Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 9
Helgin 12.—13. júll. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Kona kvödd
JUHmánuBur er tími bóka og
bltía hjá mörgum, og sem betur
fer virBist ætla aB verBa nokk-
urt framboB á þokkalegum kvik-
myndum. Ein þeirra er „The
goodbye girl”, sem ekki hefur
hlotiB nafn á íslensku, — sem bet-
ur fer kannski. Mynd þessi á
nefnilega margt sameiginlegt
meB ,,An unmarried woman”
sem sýnd var hér undir nafninu
„Kona á lausu”. Þessimynd hefBi
þá liklega veriB þýdd „Stúlka á
faraldsfæri” eBa eitthvaB álíka
fáránlegt.
1 þessari mynd segir frá upp-
gjafa dansmey, sem býr meB 10
ára dtíttur sinni — og stundum
einhverjum karlmanni aB auki. 1
upphafi myndarinnar er sam-
býlismaBurinn nýhlaupinn á
brott. Hún situr eftir ein og yfir-
gefin, þegar leikari nokkur birtist
og segist hafa tekiB IbúBina henn-
ar á leigu, og neyBist hún til aB
deila ibúBinni meB honum.
Myndin lýsir svo sambúB þess-
ara tveggja I gegnum súrt og
sætt. Lengi vel semur þeim ákaf-
lega illa, en I gegnum vonbrigBi
og áföll sem blBa beggja I hinum
hverfula heimi listarinnar vex
meB þeim innileg vinátta og ást.
En aB lokum kemur aB þvi aB
hann, eins og sá fyrri, pakkar
saman og fer. En gefiB er fyrir-
heit um aB aBskilnaöurinn sé ekki
endanlegur og hann muni koma
aftur.
Myndin er ákaflega skemmti-
lega gerB, full af hlýju og húmor,
og leikur þeirra Mörshu Mason og
Richard Dreyfuss er frábær.
Dreyfuss fékk óskarsverBlaun
fyrir leik sinn I myndinni og er
sannarlega vel aB þeim kominn.
Hann túlkar leikarann, sem er aB
reyna aB brjótast áfram til frægB-
ar og frama, á ákaflega eftir-
minnilegan hátt. Hann leikur
sterkt eins og bandariskir leikar-
ar gera gjarnan og nær ótrúlegri
breidd og dýpt I persónusköpun
sinni, — sýnir jafnt geislandi llfs-
kraft og húmor þessa manns og
hyldjúpa örvæntingu.
Ég verö þó aB viBurkenna aö
persónan sem Marsha Mason
leikur vakti kannski ennþá frem-
ur áhuga minn. Hin nýja kven-
mynd sem viö sjáum æ ofan I æ i
bandarískum kvikmyndum er
sannarlega spennandi, og engin
dúkkullsa, eins og kvenstirnin
fyrr á árum. Manni finnst önnur
hver bandarisk mynd fjalla um
konu á leiö úr hjónabandinu, ef
hún er þá ekki þegar komin úr
þvl. Þessar myndir eru aö sjálf-
sögöu afsprengi umræöu og end-
urskoöunar á stööu kvenna, llfs-
reynslu þeirra og tilfinningum.
Fjöldamargar hinna nýju
„kvenna”-bókmennta sem út
hafa komiö I Bandarlkjunum á
siöustu árum fjalla einnig um
þessi mál.
I framhaldi af endurskoöun á
hlutverki kvenna hefur aö sjálf-
sögöu fylgt krufning á sambýlis-
og sambandsformum kynjanna. 1
hinum nýju bókmenntum og kvik-
myndum sjáum viö t.d. konuna
sem er „svikin” en brýst undan
tilfinningalegu, kynferöislegu og
félagslegu valdi karlmannsins, og
öölast loks raunverulegt sjálf-
stæöi. Viö sjáum llka konuna
sem, þrátt fyrir aö hún sé tilfinn-
Marsha Mason og Richard Dreyfuss I hlutverkum slnum I myndinni „The goodbye girl”.
ingalega miklu þroskaBri en karl-
mennirnir I llfi hennar, gefur
þeim allt og lifir I stööugum ótta
viö hinn kaldlynda karlmann sem
hleypur meö skottiö á milli fót-
anna, þegar veiöarnar hafa boriö
tilætlaöan árangur. Og svo sann-
arlega þekkjum viö báöar þessar
konur. Marsha I „The goodbye
girl” er eitthvaB af þeim báBum,
eins og viB kannski flestar. Og
Dreyfuss er lika sambland af hin-
um næma og hjartahlýja karl-
manni, sem á til óendanlega
miklar tilfinningar og vill sýna
þær, en hann er llka sjálfsupptek-
inn og metnaöargjarn karlmaöur
sem man ekki einu sinni eftir aö
kveöja konuna sem hann elskar
þegar framinn kallar. Kunnug-
legt líka — eöa hvaö?
Einhver sagöi viö mig aö þessi
mynd væri bæöi „naiv” og
amerisk. Mér finnst þaö allt I
lagi. Hún getur þó tæpast talist
mikiö listaverk, þótt handritiö sé
gott, nema þá helst leiklega og er
paö einkenni á mörgum nýjum
bandariskum myndum. Þetta
„naivitet” sem margir tala um
meö fyrirlitningu kann ég vel viö.
Ég held aB boöskapurinn á bak
viö hina einlægu og hlýju leit aö
endurmati á samskiptum okkar,
tilfinningalegum og félagslegum,
I hjtínabandi og utan, sé aö
minnsta kosti ekki minni athygli
verBur en sá boBskapur sem flutt-
ur er eftir frostköldum leiöum
gáfumannslegrar þjóöfélagsrýni.
ÞS
Rimini
ein af þeim ailra bestu!
14. júli - örfá sæti laus
24. júli - laus sæti
28. júli - „auka-auka“ ferð - örfá sæti laus
4. ágúst - uppselt, biðlisti
14. ágúst - uppselt, biðlisti
18. ágúst - „auka-auka“ ferð - uppselt, biðlisti
25. ágúst - örfá sæti laus
4. september - uppselt, biðlisti
15. september - laus sæti
PORTOROZ
Friösæl og falleg sólarströnd
14. júlí - örfá sæti laus
24. júlí - laus sæti
4. ágúst - uppselt, biðlisti
14. ágúst - uppselt, biðlisti
25. ágúst - örfá sæti laus
4. september - uppselt, biðlisti
15. september - laus sæti
Samvinnuferdir-Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
og
verði og einstökum greiðslukjörum
Níðsterk stigaefni - verð frá kr. 10.400
Ódýr teppi - verð frá kr. 5.400
Þéttofin rýjateppi - einstakt verð, aðeins kr. 18.800 og við
gerum enn betur og bjóðum 10% afslátt í viðbót!
Greiðslukjör í sérflokki:
Útborgun 1/4 -
eftirstöðvar á 6-9 mán.
Þjónustan ofar öllu:
Við mæium gólfflötinn og
gerum tiiboð án skuldbindinga
Teppadeíld
Jón Loftsson hf. Hringbraut121 sími10600