alltaf hjá þér þegar þú
setur bensín á bílinn.
Leitaðu reglulega til verkstæðis. Láttu stilla þar
blöndung, kveikju, ventla og yfirfara bremsur.
UMHYGGJA DREGUR ÚR EYÐSLU.