Þjóðviljinn - 12.12.1979, Blaðsíða 9
8 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Miövikudagur 12. desember 1979.
Miövikudagur 12. desember 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Þankar úr
kosninga-
baráttunni
t þessari grein er i raun og veru
fjallaö um fjögur mál: 1. Vinnu-
brögö núverandi SÍNE-stjórnar i
sambandi viö alþingiskosn-
ingarnar. 2. Almennt um stööu
„vinstri byltingarhópanna”
gagnvart Alþýöubandalaginu. 3.
Vinnubrögö Aiþýöubandalagsins
viö utankjörstaöaatkvæöa-
greiösluna erlendis. 4. Gömlu
tugguna um „hægri þróun”
Alþýöubandalagsins. Þessi mál
tengjast þó innbyrðis og umræöa
um hvert þeirra styöur um-
ræöuna um hin þvi aö öll fjalla
þau á einn veg eöa annan um
kosningabaráttu Alþbl. 1979. Þess
vegna er þeim ölium slengt hér
saman i eina grein.
Gránin er póstsett hér i Lundi i
Sviþjóö á fyrsta kjördegi
alþingiskosninganna og berst þvi
Þjv. fyrst eftir þær. Ég vil ekki
láta úrslit kosninganna hafa áhrif
á skrif min um baráttuna fyrir
kosningar og þá lærdóma san af
henni má draga.
Rugiingur
SÍNE-stjórnar.
Nokkuö fjaörafok varö nú fyrir
kosningarnar vegna harörar
gagnrýni núverandi
SINE-stjórnar á Alþýöubanda-
lagiö, m.a. i sambandi viö vinn-
una viö aö athuga kjörskrárrétt
námsmanna. Tilefni gagnrýn-
innar var bréf sem Alþbl. sendi
námsmönnum, þar sem sýnt var
fram á allsjiyns ágæti sendanda.
Svipuö bref fengu námsmenn
bæöi frá Framsóknarflokk og
Sjálfstæöisfioidc, aö visu annaö
Urval frá þeim siöarnefnda en
þeir sem bréf fengu frá Alþýöu-
bandalagi. Oþarfi er sennilega aö
taka þaö fram aö námsmenn
geröu grin aö flokksbréfunum
þremur, ef þeir þá nenntu aö lesa
þau, og þau voru sendendum
undantekningarlaust til skaöa
fremur en gagns.
StjórnSINE taldiaöeins ástæöu
til aö gagnrýna bréf Alþbl. og
samtimis var tækifæriö notaö til
aö gagnrýna pólitik Alþbl.
almennt. A opinberu bréfi var
Alþýöubandalagiö m.a. gagnrýnt
fyrir aö hafa ekki komiö Islandi
úr NATÓ og fyrir aö hafa ekki
afnumiö auövaldsskipulagiö á
Islandi. Formaöur SINE átti siö-
an sérstakt viötal viö Morgun-
blaöiö til aö fylgja eftir þessum
veigamiklu athugasemdum um
Alþýöubandalagið.
En spyrja má hvers vegna
stjórn SINE taldi aöeins ástæöu
til aö gagnrýna námsmannabréf
Alþýöubandalagsins og minnast
hvergi á námsmannabréf hinna
flokkanna. Einnig má spyrja
hvers vegna stjórn SINE hafði
ekki leyft viötakendum bréfsins,
þ.e. einstökum námsmönnum, aö
dæma sjálfir um innihald þess.
Hvers vegna þurftu þeir I þessu
máli aö lúta sérstæöu andlegu
forræöi SINE-stjórnar?
NU er þaö svo aö bæöi bréf
'Framsóknarflokksins og Alþýðu-
bandalagsinsvorusendskv. opin-
berri skrá Lánasjóös Isl. náms-
manna um SINE-félaga. (En
skrifstofa Lánasjóös innheimtir
meölimagjöld SÍNE sjálfkrafa
frá öllum þeim sem fá lán eöa
styrki frá sjóönum). Veigamikill
galli er á SINE-skrá’Lánasjóös,
sem felst i þvi aö hún nær aöeins
til þeirrasem sóttu um sumarlán
og fyrri haustlán 1979. Allir aörir
lánaumsækjendur eru þar ekki
meötaldir. Sama gildir um náms-
menn sem ekki hafa skipti viö
Lánasjóö. Til dæmis eru um 160
islenskir námsmenn hér I Lundi
og eru þeir flestir meðlimir SÍNE,
en aöeins 75 þeirra eru á
SlNE-skrá Lánasjóös. En skipu-
lag SINE er ekki merklegra en
þaöaö „félagaskrá þess” byggist
eingöngu á áöurnefndri
innheimtuskrá Lánasjóös M.ö.o.:
Stjórn SÍNE hefur engar upplýs-
ingar um námsmenn, sem ekki
eru öllum aögengilegar, en þess-
um upplýsingum er mjög áfátt.
Þetta er sagt til aö sýna fram á
aö ef „félagsskrá SÍNE” ein heföi
veriö grundvöllur kjörskrár-
athugunar námsmanna, heföi
réttur um helmings þeirra
aldrei veriöathug'aður. Þaö er viö
þessar aöstæöur sem stjórn SINE
lýsir þvl yfir „aö samstarf viö
Alþýöubandalagiö” viö kjör-
skrárathugun sé rofiö!
Þetta er einnig sagt til aö sýna
fram á aö þaö er misskilningur aö
„meðlimaskrá SINE” sé eitthvaö
leyniplagg. Þessi misskilningur
hefur komiö fram greinilega hjá
tveimur aöilum: 1) Pétri Sigurös-
syni (sjómanni) i Morgunblaös-
grein 20. nóv. sl.,2) I tillögu um
vltur á þáverandi stjórn SINE
fyrir aö leyfa Alþýöubandalaginu
aö hafa „aögang aö félagaskrá
SINE” i kosningunum 1978.
Þessi tillaga var samþykkt á
vorfundum SINE 1979 og samein-
uöust hér ihaldsmenn og ýmsar
geröir af róttæklingum. (Þessi
skrá var raunar notuö af fleiri
aðilum en Alþýöubandalaginu,
þ.á.m. af Fylkingunni, en þaö
hindraöi ekki aö einstakir Fylk-
ingarfélagar greiddu tillögunni
atkvæði).
Gísli
Gunnarsson
láöurnefndriMbl. grein Péturs
Sigurössonar (sjómanns) kom
fram sú kenning aö SINE heföi til
skamms tima veriö ein aöalstoö
Alþýöubandalagsins. Nú væri
þessi stoð horfin og teldist það
vera mikiö áfall fyrir Alþýöu-
bandalagiö.
Hér er auövitaö veriö aö gera
allt of mikiö úr þýöingu náms-
mannahreyfingarinnar fyrir
Alþýöubandalagiö. Eigi aö siöur
er vert aö spyrja hvort náms-
menn svona almennt séu aö snúa
baki viö Alþýðubandalaginu.
Svariö viö spurningunni er
neitandi. Meirihluti námsmanna
erlendis kýs Alþýðubandalagið ef
þeir kjósa. (Allstór minnihluti,
sem lítiö her á kýs Sjálfstæöis-
flokkinn og hefur alltaf gert þaö).
Aö höföatölu eru „hóparnir til
vinstri” viö Alþbl. fámennir
meöal námsmanna og eru þó
þessir hópar fyrst og fremst skip-
aöir námsmönnum! Mikiö
miöflóttaafl er I þessum hópum
öllum, mikil óánægja og hug-
myndaleg kreppa. Þess vegna
eru þeir ekki i sókn núna. En þaö
breytir engu um þaö aö þetta eru
einu skipulögöu stjórnmálasam-
tökin meöal námsmanna og úr
þeim veljast oft trúnaöarmenn
þeirra. Þannig eru tveir af
stjórnarmönnum SINE núna
meölimir í „Fylkingu byltingar-
sinnaðra kommúnista, Islands-
deildar 4. Alþjóöasambandsins”.
Núverandi formaöur SÍNE er
hins vegar utanflokka eftir þvi er
égveit best. (StjdrnSINEerskip-
uö fimm mönnum, en aöeins þrir
þeirra tóku virkan þátt I störfun-
um nú i vetur, formaöurinn og
Fylkingarfélagarnir tveir). Nú
hefur Fylkingin þá stefnu aö
styöja beri Alþýöubandalagiö i
þeim kjördæmum þar sem Fylk-
ingin býöur ekki fram. Aöalsam-
tök maóista, Einingarsamtök
kommúnista — marxleninistar,
EDC-ml, telja hins vegar aö eng-
inn eölismunur sé á Alþýöu-
bandalaginu og Sjálfstæöis-
flokknum og skora þau þess
vegna á kjósendur aö skila auöu i
kosningunum, enda bjóöa sam-
tökin ekki fram sjálf.
Ruglingsleg uppákoma
SlNE-stjórnarinnar I Morgun-
blaöinu, sem hér aö framan var
rakin, er vissulega meir i ætt viö
stefnu EIKAR-ml en Fylkingar-
innar. Skýringu á þessu er senni-
lega aö finna i því tilfinninga-
kennda hatri sem nú rlkir I Fylk-
ingunni i Reykjavik I garö
Alþýöubandalagsins. Viö þessar
aöstæöur veröur Alþýöubanda-
lagiö aöalandstæðingurinn bæöi
hjá EIK-ml og Fylkingunni og
Ihaldiö gleymist.
En þótt „byltingarsamtökin til
vinstri” vinni nú fáa eöa enga
nýja áhangendur, þá geta
Stöðugar árásir þeirra valdiö
skaöa meöal námsmanna, alla
vega meöan þeim er ekki svaraö.
Þegar fólk fær aö heyra hvaö eftir
annaö aö Alþýöubandalagiö sé
„aöalsvikarinn” I alla staöi svip-
aöur Alþýöuflokk og/eöa Sjálf-
stæöisflokk, skapast hætta á þvi
aö Alþýðubandalagiö fari aö
missa stuöningsmenn til hægri
(eba sem algengast er erlendis:
Aö fyrri áhangendur Alþýöu-
bandalagsinskjósi ekki). Þaö er:
Þótt A1Ú>1- tapi ekki stuðnings-
mönnum til þessara hópa, þá
getur starf þeirra gert Alþbl.
skaöa og ýtt fyrri stuöningsmönn-
um þess til hægri. I þessu
samhengi ber aö lita á rugling
SlNE-stjórnar nú fyrir kosn-
ingarnar, hann er rökrétt
framhald af fyrra starfi þessara
hópa.
„Byltingarhópar” námsmanna
eru nú á þróunarstigi timbur-
manna eftir menningar- og
stúdentabyltingarnar á siöasta
áratug og eru þvl eins og sakir
standa fyrst og fremst til skaöa
fyrir vinstri hreyfingu. Er það
miöur.
Þvi miöur einkenndist allt
skipulag Alþbl. viö atkvæöa-
greiöslu utan kjörstaöa erlendis
núna af fálmi, viöbragöstregöu og
mistökum. Allt frumkvæöi, sem
árangur bar, kom frá einstökum
stuöningsmönnum Alþýöubanda-
lagsins ieinstökum námsborgum.
Ekkert kosningaskipulag var
meðal islenskra verkamanna
sem nýlega hafa flutt til
Noröurlanda (aö skipulagi Sjálf-
stæöisflokksins undanskildu, sem
i Malmö var mjög virkt). Helsta
vandamál þeirra örfáu stuönings-
manna Alþbl. sem erlendis
reyndu aö bjarga þvi fyrir Alþbl.
sem hægt var aö bjarga, fólst i
nær algeru sambandsleysi viö
kosningaskrifstofur á Islandi.
T.d. var bréfum erlendis frá
aldrá svaraö. Viöast hvar á
Noröurlöndum misheppnaöist þvi
utankjörstaöaatkvæöagreiöslan
fyrir Alþýöubandalagið. Mat mitt
er aö þau atkvæöi sem Alþýöu-
bandalagiö fékk ekki I þessum
kosningum aöeins vegna skorts á
viturlegu skipulagi viö kosningu
utan kjörstaöar skipti mörgum
hundruöum. (Hægt er aö koma
meö nákvæmari tölu).
Reynsla var komin á fram-
kvæmd utankjörstaöaatkvæöa-
greiöslu erlendis 1978. Á grund-
velli þeirrar reynslu skrifaöi ég
framkvæmdanefnd Alþýöu-
bandalagsins ýtarlegt bréf um
miöjan október sl. Þar var m.a.
varaö viö almennu dreifibréfi til
námsmanna, sérstaklega bent á
nauösyn þess aö koma þegar I
staö á góöu sambandi viö Alþýöu-
bandalagsmenn sem búsettir eru
erlendis, bent var á sérstööu
nýútfluttu verkamannanna og
fleiri ráö voru gefin hvernig
helst þyrfti aö skipuleggja þessa
kosningavinnu.
Hiö litla sem gert var af hálfu
kosningaskrifstofa Alþbl.
viövíkjandi þessari atkvæöa-
greiöslu utan kjörstaöa var allt i
beinni andstööu viö þær ráölegg-
ingar sem gefnar voru I þessu
bréfi. Rétt er aö nefna aö mér
skilst aö kosningastjóri Alþbl. I
Reykjavik mun aldrei hafa þetta
bréf augum litiö.
Um „hægri þróun”
Alþýðubandalagsins.
Þaö hefur lengi veriö plagsiöur
bæöi meöal einstaklinga sem
telja sig vera til vinstri við Alþbl.
og i Alþbl. sjálfu aö tala um
„hægri þróun” þess. Nú hafa
einnig andstæöingarnir til hægri
uppgötvað gildiþessarar umræöu
og notaö hana I áróöri sínum um
aö Alþbl. sé „stefnulaust”, sé
hvorki fugl né fiskur. Þaö er þvi
svo sannarlega kominn timi til aö
rýna I hugtakið „hægriþróun” og
athuga gildi þess hleypidóma-
laust.
Hugtakiö þróun felur venjulega
i sér samfellda breytingu frá einu
timabil til annars, gjarnan eftir
fastri og beinni línu. „Hægri
þróun” ætti þvi aö merkja aö
Gisli Gunnarsson
Alþbl. sé hægri sinnaöra nú en
þaö var 1974, hafi veriö hægri
sinnaöra 1974 en þaö var 1968, og
aö Alþbl. hafi verið hægri
sinnaöra en Sóslalistaflokkurinn
var 1966—1968.
Yfirleitt skortir allt sögulegt
yfirlit I umræöuna um „hægri
þróun”. Allt of oft eru dæmin um
þessa „þróun” ekki málefni
heldur persónur, án þess aö
athugaö sé fyrir hvaö persónurn-
ar eru fulltrúar fyrir, m.ö.o. þaö
er persónuskvaldur. Undantekn-
ingarlaust skortir einnig aö
breyttar þjóðfélagslegar aöstæö-
ur séu tdcnar meö I myndina, þaö
er t.d. engan veginn öruggt aö
skipulageöahugmyndirsem voru
hentugar fyrir nokkrum áratug-
um séu þaö 1979.1 þessari tegund
umræöu er oftast mikiö af
afturhaidssemi, allt á aö hafa
veriö betra áöur fyrr en þaö er I
dag, þ.e. heimurinn fer stööugt
versnandi. 1 þeim örfáu tilfellum
sem sögulegur samanburöur er
geröur eru sérstök afrek á fyrri
áratugum tlunduö um leiö og
vandlega er þagaö um öll mistök-
in og alla ósigrana.
Upphaf kenningarinnar um
„stööuga” hægri þróun” má
rekja til átakanna um Sóslalista-
flokkinn og Alþýöubandalagiö
fyrir 10 til 20 árum, en þá voru
margir sannfærðir um aö stofnun
Alþýöubandalagsins sem sjálf-
stæös stjórnmálaflokks væri
öruggt merki um hægri þróun.
En ef litíö er ákveöin einstök
málefni er mjög erfitt aö sjá I
hverju hægri þróun Alþýöu-
bandalagsins eigi aö felast. Tök-
um herstöövamáliö sem dæmi.
Allt frá komu hersins 1951 hefur
veriö um þaö deilt hve mikla
áherslu á aö leggja á baráttuna
fyrir brottför hersins i
samanburöi viöönnur mál. Þegar
1956—1958 var Alþbl. aöili aö
rlkisstjórn án þess aö herstöðin
færi og ekki var þaö herstöðva-
máliö sem sprengdi þá ríkis-
stjórn. Og þaö er engan veginn
rétt aö halda þvi fram aö brottför
hersins hafi veriö minna á
dagskrá Alþbl. undanfarin ár en
áöur fyrr. Sennilega hefur her-
stöövamáliö aldrei skipaö eins
lltinn sess I starfi Alþbl. og á
erfiöleikaárunum 1966—1971.
1 kjaramálabaráttu bæöi Alþbl.
og verkalýöshreyfingarinnar
hafa skipst á skin og skúrir, vörn
og sókn. Stundum hefur verka-
lýöshreyfingin eflst, stundum
hefur hún veikst. Þaö er hjákát-
legt aö heyra alvöruþrungna
„menntamenn” ræöa . um
„úrkynjun” og „hægri þróun”
verkalýöshreyfingarinnar næst-
um þvl frá örófi alda. Sögulegum
gullaldarhugmyndum skýtur
gjarnan upp á merkilegustu stöö-
um.
Fyrir sósialista er nauösyn aö
vera gagnrýninn á flokksstarfið,
ogsjáhvernigbetur megigeraog
hvernig breyta þurfi um vinnu-
brögö og stefnu. An sllkrar gagn-
rýni er sósialísk hreyfing geld og I
reynd sneydd sósialiskri kenn-
ingu. Hvaö sem segja má um
Alþýðubandalagiö þá er vist aö
þaö er auðveldara aö koma fram
meö slika gagnrýni nú en áöur.
En gagnrýni hættir aö vera gagn-
rýni og veröur ný kredda þegar
hún breytist I tuggu um ákveöiö
sögulaust einkenni. Þaö er þetta
sem hefur gerst meö hugtakiö
„hægri þróun”. I staö þess aö
skilgreina er sama þulan tuggin I
tima og ótima i von um sósialíska
endurlausn.
Sem sagt: Næst þegar einhver
náungi fer aö ræöa um „hægri
þróun” Alþýöubandalagsins
veröur aö gera til hans þá kröfu
aö hann útskýri mál sitt meö
dæmum i samfélagslegu og sögu-
legu samhengi.
Lundi 2. desember 1979
GIsliGunnarsson.
Árni Bergmann
og
Jón Thor Haraldsson
bókmennlír
Endurminningin merlar æ...
Mánasilfur. Safn endurminninga.
Gils Guömundsson valdi efniö.
Iöunn.
Þetta er fyrsta bindi safns, sem
ætlað er aö geyma úrval endur-
minninga islenskra manna. Gils
Guömundsson gerir I formála
grein fyrir þeim hugmyndum
sem aöbaki þessu verki liggja og
segir þá m.a.:
„Mörg atriöi hafa haft áhrif á
valib, ekki sist þaö sjdnarmiö aö
safnið verði sem fjölbreytilegast.
Tilvaliö hefur þótt til birtingar
þarsem saman fermerkilegt efni
og lifandi eða snjöll frásögn. Rétt
er aö taka þaö fram, aö ekki hafa
veriö valdir kaflar vegna fræöa-
eða heimildagildis sérstaklega.
öörufremur birtast hér frásagn-
ir, þar sem lýst er meö eftir-
minnilegum hætti sálar- og til-
finningallfi sögumannsins sjálfs
eða hvernig hann skynjar tiltekin.
fyrirbæri tilverunnar”.
Þaö mundi þurfa mjög drjúga
reynslu af Islenskum endurminn-
ingabókum til aö sannprófa
hvernig þessi ætlun tekst. En aö
slikri sam anburöarvinnu
slepptri, þá verður ekki betur séö,
en Gils Guömundsson hafi erindi
sem erfiði og hafi sett saman
einkar læsilega bók. Vissulega er
hún mjög fjölbreytt. Kaflar úr
bernskuminningum úr sveitum
sitt hvorum megin viö aldamót
eru af skiljanlegum ástæöum
aigengari en annað þaö sem hægt
er aö setja samheiti á — enda er
þaö i upprifjun þeirra hluta sem
Islendingar hafa greinilegast séö
þá miklu byltingu I lifsháttum
sem þeir hafa réynt á mjög
skömmum tima. Þeir kaflar
bókarinnar sem helgaöir eru
þessu efni koma kannski ekki á
óvart, en taki menn eftir því, aö
þvi fer yfirleitt fjarri aö þeir fegri
þaö fátæka og oft grimma lif sem
lifað var hér þegar timinn fór sér
sem hægast. Ég nefni til dæmis
frásögn Ólínar Jónasdóttur af
vinnuhörkunlsku og ótta viöallar
bækur aörar en guösorö sem hún
reyndi i bernsku, — hljómar þessi
fróölegi þáttur eins og ein af
heimiidum handa Halldóri
Laxness aö vinna úr snilldar-
lýsingu á bernsku Ólafs skálds
ÍCárasonar, Ljósvikings.
En sem fyrr segir: þetta er
mjög f jölbreytt bók. Þaö er sagt
frá bæjarbrag og sóöaskap I
Reykjavik um aldamótin, frá
þjóöhátiöinni 1874, frá kynnum af
Jóni forseta Sigurössyni, frá
upphafi kvenréttindabaráttu,
sjávarháska. Sveinn Björnsson
siöar forseti segir frá hernámi
Danmerkur, Sigurður Breiðfjörð
frá Grænlandi, Gísli Jónsson frá
menntunardraumum sem ekki
gátu ræst, Tryggvi Gunnarsson
frá sinum fyrsta verslunar-
leiðangri, Sveinn Gunnarsson frá
heiftarlegu striöi viö nágranna og
yfirgangsmann út af þrætulandi.
Það leiðir af sjálfu sér, aö þaö er
erfitt að setja fram umsögn um
svo margvislegar ritsmiðar —
nema þá ítreka það sem fyrr
segir: að Gils hefur lag á aö
krækja i lystilega bita upp úr
þeim mikla potti sem þarf undir
Islenska endurminningasúpu. Og
þaö sakar ekki heldur aö geta
þess, aö spaugilegust frásögn
fyrir utan stúkuannál Þórberg og
húskaparmál Jóns Steingrims-
sonar, er frásögnin af yngingar-
lækningum Jónasar Sveinssonar,
sem sjálfsagt mun gera margan
þann hissa sem ekki hefur aldur
til aö muna þau undarlegu mál,
þegar karlskröggur einn fyrir
noröan varö svo náttúrumikill og
kjaftfor fyrir sakir tilrauna
MÁNA
SILFUR
SAFN ENDURMINNINGA
Jónasar, aö bóndinn sem hafði
hann sem niðursetning fór fram á
aö meðlag með karli væri
þrefaldaö! Og fylgdu á eftír fleiri
uppákomur merkilegar.
Islenskum endurminningabók-
um hefur fjölgaö jafnt og þétt, sú
þróun hefur verið svo ör að
undanförnu að helst má likja viö
þaö að tölum sé lyft i veldi:
sextán veröa hundrað fimmtiu og
sex. Og þótt þaö komi ekki mjög
glöggt fram I úrvali sem þessu,
þá getum viö einnig þar haft
veöur af þvi aö þessi tegund
bókmennta er I nokkurri úrkynj-
um. Yfirleitt finnst lesanda
textinn þeim mun merkilegri þvl
eldri sem hann er, málfarið sér-
stæöara og litrikara, sögumaöur
undarlega nálægur þrátt fyrir
allan þann tima sem liöinn er frá
hans dögum. Manni finnst þeir
öðrum fróðlegri sem elstir eru I
þessu safni, Tikar-Mangi og Jón
Steingrimsson. En svo kemur
Þórbergur og truflar vangaveltur
af þessu tagi og minnir á að enn
fer þvi fjarri aö púður minninga-
manna hafi allt blotnaö eöa sé
upp uriö.
AB
,, S teingrímssaga
Steingrimur Steinþórsson for-
sætisráöherra: Sjálfsævisaga.
Andrés Kristjánsson og öriygur
Hálfdanarson bjuggu tii prent-
unar. Rvk. 1979. Bókaútgáfan örn
og Örlygur
„Jón er mjög lágur vexti, rek-
inn saman, geysilega breiöleitur,
leikur oft flærðarlegt glott um
varir hans, gefinn fyrir slúður og
kjaftasögur — illmálgur maður,
svo aö ég hefi engan þekkt slikan.
Næga greind haföi Jón og
framgjarn var hann, en sérvitur
úr hófi.”
Þetta er ein mannlýsingin úr
„Steingrimssögu” og sumar aör-
ar eru litlu mildilegri. Steingrim-
ur sér hvaö þá annað eiginleika
manns af svip. Andlitsdrættir
Einars á Eyrarlandi „bentu ekki
á sterka skapgerö.” I andliti Páls
Hermannssonar varð vart viö
drætti „er báru bott um einhverj-
ar veilur, gat veriö minnimáttar-
kennd eöa einhvers konar þrdc-
leysi annað.” Svona mætti lengur
telja.
Þetta fyrra bindi þessarar ævi-
sögu nær fram til þess tima er
Steingrimur veröur búnaöar-
málastjóri 1935, aö þvi er best
veröur séö fyrir hreinan kliku-
skap, þótt enginn vafi leiki á þvi
aö hann haföi ærna hæfileika og
menntun til starfsins. 1 þessu
bindi munu mesta athygli vekja
frásagnir Steingrims af þéim
átökum sem leiddu til stofnunar
Bændaflokksins. Fróöleg er sú
fullyröing hans, aö ihaldiö hafi
styrkt Bændaflokkinn fjárhags-
lega i kosningunum 1934, en raun-
ar var Framsóknarflokkurinn aö
sögn Steingrims þegar klofinn á
sumarþinginu 1931, og er sú lýs-
ing öllhin ömurlegasta. Það kem-
ur heim viö frásagnir annarra aö
Tryggvi Þórhallsson hafi aldrei
orðið samur maöur eftir þingrofiö
1931: „Þá bilaði eitthvað i honum,
fjör hans, bjartsýni og traust á
sjálfum sér...” Jónas frá Hriflu
verður vist ætið ein af sálfræði-
gátum Islandssögunnar.
Steingrimi fer sem fleirum, hann
byrjar svo ákafur aödáandi
Jónasar að hann „þoldi vart
gagnrýni á hann eöa ráöstafanir
hans” en sú aðdáun stenzt ekki
nánari kynni: „En þaö sorglega
er, aö við nánari kynni og sam-
starf hratt Jónas flestum frá sér,
sumpart vegna skapofsa og ráö-
rikis, en þvi miður einnig af þvi
aö flestir fundu margt lágt og litt
sæmilegt I skapgerö hans og at-
höfnum.” — Og hér skýtur
Steingrimur fram skoðun sem ég
hef hvergi heyrt né séö áöur:
„Þvi miöur hefur hiö lélegra sótt
á og náö meiri tökum á þvi sem
á ævi hans leið. Lit ég svo á, aö
kona hans hafi átt þátt i þeirri
þróun. Guörún, kona hans, er
skapsterk aö sumu leyti, en afar
metnaöargjörn og skaphörö.
Haföi ég fyrir þennan tima veitt
þvi athygli, þvi aö ég kom oft á
heimili þeirra.”
Steingrímur mun hafa verið
með róttækari Framsóknar-
mönnum, framan af að minnsta
kosti. Hann kom til Skagafjaröar
skólastjóri á Hólum, lenti þar i
einhverju versta ihaldsbæli
landsins miðju og lét hart mæta
hörðu, galt vél við vél.
Framsóknarflokkurinn átti þá
kannski enn einhvern tilverurétt
sem málsvari ieiguliöa og
fátækra bænda og meö þeim
stéttum er samúö Steingrlms rik:
„Hann var i vinstra armi flokks-
ins eins og fátækum leiguliöa og
einyrkjabónda bar aö vera” segir
hann um einn sveitunga sinn. En
ég verö að játa þaö, að þrátt fyrir
alla dómhörkuna og bersöglina,
lika um einkamál, gengur mér
illa aö átta mig á Steingrimi eftir
þessa bók, hvernig maöur hann
var. Það ætti ekki aö þurfa að
taka þaö fram að siðara bindis
verður beöiö meö óþreyju (og
vonandi prófarkir af þvi lesnar
betur en þessu), ég hef aöeins
drepið á fátt eitt af fjölmörgu,
sem er allrar athygli vert.
Smávegis saklausar vangaveltur
ilokin: Munaöi minnstu að Bjarni
Ben, útartaöi sig Framsóknar-
maður? Steingrimur viröist ekki I
vafa um þaö: „Benedikt Sveins-
son haföi um langt skeiö veriö
þingmaður N-Þingeyinga og hin
siöustu árin talist til Framsókn-.
arflokksins, þótt ekki væri hann
stranglega flokksbundinn. Jónas
Jónsson heimtaöi, aö Benedikt
yrði látinn vikja, og fékk Björn
(Kristjánsson kaupfélagsstjóra á
Kópaskeri) til þess aö bjóöa sig
fram á móti frænda sinum.
Benedikt bauösig þvi einnig fram
sem Framsóknarmaður, en féll
meö tiltöluiega litlum atkvæða-
mun. Þetta frumhlaup Jónasar
varð til þess aö spyrna öllu fólki
Benedikts frá Framsóknarflokkn-
um, en áöur voru synir hans mjög
nærri okkar flokki. Ég tel aö
Jónas hafi parna gert eitt sitt
mesta asnaspark, þvi aö senni-
lega heföi veriö hægt að tryggja
þá Benediktssyni, ef ekki heföi á
þennan hátt verið sparkaö i fööur
þeirra.”
Jón Thor Haraldsson.
Tveir bræður
— tveir guðir
óiafur Ormsson, einn hinna gal-
vösku lystræningja, hefur nýveriö
sent frá sér fyrstu skáidsögu sina,
„Stiitungspunga.” Viö ræddum
viö ólaf af þessu tilefni og báöum
hann fyrst aö segja stuttlega frá
efni bókarinnar.
— Sagan f jallar um tvo bræöur,
Snorra Þór og Pétur Diörik, sem
alast upp á Akureyri ur) úr 1920,
sagöi ólafur. — Uppeldi þeirra er
frekar sérstætt, þeir lifa i
ótryggri veröld. Faöir þeirra er
bruggari og áfengi er meira og
minna haft um hönd.
Sagan lýsir siöan kynnum
þeirra sinum af hvorri stjórn-
málakenningunni, annarsvegar
kommúnisma og hinsvegar nas-
isma. Þeir leggjast eiginlega i
pólitlska vimu, sem hefur siöan
markandi áhrif á allt þeirra llf.
Snorri kynnist stéttabaráttunni
á Akureyri og veröur s jálfur þátt-
takandi i henni, en Pétur fyllir
flokk hvitliöa og þeir taka aö deila
ákaft um stjórnmálakenningar.
Pétur fer suður til Reykjavlkur
i lögfræöinám og fer aö starfa i
lögreglunni þar. Hann lendir I
verkfallsátökum og hlýtur höfuö-
högg. Upp frá þvi er hann meira
og minna ruglabur. Hann kemur
ruglaöur aftur noröur og telur sig
hafa kvittað fyrir höggiö sem
hann fékk sjálfur meö þvi aö
lemjabróöur sinnmeökylfu ihöf-
uöið.
Sagan, sem gerist upp úr 1920,
gerist á löngu timabili. Saga
bræöranna er rakin allt til okkar
daga. Þeir flytjast báöir suöur,
Pétur skömmu fyrir striö, en
Snorri á striðsárunum.
Pólitisk fyrirmynd Snorra var
sjálfur Jósep Stalln og I hans aug-
um var Stalín guö.Dýrkun hans á
Stalin birtíst m.a. i þvi aö hann
tekur upp á þvi að skira son sinn I
höfuö honum. En þaö breytist
margt þegar suöur kemur. Snorri
fer aö vinna hjá breska hernum
inni i Laugarnesiog kemst I kynni
við hernámsgróðann. Brátt veröa
mikil umskipti I öllu hans lifi. Þaö
er ekki lengur Stalin sem hann
trúir á, nú er Mammon kominn til
sögunnar.
— Hvað kom tilaö þú valdir aö
skrifa um þetta efni?
— Égvar farinn að hugsa svo-
litiö um þetta og langaði tíl aö
taka fyrir i skáldsögu hvernig
margur hugsjónamaöurinn sem
hefurátt uppruna sinn útiá landi,
i þessu tilviki Akureyri, söölar
um þegar hann kemur suöur I
þéttbýliö, inýtt og framandi um-
hverfi, og tekur aö finna peninga-
lykt.
— A söguefniö sér fyrirmynd i
raun v erule ika num ?
— Nei, þetta er skáldsaga i
heildsinni. Einungis Pétur Diörik
á sér einhverja fyrirmynd.
— Þetta er fyrsta skáldsaga
þin, en þú hefur áöur skrifaö
bækur?
— Já, Stútungspungar eru
Ólafur Ormsson,
höfundur
„Stútungspunga99
skrifaðir á siöustu tveimur árum.
Áöur haföi ég gefiö út tvær ljóöa-
bækur, Fáfniskver, — ákall til
Bakkusar, 1973, og Skóhljóö ald-
anna, sem kom út 1976. Þessar
bækur voru gefnar út undir dul-
nefninu Fáfnir Hrafnsson, og þaö
nafn notaöi ég framanaf, t.d. i
Lystræningjanum. En nú er
Fáfnir horfinn. Hann brá sér i
feröalag.en hver veit nema hann
komi aftur.
— Ertu með eitthvaö á prjon-
unum?
— Já, eins og fram kemur i lok
Stútungspunga, veröur framhald
á þeirri bók. Ég hef hugsaö mér
aö rekja feril þessa fólks fram i
tlmann, jafnvel fram yfir alda-
mót, I þjóöfélagi sem er I augsýn.
— Er þaö ekki býsna nýstárleg
aöferð?
— Jú, þaö hefur litíö veriö
fengist viösllka hluti, en ég spái I
framtiöina um leiö og ég skrifa
næstu bók. Hún veröur I anda
Stútungspunga, skopádeila, þar
sem skopast er aö pólitfskum
framagosum eins og viö best
þekkjum þá 1 Alþýöuflokkum.
— eös
„Margur
hugsjónamaöurinn
söölar um
þegar hann finnur
peningalykt99
Blönduós fær gjöf frá Noregi:
Jólatré frá Mors
A sunnudaginn var viö hátiö-
lega athöfn á Blönduósi afhent
jólatré frá vinabæ Blönduóss i
Noregi, Mors. Aö sögn Sturlu
Þóröarsonar, fréttaritara Þjóö-
viljans, er hér um hiö myndarleg-
asta tré aö ræöa en þetta er i
fyrsta skipti sem staöurinn fær
slikt tré aö gjöf. Arni Sigurösson
sóknarprestur afhenti tréö fyrir
hönd gefanda en Hilmar Krist-
jánsson tók við þvi fyrir hönd
heimamanna. Lúörasveit
Blönduóss lék jólalög. Jólatréö er
á opnu svæöi fyrir framan kaup-
félagiö þar sem þaö nýtur sin vel.
— GFr.