Þjóðviljinn - 05.06.1980, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 5. júni 1980. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Tilmæli
viðskiptaráðherra
til OECD:
Stuðnings-
aðgerðir
við
sjávar-
útveginn
A ráðherrafundi OECD 3.-4.
júnl var sérstaklega lýst yfir
stuðningi viö áframhaldandi
frjáls alþjóðaviðskipti og nauðsyn
þess að forðast viðskiptahöft.
Lagði Tómas Árnason viöskipta-
ráðherra i þvi sambandi áherslu
á að viðskiptafrelsi þyrfti lika að
ná til sjávarafurða og mæltist til
að viðskiptanefnd OECD taki til
athugunar ýmsar stuðningsað-
gerðir við sjávarútveg, sem hefðu
i för með sér röskun viðskipta.
Fundurinn var haldinn i Paris
og ræddu ráðherrar 24 aðildar-
rikja efnahagsástandið, sem
hefur farið versnandi i mörgum
aðildarlöndum og þær ráöstaf-
anir, sem þyrfti að gera til að
snúa þróuninni viö.
Gifurlegar oliuveröhækkanir
eiga vissan þátt i efnahagserfið-
leikunum, segir i fréttatilkynn-
ingu viðskiptaráðuneytisins um
fundinn, og var þvi áhersla lögð á
nauðsyn þess að draga úr oliu-
neyslunni með að byggja upp
aöra orkugjafa og gera sérstakar
sparnaöarráðstafanir.
Jafnrétti
kvenna í
Háskólanum?
Fundur
um
málið
í kvöld
t dag, fimmtudaginn 5.
júni, gengst Félag vinstri
manna i Háskóla tsiands
fyrir umræðufundi um jafn-
réttismál og stööu kvenna.
Verður fundurinn haldinn i
hliðarsal Félagsstofnunar
stúdenta við Hringbraut og
hefst kl. 20.30. Hann er öllum
opinn.
I fréttatilkynningu frá
félaginu segir að fyrirhugað
sé að koma af stað
umræðuhópum um eftirtalin
mál:
1. Leshring eða grunnhóp
um lifsferil kvenna I fortlð
og nútiö.
2. Heilbrigðisfræöi kvenna
og viðhorf heilbrigðis-
stéttanna til þeirra.
3. Stöðu kvenna I heföbundn-
um karlafögum I H.l.
4. Kvennagreinarnar I H.í.
5. Tækifæri kvenna til að afla
sér menntunar og stöðu
þeirra að námi loknu.
Margt fleira ber eflaust á
góma á fundinum og hvetur
félagið bæði konur og karla
til að f jölmenna á fundinn án
tillits til pólitiskra skoðana.
— hs
Tilraunir med
vetni sem
eldsneyti
1 siöasta mánuði var reyndur i
Vestur-Þýskalandi bill sem
knúinn var fljótandi vetni. Það
var Geimrannsóknarstofnun V-
Þýskalands sem stóð að þessari
tilraun. Þó að tilraunin hafi
miðast við bifreiöar þá telja vis-
indamenn liklegt að einnig megi
nota fljótandi vetni til að knýja
flugvélar. Viðs vegar um heim
eru nú gerðar tilraunir tii þess
að nota vetni sem eldsneyti,
einkum vegna ótta manna viö
að verð á benslni og oiiu muni
hækka verulega á komandi
árum.
BMW 518 var breytt á þann veg aö hann getur nú ekiö fyrir fljótandi I
vetni. Viða um heim eru nú gerðar tilraunir til þess aö nota vetni
sem eldsneyti. •
Bíll knúinn fljótandi \
vetni kominn á götuna j
Um þessa tilraun er fjallað I
Aprilhefti timaritsins New
Scientist.Þar kemur m.a. fram
að til þess að breyta lofttegund-
inni vetni i vökva, þá þurfi að
kæla hana niöur i -217 C. Áöur-
greindur bíll er búinn tæki e
varöveitir vetniö viö þetta hita-
stig. Ef bifreiðin er hins vegar
ekki I reglulegri notkun, þá mun
fullur tankur af fljótandi vetni
I gufa upp á 16 dögum. Geymsla
fljótandi vetnis hefur I för meö
sér vissa erfiöleika þvi sá er
munurinn á fljótandi vetni og
benslni að það þarf 120 lltra af
fljótandi vetni til aö fá sömu
orku og 40 lítrar af bensíni gefa.
New Scientist segir að fjár-
hagslega sé notkun fljótandi
vetnis ekki hagkvæm enn þá,
þar eð ekki sé til staöar nægilegt
magn vetnis miðað við allan
þann bilafjölda sem I umferð er.
Hins vegar er nú veriö að þróa
aðferðir til að framleiða vetni á
ódýran hátt. lslendingar hljóta
að fylgjast náið meö tilraunum
sem þessum, þvi i dag er um
helmingur orkunotkunar okkar
enn I formi fljótandi eldsneytis,
eins og ollu og benslns, er við
notum m.a. á bifreiöar, skip,
flugvélar og til húshitunar.
“ÞTJ
Kennarar sameinast
Kennarasamband
r
Islands
stofnað í dag
Á morgun lýkur
þriggja daga þingi
Sambands grunnskóla-
kennara og Landssam-
bands framhaldsskóla-
kennara. Aðalmál
þingsins er sameining
þessara tveggja stærstu
kennarasambanda
landsins. Mun nýja
félagið hljóta nafnið
Kennarasamband Is-
lands.
1 samtali við Þjóðviljann sagði
Þorgeir Gestsson formaður
Samb. grunnskólakennara að
aðdragandinn að þessari samein-
ingu eigi sér langa sögu, allt að 10
ár • en I fyrra ákváðu bæði
kennarasamböndin að boða til
þessa þings, sem jafnframt yrði
stofnþing hinna nýju samtaka.
Félagar Kennarasambands
íslands munu verða um 2800, þar
Þriggja daga þingi tveggja stærstu kennarasambanda landsins lýkur I
dag. Munu þau nú sameinast og upp rísa Kennarasamband tslands.
Myndin er af nokkrum erlendum
Mynd — gel,
af eru runnskólakennarar 2500 en
kennarar við framhaldsskóla 300.
Með tilkomu laga um
grunnskóla hvarf smám saman
launamunur kennara sem kenna
börnum á grunnskólastigi. Enn
eimir þó eftir af gömlu skipting-
unni I barna- og gagnfræðaskóla-
kennara. Kennarar sem kenna i
1.—6. bekk hafa tveggja stunda
fulltrúum sem boöið var á þingið.
lengri kennsluskyldu á viku en
þeirsem kenna I 7.—9. bekk. Ekki
er þó við kennarasamböndin að
sakast i þeim efnum. Bæði hafa
þau i launakröfum sinum lagt á
það áherslu að allir sitji við sama
borð bæði hvað varðar laun,
kennsluskyldu og önnur réttindi
kennara.
— hs
Starfsfólk KB
Borgarnesi:
Guðlaugur
vinnur á
Nýlega fór fram skoðana-
könnun meöal starfsmanna
Kaupfélags Borgfirðinga I
Borgarnesi um fylgi við fram-
bjóðendur til forsetakjörs. At-
kvæði greiddu 67 konur og 94
karlar, eða 161 kjósandi.
Orslit urðu þessi: Albert Guð-
mundsson 18 atkv., Guölaugur
Þorvaldsson 72 atkv., Pétur Thor-
steinsson 8 atkv., Vigdls Finn-
bogadóttir 56 atkv. Auðir seölar
voru 7.
Nokkur breyting hefur á orðiö
frá skoðanakönnun þeirri, sem
fram fór meðal sama hóps þann
13. mars sl. Þá kusu 64 konur og
109karlar eða 173. Þá varð niður-
staðan þessi: Albert Guömunds-
son 17 atkv., Guðlaugur Þor-
valdsson 59 atkv., Pétur Thor-
steinsson 4 atkv., Rögnvaldur
Pálsson 2 atkv., Vigdls Finnboga-
dóttir 84 atkv. sg/mhg
Fylla í heimsókn
Danska eftiriitsskipið FVLLA
kemur til Reykjavikur þann 6.
júní 1980 kl. 11.00.
Meðan á heimsókn skipsins
stendur gefst almenningi kostur á
aö koma um borð og skoöa það,
laugardaginn 7. júnl og sunnu-
daginn 8. júni frá kl. 14.00—15.30.
Vigdís efst á
Veðurstofunni
t vikunni fór fram skoðana-
könnun um fylgi forsetafram-
bjóðenda meðal starfsmanna
Veðurstofu islands. Á kjörskrá
var 61 en 53 greiddu atkvæði. <Jr-
slit uröu þessi: Albert 2 (3.8%),
Guðlaugur 10 (18.9%), Pétur 7
(13.2%) og Vigdis 26 (49.0%).
Auöir seðlar voru 7 en ógildur var
1.
Þá fór nýlega fram skoðana-
könnun meðal starfsmanna I Stál-
húsgögnum og fékk Albert öll at-
kvæðin eða 9 alls, en 3 voru
óákveönir.
Skoðanakönn-
un á bæjar-
fógetaskrif-
stofu Hafnar-
fjarðar
Allt starfsfólk bæjarfógeta-
skrifstofu Hafnarfjarðar, 34 að
tölu, tók þátt I skoðanakönnun um
forsetaframboð nú I vikunni.
Úrslit urðu, að Guðlaugur Þor-
valdsson varð efstur með 11 at-
kvæði, þá Pétur Thorsteinsson, 10
atkv., Albert Guömundsson 7 og
Vigdis Finnbogadóttir 6.
LANDVERND:
Hreinsunarvika
Undanfarin ár hefur Landvernd hvatt landsmenn
til þátttöku i hreinsunarherferðum um land allt.
Þessum tilmælum hefur sérstaklega verið beint til
félaga á hverjum stað, að þau beiti sér fyrir al-
mennri þátttöku og fái sveitarstjórnir til aðstoðar
við skipulagningu og framkvæmd einstakra hreins-
unarverkefna.
Margar sveitarstjórnir hafa
kosiö hreinsunarnefndir til að
hafa stjórn á þessu verki. Viða
hafa sjálfboöafélög haft samband
við heilbrigðisnefndir vegna frá-
gangs á sorpi eða rusli, svo það
nái ekki að fjúka og spilla um-
hverfi.
Af ýmsum ástæðum, bæði veð-
urfarslegum og öðrum, hentar
ekki aö hreinsunarherferðin sé á
sama tlma allsstaöar á landinu og
hefur Landvernd þvl lagt til aö
henni veröi allsstaðar lokiö um
miöjan júnl.
1 umgengniskönnun, sem Land-
vernd hefur gert, hefur komiö I
ljós, að sameiginleg umgengnis-
vandamál I þéttbýli eru helst i
sambandi viö sorpeyðingu og frá-
rennsli, umhverfi atvinnufyrir-
tækja, fiskvinnslu og sláturhús og
meðhöndlun á úrgangi frá þeim,
umgengni I tengslum við búfjár-
hald og brotajárn. Einnig er
umgengni á ýmsum útivistar-
svæöum mjög ábótavant.
I sveitum eru vandamálin mörg
svipuð, en þar má nefna, auk
þess, sem áður er taliö rusl
meðfram vegum, I lækjum og
skurðum, áburöarpoka og annað
plast.ónýtar vélar o.s.frv.
Það eru mörg verkefni fram-
undan, sem tengja má hreins-
unarherferð og Landvernd væntir
þess, að aöildarfélög samtakanna
og landsmenn allir geri sitt besta
til þess að árangur hreinsunar-
viku 1980 veröi sem bestur.
— mhg