Þjóðviljinn - 05.06.1980, Side 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. júni 1980.
Fimmtudagur 5. júni 1980. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 9
r
TÍÐNI ALGENGUSTU KRABBAMEINA
HJÁ ÍSLENSKUM KONUM
1955-60 1961-66 1967-72 1973-78
TÍÐNI ALGENGUSTU KRABBAMEINA
HJÁ ÍSLENSKUM KÖRLUM
MIÐAÐ VIÐ 100.000
BRJÓSTAKRABBAMEIN
Árleg tíðni á íslandi miðað við 100.000
1941-45 46-50 51-55 56-60 61-65 66-7.0 71-75 76-78
RÁÐSTEFNA KRABBAMEINSFÉLAGS ÍSLANDS
Fimmti hver Islendingur fær
krabbamein
Lífslíkur alltaf að aukast
Frá ráðstefnu Krabbameinsfélags íslands sem haldin var á Hótel Loftleiöum á föstudaginn var. Guömundur
Jóhannesson yfirlæknir leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins er I ræðustól.
Svo sem skýrt var frá í
blaðinu fyrr í vikunni hélt
Krabbameinsfélag Islands
ráðstefnu fyrir fáum dög-
um þar sem f jallað var um
ýmsa þætti krabbameins-
leitar og læknmga
Fimm f ramsöguræður
voru fluttar á ráðstefn-
unni.
Dr. Gunnlaugur Snædal for-
maður Krabbameinsfélags Is-
lands skýrði frá verkefnum
krabbameinssamtakanna i land-
inu, Guðmundur Jóhannesson
yfirlæknir leitarstöðvar krabba-
meinsfélagsins ræddi um hóp-
skoðanir, Gunnlaugur Geirsson
yfirlæknir frumurannsóknarstofu
krabbameinsfélagsins um
stungusýni til sjúkdómsgrein-
ingar, Hrafn Tulinius um hagnýt-
ingu faraldsfræði og loks talaöi
Þórarinn E. Sveinsson læknir á
geisladeild Landspitalans um að-
stöðu til meðferðar krabbameins.
Að loknum framsöguerindum
voru frjálsar umræöur. Fundar-
stjóri var prófessor Jónas Hall-
grimsson. Hér á eftir verður
fjallað um nokkur helstu atriðin
sem fram komu á ráðstefnunni en
aöeins stiklað á stóru eins og
gefur að skilja.
Á fyrstu árum krabbameins-
samtakanna i landinu beindist
aðalstarfið að krabbameinsleit en
fljótlega bættist við rannsóknar-
starf, aðallega var um frumu-
rannsóknir að ræða. Siðan hefst
krabbameinsskráning, og nú
hefur enn einn þáttur i starfsem-
inni bæst við en það er heil-
brigðisfræösla. Er Krabbameins-
félag Reykjavikur þar fremst I
flokki og hefur unnið gifurlegt
starf einkum meðal skólabarna.
Krabbameinsskráin
26 ára
Krabbameinsskráin Islenska
nær aftur til ársins 1954 og sýnir
hún að tiðni krabbameins hefur
aukist litillega. Þessi tæpu 30 ár
sem hún spannar.
Hins vegar hefur tfðni aukist
verulega I einstökum liffærum en
minnkað I öðrum. T.d. er brjósta-
krabbi i konum i hröðum vexti og
magakrabbi hjá körlum. Upplýs-
ingar um brjóstakrabbamein á
Islandi eru mun meiri en um
aðrar tegundir krabbameins þvi
aö til er i fræðiriti nokkuð
áreiðanleg skrá yfir öll slik tilfelli
siöan fyrir siöustu aldamót.
Vegna þessara upplýsinga er
unnt aö leita ýmissa orsakaþátta
sem liklegir eru til að valda
brjóstakrabba og er einmitt unnið
aö þvi nú og nefnist sú fræðigrein
faraldsfræöi. Ættfræði er þar stór
liður. Sem dæmi má nefna aö
kona sem á systur sem fengiö
hefur krabbamein i brjóst er I
þrefalt meiri hættu en aðrar. Þá
virðist einnig vera fylgni á tiöni
brjóstakrabba og aldri kvenna
viö fyrstu barnsfæöingu svo og
barnaf jölda. Þvi yngri sem konur
eru þegar þær eignast sitt fyrsta
barn og þvi fleiri börn sem þær
fæöa þeim mun minni likur eru á
brjóstkrabba og öfugt.
40 konum bjargað
Hópskoðanir á heilbrigðu fólki
hófust fyrst árið 1957. Þá tók til
starfa Leitarstöð — A og var þá
leitað að magakrabba. Þessi stöð
starfaði til ársins 1969 en var þá
hætt. Mun umfangsmeiri hóp-
skoöunum var siöan hleypt af
stokkunum áriö 1964 en þaö eru
skoöanir á konum til greiningar
leghálskrabbameins. 1974 var
lika farið aö leita að krabbameini
i brjóstum og er það nú fastur
liður i þessum hópskoöunum.
Fyrst i stað voru skoðanirnar ein-
göngu bundnar við Reykjavikur-
svæðið en ná nú til landsins alls.
Með hópskoöunum þessum var
og er ætlunin aö finna meinsemd-
ina á byrjunarstigi en þá eru lik-
urnar á lækningu mestar og
vissulega hefur marktækur
árangur náðst þó að erfitt sé að
sanna gildi hópskoöana yfirleitt. I
fyrstu jókst tiðni leghálskrabba-
meins og kann það að hljóma
undarlega en skýringin er sú aö
viö þessa leit fundust mun fleiri
tilfelli á byrjunarstigum en ella
heföi orðið. Siðar lækkaði tiðnin
aftur. Arið 1977 dóu aðeins 7
konur af þessum sjúkdómi en 1968
voru þær 21. Miðað við þessar
tölur virðist ekki ofreiknaö að
tekist hafi að bjarga lifi a.m.k. 40
kvenna siöan leit aö legháls-
krabbameini hófst.
Þrátt fyrir þetta má hvergi
slaka á og sl. tvö ár hefur ný-
greindum tilfellum aftur fjölgað.
Astæðurnar eru margvislegar,
m.a. þær aö konur koma ekki
nógu reglulega til skoöunar,
reyndar eru ekki aöstæöur fyrir
hendi til aö skóöa aTlar konur
nægilega oft sökum þrengsla i
leitarstöðinni I Suðurgötu. Þar er
hægt að skoða um 6 þúsund konur
á ári en þær yrðu 8—9 þús. ef allar
konur frá tvitugu til sjötugs væru
skoðaðar árlega en það er tak-
markið. Verður betur vikið að
húsnæðismálunum siðar.
Brjóstkrabbi
algengastur
Langalgengasta krabbamein
hjá islenskum konum er brjósta-
krabbamein. Verulega vaxandi
tiðni er siöustu árin. Þaö er þess
vegna mjög þýöingarmikiö aö
gera allt sem hægt er til þess að
tryggja sem besta greiningu
þessa djúkdóms. Eins og áöur
getur voru brjóstaskoðanir
teknar upp sem fastur liöur I hóp-
skoðunum frá 1974. 1 samvinnu
við röntgendeild Landspltalans
hafa veriö geröar brjóstamynda-
tökur á talsverðum fjölda
kvenna, fyrst öllum yfir 35 ára
(2000 konur), siðan I völdum til-
vikum eftir ákveðnum ábending-
um. Rúmlega 800 brjóstamynda-
tökur voru þannig framkvæmdar
á siðasta ári.
Viö athugun á öllum brjósta-
krabbameinum sem greind voru
á árunum 1974—1978, sem voru
alls 350, höfðu 93 verið I skoðun
innan eins árs frá greiningu. Af
þeim höfðu 76 verið greind við
skoöun og rannsókn eða 82%, en
17 hötðum við misst af, þar af 11
frá 6—12 mánuðum og 6 innan 6
mánaða. Þessi árangur veröur aö
teljast mjög þokkalegur þar sem
við náum aöeins til aö skoða ár-
lega fjórðung allra kvenna i þess-
um aldurshópum og læknisskoð-
unin ein verður aldrei fyllilega
örugg. Meö aukningu á ástungum
og brjóstamyndatökum má vafa-
laust bæta þennan árangur.
A þingi norrænu krabbameins-
félaganna I Stokkhólmi i fyrra-
haust kom fram aö röntgen-
myndataka af brjóstum væri
verulega vænleg aðferð við að
greina brjóstakrabba á byrjunar-
stigi. I þremur hópskoðunum I
Sviþjóö voru teknar brjósta-
myndir af öllum konum 40 ára og
eldri og greindust 6—7 tilfelli af
hverjum 1000. Hjá samanburöar-
hópum sem ekki voru myndaðir
voru tilfellin aftur á móti aöeins
1.4. Vegna þessa og að fenginni
reynslu hér heima er taliö æski-
legt (sbr. ræðu Guðmundar jó-
hannessonar) að stefna að þvl —
eða beita sambærilegum rann-
sóknaraöferðum — að taka
röntgenmyndir af brjóstum allra
isl. kvenna 35 ára og eldri annað
eöa þriðja hvert ár. Til þess aö
svo megi verða þarf Krabba-
meinsfélagiö að eignast eigiö
röntgentæki sem hægt er að ferð-
ast með um landiö.
Fimmti hver
Islendingur
En vitaskuld er ekki nóg aö
greina rétt sem flest krabba-
meinstilfelli þá er lækning eða
lækningatilraunir sjúkdómsins
eftir. Fram til þessa hefur með-
ferð krabbameins aðallega veriö
þrenns konar, skurölækningar,
geislameðferð og lyfjagjöf. Is-
lendingar hafa ævinlega, ekki sist
fyrir ötult starf krabbameins-
félaganna, reynt að hafa tiltæk öll
fullkomnustu lækningatæki sem
til eru hverju sinni. Það hefur þó
ekki ævinlega reynst unnt og enn
þarf að senda árlega nokkurn
fjölda sjúklinga utan til rann-
sókna.
Arlega eru greind hér um 600 ný
krabbameinstilfelli. Má þvi gera
ráð fyrir að um fimmti hver Is-
lendingur sem meðalaldri nær
muni fá krabbamein. Arið 1977
var keypt til landsins svokallað
kóbalt-tæki til geislameöferðar
krabbameinssjúklinga og var það
þá hiö fullkomnasta á markaðn-
um. Nú er þetta tæki hins vegar
ekki fullnægjandi. Hafa allir
sjúklingar siðan fengið kóbalt-
meðferð en fjöldinn eykst ár frá
ári og i fyrra komu 13 þús. sjúk-
lingar til meðferðar. Aætlað er að
fjöldinn verði mestur allt að 30
þús. sjúklingum en þá er talið aö
e.k. jafnvægi verði komið á.
Miðað við allan þennan sjúk-
lingafjölda er húsnæðið þar sem
þeim er sinnt vægast sagt bág-
borið. Þegar tækiö kom til lands-
ins var byggt yfir þaö úthýsi frá
Röntgendeild Landspitalans og er
gólfflöturinn aðeins 180 ferm. Er
þar vitaskuld mikil þröng á þingi
daglega og aðeins vegna mikillar
iipurðar starfsfólks er hægt að
komast yfir að sinna öllum þess-
um sjúklingum.
Ongþveiti
En nú er svo komið að til öng-
þveitis horfir og afleiðingin er sú
aö ekki er unnt að nýta I þágu
krabbameinssjúklinga alla þá
þekkingu á sjúkdómnum sem
læknar hér og visindamenn hafa
yfir að ráöa og svo verður ekki
fyrr en húsnæöisvandinn hefur
verið leystur.
Framtiðarhúsnæði krabba-
meinslækninga er fyrirhugaö I
K-álmu Landspitalans sem
byrjaö verður að reisa á næst-
unni. Til bráðabirgða hefur svo
um samist að hluti þessara lækn-
inga fari fram á gamla fæöingar-
gangi kvennadeildarinnar. Það
húsnæði er þó hvergi nærri full-
nægjandi,aðeins 200 ferm, — og
þar verður aðeins unnt að sinna
þeim sjúklingum sem eru i lyfja-
meðferð og eftirliti.
Þess má að lokum geta að þjóð-
hagslega séð er það afar óhag-
kvæmt og dýrt aö senda sjúklinga
úr landi til rannsókna. Hver legu-
dagur á krabbameinsdeild á
Norðurlöndunum kostar 140—150
þús. krónur en algengur með-
ferðartimi er 6 vikur. Beinn
kostnaöur við hvern sjúkling er
þvi um 6 miljónir auk þeirra
óþæginda og erfiðleika sem sjúk-
lingar verða að þola til viöbótar
erfiöum og oft Hfshættulegum
sjúkdómi.
— hs
HUNDRAÐSHLUTFALL
EFTIRLIFANDI
KRABBAMEINSSJUKLINGA
5 ÁRUM FRÁ GREININGU
HUNDRAÐSHLUTFALL EFTIRLIFANDI
BRJÓSTAKRABBAMEINSSJÚKLINGA
Greiningarár
Ekki hægt að nota nýjustu tæki sökum húsnæðisleysis
á daaskrá
Þá sem voru með 250 þás. kr. á mánuði
vantaði 21.825,- kr. á mánuði eða kr.
261.900,- rniðað við ár, en þeir sem
voru með ráma miljón á mánuði fengu
aukalega 31.944,- kr. á mánuði, eða
383.803,- kr. á ári.
Bjarnfriður
Leósdóttir
Akranesi
Notum vísitöluna
til launajöfnunar
Hvað má tefja samninga lengi
er spurning sem margir velta
fyrir sér nú á þessum vordögum.
Samningar hafa verið lausir
siðan 1. des. s.l. hjá fólki innan
A.S.I. Enn lengur hjá rtkisstarfs
mönnum. Nákvæmlega I sex
mánuöi hafa þykjast viðræður
fariðfram á milli atvinnurekenda
og verkalýðsforustu, án sjáanlegs
árangurs. A meðan hefur verið
nagaö utan af kaupmætti launa,
en auðvitað hefur það gerst miklu
lengur. Allt frá þvi aö Ólafslögin
illræmdu voru lögfest eftir kröfu
Framsóknar og krata hefur visi
talan verið stórskert á hverju
bótatimabili. Núna 1. júni átti
vísitalan að verða 13,23 prósent
en vegna kjaraskerðingarlag-
anna veröa ekki greidd nema
11,73 prósent.
Atvinnurekendur boöa ennþá
meiri skerðingu á visitölu, þá að
hún veröiekki reiknuð nema tvis-
var á ári og án þess t.d. að
hækkun á launaliðum verði tekin
með og ennþá fleiri liðir sem allir
væru til skerðingar. Þeir neita
öllum grunnkaupshækkunum,
vilja eyöileggja ýms félagsleg
réttindi, sem áunnist hafa og eru
þegar oröin að lögum. Þetta er
boðskapurinn er þeirsenda sam-
tökum launafólks eftir allan þenn-
an tima frá þvl samningum var
sagt upp. Þó hefur Vinnuveit-
endasambandiö margoft lýst þvi
yfir að það yrði að hækka laun
þeirra lægstlaunuðu, t.d. sjálfur
framkvæmdarstjórinn lýsti þvi
yfir i sjónvarpi, bláeygur og eins
og sára saklaus, að þetta verði
bara að gera, en þaö er bara of-
vaxið skilningi alls almennings,
hvernig þetta á að ske, meö stór-
skertri visitölu, lika á þessi lágu
laun, engum grunnkaups-
hækkunum, og með þvi að fella
burt ýms félagsleg réttindi. Svo
halda þeir þvi fram aö verkafólk
og atvinnurekendur hafi sömu
hagsmuna að gæta, þess vegna
eigi ekki að vera strið á milli
þessara stétta, heldur samvinna.
Sem sagt, verkafólk á aö vernda
hámarksgróöa auðvaldsins. Þaö
er margt skrýtið I kýrhausnum.
Eöa er Vinnuveitendasambandið
fariö að gera opinberlega grin að
verkalýðshreyfingunni. Aö þeir
geti teymt hana á asnaeyrunum
afturábak mánuö eftir mánuö,
meöan þeir mergsjúga fyrirvinnu
þjóðarinnar, sem malar auð-
stéttinni þeim mun hraöar gull.
erlendar
bækur
A History of Europe.
A Cultural and Political Survey.
John Bowle. Secker & Warburg /
Heinemann 1980.
Það eru rúmlega fjörutiu ár frá
þvl að all ýtarleg Evrópusaga
kom út á Englandi, skrifuð af
Englendingi, en það var A
History of Europe eftir H.A.L.
Fisher.
En þaö.sem kannski er allra
verst, er álit það sem almenn-
ingur viröist hafa á verkalýðs-
forustunni. Maður opnar varla
svo blað þar sem fólk er spurt um
þetta að svörin séu ekki á einn
veg, að hún sé duglaus, úrræða-
laus og alveg steingeld.svaraði
einn i Þjóðviljanum núna á
dögunum. Það er eitthvað meira
en lítið aö. Ég held að verkalýös-
forustan veröi aö fara að reka af
sér slyðruorðið, ganga til verka,
og þá með það vopn i höndum sem
vinnuveitendasambandið skilur.
Það sem ég tel veigamest að ná
fram I þessum samningum er sú
krafa Alþýðusambandsins, sem
fyrst var borin fram á þingi
Verkamannasambandsins á s.l.
hausti um breytingu á greiöslu
verðbóta á laun þannig:
a) A þau laun sem eru lægri en
300 þús. kr á mánuöi greiðast
sömu verðbætur i krónutölu og
á 300 þús. kr.
b) A laun á bilinu 300 til 400 þús.
kr á mánuði greiöast verö-
bætur i prósentum.
c) A laun,sem eru hærri en 400
þús, kr á mánuði, greiöist
sama krónutala og á 400 þús.
kr. Allt miðað við 1. des. s.l
Þetta er mótuð stefna Alþýöu-
sambandsins og fram sett sem
önnur aðalkrafan varöandi
kaupið, hin er 5 prósent grunn-
kaupshækkun ásamt taxta til-
færslum.
Kjararannsóknarnefnd gerði
úttekt á hækkun á framfærslu-
kostnaði visitölufjölskyldunnar
svokölluðu. Þá kom eftirfarandi I
ljós: 1. mars s.l. hækkaði
kaupgjaldsvisitalan um 6.67
prósent, sem auðvitað var skert
visitala, vegna Ölafslaganna. Þá
haföi framfærslukostnaöur þess-
arar fjölskyldu hækkað um 38.500
krónur pr. mánuð á siöasta verð-
bóta timabili. En viti menn, þessi
hækkun kom ekki að fullu fram i
greiðslu verðbóta fyrr en við 577
þús. kr. mánaðarlaun. Allir sem
voru fyrir neðan fengu ekki þær
verðbætur sem þurfti til þess að
mæta hækkuðum framfærslu-
kostnaöi viömiðunarf jöl-
skyldunnar. Eftir þvi sem launin
voru lægri þeim mun meira
vantaði uppá. En þeir sem voru
með laun yfir 577 þús. fengu
meira en þaö sem þessari hækkun
nam, og þeir auðvitað mest, sem
hæst höfðu launin.
Höfundurinn hlaut menntun
sina I Oxford, kenndi slöan þar og
viðar og nú siöast i Briissel. Hann
hefur skrifað margar bækur um
stjórnmálasögu og sagnfræði,
meöal þeirra The English
Experience, The Imperial
Achievement, Napoleon ofl.
Höfundurinn skrifar þessa bók
m.a. I þeim tilgangi aö kynna
landsmönnum sinum sögu
Evrópu vegna þeirra auknu
tengsla, sem hann álitur aö hljóti
að aukast milli Bretlandseyja og
meginlands Evrópu, eftir aö
breska heimsveldiö er orðið aö
kapitula I veraldarsögunni Bowle
segir i formála, að nú sé fráleitt
að Englendingar einangri sig sem
eyþjóð og hvetur landsmenn slna
til þess að taka upp Evrópustefnu
og Evrópuhyggju. Höfundurinn
hefur I fyrri ritum sinum leitast
við aö sýna fram á þýðingu og
Þá sem voru með 250 þús. kr. á
mánuði vantaði 21.825 kr. á
mánuði eða 261.900 miðaö við ár,
en þeir sem voru með rúma
miljón á mánuöi fengu aukalega
31.984 kr. á mánuði, eða 383.803
kr. á ári. Þessi útkoma yrði auð-
vitað miklu verri ef miðað væri
við þá visitölu sem kom á kaupið
1. júni.
Það er einmitt vegna þessara
augljósu sanninda, hvernig visi-
talan I sömu prósentu leikur þá
sem lægst hafa launin, að krafan
um breyttar greiðslur á visitölu
kemur fram.
Ef þetta yrði gert, myndi þaö
þýða verulega launajöfnun eða
sem svaraöi til 10 prósent grunn-
kaupshækkunar á ári miðaö við
núverandi ástand, einvörðungu á
lægstu launin. Ef hugur fylgir
máli allra þeirra ábyrgu aðila
sem viöurkenna nauðsyn þess að
hækka lægstu launin, án þess að
öll skriðan komi á eftir, hljóta
þeir aö fylgja þessu eftir. Auð-
veldast af öllu væri að stjornvöld
beittu sér fyrir þessari lausn,
annaðhvort með þrýstingi á
vinnuveitendasambandið, eða
hreinlega meö lögum.
Eflaust hrökkva einhverjir viö
að maöurskuli leyfa sér að stinga
upp á þvllikum afskiptum rikis-
valdsins, en þvi er til að svara:
Það hafa margsinnis verið sett lög
einmitt um visitölu, sem verka-
lýðshreyfingin hefur orðið að
gangast undir, nauðug viljug, og
við búum við eina slika núna,
Ólafslögin. Þvi ekki að nota þetta
vald, einmitt I þágu þeirra mörgu
sem órétti eru beittir, rétta örlitiö
við kjör þeirra lægst launuðu, án
þess að hinir komi allir á eftir,
þaö er ekkert vit I því að láta visi-
töluna mæla i sömu prósentu upp
úr og niðurúr öllum launastigum,
og ég held að þeir^sem um þetta
hugsa, sjái að þetta muni ekki
ganga öllu lengur. Ef við ekki
spymum nú við fótum, þá mun
það veröa sem svo oft hefur skeö
áður f samningum að þeir, sem
meira mega sin, munu klifra upp
eftir bakinu á þeim sem vinna aö
framleiöslustörfunum, fyrirvinnu
þjóöarinnar. Við erum með fólk,
sem vinnur að mikilvægum
störfum, stóran hóp af fólki, sem
er með laun undir nauðþurftar-
marki. Það er til skammar fyrir
islenska verkalýðshreyfingu, til
skammar fyrir Islenskt atvinnu-
lif, fyrir þjóðina alla.
kosti hins liðna breska heims-
veldis, menningarstarf þess og
áhrif á ýmsar þjóðir. Nú telur
hann að Englendingum beri að
samsamast evrópsku samfélagi
að vissu marki og skuli þannig
stuðla aö framhaldi evrópskrar
og enskrar menningar og verða
hinu evrópska samfélagi hvati til
átaka og áhrifa e.t.v. undir
merkjum ný-evrópsks efnahags-
legs imperialisma.
Höfundurinn rekur hér sögu
Evrópu á hefðbundinn hátt á tæp-
um 600 blaösiöum, höfundurinn
leggur mikla áherslu á áhrif
Evrópuþjóðanna og nýtingu
þeirra á auölindum heima og
heimaa einkum eftir Iðnbylting-
una, en sá þáttur er ólikt ógeö-
feldari en saga Evrópuþjóöanna
fram að þeim tima. Höfundurinn
skrifar hér læsilega bók, sem
hentar vel almennum markaði.