Þjóðviljinn - 01.05.1980, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN F'immtudagur 1. mai 1980
Gubmundur Björgvinsson á Akranesi.
Viðfangsefnið
mannslikaminn
1 dag kl. 14.00 opnar Guð-
mundur Björgvinsson mynd-
listarsýningu i bókasafninu á
Akranesi. Þar sýnir hann rúm-
lega þrjátiu pastelteikningar,
flestar gerðar á siðustu tveimur
árum og eru þær allar til sölu.
Guðmundur hefur áöur haldið
fjörar einkasýningar og tekið þátt
i fjölda samsýninga.
Viðfangsefni Guðmundar er
mannslikaminn, ýmist i heilu eða
i minni einingum. Stundum eru
likamar og likamspartar þessir
allsnaktir en þess á milli sveip-
aðir klæðum ýmiss konar og dúk-
um. Hvergi sést bregða fyrir
landslagi, húsum, skipum, ban-
önum eða öðru þviumliku.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-22 og henni lýkur sunnudaginn
4. mai.
„Venjuleg fjöl-
skylda” í Hrísey
Leikfélagið Krafla i Hrisey frum-
sýnir nú um helgina leikritið
„Venjuleg fjölskylda” eftir Þor-
stein Marelsson. Leikstjóri er
Birgir Sigurðsson rithöfundur.
Þetta er f jórða verkefni Kröflu og
hefur aldrei verið meiri ástæða til
aö hvetja fólk til að koma, sjá og
heyra þaö sem þau hafa fram að
færa, sagði Guðjón fréttaritari
blaðsins i Hrisey, sem tók meö-
fylgjandi mynd af hópnum á
æfingu.
Barnatón-
leikar
Laugardaginn 3. mai kl. 2 e.h.
mun Tónmenntaskóli Reykja-
vikur halda tónleika i Austur-
bæjarbiói.
A þessum tónleikum verða hóp-
atriði úr kennslustundum yngri
barna. Auk þess verður einleikur
og samspilsatriði á ýmis hljóð-
færi.
Aögangur er ókeypis og öllum
heimill.
Sýning
á Selfossi
Stefania Pálsdóttir opnar sýn-
ingu i Safnahúsi Selfoss við
Tryggvagötu i dag, 1. mai.
A sýningunni eru málverk,
máluö tré og leirmunir, og er
þetta fjórða einkasýning
Stefaniu. Sýningin verður opin kl.
15-22 daglega til 12. mai.
Héraðs-
vaka
Rang-
æinga
Árleg héraðsvaka Rangæ-
inga hefst á laugardaginn
kemur kl. 21 i Félagsheimil-
inu Hvoli á Hvolsvelli og er
dagskrá hennar f jölbreytt að
vanda, en héraðsvakan er
skemmtun fyrir fólk á öllum
aldri og hefur unnið sér hefð
sem raunveruleg fjölskyldu-
hátlð.
Meðal þeirra sem fram
koma eru Samkór Rangæ-
inga, kammerhljómsveit og
barnakór Tónlistaskólans,
svo og nýlega stonfuð lúðra-
sveit. Þá les Guðmundur
Danielsson, rithöfundur, upp
úr nýrri og óprentaðri bók
sinni. Einnig verða flutt
ávörp, pianóleikur, al-
mennur söngur og fleira. Að
siðustu leikur hljómsveit
Gissurar Geirs fyrir dansi.
Héraðsvakan hefur ætið
verið fjölsótt og er þess
vænst að svo verði einnig að
þessu sinni.
Kvenfélag
Karlakórsins
með Flóa-
markað
Vinsæll flóamarkaður
Kvenfélags Karlakórs
Reykjavikur verður haldinn
á Freyjugötu 14 A laugar-
daginn 3. og sunnudaginn 4.
maí nk. kl. 2-5 sd. báða dag-
ana.
Margt góðra muna er á
boðstólum, svo sem
fatnaður, búsáhöl, hljóm-
plötur, rafmagnstæki og
tugir tegunda blómaafleggj-
ara.
Einsöngs-
tónleikar i
Kópavogi
Hólmfriður Sigrún Bene-
diktsdóttir, sópransöngkona,
heldur tónleika á sal Tón-
listarskóla Kópavogs að
Hamraborg 11, 3. hæð
laugardaginn 3. mai kl. 14.00.
Undirleik annast Guðrún
Anna Kristinsdóttir, pianó-
leikari.
Hólmfriður Sigrún er að
ljúka burtfararprófi, en hún
hefur stundað einsöngsnám
við Tónlistarskóla Kópavogs
hjá Elisabetu Erlingsdóttur i
5 ár og jafnframt þvi verið
skólastjóri Tónlistarskólans
á Húsavik siðastliðin 4 ár.
A efnisskránni á laugar-
daginn eru m.a. sönglög eftir
Pál tsólfsson, Leif Þórarins-
son, Schumann og Wolf.
Hólmfriður S. Benedikts-
dóttir.
S tórmeis tar asýn-
ingin framlengd
Sýning á 40 verkum ýmissa
helstu meistara okkar aldar, sem
staðið hefur i Norræna húsinu,
verður framlengd til fjórða mai
vegna mikillar aðsóknar.
Það er Lista- og menningar-
sjóður Kópavogs, sem fékk
þessar myndir að láni frá safni
Sonju Heinieog Niels Onstad i
Osló. Picasso, Villon, Miro, Klee,
Matisse, Max Ernst og Juan Gris
eru meðal höfunda myndanna —
að ógleymdum Edvard Munch.
Myndin sýnir Frank Ponzi sem
á mikinn þátt i að sýningin komst
upp, útskýra fyrir skólanemum
mynd eftir Yves Klein.
Kór Langholtskirkju.
Kórtónleikar
Kór Langholtskirkju heldur
tónleika á Selfossi, i Skálholti og I
Reykjavik næstu daga. Föstudag-
inn 2. mai heldur kórinn tónlejka i
Selfosskirkju kl. 21 og laugardag-
inn 3. mai mun kórinn syngja i
Skálholtskirkju og hefjast þeir
tónleikar kl. 16. Að siðustu heldur
kórinn svo tónleika i Háteigs-
kirkju miðvikudaginn 7. mai og
hefjast þeir kl. 21 og verða það
lokatónleikar kórsins á þessu
starfsári hans. Starfsemi kórsins
var mjög mikil á siðastliönum
vetri og verða tónleikarnir i Há-
teigskirkju niundu tónleikar kórs-
ins á þessu starfsári hans.
A tónleikunum mun kórinn
flytja lög frá 16. og 17. öld, sálma-
lög I útsetningu Johanns
Sebastians Bachs og verk eftir
Gunnar Reyni Sveinsson, norska
tónskáldið Sverre Bergh og
Þorkel Sigurbjörnsson. Miðar á
tónleikana verða seldir við inn-
ganginn, en styrktarfélagar fá aö
venju ókeypis aðgang. Stjórnandi
Kórs Langholtskirkju er Jón
Stefánsson.
Samkór Trésmiða-
félagsins fyrir norðan
Samkór Trésmiðafélags Reykja-
vikur er nú staddur norðanlands
og mun taka þátt i hátíðarhöldum
verkalýðsfélaganna á Húsavik 1.
mai. Daginn eftir ætlar kórinn i
skemmti- og kynnisferð um S-
Þingeyjarsýslu og syngur um
kvöldið að Laugum. Samsöngur-
inn að Laugum hefst kl. 20.30.
Óvitar í síðasta
sinn á vorinu
Siðustu sýningarnar á hinu vin-
sæla barnaleikriti Guðrúnar
Helgadóttur, ÓVITAR, verða nú
um helgina, laugardaginn 3. mai
kl. 14.00 og sunnudaginn 4. mai kl.
15.00. Þó litið lát hafi verið á að-
sókninni og sýningafjöldinn sé
kominn vel á fimmta tuginn, þá
er þess að gæta að börn leika
puna ao sinna próflestri eins o
önnur börn og fá sitt fri. Leikriti
var frumsýnt i nóvember síðast
liönum og er undir leikstjór
Brynju Benediktsdóttur
Leikmyndin er eftir Gylfa Gisla
son og lýsinguna annaðis
Kristinn Danielsson.