Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN HELGIN 26.-27. júll Sigriður Pálsdóttir og Þorbjörn Magnússon öryrkjar A tslandi eru 6843 menn skráöir 50% öryrkjar eöa meira. Þetta eru ýmist andlegir öryrkjar eöa Ukamlegir eöa hvort tveggja. Konur eru fleirienkarlareöa 3962, karlar eru 2881. Sumir eru á dvalarstofnunum, þeir eru færri. Margir eru fæddir öryrkjar, aörir hafa haft fulla heilsu en misst hana. Þeir hinir sömu hafa unniö margvisleg störf I þjóöfélaginu og eru aö þvf leyti sundurleitur hópur. En nd er þeim þaö sameig- inlegt aö vera öryrkjar og báa þvf í flestum tilvikum viö nokkuö svipuö kjör. Þau kjör sem islenska rfkiö ákveöur þeim. Grunnlifeyrir frá Trygginga- stofnun rikisins er ml f júlí kr. 91.915 á mán. og tekjutrygging kr. 88.615. Þeir sem biia einir á heimili geta sótt um heimilisupp- bót og er hUn kr. 31.544. Þá geta þeir sem mikil Utgjöld hafa vegna lyfja og læknisþjónustu fengiö sérstaka uppbót til aö mæta þeim Utgjöldum. Einnig fá öryrkjar san bUa einir frian sima og ó- keypis afnot af Utvarpi og sjón- varpi.Hjón sem bæöieru öryrkjar fá 90% af llfeyri og tekju- tryggingu tveggja einstaklinga. Algengustu mánaöarlaun öryrkja eru þvi kr. 180.566 á mánuöi. Til samanburöar má geta þess aö einn lægsti verkamannataxt- inner95þUs.kr.hærrieöa 275þús. á mán.og þykir lUsaraun enda viöurkennt bæöi af læröum og leikum, aö enginn lifi af þeim launum. Einstæöum námsmanni eru reiknaöar sömu tekjur eöa um 275 þús. á mán. Hvers eiga öryrkjar aö gjalda aö þeim sé ekki einu sinni ætlaöur lág- markslifeyrir? Þetta á viö um þá sem ekki eru á dvalarstofnunum. Hinir sem þar éru — eöa hafa veriö fjóra Laun: Grunnlífeyrir kr. 91.915 Tekjutrygging kr. 88.615 Heimilisuppbót kr. 31.544 Algengustu tekjur öryrkja kr. 180.566 Vasapeningar/eyðslueyrir öryrkja á stofnun kr. 23 þús á mánuði. tíJLJ' jHI tjf mf JfQ&M ' m^É 1 ■V* i Sigriöur Pálsdóttir og Þorbjörn Magnússon. Sigriöur er meö trefilinn góöa sem hún villekki gefa auövaldinu. Hahn kostaöi um jól 18 þús. kr. út úr búö en Sigriöi voru boönar fyrir hann 8 þús. Þaö var bæöi fyrir vinnu og efni. Myndin er tekin I herbergi Þorbjörns, en eins og sjá má á hann mikiö og gott bókasafn. HOFUM HVORKI SAMNINGS- NÉ VERKFALLSRÉTT” OG KOMUMST EKKI í FERÐALAG Á NÆSTUNNI mán. á sjúkrahúsi eöa stofnun á tveimur árum — fá heilar 23 þús- und krónur á mánuöi. Þaö heita vasapeningar. Fæöi, húsnæöi, þjónusta og læknishjálp eru veitt á stofnuninni, en 23 þúsundin eiga aö nægja fyrir öllu ööru. Hvers vegna eru kjörin svona slæm? Er þaö vegna þess aö öryrkjar eru ekki stétt sem getur fariö i verkfall? Ég ræddi viö tvo öryrkja um lif þeirra og kjör, þau Sigrföi Pálsdóttur og Þor- björn Magniisson. Þau bUa bæöi I húsi Sjálfsbjargar I HátUni 12. Hanner á dvalarheimilinu en hUn i leiguibUÖ i hUsinu. Eg spyr þau fyrst hvort þau séu sérstök stétt sem geti gert kjarakröfu eins og venjulegar starfsstéttir. Þorbjörn: Nei og já. Viö öryrkjar erum hópur sem á sameiginlegra hagsmuna aö gæta en erum frábrugönir starfsstétt- um aö þvi leyti aö viö getum sára- litil áhrif haft á kjör okkar. Viö höfum ekki samningsrétt og ekki getum viö fariö i verkfall. Okkur er þvi skammtaö einhliöa. Á nástrái Sigrföur: Ég veit ekki hvaö maöur er kallaöur,- ætli þaö sé nokkuö. En ráöamönnum finnst sennilega aö viö höfum ágæt kjör eftir aö tekjutryggingin komst á. HUn var reyndar mikil bót og MagnUsi Kjartanssyni aö þakka. Ég held aö tekjutryggingin hafi hreinlega komiö i veg fyrir aö sumir öryrkjar hrykkju upp af. Eöa hvernig helduröu aö þaö væri aö lifa af 92 þUs. kr. á mán. nUna enþaöer grunnlifeyririnn. Éger meö tekjutryggingu og heimilis- uppbót og viöbót vegna sjUkra- kostnaöar. Lika frían sima og sjónvarp og Utvarp. Allt þetta hjálpar mikiö en samt er ég á ná- strái.Ég rétt get haldiö bilnum en án hans kemst ég ekkert. Svona eru nU kjörin manns eftir langa starfsævi i alls konar verkum. Ég vannsiöastáriö 1971ogvar þá hjá borginni. en komst aldrei I lif- eyrissjóö. Þorbjörn: Viö sem bUum á dvalarheimilum erum kannski enn verr stödd þó aö ég sé ekki aö fara i mannjöfnuö. Viö fáum 23 þús.á mánuöi.þaö á aö nægja okk- ur fyrir öllu utan fæöis, hús- næöiskostnaöar og þjónustu og_ læknishjálpar. Þar meö talin föt og hvaöeina. Og viö fáum þetta smáræöi ekki einu sinni mánaöarlega heldur er þetta dregiö saman og greitt Ut á þriggja mánaöa fresti — eftirá. Þaö þykir okkur ansi hart. Ég held aö heyröist hljóö Ur horni frá ymsum væri kaupiö dregiö þannig saman og verö- bólgunni leyft aö brenna upp hluta þess. Viö öryrkjar viljum helst fá þetta Utborgaö mánaöar- lega og alls ekki sjaldnar en á tveggja mánaöa fresti. Mér er vel kunnugt um þaö, aö margir eru búnir aö slá lán fyrir allri upp- hæöinni þegar hún loksins kemur og eru alltaf jafntómhentir. Þaö er von, þetta er ekki neitt, varla fyrir si'garettum hvaö þá annaö. Ég reyki pipu,þaö er ódýrara. Ég veit lika aö margir öryrkjar eru sárafátækir. Sumir hafa stuöning af ættingjum.en alls ekki allir. Þá er bara aö láta sig hafa þaö og veita sér ekkert. Skór siðast 1975 Sigríöur: Ég verö aö hugsa mig vel um ef ég ætla aö eyöa I bfómiöa. og skó hef ég ekki keypt mér sföan 1975. Ég reyndi aö drýgja tekjurnar svolitiö meö prjónaskap, en hætti þvi. Ég nenni ekki aö vera aö vinna nán- ast ókeypis fyrir auövaldiö; nóg er nú samt. Mér voru boönar 8 þús. krdnur fyrir trefilinn sem ég er meö en hann var seldur UtUr bUÖ fyrir 18.150. Þá sagöi ég nei takk. Ég get þá alveg eins gefiö einhverjum þaö sem ég prjóna. Þorbjörn: Sumir sem hafa kraft I höndunum og eru lagnir reyna stundum aö bæta fjárhag- inn meö þvi aö selja munina sem þeir gera. Ég er nú lélegur i höndunum og geri lltiö af sliku en ég sé um Utlán á bókum hér i hUs- inu frá Borgarbdkasafninu og sé lika um matarmiöana. Ekki til aö fá greitt fyrir; þetta er þegn- skylduvinna. Komum með sætin með okkur — Hvaö getiö þiö gert ykkur til dægrastyttingar? Sigriöur: Ég er mest ein meö sjálfri mér. Fyrir utan peninga- leysi þá á ég erfitt meö aö bera mig um. Fóturinn er svo slæmur. Ég er meö gervifót, en reyni samt aö sjá um min húsverk sjálf, geri þaö meöan ég get skriöiö. Ég er svo gamaldags aö ég vil ekki vera nein ölmusumanneskja. Þess vegna vil ég ekki fá húshjálp. Þorbjörn: Viö hjólastólafólk búum viö alveg sérstakan lúxus þegar viö förum I bió. Þá þurfum viö aldrei neitt aö borga vegna þess aö viö komum meö sætin meö okkur. Sama er aö segja um leikhúsin og aö öllum öörum ó- löstuöum vil ég taka fram aö I ÞjóöleikhUsinu er alltaf tekiö sér- staklega velá móti okkur. Starfs- fólkiö þa r v ill allt fyrir okkur gera viö mjög erfiöar aöstæöur. Ég fer sjaldnar i Iönó en viö eigum leik- urum þar mikiö aö þakka. Þeir æföu upp heilt prógramm áriö 1977 til aö afla fjár til viö- byggingarinnar viö hUsiö hérna. Viö förum miklu meira eftir aö feröaþjónustan var tekin upp. Bilarnir eru ágætir og þaö kostar i þá jafnt og í strætó. Svo ferö- umst viö lika eftir þvi sem viö getum. í hitteöfyrra var stofnaö- ur feröasjóöur IbUanna hér I Há- túni 12 aö frumkvæöi Sjálfsbjarg- ar á Isafiröi. Oll sveitarfélögin á Vestfjöröum gáfu i sjóöinn og sumariö eftir fórum viö 8 saman til Noregs. Þaö var mjög ánægju- leg ferö. Um daginn fórum viö til Vestmannaeyja,en nú er sjóöur- inn uppurinn svo aö allt Utlit er fyrir aö viö komumst ekki i feröa- lag á næstunni. Vantar miljón — Hvaöhelduröu aö þurfi mikiö til aö hægt sé aö efna til a.m.k. innanlandsferöar? Þorbjörn: Ein miljón ætti aö duga til þess. Utanlandsferö yröi miklu dýrari. Viö geröum I vor grein fyrir málinu á fundi I félag- inu og sendum siöan fréttatil- kynningu I alla fjölmiöla meö til- mælum um aöstoö. Enginn opin- ber aöili hefur svaraö eöa lagt neitt fram. Aöeins einn einkaaöili hefur gefiö okkur 16 þús. krónur. En þaö er of litiö. — Hvernig standa öryrkjar aö sinni kjarabarattu? Sigrföur: Þaö fer nú heldur lit- iö fyrir henni. Viö fórum I göngu fyrir tveimur árum og eftir hana finnst mér aö ýmislegt hafi breyst til bdta. T.d. er fariö hér I Reykja- vik aö lagfæra gangstéttarbrUnir sums staöar. Annars finnst mér alltof margir lita á þessa háu herra sem einhvers konar fööur- lega forsjón og aö maöur eigi bara aö vera þakklátur fyrir allt. Auðvitaö er vert aö þakka þaö sem vel er gert, en I kapltallsku þjóöfélagi veröur gæöunum alltaf misskipt. Erum hógvær hópur Þorbjörn: Viö erum vist á- reiöanlega hógvær hópur,en maö- ur má samt ekki ganga of hart fram. Þaö getur haft neikvæö á- hrif. Ég held aö smám saman batni kjör öryrkja,en aöeins meö nógu miklum þrýstingi. Sigriöur: Ég veit þaö ekki. Ætli þetta batni nokkuö — og þó. Mér fannst þaö muna miklu þegar lyf- in lækkuöu I vor og llka gjaldiö á göngudeildinni. Þangaö þarf ég aöfara á nokkurra vikna fresti og nú kostar heimsóknin ekki nema 1350 kr. en var 2000. Þaö munar um minna. Þorbjörn: Ég vildi bara aö ég gæti komiö ráöamönnum I skilning um aö þaö er nógu sárt aö missa heilsuna þó aö ekki þurfi peningaleysi og oft einangrun aö bætast viö. Mér finnst aö einmitt þeir sem biía viö heilsubrest ættu fremur en aörir — ef þarf aö velja úr — aö geta fengiö þaö mesta Ut úr lifinu miöaö viö þá heilsu sem þeir hafa. Hugarfarsbreyting Sigriöur: Og gleymdu ekki hús- næöismálunum. Viöa I heima- hUsum er ekki auðvelt fyrir fólk i hjólastól aö komast um. Þá væri æskilegt aö komast I hús eins og þetta, en það eru ekki allir sem þess þyrftu. Þorbjörn: Aö visu er nú hægt aö fáhUsnæöismálastjórnarlán til aö breyta húsnæöinu vegna fatlaðra, en þaö eru ekki allir sem hafa efni á aö standa undir afborgunum af slikum lánum. Sigriöur: Samt sem áöur finnst mér spor I áttina aö fariö er aö ræöa mál öryrkja. Ég held aö hugarfarsbreyting almennings sé aö hefjast og mér finnst að á sl. tveimur árum hafi meira verið gert i þessum málum en á 20 ár- um þar á undan. —hs

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.