Þjóðviljinn - 09.02.1980, Page 11
Laugardagur ». febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Þátttakendur i námskeióinu 22-24. janúar voru 16, allt afgreiöslufólk
kaupfélaga.
Námskeiö á vegum Samvinnuskólans:
Meöferö kjöts
og kjötvara
Samvinnuskólinn hélt nám-
skeið i meðferð kjöts og kjötvara i
Reykjavik dagana 22.-24. janúar i
samvinnu við Kjötiðnaðarstöð
Sambandsins. Komust færri að en
vildu og verður næsta námskeið
12.-14. febrúar og er einnig fuil-
skipað I það og er þvi hafin skrán-
ing þátttakenda i hið þriðja.
Þátttakendur I þessum
námskeiðum er afgreiðslufólk i
matvöruverslunum kaupfélaga
viðs vegar af landinu. Markmiðið
er að veita afgreiðslufólki i mat-
vöruverslunum fræðslu um
sundurtekningu og meðferð kjöts
og kjötvara. Einnig að leiðbeina
við útstillingar i kjötafgreiðslu-
borð og veita tilsögn i sölu-
mennsku.
Námskeiðið var allt sérstætt að
þvi leyti hversu mikið var verk
legt, þvi til skýringar má nefna aö
námskeiðinu lauk með vörukynn-
ingu i verslun KRON i Breiðholti,
sem þátttakendur sáu að mestu
um sjálfir.
Bókmenntakynning BSRB:
Þriðjudagskvöldið 12. febrúar
verður önnur bókmenntakynning
BSRB og verður þá Guðmundur
G. Ilagalin rithöfundur gestur
opinberra starfsmanna ásamt
Sigriði Hagalin leikkonu og
Baldvin Halldórssyni leikara.
Baldvin Halldórsson segir frá
kynnum sinum af skáldinu,
Sigriður Hagalin les sögu Guð-
mundar „Móðir barnanna”, og
Guðmundur G. Hagalin spjallar
um rithöfundarstarf sitt og
svarar fyrirspurnum áheyrenda.
Þessi bókmenntakynning er
liður i starfi fræðslunefndar
BSRB. Aður hefur Halldór
Laxness komið i heimsókn, og
framhald verður á.
Félagar I BSRB eru eindregið
hvattir til þess að koma og þeim
er velkomið að taka með sér
gesti. Ekki sakar að geta þess að
boðið verður upp á nýlagaö,
rjúkandi kaffi, og ætti það að
verka vel á skilningarvit viö-
staddra.
Bókmenntakvöldið verður að
Grettisgötu 89 kl. 20.30.
-GFr.
Hagalín í
heimsókn
Guðmundur G. Hagalin spjallar
um rithöfundarstarf sitt og
svarar fyrirspurnum.
Kampútseu-
hljómleikar
í Austurbæjarbíói 9. febrúar kl.14
Forsala aögöngumiða
í Fálkanum
Verð aðgöngumiða
kr. 5000.
Hjálparstoóiun
kirkjunnar
Kjarabót
Snillingarnir
Fiæbbbiarnir
Gestir hljomleikanna:
félagar úr
Alþýðuleikhúsinu.
Tómas Tómasson
Egill Olafsson
Asgeir Oskarsson
Björgvin Gíslason
Karl Sighvatsson
og ? leika af fingrum fram.
Kynnir: Guðmundur Einarsson
tf.imhv.'vmdaitiori H|Hlp.irstOtnundf hi«h-unra'
LAUS STAÐA.
Hlutastaða dósents (37%) I handlæknisfræði I læknadeild
Háskóla islands er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega
skýrslu um visindastörf þau, er þeir hafa unniö, rit-
smiðar og rannsóknir, svo og námsferil sinn og störf.
Umsóknir skulu sendar manntamálaráðuneytinu
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 10. mars nk.
Menntamálaráðuneytið,
8. febrúar 1980
Sverrir Hólmarsson
skrrfar um
HOPP
OGHI
Þjóðleikhúsið sýnir
Nakin á vappi
eftir Georges Feydeau
Leikstjóri: Benedikt Arnason.
Betri er þjófur i húsi
en snurða á þræði
eftir Dario Fo
Leikstjóri: Brynja Benedikts-
dóttir.
Sigriöur Þorvaldsdóttir og Gisli Alfreðsson.
að á nákvæmlega réttum stöðum.
Mér fannst töluvert vanta
bæði á tempó og stil i báöum
þessum sýningum, einkum fyrri
þættinum. Þáttur Feydeaus er að
visu aðeins rýrari I roöinu, en
þaö sem meira máli skiptir er að
sýninguna vantar þann upphafna
elegansa sem nauðsynlegur er,
bæði vegna slapprar leikstjórn-
ar og vegna þess að Gisli Al-
freðsson megnar ekki aö gefa
hlutverki hins belgingslega og
pempiulega stjórnmálamanns
nægilegt lif til að veita Sigriði
Þorvaldsdóttur veröugt mótspil,
en hún er iðandi af lifi og fjöri að
vanda i hlutverki glaðværrar
eiginkonu sem skilur ekki af
hver ju hún má ekki ganga um i-
búð sina á náttslopp.
Leikrit Darios Fos er miklum
mun samslungnara og þéttar
skrifað en hitt, einn af þessum á-
gætu misskilningsleikjum þar
sem einn misskilningur inn
hleðst á annan ofan þar til allt er
komið i hnút og bendu. Svonalag-
að getur verið ansi skemmtilegt,
og var það reyndar á köflum, en
sýningin varð nokkuð ruglings-
leg þegar frá leið og var hér á
feröinni nokkur stilskortur, sýn-
ingin vafraði nokkuö milli tiltölu-
lega náttúrulegs leikmáta (t.d.
hjá Helga Skúlasyni og Bessa)
yfir i töluvert ýkt látbragð Þór-
unnar Magneu, sem reyndar
geröi sinn hlut mjög skemmti-
lega.Það gerði Bessi reyndar
lika og fleiri stóðu sig með prýði,
en það skorti einhvern herslu-
mun til að það yrði alveg nógu
gaman.
Góöur farsi vel uppfærður
getur verið með þvi ánægjuleg-
asta sem fyrir mann ber i leik-
húsi. Hinsvegar er farsinn með
þvi vandasamasta sem hægt er
að leika. Fáar greinar leikbók-
mennta gera jafn skilyrðislausa
kröfu um gegnumfæröan stil og
farsinn. Einnig er nauðsynlegt
að halda uppi linnulausu tempiói.
sem reyndar þýðir ekki það að
allir þurfi endilega að tala og
hreyfa sig á miklum hraða, held-
ur þaö að tilsvör og athafnir
þurfa að smella hvort ofan i ann-
*um
helgrina
Bflasýning
um helgina
Bifreiðar & Landbúnaðarvél-
ar h.f. halda bilasýningu að
Suðurlandsbraut 14, laugar-
daginn 9. og sunnudaginn 10.
febrúar n.k. frá kl. 2-6 e.h.
Fyrsta Lada-bifreiðin kom til
íslands áriö 1972. Siðan hafa þær
haslað sér völl á tslandi og hafa
undanfarin tvö ár verið mest
seldu bifreiöarnar. Lada hentar
vel við islenskar aðstæður, enda
sparneytinn, sterkbyggður og
auöveldur i akstri. Lada Sport
sem nefndur var „bill ársins”
1978 er kjörinn bill fyrir fólk,
sem vill stunda útilif og ferðalög
um landið. Fyrir bóndann er
hann þarfasti þjóninn, enda eru
Lada*bifreiðar vinsælar jafnt I
dreifbýli sem þéttbýli.
A bilasýningunni I dag og
á morgun, sunnudag, veröa
sýndar nýjustu árgerðirnar af
Lada. A meðan menn spjalla viö
sölumenn er þeim boðið upp á
kaffisopa i vistlegum húsakynn-
um.
Lada Sport er meðal þeirra bila
sem Bifreiðar & Landbúnaðar-
véiar h.f. sýoa nú um helgina.
Dóra M. Reyndal.
Háskóla-
tónleikar
I dag kl. 17 verða fjórðu há-
skólatónleikar vetrarins i
Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut. Dóra M. Reyndal
söngkona og úrsúla Ingólfsson-
Fassbind pianóleikari flytja lög
eftir Hugo Wolf við ljóö Paul
Heyse úr Itölsku ljóðabókinni og
nokkur iög eftir Richard
Strauss.
Jurtamyndír
og plattar
Ingibjörg Sigurðardóttir sýn-
ir um þessar mundir á Mokka
myndir sem hún hefur gert úr
isienskum jurtum, annarsvegar
I ramma á flaueli og svo á kera-
mikplöttum.
Batíksýning
A næstunni verða til sýnis i
anddyri Norræna hússins batik-
verk, gerð af Hrefnu Magnús-
dóttur. Hrefna er Reykvikingur,
f. 1934; hún byrjaöi mjög ung aö
teikna, en hóf að fást við batik
upp úr 1965. Hún var við nám i
Myndlistaskóla Reykjavikur
1972-75. A sýningunni i anddyri
Norræna hússins verða batik-
myndir frá árunum 1975-80, kjól-
ar, pils, lampar o.fl. en Hrefna
hefur undanfarin 8 ár selt batik-
lampa á vegum Islensks
heimilis iðnaðar.
Gallerfid
Suöurgötu
Fimmtudaginn 7. febrúar
kl. 20.00 opnaðiAsgeir Lárusson
sýningu á um 30 vatnslitamynd-
um i Galleri Suðurgötu 7 Reykja-
vik.
Þetta er þriðja einkasýning
Asgeirs, en hann hefur einnig
tekið þátt i einni FIM-sýningu.
Opnunartimi sýningarinnar
er virka daga frá kl. 18-22 og um
helgar frá kl. 14-20.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
17. febrúar.
Bókauppboð
á Akureyri
Fjórða bókauppboö Jóhannes-
ar Ola Sæmundssonar verður á
Hótel Varðborg á Akureyri i dag,
laugardaginn 9. febrúar og hefst
það kl. 15.30.
A boðstólum verða ýmsar
merkar bækur m.a. Ferðabækur
Vilhjálms Stefánssonar, hand-
skrifuð Annálsbók 100 - 200 ára
gömui, Þorlákskver 1836, Sálm-
ar og kvæði Hallgrims Péturs-
sonar 1852, Þjóðsögur ólafs
Daviðssonar I-III, Landnám
Ingólfs I-III, Hauksbók 1892-96,
Fagurt er i fjöröum, Einokunar-
verslun Dana á Islandi, Grim-
bergs Verdenshistorie I 16 bind-
um Kvennafræðarinn 1891, Sagan
af Heljarslóöarorrustu 1893,
Kvæði Bjarna Thorarensen 1884,
Ljóð Einars H. Kvaran 1893 og
Gisla Brynjólfssonar 1891, Sálma-
og bænakver 1824, Mynsters hug-
leiöingar, Heima og erlendis (ljóð
Guðmundar Magnússonar),
Horfnir góðhestar, Islendinga-
þættir Timans og Sunnudagsblað
Timans, Grafir og grónar rústir.
Alis verða 160 númer á upp-
boðinu.