Þjóðviljinn - 20.02.1980, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 20. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Hringið í síma 8 13 33 kl. 9-5 alla virka
daga eða skrifið Þjóðviljanum
Síðumúla 6, 105 Reykjavík
lesendum
Ekki er öll
vitleysan eins
Kristin Guðnadóttir fóstra
hefur umsjón með Litla
barnatimanum i dag, og nefn-
ir hann „Ekki er öii vitleysan
eins”.
— Ég les nokkrar sögur,
sem eru eiginlega um tóma
vitleysu, einskonar bullsögur,
Útvarp
kl. 16.20
— sagði Kristin. — Þar með er
þó ekki sagt að ekki megi
finna i þeim boðskap.
Þessar sögur eru flestar
þýddar. Þarna er sagan um
Gufukarlana, sem voru að
monta sig af þvi hver þeirra
væri stærstur og merkileg-
astur. Svo var glugginn opn-
aður, og þá ruku gufukarlarn-
ir Ut i veröur og vind, gufuöu
upp. Herra Sóöi heitir ein. Þar
segir frá manni sem var mikill
sóöi. Einu sinni komu tveir
menn að hjálpa honum aö
þrifa húsið hans, og eftir það
sá hann ekki fram á annað en
hann yröi að skipta um nafn,
það gekk ekki að heita Herra
Sóði lengur. Fleiri sögur mætti
nefna, og á milli eru leikin vin-^
sæl barnalög einsog Ryksugan
á fullu, ofl., sagði Kristin.
— ih
Myndir
og
menning
Vaka er tviskipt að þessu
sinni, að sögn Andrésar Indr-
iðasonar, sem stjórnr upptök-
unni.
— I fyrsta lagi er fjallað um
sýninguna Den Nordiske i
Sjónvarp
kl. 20.30
Kaupmannahöfn. Magnús
Guömundsson, fréttaritari út-
varpsins i Kaupmannahöfn
ræðir við Tryggva Ólafsson
listmálara, sem á verk á sýn-
ingunni, og tala þeir um verk
Tryggva og annarra norrænna
istamanna, sem þarna sýna.
Einn Islenskur listamaöur
annar en Tryggvi á verk á
sýningunni: Óskar Magnússon
Tryggvi Ólafsson listmdlari;
viðtal við hann veröur I Vöku i
kvöld.
vefari.
Þá talar Magnús við fær-
eyska listmálarann Ingólv av
Reyni, sem einnig á verk á
sýningunni, og tala þeir um
færeyska málaralist. Danska
sjónvarpið hefur unnið þetta
innlegg í Vöku.
Auk þess er i Vöku umræöa
sem Aðalsteinn Ingólfsson
stýrir, en auk hans taka þátt i
henni Jón Óttar Ragnarsson
og Jón Baldvin Hannibalsson.
Þeir ætla að fjalla um ráö-
stefnuna sem Lif og land
gekkst fyrir á Kjarvalsstööum
um siðustu helgi. —ih
Astandið í Afganistan
Astandið I Afganistan nefn-
ist ný, bresk fréttamynd, sem
sjónvarpið sýnir I kvöld. Aö
sögn Baldurs Hermannssonar
hjá sjónvarpinu er hér um að
ræða „hlutlausa fréttamynd”.
Sýndar eru svipmyndir frá
Sjónvarp
kl. 22.05
Kabúl, höfuðborg Afganistan,
og rætt við ýmsa aðila. M.a. er
rætt viö utanrikisráðherra
landsins, þar sem hann er
staddur i Moskvu og er hann
mjög þakklátur fyrir þá
hernaöaraöstoð sem Sovét-
menn hafa veitt stjórn hans.
Einsog vera ber i hlutlausri
fréttamynd er einnig sýnd hin
hliöin á málinu: einn helsti
trúarleiötogi Afgana er tekinn
tali og hvetur hann þjóðina
til andspyrnu gegn stjórnvöld-
um.
Astandið i Afganistan hefur
verið mikið hitamál að undan-
förnu, ekki siður hér á landi en
annarsstaðar i heiminum, og
hefur meira borið á kalda-
striðsáróðri i þeirri umræðu
en pottþéttum upplýsingum,
enda fáir á Vesturlöndum sem
þekkja gjörla til málavaxta.
Þessi mynd getur kannski
bætt eitthvaö úr þeim efnum.
-ih
Bjórkrár
r
l
hverfin!
Ég legg eindregið til að borgin
næii sér i einkarétt á þvi að setja
upp bjórkrár viðsvegar um
borgina.
Mórallinn er ömurlegur hér i
borginni. Allir eru að pukrast
hver i sinu horni hver i sinni
skel. A hverfiskránni gætu
menn litiö við og fengið sér eina
kollu, og rætt málin við náung-
ann. Ég vil itreka, að borgin á
að eiga þessar krár og reka þær.
Akveðinn hluti af ágóðanum á
skilyrðislaust að renna til landa
einsog Kampútseu, þar sem
hungrið rikir. Verðið á bjórnum
á að fylgja ákveðnum hluta af
Þjódlegar kúnstir
A Islandi er það siður að kalla
biskupinn einn herra, en prest-
inn séra. Þvi varð kerlingunni
mismæliðsem kallaöi biskupinn
séra sem visan sýnir:
Markaður I Afganistan. Sjónvarpiö sýnir I kvöld breska frétta-
mynd um þetta umdeilda land.
Er Áburðar-
verksmiðjan
olnbogabarn?
. Arni J. Jóhannsson hringdi:
Hvernig stendur á þvi að
Áburðarverksmiöja rikisins i
Gufunesi hefur ekki verið rekin
nema með rúmlega hálfum af-
köstum siðan i haust? Er það
Grundartangajárnblendið sem
þarna hefur áhrif? Er Áburðar-
verksmiðjan eitthvert olnboga-
barn? Það er alltaf verið að
knepra við hana rafmagnið.
Fyrst kom Alverið til. Svo leyst-
ist þetta þegar Búrfellsvirkjun-
in kom i gagniö en hefur siðan
gengiö eins og lýst er hér að
framan siðan i sept. Ég sé ekki
að það sé hagur fólks i þessu
landi að Aburðarverksmiðjan sé
rekin með þessum hætti.
Það var byggt hér hús 1971-72,
N.P.K.-verksmiðja. Hún var
byggð fyrir 60 þús. tonna afköst.
En þessi verksmiðja er starfs-
laus 4 daga i viku hverri vegna
skorts á hráefni, sem aftur staf-
ar af rafmagnsleysi. Megum viö
ekki vænta þess, bæöi starfs-
mennirnir i Aburðarverksmiðj-
unni og svo fólk um land allt, aö
hér verði gerðar einhverjar ráð-
stafanir til úrbóta svo aö þessi
verksmiöja framleiði þaö sem
henni var upphaflega ætlað? Til
þess þarf að visu stækkun á
þremur húsum en ekki ætti sú
úrbót nú að vera ókleif.
Ég vona nú bara að þessi nýi
bóndi þarna noröan af Akri, sem
nú er orðinn landbúnaðarráð-
herra, láti hendur standa fram
úr ermum og sýni hvað i honum
býr. Honum óska ég svo alls vel-
farnaðar i starfi.
Arni J. Jóhannsson,
starfsmaður við Aburöarverk-
smiðjuna i Gufunesi.
„Sælir verið þér, séra minn!
sagöi ég við biskupinn.
Ansaði mér þá aftur hinn:
Þú áttir að kalla hann
herra þinn.”
A sýningunni „Listiðn islenskra kvenna” að Kjarvalsstööum rakst
Gunnar Ijósmyndari á þessar myndarkonur þar sem þær voru að
spinna á snældu og rokk.
Aburöarverksmiöja rikisins
siðan I haust.
— rekin með rúmlega hálfum afköstum
kaupi Dagsbrúnarmanns, t.d.
Það er bráðnauðsynlegt að fá
þessar krár, til að geta talað við
einhvern af viti. Ég frábið mér
helvitis kapitalistabúllur, látum
þá hafa sitt óöal og Hollywood
og allt það. I bjórkrárnar eiga
menn að geta mætt i sinum
hversdagsfötum (þó auðvitað
ekki i slorgalla). Bjórinn á að
selja úr krana i glös og ekki má
fara með hann heim. Islending-
ar hafa vanið sig á að pukrast og
hlekkir vanans eru þungir.
Ég vil bjórkrár i hverfin, en
engar snobbarabúllur. Snobbið
er eðli auðvaldsins. Þeim
aumingjum sem dytti i hug að
setjast undir stýri eftir kolluna
skal refsaö vel. Rök min með
þessu eru óumdeilanleg og yfir-
gnæfandi.
Sósialistar: fram til baráttu
fyrir bjórkrám i hverfin i eigu
fólksins!
Pétur Þ.
Þjódsagan