Þjóðviljinn - 09.02.1980, Síða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. febrúar 1980.
AF IMMITT
Að undanförnu hafa þeir Geir og Gunnar
verið aðalleikendur Sjónvarpsins í þáttunum
„Þjóðskörungar tuttugustu aldarinnar,"
„Gæfa og gjörvileiki", „Hefndin gleymir eng-
um", og „Valdataf li."
Þessir þættir eru orðnir svo vinsælir meðal
alþýðu, að götur höf uðborgarinnar haf a tæmst
þegar þjóðskörungarnir eru á skjánum, og
frést hef ur að bændur felli frekar niður mjalt-
ir en að missa af þeim félögum, og má því
bæta því á sakaskrá þeirra tvímenninganna að
kýr dreifbýlinga missi nytina fyrir þeirra til-
verknað.
Nú hefur Sjónvarpið hafið undirbúning að
næsta þætti, sem ku eiga að heita „Út í óviss-
una".
Immitt
Og dr því farið er að tala um Sjónvarpið er
vissulega ástæða til að endurtaka gömul en
fleyg orð Kristjáns Albertssonar: LOKSINS!
LOKSINS!, og við þau mætti bæta: „eftir
langa mæðu", svo lengi var þjóðin búin að bíða
eftir því, að forgangsmáli samtíðarinnar yrði
gerð verðug skii á skjánum.
Síðastliðinn þriðjudag var loksins sjónvarp-
að langþráðum þætti sem lengi hefur verið
beðið eftir og af mikill óþreyju. Hér var f jall-
að um efni, sem aldrei virðist vera hægt að
gera tæmandi skil; þáttur sem almenningur
hef ur þráð að fá á skjáinn, þáttur um það efni,
sem verður að fara að taka til nánari umf jöll-
unar í f jölmiðlum, taka föstum tökum, reifa
og rannsaka, fyrirbrigði, sem Sjónvarpinu ber
að gefa meiri gaum og allt of sjaldan er f itjað
uppá og alltof lengi hef ur legið í láginni, hið ó-
umdeilanlega vandamál líðandi stundar, það
fyrirbrigði sem brennur á okkur vakandi og
sofandi, sjálft samfélagsfyrirbærið: KONAN.
Þessi þáttur vakti slika athygli, að ég var
beðinn um að skrifa fræðilega og dæmigerða
sjónvarpsgaggrýni um hann, og er mér það
bæði Ijúft og skylt.
Sjónvarpsgaggrýni
Þátturinn „Þátttaka kvenna í opinberu líf i"
var i alla staði frábær. Óvenjuvel tókst til um
leikendaval , en í þættinum kom fram fólk á
öllum aldursskeiðum mannlegrar tilvistar í
táradalnum hérna megin landamæra lífs og
dauða. Ekkert veitir oss mönnum meiri unað
en að haf a fyrir augunum fagrar konur, og má
þá einu gilda hvað þær tala og tíunda. Oft hef-
ur í hópi fagurra kvenna gefist vel að hafa
meðslangur af greppitrýnum, og fá þá andlit
hinna fegurri notið sín betur, likt og perlur á
haugi.
Stjórnandi þáttarins var vel vaxinn ungur
hönnuður, Friður ólafsdóttir, gullfalleg stúlka
og eiguleg í alla staði. Ljóst hárið er þykkt og
gróskumikið, augun tindrandi blá og njóta sín
enn betur undir sérhönnuðum gullspangar-
gleraugum, sem gefa hinni fögru konu nokkuð
vitsmunalegt yfirbragð. Hún er hýrleg og ó-
venjulega vel tennt. Hálsinn er fallega settur
uppaf bringunni, sem virðist í lagi. Axlir eru
ágætar.
Hér verður að segjast eins og er, að erf itt er
fyrir gaggrýnanda að gera þátttakendum
þáttarins verðug skil, þar sem aldrei er gef inn
kostur á að sjá nema niður að mitti. Allt þar
fyrir neðan hlýtur því að verða fyrir manni
það sem kallað er á slæmu máli „algert gess-
vörk".
Björg Einarsdóttir ber þess enn vott, að hún
hefur verið óvenjuleg fríðleikskona, og sama
má raunar segja um aðra konu á svipuðu reki
sem fram kom í þættinum og gaf þá yfirlýs-
ingu að hún væri það skammt komin á frama-
brautinni, að hún væri hætt við að verða for-
seti.
Um brjóst- og beinabyggingu þessara
kvenna er erf itt að dæma nema niður að mitti
af framangreindum ástæðum, sem og þeirri
staðreynd, að sumum konum hættir til að
klæðaaf sér fagran kvenlegan Ifkamsvöxt.
Margrét Sölvadóttir formaður Samtaka
kvenna á framabraut er vægast sagt fönguleg
kona og þóekki hrikaleg. Hárprýðin er óvenju-
leg, en ijósir sveipirnir liðast um fagurlega
formað, klassískt andlit prýtt augum sem
hafa óræðan lit og gefa til kynna að undir
leynist kvenleg hugsun og jafnvel vitsmunir,
einkum með tilliti til þess að hér er kona á
ferð. Margrét er gædd meiri kvenlegum
yndisþokka en sumir aðrir þátttakendur þátt-
arins. Hún á sjálfsagt eftir að komast langt á
framabrautinni. Axlir virðast góðar, sömu-
leiðisháls og bringa. Sem sagt: mjög eiguleg
kona.
Gunnlaugur Snædal nemi er enn óráðin gáta
bæði í orði, æði og útliti.
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur var og
kvaddur til leiksins.
Leiddi Árni hina fræðilegu og sögulegu hlið
dispútasjónarinnar af mikilli festu og fræði-
legri innsýn.
Athyglisverð var kenning sem hann varpaði
þarna fram og ekki er vitað til að áður hafi
verið hampað, s.s. að þegar frummaðurinn,
„hómó sapiens", hafi verið á veiðimannastig-
inu haf i það leitt af sjálf u sér að konur urðu að
vera vanfærar heima og sjá um uppvaskið. Þá
kom fram, að tregðulögmálið hefði mjög sett
svip sinn á sambúð karla og kvenna á allra síð-
ustu ármiljónunum, og að á síðustu og verstu
tímum væri jafnvel farið að gæta miðflótta-
af Is.
Þessi f rábæri þáttur varð umf ram allt til að
vekja oss menn til umhugsunar um það, hvort
Árni og þá jafnvel við hinir séum enn á veiði-
mannastiginu. — Ekki yrði ég hissa. — Og þá,
með hvaða hætti hægt sé að upphef ja tregðu-
lögmálið og forðast miðflóttaaflið. Eða eins
og stjórnandi þáttarins komst of t svo f rábær-
lega að orði: „IMMtTT"
Eitt getum við Arni áreiðanlega orðið sam-
mála um/að:
Kát og fullnægð konan er,
í kastarholum eldar graut,
hún á ekki að hætta sér
hála útá framabraut.
Flosi.
é ó &
Sýningar
um helgina
Síöasti syningardagur. Sýnd kl.
21.05 og 23.05.
Krabat: Skemmtileg tékknesk
teiknimynd eftir Karel Zeman.
Byggð á ævintýri frá Lausitz.
Krabat er fátækur drengur sem
flakkar um héraðið og kemur að
dularfullri myllu. Þar lærir
hann galdra og lendir i ýmsum
ævintýrum. Sýnd kl. 15.10 og
17.10.
Skákmennirnir. Nýjasta mynd
indverska snillingsins Satiyajit
Ray, sem frægastur er fyrir
þrileikinn um drenginn Apu.
Skákmennirnir gerist á nitjándu
öld og fjallar um tvo indverska
aðalsmenn, sem eyða tima sin-
um við skákborðið meöan
breska nýlenduveldið er að seil-
ast inn i riki þeirra og kóngurinn
neyðist til að segja af sér. Ray
hefur einkum fengiö lof fyrir að
sýna m argbrey tileika
mannlegra samskipta, og I
þessari mynd nýtur kimnigáfa
hans sin mjög vel. Sýnd kl.
19.00, 21.10 og 23.15.
Laugardagur
| Kvikmyndasamkeppnin: Kl.
I 14.00 verða sýndar fjórar
I islenskar kvikmyndir, sem
' keppa til verölauna, og fer
J verölaunaafhendingin fram I
I lok sýningar. Myndirnar eru:
I Bfldór.eftir Þránd Thoroddsen,
' Humarveiöar eftir Heiöar
J Marteinsson, Eldgosiö á
I Heimaey og uppbygging, eftir
I Heiðar Marteinsson, og Litil
1 þúfa.eftir Agúst Guömundsson.
J Hrafninn. Siðasti sýningardag-
I ur. Missið ekki af þessari
I frábæru mynd Spánverjans
J Carlos Saura. Sýnd kl. 17.00,
, 19.00, 21.00 og 23.00.
I Stúlkurnar frá Wilko. Nýjasta
I mynd Andrzej Wajda. Róman-
J tisk mynd um „veröld sem
Ivar”. Sýnd kl. 15.05, 17.05 og
19.05.
An deyfingar. Wajda-myndin
sem sumir segja að sé jafnvel
J betri en Marmaramaðurinn.
Skákmennirnir, nýjasta mynd indverska snillingsins Satiyajit
Ray, verður sýnd um helgina.
Albert? — Hversvegna? Vestur-
þýsk nýbylgjumynd eftir Josef
Rödl, gerð 1978. Myndin fékk
silfurbjörninn á kvikmynda-
hátiöinni i Berlín 1978. Ungur
maður snýr aftur á sveitabýli
sitt eftir stutta dvöl á
geðveikrahæli. Eftir heimkom-
una lendir hann I útistööum viö
þorpsbúa vegna fordóma þeirra
i hans garö. Sýnd kl. 15.10, 17.10
og 19.10.
Woyzeck. Nýjasta mynd
Werners Herzog, gerð 1979.
Byggð á samnefndu leikriti
Buchners, sem sýnt hefur verið
I Þjóðleikhúsinu. Aðalleikendur
Klaus Kinski og Eva Mattes,
sem fékk verðlaun fyrir leik
sinn i þessari mynd I Cannes
1979. Sýnd kl. 21.10 og 23.10.
Bönnuð fólki innan 16 ára.
Jeanne Dielman.Belgisk mynd
frá 1975, leikstjóri Chantal
Akerman. Mishermt var I
Þjóöviljanum I gær að Akerman
kæmi til landsins, en hún
forfallaðist á siöustu stundu og
gat ekki komið. Jeanne Dielman
er framúrstefnumynd, afar
löng og hæg, en sögö mjög
krassandi fyrir forfallna kvik-
myndadýrkendur. Hún fjallar
um húsmóður I hlekkjum
vanans, og þeir hlekkir bresta
ekki einu sinni meöan konan
stundar heimilisvændi. Sýnd kl.
17.00 og 21.00. Aöeins þennan
eina dag.
----------------1
Sunnudagur
Stuttar barnamyndir verða
sýndar kl. 15.00 og 17.00. Sýndar I
verða myndirnar 1 hverju heyr- I
ist?, Dórótea og drekinn, Klifur- |
tréð hans Kalla, Þrir félagar,
Ogg finnur upp tónlistina og
Hestarnir á Miklaengi.
Með bundið fyrir augun. Hin
^hrifamikla mynd Saura um
ástandiö á Spáni eftir dauða
Frankós. Bönnuö innan 16 ára.
Siðasti sýningardagur. Sýnd kl.
19.00, 21.00 og 23.00.
Woyzeck. Næstsiðasti sýningar-
dagur. Sýnd kl. 15.05, 17.05,
19.05,21.05 og 23.05. Bönnuð inn-
an 16 ára.
Krabat.Tékkneska teiknimynd-
in. Sýnd kl. 15.10 og 17.10.
Skákmennirnir. Siðasti sýn-
ingardagur. Sýndkl. 19.00, 21.10
og 23.15.
J.A. Martin, ljósmyndari.
Kanadisk mynd frá 1977. Sjá
umsögn 1 blaðinu á morgun.
Sýnd kl. 15.05 og 17.05. Siöasti
sýningardagur.
Stefnumót önnu. Belgisk-
frönsk-þýsk framúrstefnumynd
eftir Chantal Akerman, um
kvikmyndaleikstjórann önnu,
sem ferðast um Evrópu og sýnir
myndir sinar. Sýnd kl. 19.05,
21.05 og 23.05. Siöasti sýningar-
dagur.
Dækja. Frönsk mynd um I
kynlegt samband tveggja utan- I
garðsbarna þjóöfélagsins, gerð I
af Jacques Doillon, sem er tal- ■
inn efnilegastur ungra kvik- I
myndastjóra I Frakklandi nú.
Siðasti sýningardagur. Sýnd kl. |
15.00, 17.00, 19.00, 21.00 Og 23.00. ■