Þjóðviljinn - 03.02.1980, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.02.1980, Blaðsíða 3
Sunnudagur 3. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Óttast þú hjartaáfall? Fáðu þér þá sjúss! Eitt vínglas eða tvö á dag geta komið í veg fyrir hjartaáfail. Þessa merku staðreynd er að finna í niðurstöðum bandarískra hjartasér- fræðinga og var skýrsla þeirra lögð fram á dögun- um á ársþingi þeirra í New Orleans. I skýrslunni er þó tekið fram aö nánari rannsókna sé þörf áö- ur en þeir geti beinlinis mælt meö þvi aö fólk skvetti I sig smá- magni á hverjum degi til aö forö- ast hjartaáfall. 20 iönaöarlönd Dr. Ronald E. LaBorte frá Pittsburgháskóla lagði fram niöurstööurnar, sem skilgreina samhengið milli áfengisnotkunar og dauöa af völdum hjartaáfalls. Rannsóknin nær yfir 20 iönaöar- lönd og leiöir I ljós, aö þvi meira áfengi sem menn drekka, þvi minni veröa Íikurnar á dauða við hjartaáfall. 1 skýrslum er einnig tekiö tillit til fitumagns i fæöu og notkun tó- baks og þá sérstaklega slga- rettureykinga. Þeir sem eru algerir bindindis menn eöa dr ekka mjög 1 hófi, eru mun verr settir varö- andi likurnar á þvi aö fá hjarta- áfall sem leiðir til dauöa. Þeir sem drekka ihófi eiga sér bjart- ari framtíö hvaö varöar hjarta- áfall, en ofdrykkjumenn eru hins vegar verst staddir. ReynslaJúgóslava önnur rannsókn sem fór fram i USA styrkir þessar niöurstöö- ur. Fram kom aö þegar áfengis- neyslan minnkaöi á árunum 1945- 55, jukust hjartaáföll sem leiddu til dauða hjá karlpeningi á aldr- inum 55-64 ára. Dauösföll minnkuöu hins veg- ar þegar drykkja jókst upp úr 1960. Júgóslavisk rannsókn sem taldi 11 þúsund karlmenn, sýnir einnig aö þvl meiri sem áfengis- neysla þeirra var, þvi minni voru likurnar aö þeir fengju hjartaáfall. En þaö var ekki þar meö sagt aö þeir væru ekki I hættu aö fá snögglegan aldurtila. Aukin áfengisneysla stuölar aö lömun eöa æöasjúkdómum svo eitthvaö sé nefnt af þeim kvillum sem eru aukinni áfengisneyslu samfara. Þar af leiöandi vara visinda- mennirnir viö niöurstööunum, þótt aukin áfengisneysla geti leitt af sér minni llkur á hjartaáfalli. Þaö liggur ekki ljóst fyrir hvaö hófleg neysla áfengis getur haft I för meö sér til að koma I veg fyrir hjartaáfall, en likur eru á, aö fólk sem neytir áfengis regluíega fái meira magn af ákveönu eggjahvituefni I blóðiö sem nefnist HDL. Þetta eggja- hvituefni minnkar kólestrol- magniö sem safnast I æöunum. Þaö er þekkt staöreynd aö hjartaáföll eru tlöari hjá fólki meö mikiö magn kólestrols I blóöinu. Hjartasjúkdómar En aö þeim augljósu hættum, sem aukinni áfengisneyslu eru samfara, liggja aðrar ástæöur fyrir þvi, aö læknarnir hika viö að hvetja fólk aö fá sér neöan I þvi til aö koma I veg fyrir hjarta- áfall. Þaö hefur komiö I ljós aö jafn- vel hófleg áfengisneysla getur olliö skemmdum á hjartavöðvan- um, og leiöir til aukinnar fram- leiöslu likamans á fitu, sem leiö- ir siöan til hjartas júkdóma. • Hinir læröu læknar eru þvi ekki sammála um lækningar- mátt áfengis viö hjartakvillum og meöan almenningur biöur eft- ir samhljóöa niöurstööum sér- fræðinganna, verður hver og einn aö gera þaö upp viö sig hvort hann kiki i glas eöa ekki. (Endursagtúr Dagbladet— im) ORL OFSFERÐIR 1980 TIL BÚLGARÍU - BAÐSTRENDUR: Drushba — Grand Hotel Varna — Zlatni Piatsatsi (Gullna ströndin). HÓTEL: Shipka — Preslav — Zlatna Kotva — Ambassabor (endurnýjað) — smáhýsi (3 og 4 manna). Oll hótel með baði, WC, svölum. Hálft fæði — matar- miðar. Fyrsta ferð: Páskar, 31. mars, 2—3—4 vikna ferðir eftir vali, einungis Grand Hotel, Varna. Síðan tvær 3 vikna ferðir, 28. apríl og 19. maí, (hægt að vera 2 vikur). Síðan hefjast vikulegar ferðir 9. júní fram til 15. sept. Eftir það verða tvær 3 vikna og 2. vikna ferðir 15. sept. og 6. okt. Sý nýbreytni verður f rá og með 9. júní til og með 25. ágúst, að hægt verður að f ara vikuferðir um landið frá Sofía um Citochafjöll — Rilaklaustur — Plovdin — Gabrovo— Stara Zabora — Shipka — Tranavo — Tragovitse— Ðreslav — Shumen — Pliska — Varna. ■f -A ' 1 jÉnJE* * j riHBSjjK v J Fyrsta ferð frá Sofía verður 16. júní, en frá Varna 23. júní og þannig aðrahvora ferðtil og með25. ágúst. 1. sept. frá Varna. Geta farþegar þá valið um að dveljast 2 eða 3 vikur á ströndinni að viðbættri þessari ferð, gista á Novhótelum, 1. flokks hótel með baði, WC. Fullt fæði, íslenskir leiðsögumenn. Skoðanaferðir til Istanbul, innan lands o.f I. verða skipulagðar í allt sumar. Verð f rá kr. 310.000.- 3 vikur til 9. júní og eftir 25. ágúst. Verð kr. 348.200.- 3 vikur f rá 9. júní til 25. ágúst. Nánar í ferðafréttum næstu viku. KYNNINGARV/KA -um Búlgaríu 3. til 11. febrúar á Hótel Loftleiðum, Vikingasal. Skemmtikvöld með búlgörskum mat, 6.-10. febrúar. Búlgörsk og alþjóðleg músík — söngvarar og fjöllistamenn frá Búlgarfu koma fram. Borðapantanir, Hótel Loftleiðir, sími 22321. t-erdashnfstota KJARTANS HELGASONAR Gnoðarvogur 44 - Vogaver Símar: 29211 og 86522

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.