Þjóðviljinn - 01.05.1980, Síða 11
Fímmtudagur 1. mal 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
@ íþróttir (2) í þróttir
Bikarmeistarar HSt 1980: HAUKAR
— Mynd: —gel.
Haukar urðu
bikarmeistarar
Þeir sigruðu KR í æsispennandi leik, 22-20
„Það var gamla góða Hauka-
seiglan sem færði okkur þennan
sigur. KR-ingarnir börðust eins
og ljón alian leikinn, en stórleikur
Arna og Inga I lokin sá til þess að
bikarinn fer nú suður I Hafnar-
fjörð”, sagði eldhress fyrirliði
handboltaliðs Hauka, Andrés
Kristjánsson, eftir að Haukarnir
höfðu tryggt sér sigur I bikar-
keppni HSt i gærkvöld með þvi
að sigra KR, 22-20.
Mikill hraöi var i upphafi leiks-
ins og litið um varnir hjá báðum
liðum. Haukar tóku forystuna, 1-
0, 4-2, og 7-4. Þá var eins og KR-
ingarnir rönkuöu við sér og þeir
léku vörnina af grimmd, samfara
liðugum sóknarleik. Næstu 12
minúturnar skoraði KR 6 mörk án
svars frá Haukum og staöan allt i
einu orðin 10-7 fyrir Vesturbæjar-
liðið. A þessum kafla voru Hauk-
arnir einstaklega óheppnir, þeim
var bókstaflega fyrirmunað að
skora úr dauöafærum. Þaö sem
eftir lifði hálfleiksins voru Hafn-
firöingarnir með undirtökin og I
leikhléi var staöan jöfn, 11-11.
Björn skoraði 2 fyrstu mörk
seinni hálfleiksins fyrir KR, 13-11,
en Haukunum tókst aö jafna, 14-
14. Síðan var jafnt á öllum tölum
upp i 17-17, en þá náði Ingimar
forystunni fyrir Hauka, 18-17, og
átti hann eftir aö koma heldur
betur viö sögu leiksins það sem
eftir var. Simon jafnaði fyrir KR,
18-18, en Ingimar svaraði með 2
mörkum, 20-18, og 3 min.eftir. Þá
fengu 2 Haukar reisupassann, en
flumbruháttur KR-inganna kom
I veg fyrir aö þeim tækist aö nýta
sér liösmuninn. Hilmar skoraði
19. mark KR, og Ingimar bætti
viö 21. marki Hauka og 30 sek.
eftir. Hilmar skoraöi siöan aftur
fyrir KR og á lokasekúntunum
innsiglaði Sigurgeir sigur Hauk-
anna, 22-20.
KR-liöið vantaði aö þessu sinni
alla yfirvegun, sérstaklega voru
Vesturbæingarnir ragir og hik-
andi lokaminúturnar. Konráð átti
frábæran leik i liði KR og einnig
Ingimar Haraldsson átti manna drýgstan þátt I að tryggja sigur Hauka
i gærkvöld og var ekki að undra að pilturinn væri hress að leikslokum.
Mynd: —gel.
voru góðir Jóhannes og Hilmar I
lokin. Þá vöröu • markverðirnir,
Gisli og Pétur, þokkalega allan
timann. Sú lexia sem KR-ingarnir
ættu að draga af þessum bikarúr-
slitaleikjum er að með meiri
ákveðni og betri ástundun geta
þeir komist I hóp þeirra bestu. Til
þess aö svo veröi þurfa þeir aö
stefna markvisst að toppárangri.
Ég vona aö smjörþefur velgengn-
innar i gærkvöld hafi fært þeim
þessi sannindi.
Sömu sögu má reyndar segja
um Hauka og KR. Þeir eru nú á
toppnum og allir ættu að leggjast
á eitt um að halda Haukum þar
næstu árin. Islenskur handknatt-
leikur þarf á nokkrum toppliðum
að halda, honum er það hreinlega
lifsnauðsyn.
Lokaminútur leiksins i gær-
kvöld veröa Ingimar Haralds-
syni eflaust ógleymanlegar. Hann
hreinlega sá um aö innbyröa
sigur Hauka. Þá var Arni Her-
manns góður allan leikinn og
skoraði mörk sin á mikilvægum
„kritiskum” augnablikum.
Einnig áttu Arni Sverris og Þórir
góða spretti.
Mörk KR skoruðu: Konráð 5,
Hilmar 4/1, Jóhannes 4, Björn
3/3, ólafur 2 og Simon 1.
Fyrir Hauka skoruöu: Arni H 6,
Ingimar 5, Arni Sv 3, Júllus 2,
Hörður 2/2, Þórir 2, Andrés 1 og
Sigurgeir 1.
TIL HAMINGJU, HAUKAR.
— IngH
Bústjóri
Laust er til umsóknar starf bústjóra á
stóðhestastöö Búnaðarfélags Islands á
Litla-Hrauni.
Umsóknarfrestur er til 15. mal.
Miðað er við að nýr bústjóri taki við stöð-
inni 1. júnl. Launakjör ákveðast af mennt-
un og starfsreynslu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist stjórn Búnaðar-
félags íslands, Bændahöllinni Reykjavlk.
Búnaðarfélag tslands.
BIFVELAVIRKI
Kaupfélag Vopnfirðinga óskar eftir að
ráða bifvélavirkja, vélvirkja eða mann
vanan vélaviðgerðum sem fyrst.
Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar gefur kaupfélagsstjóri I slma
97-3201.
KAUPFÉLAG VOPNFIRÐINGA
Ritstjóri
Laust er til umsóknar starf ritstjóra
Búnaðarblaðsins FREYS.
Umsóknarfrestur er til 15. mai.
Umsóknir sendist stjórn Búnaðarfélags
íslands, Bændahöllinni Reykjavlk.
Búnaðarfélag tslands.
Sveit
15 ára drengur óskar eftir plássi á góðu
sveitaheimili. Upplýsingar í slma 81663
f.h. og 66842 e.h.
VORGLEÐI
Alþýdubandalagsins í Reykjavík og
Alþýðubandalagsins í Kópavogi
Ingveldur
wróur í Þinghól laugardaginn
3. maí. Húsið opnað kl 21.00
DAGSKRA:
Sigurður Rúnar Jónsson, Ingveldur ólafs-
dóttir og Jóhanna Linnet skemmta.
Þórhallur Sigurðsson leikari flytur sjálfvalið
efni.
Magnús Randrup og félagar leika fyrir dansi
til kl. 02.00.
Erlingur Viggósson verður veislustjóri.
Framreiddur verður miðnæturverður.
Miðaverð kr. 2.000.-
Sigurður