Þjóðviljinn - 12.07.1980, Qupperneq 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 12.—13. júll.
Helgin 12.—13. júil. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
HVERS VEGNA ER KONUM
NAUÐGAÐ?
Á hverjum degi ber fyrir augu
og eyru fréttir af árásum/ ofbeldi
og barsmíðum. Kvikmyndahúsin
og sjónvarpið fóðra okkur á alls
kynsófögnuði úr mannheimum, og
það er eins og fólk sé oröið ónæmt
fyrir hörmungum náungans, of-
beldið er að verða eins og hver
annar daglegur viðburður sem síð-
degispressan smjattar á, en eng-
inn gerir neitt til að sporna við.
Ofbeldi gegn konum innan og ut-
an heimila er einn hluti þessarar
bylgju og kannski sá hrottalegasti,
því að hann beinist ekki aðeins að
því að meiða og slá; það er líka
brotið á kynfrelsi kvenna; þær eru
niðurlægðar á viðurstyggilegan
hátt, með nauðgunum og likams-
meiðingum, enn ein staðfestingin
á því hvað konur eru varnarlausar
i sínu „kvennahlutverki".
Tilefni þeirrar hringborðsum-
ræðu sem hér fer á eftir er ritgerð
Ásdísar Rafnar lögfræðings um
nauðganir og meðferð nauðgunar-
mála innan dómskerfisins. Ásdís
lauk ritgerðinni vorið 1979 og er
hér á ferðinni mjög merkilegt
efni, sem nánast ekkert hefur
verið f jallað um á opinberum vett-
vangi. Okkur lék forfitni á að
kynnast stöðu nauðgunarmála hér
á landi og fengum til liðs við okkur
konur, sem hafa reynslu af með-
ferð þessara mála. Þær eru auk
Ásdísar, Arnþrúður Karlsdóttir og
Hildigunnur ólafsdóttir. Arn-
þrúður vinnur hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins. Þar hefur hún
starfað í þrjú ár, en vann áður sem
lögreglumaður. Hún hefur fengið
allmörg nauðgunarmál tii rann-
sóknar og hefur iðulega fylgt þeim
eftir með því að hafa samband við
þær konur sem fyrir nauðgun hafa
orðið. Hildigunnur ólafsdóttir, af-
brotaf ræðingur, hefur kennt
afbrotaf ræði i Háskóla Islands og í
fyrra sat hún samnorræna ráð-
stefnu um ofbeldi gegn konum, en
þar var mikið f jallað um nauðgun.
(Sjá Þjóðviljann 11.3. 1979).
En hvað er nauðgun? Um það
eru lögspekingar hreint ekki sam-
mála og misjafnar túlkanir eftir
löndum. Sumsstaðar er i laga-
ákvæðum f jallað um öll kynferðis-
afbrot undir sama hatti og ókyn-
bundið, annars staðar gilda ákveð-
in lög um kynferðisafbrot gegn
konum eingöngu. Viða er í þessum
lagabálkum eingöngu átt við
venjulegar samfarir, en sums
staðar eru allar þær aðferöir sem
nauðgari notar til að fá kynferðis-
lega fullnægingu túlkaðar sem
nauðgun. Víða er ekki viðurkennt
að hægt sé að nauðga karl-
mönnum. — „Karlmenn láta ekki
nauðga sér" segir í sögu finnsku
skáldkonunnar Mörtu Tikkanen. I
ritgerð sinni lætur Ásdís þá skoðun
í Ijós að norsk lagaákvæði um kyn-
ferðisafbrot séu mjög til fyrir-
myndar, en þau eru ókynbundin og
taka til hvers konar misnotkunar á
líkama annarra í þeim tilgangi að
svala kynferðislegum þörfum
sfnum.
„Prestsmaddama
eöa allragagn?”
Þegar litiB er til baka hafa
nauöganir alltaf veriö ein þeirra
hefndaraögeröa sem karlmenn
hafa gripiö til þegar átti aö niöur-
lægja andstæöinginn, fööur, eig-
inmann, bróöur eöa konuna
sjálfa. Nauöganir eru venjulega
ein af þeim hörmungum sem yfir
konur dynja á striðstlmum. Hér á
landi hafa veriö i gildi lög um
nauöganir á konum allt frá þjóö-
veldisöld. Þá var litiö á nauðgun
sem brot gegn ættinni og var hún
hefndarskyld. Mönnum var refs-
aö meö skóggangi, hvort sem um
nauögun var aö ræöa eöa tilraun
til nauögunar.
í lögum Krist jáns V. frá 1687 sem
raunar voru aldrei staöfest hér á
landi, lá liflát viö nauögun og var
tekiö fram aö nauögun skyldi ekki
veröa konu til álitshnekkis. Meö
hegningarlögunum frá 1869 voru
sett ný ákvæöi um skirlifisbrot og
hljóöaði nauögunarákvæöið á
þessa leiö: „Hver sem þröngvar
kvenmanni, er ekki hefir neitt ó-
orö á sér, til samræöis viö sig meö
ofbeldi eöa hótunum um ofbeldi
þegar i staö, sem henni mundi bú-
inn lifsháski af, skal sæta hegn-
ingarvinnu ekki skemur en 4 ár
eöa lifláti, ef mjög miklar sakir
eru. Sé slik meðferö höfö á kven-
manni, sem óorö er á, þá skal
beita vægari hegningu aö tiltölu,
ekki samt vægari en 2 ára betr-
unarhúsvinnu.”
Með nýjum hegningarlögum
sem sett voru 1940 var þessu
breytt og i ákvæöunum um
nauögun er ekki geröur greinar-
munur á „heiöviröri” konu og
þeirri sem „óorö” er á. Laga-
greinarnar taka bæöi til þess ef
um grófa valdbeitingu er aö ræöa
t.d. tilraun til kyrkingar eöa lif-
látshótun, og einnig til þess ef
konunni er hótaö ofbeldi eða meö
Hfláti og meiöingum hennar nán-
ustu. Þá telst þaö ennfremur
naugun ef karlmaöur kemst yfir
konu meö þvf aö svipta hana
sjálfræöi sinu t.d. meö þvi aö
hella hana ofurölvi eöa gefa henni
iyf -
Þetta eru þau lög um nauögun
sem enn eru i gildlen viö meöferö
nauögunarmála viröist sem enn
gæti áhrifa frá lögunum frá 1869,
þegar reynt er aö kanna fyrra lif
konunnar og þaö sett i niöurstöö-
ur aö kona hafi verið „allra
gagn” eins og segir i dómi einum,
uppkveönum 1972 af sýslumanni
úti á landi.
Nauögun er
líkamsárás
Hingaö til hafa fáar ef nokkrar
kannanir veriö geröar á andleg-
um og likamlegum áhrifum
nauögunar hér á landvenda virö-
istsú gamla skoöun liggja bak viö
meöferö og dóma aö konur eigi
sjálfar sökina á slikri árás, — þær
hafi meö framferöi sinu boöiö upp
á hana af þær ekki beinlinis vilja
láta nauöga sér. Meginniöurstað-
an I ritgerö Asdlsar, sem áöur var
vitnaö til er: aö þaö eigi aö lita á
og meta nauöganir sem likams-
árás, ofbeidisverknaö en ekki
sem kynferðislegt brot. Þá fyrst
megi búast viö aö dómstólar taki
á nauögunarkærum þannig aö
þær veröi ekki konunni til enn
meiri niöurlægingar. Ennfremur
sé þá fyrst von til þess aö konum
veröi dæmdar miskabætur fyrir
hiö andlega áfallsem oftast nær
fylgir i kjölfar þessa verknaöar.
En þaö þarf lika fleira til aö
koma, — auknar umræöur, upp-
lýsingar um eöli þessa verknaöar
og breytt almenningsviöhorf.
Viö gefum nú viömælendum
okkar oröiö:
—Hvaö er nauðgun i lagalegum
skilningi?
Asdis: íslensku lagaákvæöin
eru kynbundin, og telst nauögun
samkvæmt þeim brot gegn kyn-
frelsi kvenna og felst i misnotkun
karlmanns á likama konu i þeim
tilgangi aö fullnægja kynferöis-
legum þörfum karlmannsins, þ.e.
aö ná fram samförum meö of-
beldi. í hinum eiginlegu nauögun-
arákvæðum, greinum 194 — 199,
er aöeins átt viö venjulegar sam-
farir.
Þriöja hvert mál
fellt niöur
—Er mikiö um nauöganir hér á
landi?
Arnþrúður: Eftir aö Rannsókn-
arlögregla rikisins var stofnuö I
júli 1977 koma nær allar nauög-
unarkærur til hennar. Fyrsta
hálfa áriö bárust 8 nauögunar-
kærur, áriö 1978 voru kærurnar
18, en nýrri tölur liggja ekki fyrir.
Hiidigunnur: Eg hef grun um
að þau nauögunarmál sem koma
til kasta lögreglunnar séu aöeins
Htill hluti þeirra nauögana sem
framdar eru og kannski ekki
marktækt úrtak. Rannsóknir er-
lendis hafa bent til þess aö svo sé
og engin ástæöa er til aö ætla aö
þvi sé ööru visi farið hér á landi.
—Hvaö veröur um þau mál sem
berast til lögreglu?
Asdis: Einungis hluti þeirra fer
áfram tilrlkissaksóknara sem fer
meö ákæruvaldiö i þessum mál-
um og samkvæmt upplýsingum
hans er þriðja hvert mál sem til
hans berst fellt niöur eöa þá þaö
leiöir til ákæru samkvæmt öörum
ákvæöum hegningarlaga en 194.
gr. Sem dæmi um þetta er aö áriö
1978, þegar nauögunarkærurnar
voru 18 var aðeins ákært I 6 mál-
um, — hvaö um hin 12 varö veit
maður ekki.
—Segja þessar tölur eitthvaö
um tiöni nauögana?
Hildigunnur: Þaö held ég ekki,
þvi margar konur gefast upp viö
yfirheyrslurnar eöa draga kær-
urnartil baka af öðrum ástæöum,
fyrir utan allar þær sem ekki þora
aö kæra eða vilja þaö ekki.
Arnþrúöur: M in skoöun er sú að
allflestar þær konur sem er
nauögaö komi og kæri. Ef konan
hins vegar kennir sjálfri sér um,
þó þaö sé jafnvel ekki réttmætt þá
kann aö vera aö hún dragi kæruna
til baka á þeirri forsendu.
Hildigunnur: Ef konan þekkir
manninn vel eru mun minni likur
á þvi aö hún kæri hann, — sér-
staklega ef hún gerir sér grein
fyrir hvaöa þýöingu þaö gæti haft
fyrir félagslega stööu hans aö fá á
sig kæru og e.t.v. dóm. Hún álitur
kannski lika aö hún geti sjálfri sér
um kennt, brotiö smitar og hún
fyllist skömm.
Arnþrúöur: Ég sé ekki aö þaö
sé neitt jafnræöi rikjandi i þvi
hvernig almenningsálitiö tekur á
mannisem fengiöhefur dóm fyrir
nauðgun og svo hinum sem fengiö
hefur dóm fyrir fjársvik. Sá siö-
arnefndi er hetja, en nauögarinn
missir yfirleitt vinnunaog algengt
er aö hjónabandiö fer út um þúf-
ur, auk þess sem börnin snúa viö
honum baki. Þessar staöreyndir
eiga kannski sinn þátt I þvi
hversu konur eru spuröar mikiö,
— nauðgunarkæra er alvarlegt
félagslegt áfall fyrir þann sem
kæröur er. Hins vegar er þaö
mln reynsla aö óalgengt sé aö
konurnar þekki manninn, —
venjulegast vita þær ekkert um
hann og vita kannski ekki heldur
hvar þær voru.
—A hvaöa aidri eru þær konur
sem kæra nauögun?
Arnþrúöur: Þær eru á öllum
aldri, allt frá unglingum upp I
konur yfir fertugt. Fræöilega séö
getur engin kona, hvorki barn né
kona á áttræöisaldri, tryggt sig
gegn slikri árás. Þaö hefur engin
úttekt veriö gerö á uppruna þess-
ara kvenna, en samkvæmt minni
reynslu eru þær úr öllum stéttum.
Peningar og ætt tryggja engan
fyrir lögbroti.
—En hvers vegna er konum
nauögaö?
Hildigunnur: Nauöganir eru
aldagamalt fyrirbæri og meöan
litiö var á konur sem eign karl-
mannsins þá var nauögun ein
leiðin til aö niöurlægja óvininn
og hefna sin. Eftir aö almenn
mannréttindabarátta hófst og
réttindi kvenna til aö ráöa eigin
lifi voru viðurkennd, hefur álit
manna á nauögun breyst, þó aö
enn séu viö lýöi fordómar og
kvenfyrirlitning. Þaö má minna á
aö til skamms tima hefur þaö
veriö álitinn réttur eiginmanns aö
hafa samfarir viö konu sina hvort
sem henni er þaö ljúft eða leitt.
Þaö heitir stundum aö „neyta
réttar sins”. Nauðgun er hluti af
þvi ofbeldi sem viögengst i sam-
félaginu, og bitnar mjög á konum
sem alls ekki eru aldar upp viö
þaö aö verja sig gegn ofbeldi.
Asdis: Þaö er algengt að karl-
menn gera sér enga grein fyrir
þvi aö þeir hafi á nokkurn hátt
brotiö gegn konunni, sérstaklega
ef um er að ræöa unga menn eöa
hópnauöganir. Þeim viröist ekki
finnast þetta svo mikið mál. i
„Nei þýöir Já”
Arnþrúöur: Ég man sérstak-
lega eftir einum slikum sem sagöi
þegar reynt var aö gera honum
grein fyrir þvl hvaö hann haföi
gert: „Þetta var mátulegt á
bölvaða beljuna”. Þvi gleymi ég
seint. Þeir byrja venjulega á þvi
að neita; segja aö allt hafi fariö
fram meö hennar samþykki og
gera sér enga grein fyrir þvi aö
þeir hafi framiö neitt afbrot en
segja sem svo, — eigum viö ekki
aö hafa frumkvæöiö? Hérna má
benda á þá trú sem er oröin rót-
gróin i orötakinu: Þegar kona
segir nei, meinar hún já.og þaö
er furöulegt aö þetta skuli ekki
hafa veriö tekiö upp I oröabækur,
eins útbreidd og þessi skoöun er.
Karlarnir halda aö konan meini
ekkert meö þvi þegar hún segir
nei, — hún sé bara aö þykjast
vera siöprúö og sé I raun til i tusk-
iö. Konur eiga sjálfar sök á þvi aö
vissu leyti hversu mikiö viröing-
arleysi er fyrir oröum þeirra og
athöfnum, — þeim finnst þær
vera verkfæri karla. Þær hafa i
gegnum aldirnar vanist þvi aö
þjóna karlinum.
Asdis: Þaö er staöreynd i kvik-
myndum, bókmenntum og i allri
okkar menningu, að karlmenn
sem nauögarar eru sýndir sem
ruddafengnir einstaklingar og
kynferöislega brenglaöir menn.
Muniö þiö eftir „Sporvagninum
Girnd” sem var sýnt i Þjóðleik-
húsinu?
Arnþrúöur: Slikir einstakling-
ar eru i meirihluta þeirra sem
koma til Rannsóknarlögreglunn-
ar vegna nauögunar, og oft eiga
þessir m enn v iö ofbeldishneigö og
geðtruflanir aö striöa.
Hildigunnur: Einn hefur veriö
dæmdur ósakhæfur I nauðgunar-
máli og slikum mönnum á auö-
vitaö aö koma á viöeigandi stofn-
un.
„Bremsulaus bíll
í brekku”
Asdis: Getur þaö veriö aö goö-
sögnin um hina bráöu kynferöis-
legu hvöt karlmannsins sem kvaö
vera hömlulaus og veröa aö fá út-
rás, hafi áhrif á meðhöndlun
nauögunarmála, lika fyrir dómi?
Einn dómari oröaöi þaö þannig
viö mig aö þegar kynhneigö karl-
manns væri vakin væri hann eins
og bremsulaus bill i brekku! —
þaö væri ekki hægt aö stööva
hann; þetta hefur þær afleiöingar
aö þaö er i raun brot konunnar aö
vekja kynferöislöngun karls —
geri hún þaö meö einhverjum
hætti, klæöaburöi framkomu eöa
ööru; og hún veröur aö taka af-
leiöingum geröa sinna þegar hún
hefur „gefiö þeim tilefni” aö
þeirra mati. Þetta er ein goösögn-
in. Aöra má rekja til Freud, sem
sagöi: aö innst inni dreymdi allar
konur um aö láta nauöga sér, og
aö þessum hlutum er hlegiö i
gamanleikjum. Þaö gleymist aö
minnast á allt ofbeldiö sem fylgir,
— hver hefur nautn af þvi aö láta
misþyrma sér?
Hildigunnur: Kynferöisvitund
konunnar er svo brengluö, enda
nýtilkomið aö konur megi hafa
kynhvöt. Kynhvöt karlmannsins
er ennþá talin hin eina sanna.
Konurnar eiga aftur aö vera siö-
prúöar dúkkur sem bíöa eftir
riddaranum á hvita hestinum og
geri þær þaö ekki eru þær dæmd-
ar.
Hvaö telst
nauögun?
—Hvernig er tekiö á nauögun-
armálum?
Asdis: Þaö er venja I nauðgun-
armálum eins og i kærum út af
likamsárás aö kanna hvort konan
hafi hlotiö likamlegan áverka, en
hins vegar eru hugsanleg andleg
áhrif verknaöarins litt kðnnuð,
enda geta þau veriö lengi aö
koma fram. Þaö er athyglisvert
aö I mörgum málum sem sam-
kvæmt lagatúlkun ætti „rétti-
lega” aö teljast nauögun eöa til-
raun til nauðgunar er ekki dæmt
fyrir nauögun, heldur fyrir brot á
öörum hegningarlagagreinum,
fyrir tilraun til nauögunar eöa
fyrir brot á lagagreinum sem
fjalla um önnur kynferöisafbrot
en „holdlegt samræöi”. Norskir
dómstólar telja þaö t.d. nauðgun
ef árásarmaöurinn notar aöra
llkamshluta konunnar viö verkn-
aöinn en fæöingarveg hennar. Svo
er ekki samkvæmt islenskum lög-
um heldur yröi þá dæmt úr frá
öörum lagagreinum þar sem
refsing getur veriö mun vægari.
Ég tel aftur aö ef kona veröur fyr-
ir slikri árás kunni þaö jafnvel aö
valda henni mun meiri andlegum
þjáningum en ella, ekki sist ef
hún er ung. Spurningin er þvi:
hvaöer nauögun? í hegningarlög-
unum frá 1940 segir ekkert um
þaö hvaö sé fullframiö nauögun-
arbrot og þaö er þvi á valdi dóm-
stólanna aö ákveöa hvort um til-
raun, nauögun eöa brot á öörum
hegningarlagagreinum sé aö
ræöa.
Islenskir dómarar telja aö ekki
sé um fullframiö nauögunarbrot
aö ræöa fyrr en samfarahreyfing-
ar eru hafnar; sé svo ekki, er þaö
taliö tilraun til nauögunar og
dæmt I samræmi viö þaö. Hér
finnst mér dómarar ganga allt of
langt, — röskunin er orðin um leiö
og getnaöarlimurinn er kominn
inn I fæöingarveg konunnar —
brotiö gegn henni er jafnt hvort
sem karlinn heldur áfram eöa
ekki. 1 Sviþjóö eru fræöimenn
þeirrar skoöunar, aö hvaöa aö-
ferö sem er geti talist nauögun aö
öörum skilyröum fullnægöum.
Norömenn túlka sin lög mjög
rúmt.Spurningin er hvort eölilegt
sé aö gera svo miklar kröfur hér