Þjóðviljinn - 20.02.1980, Síða 3
MiOvikudagur 20. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Landsvirkjun:
Veruleg-
ur halli
síðustu
2 ár
Þarf um 20% hœkk-
un gjaldskrár i vor
A árunum 1978 og 1979 varö
verulegur rekstrar- og greiöslu-
halli hjá Landsvirkjun og er
meginástæöan sú hversu erfiö-
lega hefur gengiö aö fá stjórnvöld
til aö heimila i tima nauðsynlegar
breytingar á gjaldskrá, sagöi
Jóhannes Norödal formaöur
stjórnar fyrirtækisins á blaöa-
mannafundi i gær.
Rekstrarhallinn varð 597 milj.
kr . árið 1978 og 966 milj. kr. á
siðasta ári eða samtals 1563 milj.
kr. Greiðsluhaliinn varð 1018
milj. kr. áriö 1978 en 549 milj. árið
1979 eða samtals 1567 milj. kr.
Hinn 1. febrúar s.l. fékk Lands-
virkjun 27% hækkun á gjaldskrá
en það nægir þó ekki til þess að ná
greiösluhallalausum rekstri á
þessu ári og skakkar þar um allt
að 1500 milj. kr. Telja forráða-
menn fyrirtækisins að 20% hækk-
un þurfi því 1. maí n.k. -GFr
Tap Landsvirkjunar
vegna rafmagns-
skömmtunar:
145 milj-
ónir króna
t vetur hefur Landsvirkjun i
fyrsta sinn orðið aö gripa til raf-
magnsskömmtunar vegna kulda
og óvenjuiitillar úrkomu og þar af
ieiðandi rennslis á ám. Niöur-
skuröur á orkusölu hefur ein-
göngu bitnað á Aburöarverk-
smiðjunni, Járnbiendiverksmiðj-
unni, Alverksmiðjunni og Kefla-
vikurfiugvelli og numið alls 49
GWst. Tekjutap Landsvirkjunar
af þessum orsökum var 145.5
milj. kr. til áramóta.
Rafmagnsskömmtunin hófst i
lok september en varð þó töluvert
minni heldur en búist var við þá
vegna minni ísmyndunar i
Tungnaá og Þjórsá heldur en
búist var við vegna hagstæörar
tiöar i vetur. Nú nemur skömmt-
unin 4.6 GWst á viku og er skerð-
ingin eins og er 15% af aflbörf-
inni. -GFr
28,5 % hækkun
á auglýsinga-
verði átvarps
Auglýsingaverð hljóðvarps
hefur verið hækkað og kostar nú
hvert orð i dýrasta auglýsinga-
timanum, eftir kvöldfréttir, kr.
1400, en á öðrum timun er auglýs-
ingaveröið kr. 700 á orðiö.
Hækkunin nemur 28.5% en
auglýsingaverð útvarpsins hafði
verið óbreytt síðan i april 1979.
Meistararnir
óðum að
mætá til leiks
Þrir þeirra erlendu meistara
sem keppa munu á Reykjavikur-
skákmótinu i næstu viku eru þeg-
ar komnir til landsins. Auk
Brownes frá Bandarikjunum,
sem dvalist hefur hér að undan-
förnu,eru þeir komnir Sosonko
frá Hollandi og bandariski meist-
arinn Robert Byrne sem jafn-
framt er skákfréttastjóri New
York Times. 1 kvöld er væntan-
legur til landsins Torre frá Filips-
eyjum.
Sl. mánudagskvöld voru efnahagstillögur Alþýöubandalagsins i stjórnarmyndunarviöræöunum til umræðu. A innfelldu myndinni eru fundar-
stjórinn Guðmundur Magnússon og frummælandinn Hjörleifur Guttormsson.
Fundaröð ABR fyrir flokksráðsfundinn
Ahrif verkalýðshreyfingariimar
Til umræðu á fundi að Freyjugötu 27 i kvöld
Alþýöubandalagið i Reykjavik
hefur nú haldið þrjá af fjórum
undirbúningsfundum sinum undir
flokksráðsfundinn sem hefst nk.
föstudag. Fyrsti fundurinn
fjallaöi um kosningarnar og kosn-
ingabaráttu Alþýðubandalagsins.
Annar fundurinn i fundaröðinni
var haldinn sl. laugardag og þar
rætt um utanrikis- og herstöðva-
mál og sá þriðji var haldinn sl.
mánudagskvöld og rætt um efna-
hagsstefnu flokksins.
í kvöld kl. 20.30 verður haldinn
fjórði og siðasti fundurinn i þess-
ari fundaröö i Sóknarsalnum að
Freyjugötu 27 sem hentar mjög
vel til hringborðsumræðna.
Framsögn um fundarefnið sem er
verkalýðshreyfingin og áhrif
hennar á rikisstjórnir hafa Bene-
dikt Daviðsson formaður Sam-
bands byggingamanna og Björn
Arnórsson hagfræðingur. Flokks-
ráðsfulltrúar i Reykjavik og
áhugamenn um verkalýðsmál eru
sérstaklega hvattir til þess að
mæta. Fundarstjóri i kvöld
verður Jónas Sigurðsson.
A laugardaginn var eins og
áður sagði fjallað um utanrikis-
og herstöðvamál. Bragi Guö-
brandsson þjóðfélagsfræðingur
og Stefán Jónsson alþingismaður
höfðu framsögu um þessi efni og
stóðu umræður á fjóröu klukku-
stund. Sl. mánudagskvöld var
rætt um efnahagsmálatillögur
Alþýðubandalagsins og haföi
Hjörleifur Guttormsson iðnaðar-
ráðherra framsögu um þau mál,
en auk þess mætti Ragnar
Arnalds fjármálaráðherra á
fundinum. Urðu miklar og góðar
umræður um efnahagsmála-
stefnu flokksins. Fundarstjóri var
formaður Alþýðubandalagsins I
Reykjavik Guömundur Magnús-
son.
Fundaröð þessi til undirbúnings
flokksráðsfundi hefur mælst vel
fyrir og mun útdráttur úr þeim
umræðum sem fram fóru á þess-
um fundum verða lagður fram af
hálfu Reykjavikurfélagsins með
gögnum flokksráðsfundar. --ekh
Samninganefnd BSRB skipar viðrœðunefnd:
Hvetur til samstöðu
um fjögur meginatriöi
A fundi samninganefndar
BSRB i gær var kosin 8 manna
viöræðunefnd tilþess að taka þátt
I viðræðum við fulltrúa rikis-
stjórnarinnar áður en samninga-
viðræður á vegum sáttasemjara
hefjast. 1 viðræöunefndina voru
kjörin Kristján Thorlacius,
Haraldur Steinþórsson, Þórhallur
Halldórsson, Agúst Geirsson,
Einar Olafsson, Svanlaug Arna-
dóttir, Valgeir Gestsson og
örlygur Geirsson. Samninga-
nefndin fól einnig formanni og
varaformanni viöræðunefndar-
innar aö óska eftir þvl við rikis-
sáttasemjara aö fundir á vegum
sáttanefndar með deiluaðilum
hefjist sem allra fyrst eftir næstu
helgi.
Samninganefnd BSRB beinir
þvi einnig til allra rikis- og bæjar-
starfsmannafélaga, aö þau
gangist á næstunni fyrir
almennum fundum félagsmanna
um væntanlega kjarasamninga,
þar sem staðan I samninga-
málum og hugsanleg verkfalls-
boöun verði rædd og hvatt til
samstöðu um eftirfarandi megin-
atriöi:
a. verndun visitölukerfis á laun
allra opinberra starfsmanna.
b. aukinn rétt til samninga og
verði gildistimi samnings um-
saminn hverju sinni.
c. félagsleg réttindi starfsmanna
og samtakanna.
d. náð verði þeim kaupmætti, sem
um var samið I siðustu samn-
ingum, og aukiö jafnrétti i launa-
málum.
Dagblaðið kannar fylgi flokkanna
Sárabót fyrir íhaldið?
I skoðanakönnun sem Dag-
blaðiö gerði um siðustu heigi
meðal 600'manns á höfuðborgar-
svæðinu og á landsbyggðinni
reyndust um 22% óákveðnir i af-
stöðu til flokka, 5,5% neituðu að
svara og rúm 2% kváðust engan
flokk kjósa ef kosningar yrðu nú.
Samkvæmt könnuninni eykur
Sjálfstæöisflokkurinn mest við sig
frá siðustu þingkosningum eöa
um 8% ef aðeins er tekið tillit til
þeirra sem afstöðu tóku. Fram-
sóknarflokkur hefur enn byr I
seglin, Alþýðubandalagið fær
tæplega 2% minna en Alþýðu-
flokkur hrapar niður um 4,2%.
Onákvæmnin I þessari könnun er
mjög mikil og gæti skakkaö 3-5%
hjá hverjum flokki þannig að
erfitt er að spá um þingsætatölu
ef kosið yrði nú.
Margir stjórnmálamenn eru
þeirrar skoðunar að fylgis-
aukning Sjálfstæðisflokksins
samkvæmt þessari könnun sé
fremur komin til af stundarvin- heldur en sterkri stöðu flokksins i
sældum Gunnars Thoroddsen almenningsálitinu.
Ef aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu veröa niðurstöðurnar
þessar (til samanburöar eru úrslit þingkosninganna I desember): Nú Þingkosn.
Alþýðuflokkur 12,8% 17,4%
Framsóknarflokkur 26,3% 24,9%
Sjálfstæöisflokkur 43,4% 35,4%
Óháðir sjálfstæðismenn 1,9%
Alþýöubandalag 16,8% 19,7%
Fylkingin . 0,2% 0,4%
Samtökin . .0,5%
Framkvœmdastjórn gefur út efnahagstillögur Alþýöubandalagsins
ítarleg flokksumræöa fram
að landsfundi
Þær tillögur i efnahagsmálum
sem Alþýðubandalagið lagði
fram I stjórnarmyndunarvið-
ræðum undir forystu Svavars
Gestssonar I janúar verða til
umræðu á flokksráösfundi
Alþýðubandalagsins sem hefst
n.k. föstudag. Tillögugeröin hefur
nú verið gefin út I sérstökum
bæklingi sem liggur nú fyrir á
flokksskrifstofunni að Grettisgötu
3. Simi: 17500.
1 formála að bæklingnum er
getið um aðdragandann að
þessari tillögugerð sem nær yfir
svið efnahags- og atvinnumála.
Þær voru ræddar almennt i
miöstjórn Alþýðubandalagsins
12. og 13. janúar en siöan visað til
frekari úrvinnslu i þingflokknum.
1 þeim búningi sem tillögurnar
eru nú eru þær formlega
afgreiddar af þingflokknum.
A flokksráösfundinum verður
ákveöiö um frekari meðferð
þeirra, en gera má ráð fyrir að
um þær geti farið fram itarleg
umræða innan flokksins áfram og
allt fram að landsfundi flokksins.
I formála bæklingsins segir enn-
fremur:
Framhald á bls. 13