Þjóðviljinn - 09.02.1980, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 9. febrúar 1980
Laugardagur 9. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Svavar Gestsson tekur viö völdum af Magnúsi H. Magnússyni I félags-
málaráöuneytinu (Ljósm.: eik)
Svavar Gestsson um
nýju ríkisstjórnina:
Rikisstjórnin og forseti islands á Bessastööum I gær. F.v.: Gunnar Thoroddsen forsætisráöherra, Stein grfmur Hermannsson sjávarútvegsráöherra, Svavar Gestsson félagsmálaráðherra,
Hjörleifur Guttormsson iönaöarráöherra, Tómas Arnason viöskiptaráöherra, Ragnar Arnalds fjármáiaráöherra, Ingvar Gislasan menntamálaráöherra, Ólafur Jóhannesson utanrikisráðherra
Friöjón Þóröarson dómsmáiaráöherra, Pálmi Jónsson landbúnaöarráöherra og forseti islands hr. Kristján Eldjárn.
(Ljósm.: eik)
hluti Sjálfstæðisflokksins, þeir
leiftursóknarmenn, eru nú i and-
stöðu við þá rikisstjórn sem
mynduð hefur verið. Þessi öfl
hafa sett sig i ihaldsstríðsstell-
ingar og i þessari niðurstöðu fel-
ast þvi mikilvægar pólitiskar
staðreyndir sem rétt er að hafa I
huga.”
Mikilvæg atriði í kjara- og
verðlagsmálum
Hvaö viit þú segja um mái-
efnasamning þessarar rikis-
stjórnar ?
„I myndun þessarar rikis-
stjórnar felast engin ný stéttar-
leg stórtiðindi, en hún á að skapa
möguleika til nýrrar pólitiskrar
sóknar eins og ég sagði áðan. I
stefnuyfirlýsingu hennar eru
þættir sem verða að teljast ákaf-
lega jákvæðir. Sérstaklega vil ég
nefna kaflana um kjara- og verð-
lagsmál og um atvinnuvegina,
einkum þann hluta er snýr aö
s jávarútvegi og iðnaöi. Einnig vil
ég nefna kaflann um menningar-
mál sem við lögðum mikla
áherslu á að fengi þokkalega af-
greiðslu.”
Hækkun tekjutryggingar
umfram verðbætur
„Varðandi þau ráðuneyti sem
ég á að sinna þá held ég að það sé
vel við hæfi að Alþýöubandalagið
hafi með heilbrigðis-, trygg-
ingár- og félagsmál aö gera I
þessari rikisstjórn. I gegnum
félagsmálaráðuneytið eru
megintengsl stjórnkerfisins við
verkalýðshreyfinguna og I þvi
ráðuneyti eru margir hlutir I
vinnslu frá tima vinstri
stjórnarinnar og i málefna-
samningi þessarar rikisstjórn-
ar er ýmsu bætt við á þessu
sviði. Hvað varðar heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytið, þá er
það mjög viðamikiö ráðuneyti og
rekstur þess tekur um þriðjung
rikisútgjalda. I stefnuyfirlýs-
ingu rikisstjórnarinnar er gert
ráð fyrir hækkun tekjutrygging-
ar aldraðra og öryrkja umfram
verðbætur. Þessi hækkun á að
koma til framkvæmda 1. júni 1980
og 1. janúar 1981. I reynd hefur
kaupmáttur tekjutryggingar
nær staðið i stað siðan 1971 er
Magnús Kjartansson gerði stór-
átak i þessum efnum. Það er þvi
ánægjulegt að stuöla að þvi að
nýtt skref verði stigið fram á við
á þessu sviði.”
Lögðum áherslu á fár-
málaráðuneytið
Lagöi Alþýöubandalagiö i
s t jór nar my ndunar viör æöunum
áherslu á aö fá einhver sérstök
ráöuneyti umfram önnur?
„Já, við lögðum sérstaka
áherslu á að fá i okkar hlut fjár-
mála-og iðnaðarráðuneyti, Þetta
er I fyrsta skipti sem okkar
flokkur fer með fjármálaráðu-
neytið. Vegna þeirrar lykilað-
stööu sem fjármálaráöuneytiö
hefur i stjórnkerfinu lögðum við
sérstaka áherslu á að fá þaö I
okkar hlut. 1 iðnaðinum felast
meginvaxtabroddar islensks at-
vinnulifs. Allir sem til þekkja
eru sammála um að sá undir-
búningur sem hafinn var I
iðnaðarráöuneytinu i tfð siðustu
rikisstjórnar geti skilað þjóðinni
verulegum árangri I bráð og
lengd ef fram er haldið á sama
hátt. Við töldum þvi eðlilegt að
Alþýðubandalagið færi áfram
með iðnaðarráðuneytið.”
Sakna viðskiptaráðu-
neytisins
Saknar þú viöskiptaráöu-
neytis ins?
,,Ég get ekki neitaö þvi aö
persónulega er mér nokkur
eftirsjá I viðskiptaráðuneytinu.
Ef ég hefði getað valið s jálfur þá
hefði ég viljað halda áfram að
vinna þar að þeim verkefnum er
ég var að fást við er vinstri
stjórnin fór frá völdum. Hins
vegar verður ekki á allt kosið
þegar ráðuneytum er skipt milli
flokka”.
Utanríkismálakaf linn
ófullnægjandi
Telur þú aö ákvæði málefna-
samningsins um utanrikismál
séu viöunandi fyrir Aiþýöu-
bandalagiö viö þessar aö-
stæöur?
„Það er r étt að hafa það i huga
i þessu sambandi að málefna-
samningurinn er saminn við
sérkennilegar aðstæður. Það
var ekki ljóst fyrr en I fyrradag
hvort það tækist að mynda
meirihlutastjórn og þvi ber
samningurinn vitni um þann tak-
markaða þingstyrk sem rikis-
stjórnin býr við. Kaflinn um
utanrikismál er þó langt frá þvi
að vera fullnægjandi að minu
mati. Ég tel hins vegar að i
kaflanum felist viðurkenning
þeirra afla er mynda rikis-
stjórnina á þeim alvarlegu
vandamálum er hersetunni
fylgja og að með athöfnum i sam-
ræmi við samninginn tel ég að
eigi að vera hægt að skapa frek-
ari viðspyrnu fyrir sjálfstæöri
islenskri utanrikisstefnu.”'
„Baráttan fyrir brottför
hersins verður hins vegar ekki
einvörðungu leidd til lykta á
pappirum eins og málefnasamn-
ingi. Hún vinns t aldrei nema með
viötæku fjöldastarfi og áhugi á
þvi fjöldastarfi verður aldrei
sem skyldi nema þjóðinni sé
ljóst hvað hún er I raun og veru
að verja i sjálfstæðisbaráttu
sinni. Og hvaö er hún að verja?
Jú, islenska tungu og menningu.
An þessarar menningarlegu
forsendu skipta öll visitölustriö-
in næsta litlu máli. Þess vegna er
baráttan fyrir varöveislu menn-
ingarverömæta ein megin-
forsenda þess að sjálfstæðis-
baráttan geti borið ávöxt.”
Hvaö er þaöþá sem næst fram
i samningum um utanrikismál?
Sjálfstæö utanríkisstefna
„í stjórnarsáttmálanum er
lögð á það áhersla að Island eigi
aö fylgja sjálfstæðri utanrlkis^
Framhald á bls. 13
Fimm sjálfstæðisþingmenn styðja stjórnina
Dr. Gunnar Thoroddsen sem
nú tekur viö embætti forsætis-
ráöherra var fyrst kosinn á
þing 1934, þá aöeins 23 ára aö
aldri. Gunnar sat fyrst á þingi
til 1937, og svo 1942-1965. Hann
var kjörinn á þing á ný 1971 og
hefur setiö á Alþingi siöan.
Gunnar er lögfræöingur aö
mennt. Gunnar Thoroddsen
hefur gengt fjölmörgum
ábyrgöarstörfum um ævina.
Hann hefur veriö prófessor,
borgarstjóri, hæstaréttar-
dómari, fjármálaráöherra ,
iönaöar- og félagamálaráö-
herra, formaöur þingflokks
Sjálfstæöisfiokksins, varafor-
maöur Sjálfstæöisflokksins og
sendiherra. Dr. Gunnar Thor-
oddsen er 69 ára aö aidri.
Albert Guömundsson hefur
setiö á Aiþingi siöan 1974. Al-
bert hefur heitiö rikisstjórn
Gunnars Thoroddsen stuöningi
veröi borin á hana vantraust-
tiiiaga, en er ekki beinn aöili aö
rikisstjórninni. Albert iauk
Samvinnuskólaprófi 1944 og
stundaöi versiunarnám er-
iendis í tvo ár. Albert var kos-
inn Iborgarstjórn Reykjavikur
1970. Albert Guömundsson er
57 ára aö aldri.
Friöjón Þóröarson, sem nú
veröur dóms- og kirkjumála-
ráöherra var fyrst kosinn á
Aiþing 1956 og sat á þingi tii
1959. Friöjón hefur svo setiö á
Alþingi síöan 1967 sem þing-
maöur Vesturlands. Friöjón er
iögfræöingur aö mennt. Hann
var sýslumaöur i Dalasýslu
1955-65 og I Snæfellsnes- og
Hnappadaissýslu 1965-1975.
Friöjón er 57 ára aö aldri.
Eggert Haukdal var fyrst
kosinn á þing 1978. Hann var
endurkosinn 1979, en bauö sig
þá fram utanflokka. Þó aö
framboö Eggerts væri stutt af
sjálfstæöismönnum þá var
hann ekki tekinn i þingflokk
s jálfs tæöis manna. Eggert
hefur stundaö búskap á Berg-
þórshvoii.
Páimi Jónsson, sem nú
gegnir embætti iandbúnaöar-
ráöherra var fyrst kosinn á
þing fyrir Noröurlandskjör-
dæmi vestra 1967 og hefur setiö
siöan á Alþingi. Pálmi er bú-
fræöingur frá Hólum 1948.
Páimi hefur stundaö búskap á
Akri I Torfulækjarhreppi siöan
1953. Pálmi er formaöur
stjórnar Rafmagns veitna
rikisins, og hann hefur átt sæti
i nýbýlastjórn, i landnýtingar-
og landgræöslunefnd og yfir-
fas teignamats nefnd. Pálmi
Jónsson er 51 árs aö aldri.
Stöðvunarstjórn á
kauplækkunaröflin
Virkara flokksstarf
Svavar Gestsson tók I gær viö
embætti heilbrigöis-.tryggingar-
og félagsmálaráöherra. í þvi til-
efni tók Þjóöviljinn Svavar tali og
fyrsta spurningin sem lögð var
fyrir hann, var hvaö hann vildi
segja um aödragandann aö
myndun núverandi rikisstjórnar
og hvaöa vinningur þaö væri
fyrir Alþýöubandalagiö aö fara i
þessa stjórn.
Stöðvunarstjórnin á kaup-
lækkunaröf lin
„Til að átta sig á stöðu og
myndun þessarar rikisstjórnar
er nauðsynlegt að fara allt aftur
til ársins 1977 er hér hófust hörð
stéttaátök við rikisstjórn sjálf-
stæðis- og framsóknarmanna
unjdir forsæti Geirs Hallgrims-
sonar. Þessi átök hafa I reynd
staðið allan timann siðan. Styrk-
ur launafólks hefur m.a. komið i
ljós með þeim hætti að þrátt
fyrir versnandi ytri aðstæður
þjóðarbúsins hefur launafólk
haldiö sinum hlut að mestu
siðustu þrjú misseri. Þau öfl i
þjóðfélaginu sem vilja leysa
margumtalaðan efnahagsvanda
á kostnaö launafólks hafa ekki
náð saman á þessum tima og
þessi stjórn sem nú er mynduð
er þvi stöðvunarstjórn á kaup-
lækkunaröflin”.
„Aðdragandinn að myndun
þessarar rikisstjórnar er sér-
kennilegur. Hér stóð yfir
stjórnarkreppa i marga mánuði.
Vinstri stjórnin var ekki sam-
hent og erfið pólitfskt fyrir
Alþýðubandalagið. Kosningaúr-
slitin gáfu til kynna að stjórnar-
myndun hlyti að verða mjög
erfið. Við lögðum áherslu á að
mynduð yrði vinstri stjórn.
Vinstri stjórn veröur ekki
mynduð um kauplækkun. Vinstri
stjórn á að mynda um að halda i
skefjum og helst takmarka vald
fjármagnsins I þjóðfélaginu.
Alþýðuflokkurinn hélt þvi hins
vegar stift fram að efnahags-
vandinn yröi ekki leystur nema á
kostnað almennra launa. Um það
hefur styrinn staðið. Niðurstað-
an er sú að kjörin eru varin i
þessari lotu.”
„Avinningurinn fyrir Alþýðu-
bandalagið að taka þátt i þessari
rikisstjórnfelstþvi i þeirri stað-
reynd að sókn fjármagnsaflanna
gegn fólkinu og kjörum þess er
stöövuð. Sú stöðvun skapar nýja
viðspyrnu og möguleika á nýrri
sókn af hálfu alþýðunar ef rétt
er á málum haldið af rfkisstjórn-
inni, en þó fyrst og fremst
Alþýðubandalaginu. 1
Alþýðubandalaginu er vitaskuld
mikill vandi á hödnum um þessar
mundir. Staðan er flókin pólitiskt
og aðild að rikisstjórn má ekki
þýða að flokksmenn okkar mæni
á ráðuneytin sem við erum að
sinna. Aöild að rikisstjórn kallar
á meira og virkara flokksstarf en
nokkru sinni ella.
Leiftursóknarmenn i
stjórnarandstöðu
„í stjórnarkreppunni hafa
margir athyglisverðir hlutir
gerst. Einn er sá að aðaltals-
menn Sjálfstæðisflokksins skrif-
uöu um það i blöð fyrir jól að nú
yrði að eiga sér stað „sögulegar
sættir” milli Alþýðubandalags-
ins og Sjálfstæðisflokks, milli
höfuðfulltrúa stéttanna i landinu.
Tæplega hafði þó blekið þornað á
þessum sérkennilegu bónorðs-
bréfum þegar þau tiðindi gerðust
i Afganistan að Sovétrikin sendu
þangað her. Við það færðust
kaldastriösöflin i aukana á ný og
bónorðsbréfin voru dregin til
baka og lögð á það áhersla I
greinum og fundarsamþykktum
að nú væri rétti tíminn fyrir lýð-
ræðisöflin að einangra
kommúnista, eins og þaö ér kall-
að. Það vill nú svo til að undir
þessu lýðræðisnafni leynast þau
sömu öfl er vilja leysa efnahags-
vandann með kauplækkunarað-
gerðum. Margt virtist þvi benda
til þess um tima að þessi öfl
myndu ná s aman. Þeim tóks t það
þó ekki og það var fyrst og
fremst Alþýöubandalagið sem
kom i veg fyrir það. 1 staðinn
gerðist það að ofstækisfyllsti
Hjörleifur Guttormsson aftur kominn i iðnaöarráðuneytið I gær. Hér ræðir hann viö Kristmund Hall-
dórsson og Jafet Ólafsson, starfsmenn þess. —Ljósm.: —eik.
4-4,5 km kjarnahola
Á Akranesi eöa í Skorradal?
Á fundi I London i desember sl.
um næstu borverkefni hins
alþjóðlega hóps, sem stóð að
ÍRDP boruninni á Reyðarfirði
1978, var ákveöið að stefna að
tveimur borverkefnum á ára-
tugnum 1880-1889.
Annað verkefnið er borun <4-4,5
km kjarnahol”. á tslandi og er
hugsanlegt að sú borun hefjist
sumarið 1982. Hafa tveir staðir
einkum verið nefndir fyrir þá
holu: Akranes og Skorradalur.
Reiknað er með að borunin kosti
600-800 milj. kr.
Hitt vcrkefni, sem um var rætt
er borun 2 km og einnar km holu á
Kýpur. Enn hefur ekki verið sett
viðmiðunardagsetning fyrir þá
borun.
Væntanlega verður ákveðið
hvort borverkefnið kemur á
undan, á fundi I tengslum við ráð-
stefnu IRDP I Reykjavik 13.-15.
mai n.k.
—mhg
Mikið veltur á
samstarfsanda
Vidtal viö Hjörleif Guttormsson, idnadarráöherra
Þessi stjórn er vissulega
til orðin við óvenjulegar
aðstæður og ekki liðinn
sólarhringur frá því áð
Ijóst varð að hún hefði
hreinan meiri hluta að baki
sér. óvissan um stuðning
við stjórnina og sá hraði
sem þurft hefur að hafa á
undirbúningi veldur því að
málefnasamningurinn er
ekki eins ítarlegur eins og
ef lagt hefði verið í
þessa ferð skömmu fyrir
kosningar, sagði Hjör-
leifur Guttormsson iðn-
aðar- og orkuráðherra í
samtali við Þjóðviljann í
gær.
Ekki lakari en málefna-
samningurinn frá 1978
Segja má að náð sé nokkrum,
áfanga i þeirri deilu sem staðið
hefur i nokkur ár um skiptingu
þjóðartekna ogkjör almennings I
landinu og hefur Alþýðubanda-
laginu tekist I meginatriðum aö
ná þeim árangri að þessu leyti
sem það hefur barist fyrir.
Málefnasamningur rikis-
stjórnarinnar ber þess vott að
hann er málamiðlun milli býsna
ólikra viðhorfa en ég tel þó að
hann sé i mörgum atriðum ekki
lakari en sú samstarfsyfir-
lýsing sem gerð var við myndun
vinstri stjórnarinnar siðsum-
ars 1978.
Þessi stjórn ætlar sér eins og
vinstri stjórnin að vinna gegn
-verðbólgu með margháttuðum
aðhaldsaðgerðum á sviði fjár-
mála og verðlagsmála en einnig
og ekki siður með þvi að auka
framleiðni og framleiðsluverð-
mæti islenskra atvinnuvega.
Rannsóknir og
áætlanagerð
Kaflinn um atvinnumál og
einnig orkumál er nokkuð itar-
legur I stefnuyfirlýsingunni og
þar eru að finna ýmis nýmæli og
nýjar áherslur. Þar er m.a.
fjallaðum auðlindagrunninn sem
atvinnulifið er reist á og nauðsyn
þess að efla rannsóknir á þess-
um auðlindum okkar og þróunar-
starfsemi á sviði atvinnulifsins.
A sama hátt er lögð mikil
áhersla á áætlanagerð varðandi
atvinnuvegina og að steypa
saman slikum áætlunum i eina
heild þannig aö dregið verði úr
óvissu og togstreitu milli ein-
stakra atvinnuvega en að þeim
hlúð með heildarhagsmuni i
huga.
Aukið lýðræði
á efnahagssviðinu
Þá er vert aö vekja athygli á
ákvæðum um aukinnþátt starfs-
manna varðandi málefni vinnu-
staða og þær framleiðni- og hag-
ræðingaraðgerðir sem ráð-
gerðar eru. Þetta eru að minu
mati forsendur fyrir þvi að
árangur náist á þessu sviði og
jafnframt er með þessu stefnt i
átt til aukins lýðræðis á efna-
hagssviðinu. Bættur aöbúnaður
starfsfólks og aðstaða til starfs-
menntunar og fulloröinsfræðslu
erueinnig atriöi sem visa i sömu
átt.
Sjávarútvegur
og landbúnaður
Það er of langt mál að rekja
hér einstaka þætti varðandi at-
vinnuvegina en þar eru nánar
útfærðir þeir meginþræðir sem
ég gat um áðan. I sjávarútvegi er
lögð áhersla á að samræma
betur en nú er fiskveiðar og fisk-
vinnslu, aúka nýtingu hráefnis
og draga jafnframt úr kostnaði
eftir þvi sem frekast er unnt. A
þessu sviði er vissulega þörf
frekari stefnumótunar með tilliti
til langtimasjónarmiða og af-
raksturs fiskistofnanna.
1 landbúnaði eru ekki siður
stór verkefni sem biða úr-
lausnar og þá ekki sist að stilla
saman á skynsamlegan hátt
framleiðslu landbúnaðarafurða
og markaðinn og tryggja um leið
afkomu bænda ekki siöur en ann-
arra vinnustétta.
Langtímastefnu-
mótun í iðnaði
A sviði iðnaðar er mikið af
ýmsum verkefnum sem fram
höfðu komið og byrjað var að
undirbúa meðan ég starfaði þar
að málum en á sviði þessarar at-
vinnugreinar eru um s vo fjölþætt
verkefni að ræða aö ég legg ekki
út I það aö rekja þau i stuttu við-
tali. Þaö getur nægt að benda á
ákvæöi um langtimastefnu-
mörkun um iðnþróun og ein-
stakar iðngreinar og nýiðnað af
ýmsu tagi þ.á.m. iðnað sem
byggi á innlendum hráefnum og
orku. t stefnulýsingunni eru
tekin af tvimæli um að slikur
nýiðnaður og frekari stóriðja
verði á vegum landsmanna
sjálfra.
Stórbrotin verkefni
í orkumálum
Um orkumáler alllangur kafli
I eðlilegu hlutfalli við vaxandi
þýðingu þeirra. Þar biða stór-
brotin verkefni, bæði varðandi
hagnýtingu innlendra orkulinda
jafnframt þvi sem dregið verði
úr þörfum fyrir innflutning á
orku, varðandi skipulagsmál á
sviði orkumála og verðjöfnun á
orku, ekki slst á sviði húshit-
unar. Hér er það málasvið sem
kalla mun á næstu árúm á veru-
legt fjármagn og ég held að full
samstaða sé um að áherslu
veröiað leggja á framkvæmdir i
orkumálum umfram margt
annað sem þó verður að teljast
æskilegt.
Það er ákveðið i þessum mál-
efnasamningi að reyna að brúa
það bil sem gæti orðið varðandi
raforkuframleiðslu á næsta
vetri meö afli frá gufuvirkj-
unum, bæði frá Kröflu og með
byggingu gufuver ksmiðju i
Svartsengi.
Landgræðsla
og landvernd
1 kaflanum um umhverfismál
og auðlindir kemur fram sú
hugsun að vinna að skipulagi
varðandi nýtingu á landi og
helstu auðlindum okkar með til-
liti til verndarstefnu. Einnig er
gert ráð fyrir að ný landgræðslu-
og landverndaráætlun verði gerð
og komið á breyttri skipan i
stjórnsýslu umhverfismála
þannig aö helstu málaflokkar á
þvi sviði falli undir eitt ráðu-
neyti.
Mikið undir góðum
samstarfsanda komið
Sústjórnsem nú býr sigundir
störf á við margháttuö vandamál
að fást sem hafa vaxið vegna
þeirra stjórnarslita sem
Alþýðuflokkurinn beitti sér fyrir
á s.l. hausti. Það er mikið undir
þvi komið að góður samstarfs-
andi takist innan stjórnarinnar
og ekki siður milli stjórnar og
þeirra fjölmörgu hagsmunaaðila
i þjóðfélaginu sem áhrif hafa á
framvindu mála. Ég hygg að
þessi stjórn hafi þokkalegan byr
nú i upphafi og vænti þess að hún
geti skilað nokkru til hagsbóta
fyrir alþýðu og treyst sjálfstæði
okkar. —GFr