Þjóðviljinn - 01.05.1980, Side 5
Fimmtudagur 1. mai 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Jómfrúræða Sveins Jónssonar um símamál á Austurlandi
Allir sveitabæir verði
tengdir sjálfvirka kerfínu
Sveinn Jónsson verk-
fræðingur flutti jómfrú-
ræðu sína á Alþingi síðast-
liðinn þriðjudag og f jallaði
hún um símamál á Austur-
landi. Sveinn Jónsson situr
nú á Alþingi fyrir Hjörleif
Guttormsson iðnaðarráð-
herra, en fyrr í þessum
mánuði sat Sveinn á Al-
þingi fyrir Helga Seljan
sem nú er kominn til starfa
á ný. Hér á eftir fer jóm-
frúræða Sveins og svör
Steingríms Hermanns-
sonar samgönguráðherra
við fyrirspurn sem Sveinn
beindi til hans:
Fyrirspurn til samgöngu-
ráðherra
„Hér á boröum alþingismanna
hefur nú um nokkurt skeiB 'legiö
fyrirspurn min til hæstvirts sam-
gönguráöherra um simamál á
Austurlandi. Fyrirspurnin er I
þremur liöum og hljóöar þannig
meö leyfi forseta:
1) Hve mikill hluti sveitabæja
á Austurlandi er án þjónustu viö
miöstöö á kvöldin, á nóttunni og
um helgar?
2) Hverra úrbóta er aö vænta i
málum þessum?
3) Hverjar eru áætlanir um
sjálfvirkan sima i sveitir Austur-
lands, sbr. lagafrumvarp
Ragnars Arnalds á s.l. hausti um
fjögurra ára áætlun um sjálf-
virkan sima i allar sveitir lands-
ins?
Sambærilegar fyrirspurnir
voru hér til umræöu i fyrri viku og
sýnir þaö hversu mikill áhugi er
fyrir þvi aö úrbætur fáist hiö
fyrsta i þessu mikla hagsmuna-
máli dreifbýlisins.
Mikilvægt öryggisatriði
Vegalengdir á Austurlandi eru
miklar og þar er viöa langt milli
bæja. Þaö er þvi sérstaklega
mikilvægt, aö simaþjónusta ibú-
anna sé i góöu lagi. Þaö þarf ekki
aö hafa um þaö mörg orö hvaöa
öryggi er aö þvi aö geta náö sam-
bandi viö miöstöö eöa til ákveö-
inna aöila beint á hvaöa tima
sólarhrings sem er. Eldsvoöa ber
gjarnan aö garöi aö næturlagi og
nauösynlegt getur veriö aö ná til
læknis fyrirvaralaust I slysa- og
veikindatilfellum, svo eitthvaö sé
nefnt.
þingsja
Þaö er allsendis óviöunandi aö
fólk skuli enn I dag búa viö sima-
þjónustu, sem takmarkast viö 4
tima þjónustu á dag. Fjögurra
tima þjónustustöövar eru i dag
reknar meö talsverðu tapi — 4
miljónir króna á núgildandi verö-
lagi aö mér er sagt — og myndi
þaö tap tvöfaldast ef þjónustan
yröi aukin i þaö aö veröa 6 tima á
dag.
Mikið álag á kvöldin
Nokkuö hefur veriö unniö aö þvi
á undanförnum árum aö afnema
þjónustustöövar út um sveitir og
koma bæjum I beint samband viö
aöalstöövar héraöanna og er hér
um talsveröa bót aö ræöa.
Reyndin er þó viöa sú, aö erfiö-
lega getur gengiö aö ná sambandi
langtimum saman vegna þess aö
margir bæir eru tengdir á eina og
sömu linuna og þvi álagið gjarnan
mikið á ákveönum timum eins og
t.d. á kvöldin. Samband innan
sveitar þykir lika gjarnan hafa
versnaö til muna frá þvi sem áöur
var meö gamla sveitarsimanum.
Eina raunhæfa bótin i þessum
málum er aö allir bæir verða
tengdir hinu sjálfvirka kerfi meö
fjölsimastrengjum beint viö aöal-
stöö hvers héraös, en þær eru
staösettar I þéttbýliskjörnunum,
sem þjóna öryggismálum, þjón-
ustu og viöskiptum þessara
sveita.
óréttlát talning
Þess eru dæmi aö áður hand-
virkar þjónustustöövar sveitanna
hafi veriö geröar sjálfvirkar og
Forsœtisráðherra mótmœlir
fréttaflutningi Vísis:
Verðbólgan
verður 40%
Var í fyrra 61 %
Gunnar Thoroddsen
Gunnar Thoroddsen forsætis-
ráðherra mótmælti á Alþingi i
gær fréttaflutningi dagblaðsins
Vísis þess efnis að verðbólgan
1980 verði 55% á ársgrundveili.
Sagði forsætisráðherra að miðað
viö áætlanir Þjóðhagsstofnunar
þá gæti verðbólgan frá ársbyrjun
1980 til ársloka 1980 oröið 45%. Ef
hins vegar tækist i meginatriöum
aö fylgja stefnu rikisstjórnar-
innar i verðlagsmálum þá yröi
veröbólgan 40%, sem væri veru-
leg breyting frá siöasta ári, en
verðbólgan frá upphafi árs 1979 til
ársioka 1979 var 61%.
Vegna ummæla forsætisráö-
herra sagði Lárus Jónsson, að ef
miðaö væri við meöaltalsverð-
lagsbreytingar milli ára þá yrði
verðbólgan 53-55%. Tölur Lár-
usar miðuöust við timabilið frá
nóvember 1979 til nóv. 1980, og
var þvi um að ræöa aðra viömiö-
un en hjá forsætisráðherra.
þá tekin upp talning — aö visu
hæg milli þessara stööva og aöal-
stöövarinnar I þéttbýliskjarna
héraösins. Þessa talningu tel ég
og margir fleiri vera óréttláta og
þessu veröur aö breyta þannig aö
ibúar sveitanna greiöi ekki hærra
verö fyrir simtal viö sinn lækni
eöa verslun en sá sem i þéttbýlis-
kjarnanum býr.
Þetta er aöeins liöur i þvl að
jafna simakostnaö allra lands-
manna og auðvelt aö koma þessu
I kring nú þegar unniö er aö
breytingum til aukinnar og
bættrar símaþjónustu sveitanna.
Að ööur leyti er þaö óréttlæti sem
landsbyggöin býr viö vegna fjár-
lægöar viö höfuðborgarsvæðiö —
sem er aöeins þéttbýliskjarni
landsins alls — ekki hér til um-
ræöu. Þaö eru annnars mál sem
þarfnast sérstakrar umræðu og
væntanlega veröa margir til aö
taka undir þaö.”
78,5% sveitasíma eru
handvirkir
Steingrimur Hermannsson
samgönguráðherra svaraöi fyrir-
spurn Sveins og varöandi tvo
fyrstu iiöina sagöi ráöherra:
„1 Múlasýslum báöum og
Austur-Skaftafellssýslu eru nú
alls 714 sveitaslmar. Þar af eru
154sveitaslmar eöa 21,5% tengdir
sjálfvirka simakerfinu. Hand-
virkir sveitaslmar eru alls 560 eöa
78,5%.
Þjónustutimi þessara sima er
sem hér segir: 59 slmar njóta
fjögurra tima slmaþjónustu, 184
simar njóta sex tima simaþjón-
ustu, 145 simar njóta tiu til 12
tima slmaþjónustu, 24 slmar
njóta tuttugu og fjögurra tima
simaþjónustu. I fjárlögum þessa
árs er m.a. gert ráö fyrir aö
tengja sjálfvirkan sima frá
Vopnafiröi til simnotenda i
Bakkafiröi I Skeggjastaöa-
hreppi.”
Frumvarp í haust um
sjáifvirkan síma
Varöandi 3. liö fyrirspurnar-
innar sagöi ráöherra:
,,Ég hef ákveöiö aö endurflytja
frumvarp þaö sem hæstvirtur nú-
verandi fjármálaráöherra flutti I
fyrra um áætlun um sjálfvirkan
sima. Hins vegar hef ég beöiö
Póst- og simamálastjórnina aö
láta mér i té, þaö sem ég vil leyfa
mér aö kalla i;aunhæfa fram-
kvæmdaáætlun i þessu stóra
Sveinn Jónsson
máli. Ég efast um aö unnt yröi að
ná þvi sem þar er aö stefnt á fjór-
um árum og ég vil miklu frekar
aö áætlun sé gerö þannig aö
öruggt sé aö ekki þurfi aö hverfa
frá henni ár eftir ár, og ég vona aö
slikt frumvarp veröi tilbúiö nú i
haust.”
Þá sagöi samgönguráöherra aö
hann vildi taka undir flestallt þaö
sem Sveinn Jónsson heföi sagt um
mikilvægi simaþjónustunnar sem
og nauösyn þess aö jafna sima-
kostnaö. Einnig sagöi ráöherra aö
I vinnslu væri hjá Póst- og sima-
málastofnuninni nýtt kerfi fyrir
einstaka landshluta, þar sem
þeim veröur skipt upp I svokölluö
hnútasvæöi meö einni aöalstöö og
á aö þjóna þvl markmiöi aö gera
mönnum kleift aö ná á sama
gjaldi og lægsta taxta þar meö til
allra nauösynlegra staöa á viö-
komandi svæði.
— þm
Rauðsokkahreyfingin 10 ára
Dansleikur í Lindarbæ
1. maí
✓ .
I dag 1. maí verður Rauðsokkahreyfingin 10 ára.
Morgunkaffi og meðlæti í Sokkholti, Skólavörðustíg 12, frá
kl. 11 f.h. Þar verður einnigundirbúin þátttaka rauðsokka í
göngu dagsins. Um kvöldið verður dansleikur í Lindarbæ.
Húsið opnað kl. 20.30. Mætum öll! Miðstöð
Pétur J. Thorsteinsson
STUÐNINGSMENN
PÉTURS J. THORSTEINSSONAR
BOÐA TIL KYNNINGARFUNDAR
í LAUGARÁSBÍÓI LAUGARDAGINN
3. MAÍ KL. 14.30.
ÁVÖRP FLYTJA:
Pétur J. Thorsteinsson
og Oddný Þuriöur Pálsdóttir
Þórir Stephensen
Davíð Scheving Thorsteinsson
Tryggvi Emilsson
Fundarstjóri: Hannibal Valdimarsson
HORNAFLOKKUR KÓPAVOGS, STJÓRNANDI
BJÖRN GUÐJÓNSSON, LEIKUR FRÁ KL. 14.
Laugarásbió kl. 14.30—Pétur J. Thorsteinsson — Laugarásbió kl. 14.30.