Þjóðviljinn - 03.02.1980, Side 5
Sunnudagur 3. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
Bókmenntaverðiaun Nordurlandaráds:
Vefnaóar
I
Hio margeftirspurða vefnaðarband
er nú fáanlegt í yfir tuttugu litum,
sem gefa óendanlega möguleikaá
skemmtilegum samsetningum.
"j.
Sara Lidman fékk bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir skemmstu og hefur það þótt vel til
fimdið. Hún er ágætur og fjölhæfur höfundur, sem
hefur haft miklu hlutverki að gegna i sænskum
samtimabókmenntum — og ekki þykir það spilla
fyrir að kona fái verðlaunin. Það er i fyrsta sinn
sem það gerist á þeim nær tveim áratugum sem
verðlaunin hafa verið við lýði.
Sara Lidman er komin heim
aftur. Hún hóf ritferil sinn á
skáldsögum sem tengdust æsku-
slóöum hennar í Noröur-Svíþjóö,
og nú er hún aö skrifa flokk
þriggja saga um sömu slóöir.
Bálkur þessi gerist fyrir nær
hundraö árum. Fyrsta bókin hét
„Þjónn þinn heyrir” og sú bók
sem nú er verölaunuö „Börn reiö-
innar.”
Skáldsögum þessum er svo lýst,
aö þar sé mjög skýrt fram dregin
sú stéttaskipting sem skapar
mönnum hlutskipti — Sara Lid-
man hefur lengi tekiö miö af
marxiskum söguskilningi og hann
nýtist henni vel i þessari lýsingu á
landifeöra sinna. En þaö sem rek-
ur söguna áfram er ástarsaga
tveggja aöalpersónanna, Didriks
og önnu, og svo framsýn áform
Didriks um aö rjúfa einangrun
noröurbyggöa meö þvi aö leggja
járnbraut til þægilegri hluta
rikisins, sem hefur til þessa ekki
átt mikla athygli aflögu til handa
dreifbýlisfólki. I umsögn um bók-
ina sem birtist i danska blaöinu
Information segir á þessa leiö:
„Þetta er óvenjulega falleg
saga um þaö hvernig Didrik áttar
sig á leitandi ástarþörf sinni, um
þaö hvernig hann i sakleysi sinu
er altekinn af kvenkyninu, af
henni, og um þaö hvernig illar
grunsemdir hennar um framtiö-
ina taka á sig mynd drauma og
sýna. Didrik man atvik frá
bernsku sinni þegar hann reyndi
aö kveikja i snjónum meö logandi
tjöruspýtum. Faöir hans lét hann
gera þessa tilraun nokkrum sinn-
um. Didrik man greinilega eftir
þessum snævareldi rétt eins og
hann heföi kviknaö I raun og veru.
Hin langa ferö hans á biöilsbux-
um tengist á ýmsan hátt viö þenn-
an brennandi snjó. Hann vill ekki
reyna samskonar vonbrigöi og þá
aftur — i ástum.
Og bókin er á margan hátt
snævarsaga, um langan vetur
Noröurlands meö samgöngu-
banni og matarskorti. Snjórinn
skammtar fólkinu kjör, gegnum
snjóinn ekur sleöinn meö brúö-
hjónin frá kirkju og fylgja honum
á eftir oröin: Og snjórinn var
logahvitur. Eldur og vatn eru
frumtákn þessarar bókar.”
Meö þessari sögu er Sara Lid-
man aftur horfin þangaö sem hún
hóf feril sinn eftir langa útivist.
Hún hefur einkum veriö þekk
fyrir framlag sitt til pólitiskrí
bókmennta, skýrslur sinar uir
óréttlæti I heiminum. Sú útivist
hófst á þvi aö hún fór til Suður
Afriku og var visaö úr landi þaö
an — um þá dvöl skrifaði hún
skáldsöguna Sonur minn og ég
sem hefur komiö út á Islensku
Fræg varö bók hennar um Viet-
namstrlöiö, Samtöl i Hanoi, sem
höföu mjög mikil áhrif á Viet-
namhreyfingarnar I heimalandi
hennar og vlðar. Hún lét sér ekki
nægja aö kanna óréttlæti I öörum
heimshlutum, hún sótti heim
járnnámurnar sænsku og talaöi
viö verkamennina, um vinnu-
þrælkun, um mismunun, um hin
„þróaöri” form kúgunar á vinn-
andi fólki.
(áb tók saman)
Leitaðu óhikað hollra ráða —
Við munum gera okkar ailra besta.
m ^lafossbúöin
VESTURGÖTU 2 - SÍMI 13404
OG VERSLANIR UM LAND ALLT
Auglýsmgasími
er 81333 UÚBVIUINN
Plpulagnir
Nýlagnir, breyting
ar, hitaveitutenging-
ar.
Simi 36929 (milli k'l.
12 og 1 og eftir kl. 7 á
kvöldin)
Sparivelta Samvinnubankans:
Nýjar tölur
frá Samvinnubankanum
Hinn 1. janúar 1980 hækkuðu hámarksupphæðir
í Spariveltunni og eru sem hér segir:
SPARIVELTA A (3-6 mán.)
Mánaðarlegur sparnaður
kr. 40.000
kr. 80.000
kr. 120.000
SPARIVELTA B (12-36 mán.)
Mánaðariegur sparnaður
kr. 20.000
kr. 40.000
kr. 60.000
Núverandi þátttakendum í Spariveltunni er heimilt að breyta
mánaðarlegum innborgunum sínum samkvæmt ofangreindu.
Lánshlutföll eru þau sömu og áður.
Samvinnubankinn
pg útibú um land allt.