Þjóðviljinn - 17.11.1979, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJOÐVILJINN Laugardagur 17. nóvember 1879
Blaðberabíó!
STRÍÐ í GEIMNUM, æsispennandi mynd
frá Japan um svaðilfarir i öðrum
sólkerfum. Sýnd i Hafnarbíó kl. 13,
laugardag.
Blaðberar
óskast
Vesturborg:
Fálkagata — Lynghagi
(1. des.)
Austurborg:
Borgartún — Skúlagata
(strax)
DJOÐVIIIINN
81333.
Flensborgarskóla
vantar stundakennara á vorönn i eftir-
taldar greinar:
1. Enska
2. Sérgreinar heilsugæslubrautar
3. Eðlisfræði.
4. Listir.
Allar nánari upplýsingar veitir skóla-
meistari i simum 50092 eða 50560.
Skólameistari.
Blikkiðjan
Asgarði 7, Garðabæ
ónnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI53468
alþýðubandalagBÖ
Alþýðubandalagið Kópavogi
Opiö hús meö Benedikt Davlössyni í Þinghöl, laugardag-
inn 17. nóvember n.k. kl. 16. Benedikt flytur ræöu og situr
fyrir svörum. Allt stuöningsfólk G-listans velkomiö.
Kosningastjórn
Árshátið Alþýðubandalagsfélags Fljótsdalshéraðs
veröur haldin aö Iöavöllum laugardaginn 24. nóv.
Tilkynniö þátttöku i slma 1245.
Alþýðubandalagiö
Alþýðubandalagið i Norðurlandskjördæmi eystra.
Kos ninga skrif stofan
er á Eiðsvallagötu 18, Akureyri. Simi 25975.
Félagar og stuöningsfólk er hvatt til aö llta inn og gefa sig fram til
starfa viö kosningaundirbúninginn.
Aiþýðubandalagið i Reykjavik
Féiagsgjöld
Félagar I Alþýöubandalagir u I Reykjavík sem skulda árgjöld fyrir 1978
og/eða 1979 eru hvattir til aó greiöa þau sem fyrst á skrifstofu félagsins
aö Gretisgötu 3. Stjórnin.
✓
Hafsteiim Olafsson byggingameistari:
Er unnt að lækka
byggingarkostnaðinn?
Hvað merkir
orðið
„Iðnþróun”?
Sllk viröist staöa okkar I bygg-
inga og húsnæöismálum vera orö-
in, aö senn dragi til mikilla tlö-
inda. Allt viröist benda til aö
framvegis veröi byrjendum gert
aö skila aftur þeim verömætum
sem þeir taka aö láni. Aö verö-
bólguhjálpin veröi a.m.k. aö
mestu tekin frá þeim. Slikt yröi
auövitaö nokkuö sjálfvirk stöövun
á byggingarframkvæmdum eins
og byggingakostnaöurinn er orö-
inn og lánakjörum er háttaö.
Veröiö hefur aldrei veriö hærra
miðað viö árslaun og er H.R. lán
komin niöur fyrir 20%. Nú þegar
má greina vissan áhuga byrjenda
fyrir ódýrari leiðum og má þá
trúlega búast viö aö fyrir augui
kunni aö bera ýmis óvenjuleg
fyrirbæri á næstunni.
tlr þessu leysist svo ekkert
nema til komi stórfelld lækkun
byggingakostnaöarins samfara
auknum lánamöguleikum. Þeir
möguleikar eru hins vegar
vlös fjarri meö viöhaldi hinna
hálfrar aldrar gömlu byggingar-
hátta. A þvi vill svo allt
standa. Heilar atvinnustéttir
telja sig eiga alla afkomu
slna undir óbreyttu ástandi. Opin-
berar stofnanir eru sem lokuð bók
og eru fyrir stefnu- og úrræöa-
leysi landsfeöranna naumast
annaö eöa ööru visi en þeir, sem
þar starfa. Þeirra hlutverk er svo
aö fylgja handahófs reglum
stjórnvalda á hverjum tima og
við þau skilyröi sem þeim eru
búin.
1 fulla f jóra áratugi hefur stein-
steypan átt hugi og hjörtu okkar
sem eina raunhæfa byggingar-
efniö og veriö lengst af þaö eina
leyfilega. I meginatriðum hafa
svo aörir þættir bygginganna ekki
tekiö teljandi framförum. Steypt-
ur hússkrokkur hefur svo verið
um 1/4 af heildarbyggingarverö-
inu. Þaö er þó óneitanlega stór-
brotin mynd, sem tækniþróunin
hefur skapaö um þennan þátt
byggingaframkvæmdanna.
Milljöröum á milljaröa ofan höf-
um viö variö til slfellt fullkomnari
og stórvirkari tækjakaupa. Sviöiö
er allt frá efnistöku úr sjávar-
djúpum, I fullkomnustu blöndun-
ar og dreifistöövar, sem slöan
veita massanum meö glæsilegum
flutninga, lyfti og dælubúnaöi, i
stórfengleg stálmót hvar yfir
tróna háreistustu byggingahegr-
ar,
10-11 árslaun
Og árangurinn hefur væntan-
lega ekki látiö á sér standa —
eða hvaö — hvaö er árangur?
Eina raunhæfa viömiöunin I þeim
efnum er aö nú kostar sæmileg
meöal ibúö — hús um 10-11 árs-
laun verkamannsins, sem er ekki
minnaen fyrir 3-4 áratugum. Og
skyldu menn vita aö eftir alla
þessa tækniþróun eru hér á landi
skráöir um helmingi fleiri
manntimar a hvern byggöan
rúmmetra en almennt hjá ná-
grannaþjóðum okkar. 1 samræmi
viö þaö eru hlutföllin I byggingar-
kostnaöi hér talin vera um 40%
efni á móti 60% vinnulaunum I
einhverri mynd. Hjá viömiðunar-
þjóöunum er þaö nánast öfugt,
eöa um 60% á móti 40% vinnu-
launum. Þessar tölur eru ekki
minar, en kunna aö tala sinu
máli.
Úrelt byggingaraðferð
Þaö er þvl ekki auövelt aö
benda á hvaö öll þessi tæknivæö-
ing okkar hefur sparaö. íslenskir
iðnaöarrnenn eru ekki afkasta-
minni en starfsbræöur þeirra er-
lendis. Allur vandinn liggur ósköp
einfaldlega I yfirþyrmandi fjár-
festingum á röngum staö. Viö
höfum lokaöaugunum fyrir þeirri
staöreynd aö viö höfum rlghaldiö
I byggingaraöferö, sem aörar
þjóöir hafa löngu aflagt. A hinum
noröurlöndunum eru um 80-90%
allra svokallaöra smáhúsa fram-
Hafsteinn ólafsson: Meö raun-
verulegri framþróun byggingar-
háttar og meö þvl aö hverfa frá
úreltum byggingaraöferöum
mætti ná fram 30-35% lækkun
byggingarkostnaöar.
leidd I verksmiðjum og yfirleitt
úr léttum efnum.
A sviöi þessarar löngu úreltu
byggingaraðferöa starfa svo enn I
megin atriöum flestir læröustu
menn og hvort sem er innan eöa
utan visindastofnana. Hafi þeir
reynt aö leita annarra leiöa, hafa
þeir farið leynt meö þaö. Yfir-
gnæfandi tlmi þeirra — og fjár-
magn þess opinbera — snýst enn
um aö þróa steypu. Arangurinn
sem sýnilegur er berum augum,
er svo siaukin járnabinding og
sementsnotkun, og sprungur.
Eldri byggingarmenn sem horfa
á allt þetta, fá fyrir hjartað og
velta spurningunni fyrir sér hve-
nær þurfi aö fara aö endurbyggja
öll þau hús sem steypt voru upp
fyrir t.d. 20-40 árum.
En hafa þá frændur vorir
höndlaö hamingjuna meö þvi aö
hafa aflagt okkar aöferöir og far-
iö inn á verksmiöjuframleiösl-
una? Svo einfalt er þaö nú ekki.
Sannleikurinn er nefnilega sá, aö
glýja mikilleikans, yfirþyrmandi
stórfengleiki véltækninnar freist-
aöi þeirra ekki siöur en okkar. Sá
er bara munurinn, aö þeir hafa
áttaö sig á þessu, en standa, eins
og viö, dálitiö ráöalausir um hvaö
gera skuli viö öll þessi glæsilegu
tæki. Þeim tókst svo sannarlega
aö fækka manntlmum á hverja
framleiöslueiningu, sem auövitaö
öll iönþróun hlýtur aö gera risi
hún undir nafni. Þaö heitir — auk-
in framleiöni —. En þeim varö
bara þaö á, aö glata árangrlnum
aö of miklu leyti i yfirkostnaö á
altari vélvæöingarinnar. Þaö yröi
þvi miöur of langt mál aö skýra
hér meö oröum, en læt nægja aö
benda á t.d. stolt norömanna, sem
svo var kallaö, húsaverksmiöj-
una Moelven Brug, sem ég tel eitt
gleggsta dæmiö sem ég hef séö
um þaö, sem aldrei má gerast.
Þvllikur er hrikaleiki vélvæöing-
arinnar.
Lentu út af
Hvers vegna haföi þessum
þjóöum ekki tekist aö lækka
'byggingarkostnaöinn eins og von-
ir stóðu til, vat spurt á samnor-
rænni byggingarráöstefnu I
Stokkhólmi áriö 1972 sem siöan
var fram haldiö I Osló 1974. Ein-
hver tók svo til oröa, aö þegar
þeir sveigöu af leiö steinsteyp-
unnar, lögöu þeir svo hart á stýriö
aö þeir lentu út af hinu megin.
En fátt er svo með öllu illt, eins
og þar stendur. Til þess eru vltin
aö varast þau, og hér er svo sann-
arlega efni úr aö vinna. Þeir at-
buröir hafa svo hellst yfir þessa
þjóö liöandi áratug, aö svo sann-
arlega er ástæöa til aö gera sér
vonir um aö dragi til betri tlöar.
Þaö dugöi þó ekkert minna en aö
jarðeldar tækju aö eyöa byggö til
aö vekja þjóöina til umhugsunar
um aö til væru önnur byggingar-
efni en grjót.
Og fleira hefur gerst þennan
áratug. Viö höfum hafið fram-
leiöslu léttbyggöra húsa innan
fjögurra veggja og I viöráðanleg-
um einingum, sem ekki krefjast
stórvirkra tækja til meöhöndlun-
ar. Einnig á þeim sviöum hafa þó
oröiö mistök til aö læra af. Þau
mistök eru þó ekkert til aö amast
viö I sjálfu sér, þvl aö þau hafa
ekki kostaö þjóöina neitt 1 neinum
mæli en hafa tafið fyrir árangrin-
um. Þaö er svo ekki taliö óeölilegt
aö stiga þurfi mörg spor aftur á
bak og áfram og út á hlið til aö
setja mark.
Endurhönnun
verksmiðju
Þaö er nú komiö á annan áratug
siöan undirritaöur hóf aö kanna
þessi mál og leita úrræöa. Þaö má
svo segja aö atburöir slöasta ára-
tugs hafi nánast lagst á eitt meö
aö ýta undir og auövelda allt þaö
verk. Möguleikar sköpuðust til aö
hanna og koma á fót framleiðslu
léttra eininga og taka þátt I
rekstrinum. Þar fékkst sú dýr-
mæta aöstaöa til aö vega og meta
möguleikana, hvaö vel væri gert
og hvaö mætti betur fara. vþar
fengust auk þess margvislegar
upplýsingar, sem hvergi gat verið
annars staöar aö fá. A siöari þró-
unarstigum hafa ýmsar þessar
upplýsingar svo oröið til aö auö-
velda allar áætlanageröir og út-
reikninga.
Slöustu 2 árin hafa svo nær ein-
göngu farið I aö endurhanna
verksmiöju meö öllum tækjum og
búnaöi. Og nú liggja fyrir, nær
fullgeröar framleiösluteikningar
nákvæmlega málsettar og ná þær
yfir stórt og smátt, sem framleiöa
þarf, og nákvæmar töflur yfir
nánast allt sem komið getur fyrir
I einu húsi. Þá liggur fyrir ákveö-
in áætlun um fjölda og tegundir
þeirra eininga, sem eins og stend-
ur er fyrirhugað að framleiddar
yröu, (gæti tekiö breytingum) en
úr þessum einingum ætti aö vera
hægt aö byggja nærri hverskonar
hús sem vera skal. Venjuleg einn-
ar hæöar einbýlishús, hæö meö
Ibúöarhæfu risi, raöhús og jafnvel
stærri fjölbýlishús. Allt er þetta
verk unnið meö þaö sem aöal
sjónarmiö, aö ná sem lægstum
byggingarkostnaöi, en án þess þó
aö ganga um of á möguleikana
um nægilega fjölbreytni I húsa-
gerö. Þessu fylgja svo nokkrar
veigamiklar nýjungar, svo sem I
gerö milliveggja, efnisvali sem
varöar viöhald og endingu o.m.fl.
Um þessar áætlanir hafa svo ver-
iö gerðir verkfræöilegir útreikn-
ingar um rekstur og hagkvæmni
sllkrar verksmiðju.
30-35% lækkun kostnaðar
Segja má aö nálega hver einasti
þáttur I byggingu húsa sé tekinn
til meöferöar I þessari endur-
hönnun þó aö ekki komi þeir allir
fram I arösemisútreikningum
nefndrar skýrslu. Meiningin er aö
sýna fram á, aö fækkun mann-
tima á framleiöslueiningu niöur I
þaö sem gildir erlendis, ,,hin
eiginlega framleiösluaukning”. á
aö skila sér aö mestu I lækkuöu
veröi meö ákveöinni lágmarks
framleiöslu á ári. Meö öllu saman
lögöu er nokkuö ljóst aö 30-35%
lækkun byggingarkostnaöar er
mögulegt aö ná, og er þá jafn-
framt reiknaö meö aö vissar fé-
lagslegar forsendur yröu aö vera
fyrir hendi.
Það má öllum ljóst vera, aö úr
þvl aö raunveruleg framþróun
byggingarhátta liggur I fráhvarfi
frá hefðbundnum aöferðum, mun
þeirra ekki aö vænta aö frum-
kvæöi þess opinbera eöa stofn-
unúm þess. Afskipti þess kemur
ekki fyrr en löngu eftir á. 1 eöli
sinu eru svo þær stéttir þjóöfélag-
ins, sem viö byggingariönaöinn
fást, plramiöann ofanfrá og niöur
úr, yfirleitt andsnúnar eöa mjög á
veröi gagnvart öilu, sem gengur I
þá átt aö raska þvl sem er”. Þaö
yröi svo efni i heilt ritverk aö bera
saman félagslyndi iönstéttanna,
atvinnugreinanna, sem er til I
framtiöinni, og t.d. bænda þess-
ara 5000 sálna, sem meö sam-
stööu sinni I gegnum árin hafa
ráöið allt aö 1/3 þjóöþingsins.
Dýrir hafa bændur veriö þjóðinni,
en er ekki eitthvaö fleirri ósagt I
þessum efnum.
Hafsteinn ólafsson bygginga-
meistari.