Þjóðviljinn - 01.05.1980, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. mai 1980
Fólk á vinnustöðum tekið tali
Björn og Helgi: Allir lofa upp i ermina
V erid ad
leika
sér
aö fólki
segir Helgi
Bjarnason
linumaður
— Mér finnst vanta algerlega
sterka forystu bæöi hjá
stjórnvöldum og eins í verkalýös-
hreyfingunni til aö taka i eitt
skipti fyrir öll almennilega á bæöi
kjaramáiunum og veröbólgu-
vandanum, sagöi Helgi Bjarna-
son linumaöur sem ásamt vinnu-
félaga sinum Birni Svavarssyni
unnu aö viögerö á sfmstreng I
tjaldi sem þeir höföu komiö upp á
umferöareyju gegnt Þjóökirkj-
unni f Hafnarfiröi.
— Annars er frekar litil um-
ræöa I okkar vinnuhópi um þessi
mál, segir Björn. Menn viröast
vera orönir því vanir, aö hlutirnir
gangi seint fyrir sig.
— Hvaö um verkfall?
— Ég vildi foröast verkfall i
lengstu lög, segir Helgi, — en ef
ekkert fer aö gerast, þá er þaö
eina leiöin til aö knýja á meö. Þaö
fer hver aö veröa siöastur. Sjálf-
um hefur mér alltaf fundist, aö
þaö sé veriö aö leika sér aö fólk-
inu. Allir lofa upp i ermina á sér
og aö lokum veröur ekkert úr.
— Hvaöa form viljiö þiö hafa á
kjarabótunum?
— Kjarabætur i formi beinnar
kauphækkunar kemur út á eitt,
þaö höfum viö margreynt.
Skattalækkun gæti komiö aö
einhverju gagni, en sjálfsat ekki
fyrir alla. Þaö þarf þvi aö finna
aörar leiöir til aö leysa þessi mál
svo aö einhverju gagni veröi,
sagöi Helgi aö lokum.
-lg
Guöbjörg Ágústsdóttir: Hef ekki
efni á aö fara I verkfail.tLjósm.:
gel)
Guðbjörg
Ágústsdóttir
aðstoðarmaður
i bókbandi:
70 þúsund
krónur
á víku
,,Ég er ekkert ánægö meö mitt
kaup. Núna fæ ég tæpar 70 þúsund
krónur á viku en hér á vinnu-
staönum er nú bara um dagvinnu
aö ræöa”, sagöi Guöbjörg Ágústs-
dóttir aöstoöarmaöur i Bókfelli I
Kópavogi I viötali i gær.
Guöbjörg sagöi aö kaupiö
hrykki rétt fyrir mat og brýnustu
nauösynjavörum og heföi hún þvi
langt i frá efni á aö fara i verkfall
núna en þó yröi náttúrulega aö
berjast fyrir kjörum sinum. Þaö
er helst fyrir jólin aö völ er á yfir-
vinnu á þessari bókbandsstofu og
þá veröa tekjurnar dálitiö drýgri.
Hún sagöist ekki hafa kynnt sér
tillögur atvinnurekenda og þess
vegna ekkert vilja segja um þær.
-GFr
„Ætli það sé
ekki til litils”
Rætt við Gunn-
ar Einarsson
iðnverkamann
„Andinn hjá atvinnurekendum
er eins og hann hefur alltaf veriö.
Þeir eru ekkert aö hugsa um
þessa smælingja en einhvers
staöar veröa vondir aö vera”,
sagöi Gunnar Einarsson iön-
verkamaöur í Trésmiöjunni Viöi i
samtali viö Þjóöviijann I gær.
Gunnar sagöist hafa unniö
þarna i 8 ár og vera litils háttar
yfirborgaöur en engu aö slöur
væri kaupiö lágt. Hann er meö
1630 krónur á timann og meö þvi
aö vinna 8 tima i eftirvinnu á viku
fær hann 320 þúsund krónur i
kaup. Frá þeirri upphæö dragast
aö sjálfsögöu gjöld I lífeyrissjóö
o.fl. Gunnar hefur komiö 11 börn-
um til manns og eru þau hjónin nú
oröin tvö ein i kotinu. Hún vinnur
úti 8 tima á dag. „Þaö er i þaö
minnsta hægt aö eyöa tekjunum”,
sagöi Gunnar er hann var spuröur
hvernig þau drægju fram lifiö.
Er hann var spuröur hvort hann
væri tilbúinn til aö fara i verkfall
til aö bæta kjör sin sagöi hann:
„Ætli þaö sé ekki til litils. Þó aö
eitthvaö fáist er þaö venjulega
tekiö riflega til baka”.
-GFr
Gunnar Einarsson ibnverka-
maöur: Með tveggja tima eftir-
vinnu á dag fer kaupið upp I 320
þúsund krónur á mánuði
(Ljósm.:gel)
Krónu-
tölu-
hœkkun
segir
ekkert
segir Alda Péturs-
dóttir trúnaðarmaður
i BÚH
— Jú. það er óhætt aö segja að
mikil umræða er komin i gang um
kjaramálin, og menn eru sem
betur fer ekki alveg orönir heila-
þvegnir, enda ekki við öðru að
búast þegar verðhækkanir dynja
yfir svo til daglega, sagði Alda
Pétursdóttir, trúnaðarmaður hjá
BÚR, i samtali við Þjóðviijann I
gær.
— Eru menn tilbúnir I verk-
fall?
— Ég hef nú ekkert um þaö aö
segja á þessu stigi. Verkfall er
eins og hvert annaö neyöarbrauö
og ég held aö viö höfum hreinlega
ekki efni á þvi eins og á stendur.
— 1 hvaða formi eiga kjarabæt-
urnar að vera?
— Krónukauphækkun hefur
ekkert aö segja. Þaö er búiö aö
stela þvi úr umslaginu áöur en
maöur tekur þaö upp.
— Hvað um kröfur um skatta-
lækkun?
— Fólk viröist vera eitthvaö
Alda: Menn ekki alveg orðnir
heilaþvegnir.
uggandi um sk'attahækkanir, en
ég held aö menn viti ósköp litiö
um hvernig dæmiö kemur út,
einnig þeir sem hafa veriö aö
koma þessum nýju lögum i
framkvæmd. Þetta er mest
einhver hræösla i fólki finnst
mér.
Skattalækkun á þá lægst-
launuöu gæti komiö skringilega
út. Þvi aö ef fara ætti aö kafa I
skattskýrslum þá vitum viö ósköp
vel, aö þaö er ekki hinn venjulegi
verkamaöur sem hefur lægstar
tekjur á pappirunum, heldur þeir
sem kunna aö leika á kerfiö.
Menn veröa einnig aö gera sér
grein fyrir þvi, aö þaö er gifurlegt
vinnuálag sem liggur á bak viö
þær tekjur sem frystihússfólk
hefur. Fólk veröur jafnvel aö
leggja á sig auka eftir- og helgi-
dagavinnu til aö bjarga verömæt-
um frá skemmdum, þótt þaö vildi
gjarna eiga fri. Menn ættu aö
hugleiöa þann hátt einnig þegar
rætt er um kjaramál frystihúss-
fólks, sagöi Alda aö lokum. — lg
Engir
samningar
fyrir vestan
segir Gunnar Gunn-
arsson sjómaður
— Mér lýst bara alls ekki nógu
vel á stöðuna eins og hún er i dag,
annars er ég sjómaður og þekki
betur inn á þau mál, sagði
Gunnar Gunnarsson þegar blaða-
maður Þjóðviljans kaliaðist á við
hann ofan af millidekki niður i
lest á togbátnum Ágústi Sigurös-
syni sem veriö var aö landa úr I
Hafnarfjaröarhöfn i gær.
— Hvernig fannst þér útkoman
hjá sjómönnum fyrir vestan?
— Þetta eru engir samningar.
Þetta eru eintómar frivaktir á
stóru togurunum og menn
Gunnar: Menn búnir um fertugt. 1
hreinlega orönir uppgefnir um
fertugt. Auövitaö á aö borga allar
frivaktir i botn, lika á minni
togurunum.
Annars veit almenningur alls
ekki hvaö um er aö ræöa hjá
sjómönnum i dag. Eins og kom
fram I sjónvarpinu I gær, aö hald-
iö er aö allir séu til i þaö aö jafna
bara niöur skiptaprósentunni á
alla linuna. Þaö er út I hött aö
vera aö tala um slikt. Menn veröa
aö vita hvaö sjómennska er áöur
en þeir ætla aö leysa málin á
svona einfaldan hátt, sagöi
Gunnar um leiö og slðasti karfinn
úr stiunni lenti ofani löndurmál-
inu. —
Lítið kaup miðað við vinnutímann
segir Ingjaldur Sigurðsson Sigurðarson
„Með því að vinna á laugardög-
um lika fara launin upp i hálfa
miljón króna á mánuði. Það er nú
ekki meira,” sagði Ingjaldur
Sigurðsson trúnaðarmaður tré-
smiða I Trésmiðjunni Vlði er
Þjóðviljinn leit þar inn i gær.
„Okkur finnst viö bera litiö úr
býtum miöaö viö hvaö þetta er
langur timi sem fer i aö vinna
fyrir þessu. Viö erum meö bónus-
kerfi sem geröar hafa veriö til-
raunir meö s.l. 3 ár en viö erum
ekki ánægöir meö þaö. Nú stend-
ur til aö gera úttekt á þessu
kerfi.”
Ingjaldur sagöist alltaf hafa
veriö fylgjandi verkföllum þegar
á hefur þurft aö halda og svo gæti
farið núna. „Annars vildi ég
alveg eins fara niöur á bryggju og
henda innfluttum húsgögnum i
sjóinn þvi aö þau eru aö drepa
starfsgrein okkar”, bætti hann
viö.
Um þær tillögur atvinnu-
rekenda aö skeröa veröbætur og
borga þær aöeins tvisvar á ári
sagöi Ingjaldur aö þær jafngiltu
þvi aö lækka kaupið eins og verö-
bólgan er núna. Hann sagöi aö
hluti af bónusnum væri borgaöur
á þriggja mánaöa fresti og væri
hann þvi rýrari heldur en ef hann
væri borgaður jafnóöum.
-GFr
Ingjaldur Sigurðsson: „Annars
vildi ég alveg eins fara niður á
bryggju og henda innfluttum hús-
gögnum i sjóinn”. (Ljósm.:gel)