Þjóðviljinn - 26.07.1980, Qupperneq 2
AF TÆKNILEGRI, FRÆÐI-
LEGRI CXj FÉLAGSLEGRI
SKILGREININGU Á
NAUÐGUN ÞAR SEM KON-
AN ER FÓRNARLAMBIÐ
I Vikuskammti mínum á sunnudaginn var,
gerði ég að umræðuefni stórsigur veikara
kynsins á ritstjórn Þjóðviljans og það hvernig
konur og hin margvíslegu litríku og óyfir-
stíganlegu vandamál kvenna, hafa nú
loks — sem betur fer— náð því að fá verðuga:
umf jöllun, eins og vera ber.
Sunnudagsblaðið 12. og 13. júlí var semsagt
til fyrirmyndar, lunginn af efni og innihaldi
helgað því sem fegurst er, blómlegast, best og
eigulegast í veröldinni, sjálfri konunni. Já,
hvorki meira né minna en tólf síður og þar af
forsíðan og tvær opnur í miðblaðinu.
Það sem ég ætla að gera hér að umræðuef ni
eru miðopnurnar og greinarnar sem þær
prýddu.
Greinarnar eru þrjár undir yf irskriftunum:
„Hvers vegna er konum nauðgað?"
„Hvað er nauðgun?"
„Hverjir nauðga?"
Þessi skrif eða umf jöllun er unnin í hópefli
fimm óvenju föngulegra og eigulegra kvenna,
sem allar eiga það sammerkt að hafa gilda
ástæðu til að bera talsverðan ugg i brjósti
- SIÐARI HLUTI
gagnvart ágengni karla, því alltaf hljótum við
nauðgarar að bera meiri fýsnir í brjósti og
búki, þegar stálgreindar kynþokkaverur eiga í
hlut, heldur en þegar á vegi okkar verða vit-
grönn greppitrýni, kynþokkalausar eins og
frystikistur og illa vaxnar í þokkabót.
Konur hafa mikið klifað á því í ræði og riti
undanfarin ár, þar sem rætt hefur verið um
réttarstöðu konunnar í mannlegu samfélagi,
að flest það sem karlar geri sé mótað af
megnri kvenfyrirlitningu. Þetta er áreiðan-
lega rétt. Annars væri því einfaldlega ekki
haldið fram af grandvörum konum.
Hitt verður að segja eins og er, að ef nokkur
skrif, sem ég hef séð um dagana, endurspegla
megna karlfyrirlitningu, þá eru það þessi þrjú
greinaafsprengi hópeflis fimmkvenmenning-
anna í umræddu Sunnudagsblaði Þjóðviljans.
Karlinn er hinn viðbjóðslegi hrotti, sem
lætur sér ekki nægja að misþyrma hreinum
meyjum, meiða og slá blásaklausa engla-
kroppa varnarlausra smámeyja, heldur bætir
gráu ofan á svart með því að brjóta á kyn-
frelsi þeirra og niðurlægja þær á viðbjóðs-
legan hátt, með nauðgunum og líkams-
meiðingum. Hann er einsog „bremsulaus bíll í
brekku" og, eins og segir orðrétt, „enn ein
staðfestingin á því hvað konan er varnarlaus í
sínu kvenhlutverki."
Ekki f lökrar eitt andartak að þessum nauðg-
anavísu fimmkvenmenningum að fræðilegur
möguleiki geti verið á því, að konan eigi eða
geti átt nokkurn hlut að máli þegar nauðgun er
uppi á teningnum.
I Vikuskammti mínum á sunnudaginn var,
lýsti ég þeirri sök á hendur mér, að ég væri
tvímælalaust nauðgari samkvæmt skilgrein-
ingu fimmkvenmenninganna. En það er ekki
nóg með það. Ég er það að auki karlmaður,
búinn að lifa í hálfa öld, og eftir að hafa öðlast
mína lífsreynslu, get ég aðeins sagt eitt: Ég
vona bara að ég sé búinn aðsjá og heyra meira
um dagana heldur en f immkvenmenningarnir
því annars eru þær ekki eins saklausar og þær
virðast vera.
Ég ætla þess vegna að slá botninn í þetta
með því að taka upp hanskann fyrir okkur
nauðgarana og drepa á nokkur atriði, sem
taka mætti fyrir f næsta hópef li um nauðgana-
fýsn djöfulsins kallpungaveldisins.
Er hugsanlegt að kona, sem er í hörku
heimaleikfimi með „bláókunnugum manni" í
hjónarúminu, þegar eiginmaðurinn kemur af
sjónum, hrópi nauðgun! og fari svo í mál?
Er hugsanlegt að gift kona sem verður ólétt
þegar maðurinn er úti á sjó telji sig hafa orðið
vanfæra við nauðgun?
Er það ekki vitað að talsvert er um það að
konur setji nauðgun á svið, annað hvort til að
ná sér niðri á körlum eða einfaldlega f f jár-
öflunarskyni með fjárkúgun?
Þótti fimmkvenmenningunum ekki ástæða
til að drepa aðeins á þessa tæknilegu mögu-
leika?
Og eitt vil ég taka skýrt fram: Það sem
gerði mig og alla mína vini og kunningja hérna
vestur í bæ (samkvæmt skilgreiningu fimm-
kvenmenninganna) að nauðgurum í dentfð,
var sú staðreymd að stelpurnar vissu, að ef
þær létu undan okkur af fúsum og frjálsum
vilja, fengju þær það orð á sig, að þær væru
einfaldlega helvítis mellur, og svoleiðis titla-
tog var nú ekki það æskilegasta f yrir ungar og
siðprúðar smámeyjar í Vesturbænum.
En hvað áhrærir skilgreininguna á því,
„hvað er nauðgun", nægir að benda á vísuna,
sem kvenkynssálfræðingurinn varpaði fram á
alheimsþinginu forðum:
Karlarnir ráðast á kvenfólkið,
kúga þær mjög tii fanga.
En nauðgun er búin, býst ég við,
þegar bæði er farið að langa.
Flosi.
Nœsta helgarskákmót á ísaflröi
og Bolungavík:
Miljón krónur
í aukaverðlaun
Akveöift hefur veriö aö næsta
Helgarskákmót timaritsins
Skákar og Skáksambands tslands
fari fram á tsafiröi og Bolungar-
vfk dagana 8. til 10. ágúst nk. Þar
veröa flestir snjöllustu skákmenn
landsins meöal þátttakenda svo
sem Friörik Ólafsson, Helgi
ólafsson, Jón L. Arnason,
Margeir Pétursson, Jóhann
Hjartarson, Guömundur Agústs-
son o.m. fl.
Tvö mót hafa þegar veriö tefld,
það fyrra i Fjölbrautarskólanum
i Keflavik, I samvinnu viö Samtök
sveitarfélaga á Suöurnesjum.
Þar sigraði Helgi ólafsson meö 5
v. af ömögulegum. 12,3. sæti uröu
Margeir Pétursson og Friörik
Ólafsson, einnig meö 5 v. og i 4.-6.
sæti uröu þeir Guöm. Sigurjóns
son, Jón L. Arnason og Hilmar
Karlsson meö 41/2 v.
Annaö mótiö var teflt á
Hótelinu i Borgarnesi i samvinnu
viö Hótel Borgarnes og Borgar-
neshrepp, en á hótelinu var veriö
aö taka nýja gistiálmu i notkun. 1
Borgarnesi sigraöi Guöm. Sigur-
jónsson meö 51/2 v. af 6. 233. Helgi
Ólafsson og Jón L. Árnason 5v. 4,-
5. Karl Þorsteins. og Jóhann
Hjartarson 41/2 v. Fjóra vinninga
hlutu Elvar Guömundsson, Friö-
rik Ólafsson, Guömundur Agústs-
son og Asgeir Þ. Arnason.
Eins og fram hefur komiö i
fréttum af hinum fyrri mótum þá
hafa ungir Bolvikinar staöiö sig
meö miklum ágætum á mótunum.
Ljóst er aö þar vestra eru margir
*snjallir skákmenn og vist aö þeir
ætla sér aö v'eita veröugt viönám
aökomumönnum.
A Helgarskákmótinu 8.-10.
ágilst n.k. sem haldiö er i sam
vinnu viö bæjarfélögin i
Bolungarvik og Isafiröi, veröur
keppt aö veröugum veröíaunum:
1. veröl. 300. þúsund kr., 2. 200.
þúsund, 3. 100 þúsund kr. Þá eru
sérstök kvennaverölaun, kr. 50.
þúsund, veröi þrjár konur meö og
heyrst hefur aö svo geti oröiö.
Sá unglingur, yngri en 14 ára,
sem bestum árangri nær, fær aö
Hér eru þátttakendur á siöasta helgarskákmóti sem haidiö var I Hótel Borgarnesi. Fremst eru þrfr efstu
menn I punktakeppninni til aukaverölauna, frá v. Helgi ólafsson (40p.). Guðmundur Sigurjónsson
(35p.) og Jón L. Árnason (20p.). — Ljósm.: eik.
launum fria skólavist i eina viku á
Skákskólanum aö Kirkjubæjar-
klaustri næsta sumar. A Helgar-
skákmótunum er einnig teflt um
aukaverölaun, kr, 1.000.000, en
þau vinnast eftir ákveönu punkta-
kerfi þar sem 1. lætiö gefur 25
punkta, 2, 15, 3. 12, 4. 10, 5. 8, 6. 6,
7. 4, 8. 3, 9. 2 og 10. 1 punkt. Eftir
fyrstu mótin stendur keppnin um
aukaverðlaunin þannig: 1. Helgi
Ólafsson 40. p., 2. Guöm. Sigur-
jónsson 35, 3. Jón L. Árnason 20, 4.
Friörik 'Olafsson 16, 5. Margeir
Pétursson 15, 6. Jóhann Hjartar-
son 14, 7. Karl Þorsteinsson 8, 8.-
9. Hilmar Karlson og Elvar Guö-
mundsson 6, 10.-11. Guömundur
Agústsson og Sævar Bjarnason 4,
12. Asgeir Þ. Árnason 3 og 13.
Pálmar Breiðfjörö 1. p.
Þeir sem áhuga hafa á þátttöku
ættu að tilkynna sig til Tima-
ritsins Skák, simi 31975, og 15899
eöa i sima Skáksambands
Islands, 27570, milli kl. 2 og 5 alla
virka daga, þvi skipuleggja þarf
feröir og gistingu.
Skákstjóri veröur Jóhann Þ
Jónsson.