Þjóðviljinn - 09.02.1980, Blaðsíða 16
DIOÐVIUINN
Laugardagur 9. febrúar 1980
A&alsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9 — 12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt að ná i blaöamenn og aöra starfs-
menn blaðsins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81257 og
81285, afgreiösla 81527 og Blaöaprent 81348.
^ 81333
Kvöldslmi
er 81348
Fiskiðjan í Keflavík tekur til starfa á ný:
Ný aðferð við
lyktareyðingu
— hefur í för með sér olíusparnað
og betri orkunýtingu
Starfsemi Fiskiðjunnar h.f. i
Keflavik er nú aö hefjast að nýju,
en Fiskiöjan hefur verið lokuð
siðan i júni i fyrra vegna þess aö
ioforð um mengunarvarnir
höföu veriö svikin aftur og aftur.
Eigendur Fiskiðjunnar hafa
nú selt nýjum hluthafa, Hilmari
Haraldssyni, 16% eignarhluta i
fiskimjölsverksmiðjunni. Aðskil-
inn verður rekstur verksmiðju og
Stórmeistarinn
Browne kominn
til landsins:
Teflirjjöl-
tefli á
hverjum
degi
A fimmtudag kom hingað til
lands stórmeistarinn Walter
Browne, en hann mun tefla á
Reykjavikurmótinu sem hefst 23.
febrúar n.k. Browne mun þangað
til nýta tima sinn til aö tefla fjöl-
teffi bæði i Reykjavik og úti um
land.
1 gærkvöldi tefldi hann á vegum
Taflfélags Reykjavikur I húsnæði
þess við Grensásveg en á sunnu
dag fer hann til Vestmannaeyja.
A mánudag teflir hann við Skák-
klúbb Flugleiða, á þriöjudag við
bankamenn i Útvegsbankanum
en á miðvikudeginum teflir hann
við starfsfiö Landspitalans og á
föstudag við rútu- og strætis-
vagnastjóra. Siöan liggur leiö
hans til Vektfjaröa þar sem hann
teffir um næstu helgi.
—AI
Nýtt
loönu-
verö
til beitu og
flystingar
A fundi Verölagsráðs sjávarút-
vegsins i fyrradag varö sam-
komulag um eftirfarandi lág-
marksverö á loönu á vetrarloönu-
vertið 1980:
Fersk loðna til frystingar, hvert
kg, — kr. 83.00.
Fersk loðna til beitu og fryst-
ingar sem b'eita og fersk loöna til
skepnufóöurs, hvert kg. — kr.
35,00.
bátaútgerðar Fiskiðjunnar h.f. og
stofnað sérstakt félag um rekstur
bátanna, þar sem eignarhlutföll
verða óbreytt frá þvi sem nú er.
Hilmar verður tæknilegur fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
Verksmiðjan hefur nú fengið
starfsleyfi á ný með þeim skil-
yrðum, að hún verði útbúin hið
fyrsta með lykteyðandi
aðferðum við vinnsluna.
Reynd verður ný aðferð við
reyk- og lyktareyðingu. Hún er
fólgin i þvi að reykurinn frá
þurrkurunum er þveginn og
siðan kældur niður. Þá er hann
mældur og afgangsgasinu brennt
i katli og þurrkara. Hægt er að
kæla reykinn niður i 10 gráður,
en þó mun alltaf verða einhver
reykur eftir og einhver lykt.
Þegar þessar ráðstafanir eru
komnar i gagnið á ekkert reyk-
loft að fara út úr verksmiðjunni
nema það sem fer út um ketil-
bkorsteininn.
Þessi aðferð hefur verið
reynd i a.m.k. tveimur verk-
smiðjum I Noregi og gefist þar
vel. Hún hefur i för með sér betri
orkunýtingu og oliusparnað.
A s iðas ta heila s tar fs ár i Fisk-
iðjunnar h.f., 1978, greiddi hún
langhæstu meðallaun allra fyrir-
tækja á landinu, 6.7 miljónir
króna.
Geysileg aðsókn hefur verið á Kvikmyndahátiðina og eru um 25 sýningar á degi hverjum. Þessa
mynd tók ljósmyndari Þjóðviljans i anddyri Regnbogans i gær þegar sýningar voru að hefjast kl. 17.
Kvikmyndahátiðinni lýkur á þriðjudag.
Kyikmyndahátíöin:
Verðlaun afhent í dag
1 dag kl. 14.00 verða sýndar I
Regnboganum íslensku mynd-
irnar fjórar sem keppa til verð-
launa i samkeppni Kvikmynda-
hátiðár 1980, og fer verðlauna-
afhendingin fram strax að sýn-
ingu lokinni.
Myndirnar eru: Bildór, eftir
Þránd Thoroddsen, Humar-
veiðar.eftir Heiðar Marteins-
son, Eldgosið i Heimaey og upp-
bygging, einnig eftir Heiðar
Marteinsson, og Litil þúfa, eftir
Agúst Guðmundsson.
Dómnefndina skipa Ingibjörg
Haraldsdóttir, formaður, Óskar
Gislason og Arni Þórarinsson.
A fyrstu Kvikmyndahátlð I
Reykjavik, sem haldin var 1978,
var einnig keppt til verðlauna,
og hlaut þau Þorsteinn Jónsson,
fyrir myndina Bóndi.
N ámskynníngar
falla niður
Stjórn Lands s ambands
mennta- og fjölbrautaskólanema
og Nemendaféiag Flensborgar-
skóla hafa mótmælt þvi að
Fiskur; kjöt og fargjöld hækka:
20% munur á fari með
SVK og Landleiðum
Eitt siðasta verk kratastjórn-
arinnar sálugu var að staðfesta
hækkanir á neyslufiski (10%),
unnum kjötvörum (12,6%) og far-
gjöldum Landleiða (13%) á milli
Hafnarfjarðar og Reykjavikur.
Kostar fariö nú 450 krdnur fyrir
fullorðna aðra leiðina.
Það vekur óneitanlega athygli
að á meðan stór bæjarfélög eins
og Kópavogur og Reykjavik
halda uppi þjónustu á sviöi sam-
gangna og fá aldrei nema brot af
hækkunarbeiðnum sinum sam-
þykkt, þá hafa Landleiðir, sem er
einkafyrirtæki jafnvel fengiö
meiri hækkanir en þeir hafa sótt
um. Þjóðviljinn hefur fyrir þvi
áreiðanlegar heimildir aö Land-
leiðir hafi að þessu sinni sótt um
9% hækkun, en fengiö 13% og
skýtur það skökku við meðan
SVK þurfa aö greiöa 260 miljón
króna halla og SVR margfalda þá
upphæð vegna tregðu sömu
stjórnvalda viö aö veita
umbeðnar hækkanir.
NU er svo komið að far frá
Reykjavik á Kópavogsháls kostar
210 krónur með Landleiðum en
170 krónur meö Strætisvögnum
Kópavogs og er munurinn nær
Framhald á bls. 13
Vilmundur Gylfason fráfarandi
menntamálaráðherra skyldi
ekki vilja greiða að fullu kostnað
við árlega námskynningu
háskólastúdenta. Kostnaðurinn
var áætlaður 3.1 miljón króna en
Vilmundur bauð i staðinn 500
þúsund kr. styrk. Menntamála-
nefnd Stúdentaráðs sér sér því
ekki fært að halda þessa kynningu
i ár.
í bréfi Flensborgara til
menntamálaráðherra vegna
þessa máls segir m.a.: „Vist er
að aðhald og sparnaður er nauð-
synlegur i rikisrekstrinum, en
hinsvegar teljum við þennan
niðurskurð vera fremur hæpinn
sparnað.”
Þá segir i bréfinu, að SHt hafi
gengist fyrir námskynningu
fyrir menntamálaráðuneytið i
mennta- og fjölbrautaskólum
landsins. Hafi þessar kynningar
verið mjög vel sóttar og allir
sem notið hafa séu sammála um
nauðsyn þeirra. Hinn óbeini
sparnaður sem hlytist af slikri
kynningu ætti að vera ljós.
Stjórnarfundur Landssam-
bands mennta- og fjölbrautar-
Framhald á bls. 13
Ár trésins í Reykjavík:
Skógræktarvika í
Reykjavíkívor
Leitað samráðs við öll féagasamtök í
borginni um ffamkvœmd vikunnar
Þetta tré er hið næst elsta I
Reykjavik og stendur við Aðal-
stræti f gamla kirkjúgarðinum.
Areiöanlega munu nær hundrað
ár liða þar til trén sem plantaö
verður f vor ná þessari hæð.
Ljdsm. — Leifur.
1 ráði er aö halda sérstaka
skdgræktarviku i Reykjavik um
mánaöamótin mai-júnf í tilefni
Ars trésins.
Það er Skógræktarfélag
Reykjavikur i samráði við um-
hverfismálaráð borgarinnar
sem vinnur nú að undirbúningi
þessarar skógræktarviku, og
hafa I þessu sambandi verið
rituð bréf til 160 félagasamtaka
i Reykjavlk, þar sem leitað er
eftir samvinnu þeirra við
framkvæmd fyr ir hugaðr ar
s kógr æktar viku.
t bréfi undirbúningsnefndar-
innar til félagasamtaka borgar-
innar segir m.a. að hugmyndin
með þessari sérstöku skóg-
ræktarviku sé, að gert veröi
átak I gróöursetningu trjá-
plantna I borgarlandinu. Valin
verða i samráði við hin ýmsu
félagasamtök borgarbúa svæöi
til gróðursetningar i hverfum
borgarinnar og Ibúum þeirra
gefinn kostur á að kynnast trjá-
rækt og fegra umhverfi sitt með
gróöursetningu i sjálfboða-
vinnu.
Þá kemur einnig fram i bréfi
undirbúningsnefndarinnar, aö
undirbúningur samstarfsnefnd-
ar um Ar trésins sé nú i fullum
gangi og er langt komiö með
gerð 6-8 sjónvarpsþátta, sem
sýndir verða á árinu, gefinn
verður Ut bæklingur fyrir al-
menning um gildi trjá-og skóg-
ræktar með leiðbeiningum, og
fyrirhuguð er ritgerðasam-
keppni i skólum landsins.
í undirbUningsnefnd um skóg-
ræktarviku I Reykjavik eiga
sæti þeir Vilhjálmur Sig-
tryggsson og Kjartan Thors,
frá Skógr æktar félagi
Reykjavikur, Alfheiður Inga-
dóttir og Sverrir Sch. Thor-
steinsson frá umhverfismála-
ráði borgarinnar, Þórður Þor-
bjarnarson borgarverk-
fræðingur, Hafliði Jónsson
garðyrkjustjóri og Omar
Einarsson framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs. -lg.