Þjóðviljinn - 05.06.1980, Blaðsíða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. júni 1980.
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýös-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Ctgefandi: Otgófufélag ÞjóBviljans
Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Kjartan ólafsson
Fréttastjóri: Vilborg HarBardóttir.
Auglýsingastjóri: Þorgeir Olafsson.
Umsjónarmaður SunnudagsblaBs: Þórunn Siguröardóttir
Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson
Afgrelbsiustjóri: Valþór HlöBversson
Blaðamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefónsson, Guöjón Friöriks-
son.Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
tþróttafréttamaður: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elisson
Otiit og hönnun: GuBjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnssorw
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur:Eyjólfur Arnason.
Auglýsingar: Sigrföur Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa :Guörún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Kristín Pétursdóttir, Bóra Halldórsdóttir, Bóra Siguröardóttir.
Slmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjónsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún BórÖardóttir.
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pólsdóttir, Karen Jónsdóttir.
útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavfk, slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaþrent hf.
Stefnu-
og ístöðuleysi
Geirsarmsins
• Þrír af f jórum þingflokksformönnum eru sammála
um það í Morgunblaðsviðtölum að Geirsarmurinn í
Sjálfstæðisflokknum hafi verið nánast óstarfhæfur á
þinginu í vetur og sett mjög neikvæðan blæ á þingstörfin.
Ofsafengin upphlaup hans og ergelsiskennd viðbrögð við
stjórn Gunnars Thoroddsen hafi verið það helsta sem
aðfinnsluvert var við þinghaldið. Persónulegt uppgjör
Geirsarmsins við Gunnarsmenn hefur mótað umræður
og starfshætti, og tilgangslaust málþóf keyrt úr hófi
fram. Þjóðin hefur ekki fengið nema smjörþefinn af
framkomu Geirsmanna íþingsölum og ólíklegterað þeir
verði við áskorun Páls Péturssonar um að birta ræður
sínar óstyttar í Morgunblaðinu þannig að hún fái um
dæmt.
• Heift Geirsliðsins í garð Gunnars Thoroddsen kom
skýrast í Ijós við kosningar í stjórn Húsnæðisstofnunar
þar sem Geirsmenn höfnuðu því að kjósa formann hús-
næðismálanefndar Sjálfstæðisflokksins og helltu síðan
svívirðingum yfir forsætisráðherra er hann gerði sam-
komulag við aðra stjórnarliða um að koma þessum trún-
aðarmanni flokksins að. Pálmi Jónsson landbúnaðar-
ráðherra sagði í útvarpsumræðum frá Alþingi að mál-
f lutningur Geirsarmsins á þingi væri eins og olía á þann
eld sem logar í Sjálfstæðisflokknum. Það er hverjum
manni auðsætt eftir þinghaldið í vetur að helstu liðs-
oddar Geirsarmsins hyggja ekki á sættir innan flokksins
heldur vilja knýja fram úrslitaátök.
• Sú var tíðin að eitt helsta áróðursmál Sjálfstæðis-
manna var að flokkurinn væri ábyrgur og stefnufastur.
Hvað sem um f yrri tíð má segja hef ur ekki borið mikið á
þessum eiginleikum í fari Geirsliðsins á þingi. Einn dag-
inn eru stjórnarliðar sakaðir um að skera niður f ramlög
til brýnna framkvæmda, en hinn daginn er þeim borin á
brýn eyðslustefna, of mikil framkvæmdagleði og of-
þensla. Ekki er ótítt að ræður Geirsmanna byrji á því að
atvinnureksturinn sé á heljarþröm vegna hárra kaup-
greiðslna, en endi á herhvöt tií launafólks um að halda
fram ýtrustu kröfum á öllum sviðum.
• Hver man nú leiftursóknina sem fór svo myndarlega
af stað í upphafi kosningabaráttu en rann út í sandinn á
kjördag? Jaf nvel þingmenn eins og Friðrik Sóphusson og
aðrir helstu foringjar Geirsarmsins eins og Halldór
Blöndal, eru hættir að kyrja stríðssönginn og hvetja liðs-
menn til dáða. I satðinn upphófst skattanöldur sem var
meginstef Geirsarmsins í vor og það f lutt í mörgum tón-
tegundum og tilbrigðum. Höfundar flestra þeirra nýju
tekjustofna sem nú eru við lýði vilja ekkert við þá
kannast lengur og höfða mjög til láglaunafólks í skatt-
píningartali sínu. Samt kvíðir því enginn að láglaunafólk
rísi upp til mótmæla er það fær álagningarseðla sína í
sumar, því einmitt hlutur þess hefur verið réttur með
millifærslu.
• Allir vita að ríkisfjármálasöngur Geirsliðsins er
falskur,því það var einmitt f jármálaráðherra Geirs sem
i f jögur ár rak ríkissjóð með slíkum halla, að allar ríkis-
stjórnir frá 1978 hafa verið að berjast við að greiða nið-
ur Matthíasarskuldirnar við Seðlabankann. Sjálfstæðis-
f lokkurinn hef ur jafnan lagt áherslu á sjálf ræði sveitar-
félaga og talað mikið um valddreifingu, en hug sinn til
sveitarfélaganna sýndi Geirs-armurinn í verki í vetur, er
hann lagðist gegn því að þeim yrði veitt aukið sjálfsfor-
ræði í f jármálum.
• Þá er enn eftir að geta þess sem gerir talið um
stefnufestu að argasta sjálfsháði, en það er algjör um-
snúningur Geirsarmsins í Sjálfstæðisflokknum í Jan
Mayen málinu. Á nokkrum klukkustundum í Osló féll
Geirsarmurinn f rá öllum helstu stefnuatriðum sem hann
hafði mótað i málinu og gerði að engu vonir um meiri
árangur og fyrri samstöðu með Alþýðubandalaginu.
Hver tekur mark á stefnumótun Sjálfstæðisf lokksins í
utanríkismálum eftir slíka kollsteypu?
• Þannig mætti lengi telja dæmin um það að Geirs-
armurinn í Sjálfstæðisflokknum er fádæma rótlaus í
stefnumótun og ístöðulítill í starfsháttum sínum. Það er
mikið dómgreindarleysi að ætla sér að endurvinna traust
Sjálfstæðismanna með slíkum vinnubrögðum.
— ekh
klrippt
j Dauði
I prinsessu
Dauöi prinsessu heitir bresk
I sjónvarpsmynd sem hefur veriö
mikiB fréttaefni aB undanförnu.
Myndin er byggB á raunveru-
legum atburBi: ung prinsessa i
Saudi-Arabiu var tekin af lifi
vegna þess aB hvln elskaBi rang-
an mann, ef svo mætti segja, og
hlaut ástmaBur hennar einnig
aB falla fyrir böBuls hendi.
Konungsættin i Saudi-Arablu
tekur þaB mjög óstinnt upp aö
þessi mynd sé sýnd, þvi hún
telurhana móögun viö lög sin og
riki. Bretar hafa oröiB fyrir
ýmsum viBskiptahnekki vegna
þess arna og aBrir óttast slikt
hiB sama. I Svlþjóö var gripiö til
þess undarlega ráös, aö láta
eiganda myndsegulbandaversl-
unar yfirbjóöa sænska sjón-
varpiö og stinga myndinni slöan
undir stól. Hér á Islandi hafa
talsmenn FlugleiBa látiö I ljósi
ótta viö aö pflgrimaflug þeirra
til Saudi-Arablu væri I hættu ef
aö umrædd mynd yröi sýnd I Is -
lenska sjónvarpinu.
Beðið
um ritskoðun
MáliB er I sjálfu sér mjög ein-
viö Saudi-Arablu? 1 sama tölu-
blaöi Mbl. er frá þvl sagt, aö
sjónvarpiö æfli aö sýna mynd-'
ina „Dauöi prinsessu”, sem
fjallar á raétinn og ósvlfinn hátt
um hörmuleg örlög ungrar
prinsessu frá Saudi-Arablu en
hún var llflátin opinberlega meB-
sveröshöggi fyrir brot á lögum
Kóransins og lögum Saudi-Ara-
blu. Kom fyrir ekki aö hún var
af konungsættinni. Saudi -
Arabar hafa tekiö þaB mjög
óstinnt upp, aö þessi mynd væri
sýnd I sjónvarpsstöövum og
hafa krafist þess aö hún væri
bönnuö, þar sem efni hennar
væri árás á konumgsfjöl-
skylduna, Saudi-Arabíu og siBi
múhameösmanna. Þessum
hótunum sinum hafa Saudi-Ar
abar fylgt eftir. Morgunblaöiö
segir orörétt um þetta atriöi:
„ABspuröur kvaö Hinrik hót-
anir um viöskiptabönn eöa refs-
ingar af hálfu Saudi-Arablu
vera millirlkjamál af ööru tagi
og kæmi þaö I hlut annarra en
sjónvarpsins aö leysa ef sýning
myndarinnar heföi einhverja
eftirmála hérlendis.”
. Vita þaö allir menn, aö rlkis-
sjónvarpiö er undir sérlegri
ristjórn þingkjörinnar
nefndar, sem I eiga sæti
áhrifamenn landsins úr öll-
um flokkum. Formaöur þess-
arar nefndar er fyrrverandi
menntamálaráöherra landsins
og flokksbróöir utanrlkisráö-
herrans. Halda menn þaö, aö
Saudi-Arabar taki upp stjórn-
málasamband viö þjóö, sem
lltur þannig á nauBsyn þessa
sambands, aö hún sýnir I sjón
varpi sfnu undir eftirliti fyrr-
svonefnda Finnlandiseringu, en
þar er m.a. átt viö þaö aö
Finnar þurfa vegna landfræöi-
legrar stööu og pólitlskra sam-
búöarhagsmuna aB taka tillit til
óska Sovétmanna I ýmsum
greinum. Meöal annars hefur
margsinnis verö vakin athygli á
þvl, aö Finnar áræddu ekki aB
sýna breska mynd sem gerist I
sovéskum fangabúBum, og er,
eins og Dauöi prinsessu, byggö
á raunverulegum atburöum:
reynslu Alexanders Solsjenit-
sins. Vegna þess aö sovéskir
ráöamenn mundu kalla sllkt at-
hæfi móögun viö slnar rlkishug-
sjónir, sina „trú og lögmál”.
Hafa Morgunblaösmenn og gott
ef ekki Haraldur Blöndal sjálfur
margsinnis gert þvi skóna aö
ýmsir Islendingar væru veikir
fyrir svipuBum rökum, og i
fyrra dundu leiöarskrif I tónteg-
und Halldórs Blöndals alþm.
mjög á Svavari Gestssyni fyrir
meinta linkind og tillitsemi I
garö Sovétmanna vegna ollu-
hagsmuna.
Allt var þaö mál hreinn upp-
spuni. En sér ekki hver maöur,
aö meö hinni makalausu grein
Haraldar Blöndal er veriö aö
biöja um „Finnlandis-
eringu”? — þaö er sama hvort
menn lúta hervaldi, olíuvaldi
eöa einhverju ööru, niðurstaöan
er sú sama. Þaö er látiö fyrir-
fram undan ritskoöun erlendis
frá.Munurinn er sá, aö enginn
hefurmæltmeö sllkri auömýkt I
ööru dæmi en þvl Saudi-Arab
Iska, þótt ef til vill megí finna
vissar hliöstæöur frá þvl fyrr á
tlö, þegar Þórbergur Þóröarson
rithöfundur hlaut stefnur og
dóm (held ég) fyrir ærumeiö-
andi ummæli svonefnd um er-
lendan þjóöhöföingja — sá höfö-
ingi var sjálfur Hitler!
Angi af
stcerra máli
Hér veröur engu spáö um þaö,
hve staffírugir Islendingar I
raun reynast andspænis „óllu-
ritskoöun” af þvl tagi sem Har-
aldur Blöndal mælir meö. En
þaö skal á þaö bent, aö kvik-
myndin Dauöi prinsessu er aö-
eins angi af stærra máli. Araba-
rlki hafa þegar gert tilraunir I
svipaöa átt, meö þvi aö bann-
lýsa kvikmyndir meö ákveönum
leikurum af gyöingaættum. Þau
hafa reynt aö baka efnahagslegt
tjón þeim sem dirfðust aö gera
mynd um Múhameö spámann
(þótt þaö væri meö allri virö-
ingu gert). Armenar I Banda-
rfkjunum hafa mótmælt þvl, aö
Dauöi prinsessu — llk elskendanna dregin á brott.
Á að koma í veg fyrir olíu-
kaup frá Saudi-Arabíu?
falt: rlki notar vald sitt (hér yfir
ollu) til aö reyna aö koma I veg
fyrir sýningu leikinnar kvik-
myndar sem er stjórn þess ekki
aö skapi. Stundum sjá menn sig
nauöbeygöa til aö lúta sliku
boöi, en þaö er hinsvegar sjald-
gæft aö menn telji þaö sjálfsagt
og eölilegt. En einmitt sllk meö-
mæli meö ritskoöun úr fjarska
mátti lesa I Morgunblaöinu á
Hvítasunnu. Þar skrifar Har-
aldur Blöndal grein sem nefnist
,,Á aö koma I veg fyrir ollukaup
frá Suadi-Arablu?” — Þar segir
m.a.:
„En veröur svo auðvelt aö
koma á stjórnmálasambandi
verandi menntamálaráöherra
þá einu mynd I heiminum, sem
konúngur Saudi-Arablu telur
móögandi viö sig persónulega,
fjölskyldu slnu, þjóö, trú og lög-
mál?
Haraldur Blöhdal hdl.”
Hvað er
Finnlandisering?
Grein þessi er prentuö I blaöi,
sem hefur um skeiöhaft hátt um
vegna þrýstings olíusterkra
múslfma hafiekki mátt minnast
einu oröi á svlviröileg Armena-
morö I Tyrkjaveldi 1915 I
greinargerö Sameinuöu þjóö-
anna fyrir fyrirbærinu „þjóöar-
morö”. Þaö voru nefnilega
tyrkneskir trúbræöur oliufurst-
anna sem þá myrtu um þriöjung
armenskrar þjóðar.
Kannski við Islendingar fáum
aö heyra þaö næst hjá Haraldi
Blöndalog co. að þaö sé nú mál
til komiö aö viö förum pö tala
varlega um Tyrkjarániö?
AB.
99 skorrið