Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 31

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 31
Helgin 12.—13. júll. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 31 HER Kjartan P. Emilsson. Kjartan P. Emilsson skrifar um útvarp: Afslöppun í útvarpi „Vinstri fótur þinn er þungur og hlýr. Fótur þinn er þungur og 1 hlýr”. Þetta heyröist I útvarp- inu slöastlióinn fimmtudag en þá var Geir Vilhjálmsson þungum byróum stress- ins af veiklunda heröum notaöi viö þaö, var hin viöfræga slökunaraöferö J-H Schultz, sem á fagmáli kallast „Lautogen trainging”. Þessi aöferö er aö mestu byggö á hálfgeröri sjálfs- dáleiö og framköllun ýmissa til- finninga, t.d. þyngsla- og varma- tilfinningu, andardrátturinn gegnir einnig mikilvægu hlut- verki I þessari aöferö. Ef þessi slökun tekst fullkomlega, er taliö I aö 10 mlnútur I þessu ástandi geti I jafnast á viö 2—3 klukkutima 1 svefn. Þessi aöferö hefur veriö viöur- kennd, og er mikiö notuö af læknum, t.d. er hún notuö viö undirbúning fæöinga og einnig I geölækningum. Annars er þaö aö seg ja, aö þessi þáttur geröi manni ljóst hve I spenntur og stressaöur maöur er án þess aö gera sér grein fyrir þvi. og einnig hve mikla þörf fólk hefur til aö slaka á. Þessi þáttur vekaöi mjög vel á mig: ég svaf eins og steinn strax og hann var búinn, og þaö telst tii leinsdæmi aö ég fari svona I snemma aö sofa Kjartan. P. Emilsson Gísli Rúnar og Edda Björgvinsdóttir á förum til náms í London Persónulistinn í Babbit er margar síður „The Drama Studio” I London er Íeiklistarskóli sem tekur fólk i eins árs framhaldsnám, eftir aö þaö hefur lokiö venjulegu leiklistarnámi og/eöa hefur um- talsveröa leikhúsreynslu”, sagöi Gísli Rúnar Jónsson, leik- ari sem innan skamms er á för- um ásamt konu sinni, Eddu Björgvinsdóttur leikar^ og börnum til framhaldsnáms i leiklist I London. Gislihefur veriö mikiö I sviös- ljósinu aö undanförnu og hann segist veröa hér eftir á öldum ljósvakans lengi eftir aö hann er floginn til London. „í dag, laugardag, eru 10 lestrar eftir enn á Babbit og endist hún langt fram á haust. Þetta voru 41 lestur samtals og ég las þetta allt upp s.l. vetur”. „Var ekki mikil vinna viö þennan lestur?” „Jú, glfurleg. Ég geröi mjög nákvæman persónalista meö ýmsum útskýringum um persónurnar. Ég þurfti t.d. aö lesa nágranna Babbits sem birt- ist snemma i bókinni og slðan aftur einum 13 lestrum siöar og þá þýddi ekki aö vera búinn aö týna karakternum. Þaö var hagkvæmt aö fletta upp I listan- um og lita á „analýsu” mína á karakternum og finna hann þannig aftur meö öllum sinum einkennum. Sumir nota mislita tússpenna til aö merkja viö hina ýmsu karaktera i handritinu og hjálpa sér þannig til aö ná þeim þegar þeir birtast aftur”. „Segöu mér meira frá „The Drama Studio”? „Ég tók inntökupróf inn i skólann i hitteöfyrra, og náöi þvi. 1 fyrravetur störfuöum viö hjónin meö Alþýöuleikhúsinu og nú erum viö ákveöin aö drifa okkur út. Edda veröur I óform- legu námi og ætlar aö reyna aö komast I samband viö leikhópa sem starfa hjá Art Center auk þess sem hún ætlar aö stunda „sjónvarpsháskólann”, en i gegnum sjónvarpiö I Bretlandi er hægt aö taka háskólapróf. Viö erum mjög háö námslánum, þvi skólagjaldiö er gifurlega dýrt, ekki síst eftir aö Thatcher hækkaöi gjöldin fyrir útlend- inga. Þaö má teljast undantekn- ing aö útlendingar leggi I nám i Bretlandi eftir þessa hækkun”. „Og aö lokum, hvaö veröur ykkar siöasta leiklistarframlag áöur en þiöhaldiö utan?” „Auk þess sem ég verö aö gllma viö Babbit eitthvaö fram eftir haustinu, veröur okkar siö- asti sviösleikur I „Flugkabar- ett” sem viö leikun nú á Hótel Borg. Sýningar eru fimmtu- daga, föstudaga og laugardaga kl. 9 þangaö til viö förum út um miöjan ágúst”, sagöi Gisli Rúnar aölokum. —þs Viö störf i raftækjaversluninni á Týsgötu 1 og viö æfingar meö 100 kg á stönginni. Ljósm. —gel — „Ég vona að fleirí komi í lyftingar” — segir Guðrún Ingólfsdóttir, fyrsta konan] sem keppir i lyftingum á íslandi Gisli Rúnar I hlutverki flugstjórans i Flugkabarett. Meö honum á myndinni er Edda Þórarinsdóttir, LIMRUR Nú er farið aö dofna yfir I limruskáldum þjóöarinnar. jHvemig er þaö,lumar enginn á llimruum forsetakosningarnar? | Hér eru limrur eftir Þorstein I Valdimarsson og er ekki I kot I vísað á meðan viö getum gengiö 1 i limrusafn hans'. Hvimleiði Hann Ami er ófarinn heim. Allir amast viö gestinum þeim. En það er metnaður Ama, að engum sé sama um Ama um gjörvallan heim! Mæðgur Ég féll öll í fellingar og fann mig ei aftur þar. En svo fann ég þig hér í fellingu' á mér svona fallega — eins og ég v,ar. „Ég haföi ekki æft lengi fyrir þessa keppni, en ýmsar af þeim greinum sem ég keppti I eru þó i minu æfingaprógrammi. En réttstööulyftuna haföi ég aldrei reynt viö fyrr, og þó náöi ég einna bestum árangri i henni” sagöi Guörún Ingólfsdóttir, sem á dögunum varö fyrst islenskra kvenna til aö keppa I lyftingum. Hún náöi ágætum árangri, lyfti samanlagt 300 kg, sem þykir ágætt hjá byrjanda. Guörún sagöi aö þetta framlag sitt heföi vakiö mikla athygli og margar stúlkur heföu sýnt þessu áhuga og viljaö vita hvar hún æföi. „Ég hef von um aö ég veröi ekkí ein aö keppa viö sjálfa mig i þessari grein i framtiöinni, þvi þaö er ekkert þvi til fyrirstööu aö konur æfi lyftingar. Lyft- ingar eru orönar mjög vinsælar t.d. I Bandarikjunum meöal kvenna og þar veröur I haust haldin fyrsta heimsmeistara- keppni kvenna i lyftingum.” „Ætlar þú kannski aö fara?” „Þaö getur vel veriö, ef ég næ nógu góöum árangri!” „Helduröu ekki aö konur veigri sér viö aö leggja þessa Iþrótt fyrir sig af ótta viö aö veröa eins og karlmenn I útliti?” „Sá ótti er alveg óþarfur, þvi meö eölilegri æfingu á kvenfólk ekki aö umskapast þótt þaö stundi iþróttir af þessu tagi. Kvenfólk fær ekki karlmanns- vööva þótt þaö stundi lyftingar, heldur styrkist hin eölilega kvenlega vöövabygging lik- amans. Og vöövar eru svo sann- arlega miklu fallegri en spik, sem margar konur buröast meö.” „Nú sýnist manni af mynd- um aö margar af fremstu kraft- iþróttakonum heims likist karlmönnum meira en kvenmönnum?” „Já, þaö er vegna þess aö sum lönd framleiöa Iþróttamenn eins og kjúklinga eöa holdanaut eftir þvi, sem þeim passar, og konur sem stunda krafttþróttir taka stundum hormónalyf sem breyta vöövabyggingunni.” „En þú hefur sem sagt ekki hugsað þér aö fara út I neitt slikt?” „Nei, þaö kemur ekki til greina, ég hvorki hef áhuga á þvi auk þess sem þaö er bannaö. En ég verö auövitaö aö boröa kjarnmikinn og hollan mat.” „Hefurðu fleiri áhugamál en iþróttirnar?” „Þær taka næstum allan minn tima. Ég hef keppt I kúluvarpi og kringlukasti i ein 8 ár, þótt ég sé aðeins 22ja ára gömul. Þaö má búast viö aö ég eigi enn min bestu ár eftir, þvi 25—35 ára eru konur taldar bestar I kraft- iþróttum. Ég vinn hér I verslun- inni á daginn og fritlminn fer aö mestu i æfingar.” ,,0g aö lokum Guörún, eru strákarnir nokkur hræddir viö þig?” „Ja, þeir þykjast nú vera þaö sumir. Ég heyri þvi oft fleygt að þaö sé vissara aö fara varlega aö mér,” sagöi Guörún aö lok- um. — þs BRAGÐLAUKURINN Nú er timi glóöarsteikingar og i dag ætlar bragölaukurinn aö koma meö nokkur góö ráö i þeim efnum. Flestir kunna oröiö undirstööuatriöin viö aö glóöar- steikja, — setja matinn ekki á ristina fyrr en glóöin er oröin vel heit og hætt er aö loga og passa svo aö maturinn sé ekki of lengi á glóöinni. Glóöarsteiktur matur er ekki aöeins sérlega bragögóöur, heldur lika hollur. Eitt af þvi sem mestu máli skiptir þegar kjöt er glóöar- steikt, er kryddiö. Langbest er aö láta kjötiö liggja i kryddlegi og ætlum viö aö birta hér nokkr- ar uppskriftir af sliku. Kjöt sem er glóöarsteikt þarf alltaf aö vera vel þýtt og þaö má gjarnan liggja i leginum i allt aö einn sólarhring Kjúklingalögur frá Klna 1 dl kinversk soya 1 dl sherry 2 msk hakkaður laukur 1 hvitlauksrif (skoriö smátt) 1 tsk sykur 1 msk rifinn engifer eöa 1 tesk mulinn Þeytiö öll efnin saman i skál og helliö slöan yfir kjúklinga- bita. Pensliö meö leginum og saltiö örlitiö eftir aö búiö er aö glóöarsteikja kjúklinginn. Yoghurtlögur fyrir lambakjöt 2 dl yogurt (hrein) 1/2 dl matarlolia 2 msk sitrónusaft grein af nýrri, hakkaðri pipar- myntu (eöa þurrkaöri) 1 msk smáttsaxaöur laukur 1 tsk hunang Þeytiö efnin saman og látiö yfir kjötið i amk 5 klst (ekki mikiö lengur, þá er hætt viö aö yoghurtin missi friskleikann). Saltiö kjötiö eftir steikinguna. Rauövinslögur á nauta og kálfakjöt 1/2 dl matarolta 1 dl rauövinsedik 1 1/2 dl rauövin 1 dl kjötkraftur 2 dl. smáttsaxaöur laukur 2 hvitlauksrif 2 lárviöarlauf 2—3 greinar af timian Þeytiö efnin saman og látiö kjötiö liggja I leginum I einn sólarhring. Skeriö i kjötiö áöur en þaö er steikt, þá bognar þaö ekki i skálar á glóöinni. Avaxtalðgur á svinakjöt 2 dl ananassafi (ósykraöur) 1 dl appelsinusafi. 1/2 dlmatarolia 2msk sitrónusafi l msk karrý Ananassafinn mýkir kjötiö og i þessu má svinakjöt liggja i 1/2 til heilan sólarhring. Muniö aö svinakjöt má ekki vera mjög þykkt skoriökef þaö á að glóöar- steikjast. Svinalundir eru mjög ljúffengar eftir aö hafa legiö i þessum legi. DILLINN „Ég er farinn I bindindi — Konan min segir aö ég hafi læst mig meö henni inni á klósetti I samkvæmi um daginn og spurt hana hvort hún væri ekki ógift”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.