Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 12.07.1980, Blaðsíða 18
18 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12,—13. júll. Asdis Arnþrúöur Hildigunnur HVAÐ ER NAUÐGUN? aö samfarahreyfingar hafi veriö hafnar áöur en brotiö er taliö nauögun. Hvernig á aö sanna aö svo sé? Viö skulum minnast þess aö venjulega eru engin vitni til staöar. Yfirheyrslurnar annað áfall — Hvernig fer rannsóknin fram? Arnþrúöur: Konurnar þurfa aö rekja gang mála f smáatriöum, rifja upp hvert einasta atvik. Þær eru oft i miklu uppnámi, jafnvel svefnlausar eöa undir áhrifum áfengis. Yfirheyrslurnar geta þvi veriö mjög erfiöar fyrir þær þvi sjaldnast eru aörir til frásagnar. Asdis: Þær eru lika spuröar um fleira en nauögunina sjálfa, m.a. um þaö hvort þær hafi sofiö hjá áöur. Er þá veriö aö fiska eftir þvi hvort þær séu lauslátar,enda þótt ákvæöi um vægari refsingu fyrir nauögun gegn konu sem „hefur óorö á sér” hafi veriö fellt úr lög- um áriö 1940? Hildigunnur: Gömlu viöhorfin um aö þaö skipti máli varöandi úrslit nauögunarmála hvort kon- an sé siöprúö eöa lauslát eru enn i fullu gildi og ég held aö menn geri sér margir hverjir ekki grein fyr- ir þvi að lagagreinin var felld niö- ur 1940. Arnþrúður: Þaö er lika alltaf veriö aö fella siögæöisdóma um konur. Konur sem eru mikiö i sviösljósinu mega vart sjást á sjónvarpsskermi fyrr en fólk fer aðfella dóma um siöferði þeir.ra. Hvenær heyrist slikt um karla? — Eru spurningar um einkalif fólks afsakaniegar? Arnþrúöur: Þaö getur komiö upp sú staöa aö þetta skipti máli, sérstaklega ef sama konan hefur áöur kært nauögun, þá er hún spurö um kynllf sitt og llferni almennt. Viö viljum ekki láta ásaka okkur um aö hafa ekki spurt um þaö sem viö heföum átt aö kanna. Viö erum alltaf ábyrg og eftir aö dómsrannsókn fluttist til Rannsóknarlögreglunnar hef- ur ábyrgöin aukist mjög. Hildigunnur: Ég hef heyrt að þetta sé nauösynlegt til þess aö fá vitneskju um hvort konan veit h'vaö i samförum felst. Er þetta eina leiöin til þess, — er ekki ein- faldara aö spyrja hana hvort hún vitihvaö samræöi er? Þá er hægt aö fá þaö fram án þess aö brjóta gegn friöhelgi einkalifsins. Arnþrúöur: Þetta er nær ein- göngu gert þegar um itrekaöar kærur er aö ræöa. Engar reglur um rannsókn mála — Nú þarf aö sanna aö um nauðgun sé aö ræöa, hvert er næsta sig i rannsókninni? Asdis: Læknisrannsókn. 1 eitt skipti var leitaö álits um geö- heilsu stúlkunnar. Hér eru ekki neinar reglur I gildi um þaö hvaö skuli gefa upp i læknisvottoröum, þegar kona er send I slika rann- sókn eftir nauögun. í Danmörku hafa komiö fram upplýsingar i læknisvottoröum m.a. um þaö hversu margar fóstureyöingar viðkomandi kona eigi að baki. Slikar upplýsingar geta aö sjálf- sögöu haft áhrif á mat dómara i málinu. Ég er ekki aö áfellast lækna, heldur aö ekki skuli vera nein samræming 1 sllkum vott- oröum, og aö engar reglur skuli vera i gildi um hvaö i þeim eigi aö standa. En þaö er á fleiri sviðum sem reglur vantar. Þaö gerist æ tiöara aö ljósmyndir af fórnarlambi nauögara fylgja málinu — jafnvel af andliti eöa einstaka likams- hlutum ef um áverka er aö ræöa. Um slikar ljósmyndatökur eru heldur engar reglur og ég tel þær i raun óþarfar þar sem læknisvott- orö ætti aö koma aö sama gagni. Þaö verður aö hafa andlegt ástand konunnar I huga. Arnþrúöur: Læknisvottorö hef- ur siöasta oröiö varöandi likams- meiöingar og áverka. 1 málum sem þessum þarf aö afla sönnun- argagna, og varla er neitt sem sýnir betur hvernig kona er út- leikin en ljósmynd. Þá er llka nauösynlegt aö taka ljósmyndir af vettvangi, þar sem nauögunin var framin. Þaö er oft aö konurn- ar segja aö hann hafi dregiö sig inn i svo viöbjóöslega kompu, eöa eitthvaö þvi um likt, og ljósmynd- ir sýna helst hvernig umhverfiö raunverulega var. Ljósmyndir eru þvi nauösynlegar aö minu mati þar sem þær koma i veg fyr- ir huglægt mat rannsóknarmanns á aðstæöum eöa útliti konunnar. Myndirnar hafa meira gildi, rif ja upp og sýna aöstæöur, eins og þær eru. Þær ættu þvi frekar aö styrkja konuna en ekki. Okkur ber aö hafa samband við héraöslækninn i Kðpavogi eöa borgarlækni i Reykjavik varö- andi læknisskoðun kvennanna og þau samskipti hafa veriö mjög góö. Hins vegar tel ég brýnt aö koma upp sérhæföum lækni, sem hefur þjálfun i slikri skoöun og reynslu I aö tala viö stúlkur, sem eru andlega niöurbrotnar og illa til reika. Ef einhver einn eöa ákveönir menn önnuöust slikar skoöanir reglubundiö, yröi meira samræmi I vottoröunum. Fyrst ég erfarin aö koma með pantanir,þá má lika bæta á listann geölækni, sálfræöingi og félagsráögjafa! Ásdis: Þaö er furöulegt aö kon- um skuli ekki vera tryggö læknis- aöstoö, sérstaklega þegar um er aö ræöa mjög ungar stúlkur eöa þegar greinilegt er aö konan hef- ur oröiö fyrir mjög alvarlegu áfalli. Þaö ætti jafnvel aö koma i hlut rannsóknarlögreglunnar aö beina þessum konum rétta leiö til læknis. Marblettir og skrámur segja ekki allt — Sér mikið á þeim konum sem koma til Rannsóknarlögreglunn- ar? Arnþrúöur: Þaö er algengt, en konan getur veriö mun verr farin en marblettir og skrámur segja til um. Þaö sem er alvarlegast viö þessi mál er sálræni þátturinn, — þau áhrif sem verknaöurinn hefur á konuna. Niöurlægingin, óttinn, viöbjóöurinn og sjálfsdsökunin. Min reynsla er aö þessar konur þurfi mjög mikinn stuöning, bæöi meðan á rannsókn málsins stend- ur og eins eftir aö þvi er lokiö. Þaö getur hver og einn séö aö erfitt er aö kæra svona mál þar sem umræöuefniö er svo viö- kvæmt. —Er alltaf tekið mark á konu þegar hún kærir nauðgun? Arnþrúöur: Þaö er alltaf tekiö mark á kærum,en þaö kemur fyr- ir aö konur vita alls ekki aö það sem á þeim hefur veriö brotiö „...1 sex ár þagöi ég yfir þess- um hryllingi. Þaö var ekki fyrr en maöurinn minn og ég ákváö- um aö skilja aö ég leysti frá skjóöunni. Ég var nýgift og átti ársgam- alt barn og haföi aldrei veriö meö öörum en manninum minum. Ég var viö nám og flæktist meö þessum mönnum i barnaskap minum og reynslu- leysi I feröalag. Annar hélt mér meöan hinn kom vilja sinum fram. Þaö sem mér var efst I huga á meðan á þessu stóö var aö ég yrði drepin á eftir. Annaöhvort stungin eöa kyrkt. Ég gjörsam- lega fraus af hræöslu. Gat hvorki hreyft legg né liö, enda sennilega til litils. Ég hugsaöi um dóttur mina, sem ég senni- lega fengi ekki aö sjá framar.og manninn minn, sem ég elskaöi einan. Þegar þeir drösluöu mér inn I bflinn var ég I raun hissa aö ég skildi vera á lifi, aö þeir skildu ekki skilja mig eftir þar sem ég lá. Siöan kom skömmin. Af skömm þoröi ég ekki aö kæra. Þá myndi maöurinn minn óhjákvæmilega komast aö þessu og hugrekkiö var ekki meira á þeim tima hjá mér en aö ég þagöi þunnu hljóöi og gróf þennan hrylling innra meö mér. Þaö að leysa ekki frá skjóöunni hefur senni- lega haft djúpstæö áhrif á tilfinningalif mitt. T.d. fékk ég ekki fullnægingu meö manni minum i tvö ár. Alltaf kom nauögunin upp á milli min og hans. Eitt er vist aö ef ég heföi oröiö barnshafandi viö nauögunina þá var aöeins ein leiö út úr þvi og þaö var sjálfs- morö. Þannig hugsaöi ég þá og ég heföi framkvæmt þaö, — svo mikil var örvænting min. Mér fannst ég óhrein bæöi á sál og likama. Sennilega má rekja ýmis viöbrögö min gagnvart „sterkara kyninu” siöar til þessa atburöar. Ég skal ná mér niöri.... ”

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.