Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 29

Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 29
HELGIN 26.-27. júil WÓÐVILJINN — StÐA 2 9 Síðustu forvöð á Kjarvalsstöðum Nú um helgina eru síöustu for- vöö aö sjá hinar glæsilegu yfir- litssýningar á verkum Kristínar Jdnsdóttur og Geröar Helgadótt- ur aö Kjarvalsstööum. Sýningin hefur hlotiö frábæra dóma og mjög góöa aösókn, enda er hér um einstæöan listaviöburö aö ræöa. Þeir sem enn hafa ekki komið þvi i verk aö sjá sýn- ingamar skal bent á aö nota helg- ina til þess, henni veröur vart bet- ur variö. Aö Kjarvalsstööum hangir einnig uppi myndröö Ragnheiöar Jónsddttur „Ég er...”, en þá myndröð vann listakonan sér- staklega fyrir Listahátiö. — ih. Harlan héraö, USA — áreiöanlega ein merkasta myndin á bandarlsku kvikmyndavikunni. Bandarísk kvikmynda- vika í Regnboganum Einsog sagt er frá á öörum staö I blaöinu hefst bandarisk kvik- myndavika i Regnboganum i dag, laugardag. Dagskrá vikunnar fyrstu þrjá dagana veröur sem hér segir: Laugardagur: Kl. 3 — Flug kondórsins frá Gossamer. Heimildarmynd um flug eftir Ben Shedd. Engar lygar, stutt, leikin heimildar- mynd um nauögun, eftir Mit- chell, Block, og Speeding, um of hraðan akstur á þjóövegum, einnig eftir Mitchell Block. Þeir Shedd og Block eru gestir vik- unnar og munu svara fyrir- spurnum áhorfenda aö sýning- unni lokinni. Kl. 5 — Harlan héraö USA. Merk mynd um verkfall námu- verkamanna i Kentucky, eftir Barbara Kopple. Kl. 7 — Harlan héraö, USA. Kl. 9 — Siöasti blái djöfullinn. Mynd um djass i Kansas City, eftir Bruce Ricker. Viö sögu koma meistararnir Count Basie, Big Joe Turner og Jay McShann. Kl. 11 — Siöasti blái djöfullinn. Sunnudagur: Tónlistarmyndir. Kl. 3 — Töframaöurinn frá Vákesa.Um djassgitaristann Les Paul, eftir Catherine Orentreich. Elvin Jones: engum trommara llkur.Um manninn sem kallaöur hefur verið besti djasstrymbill heims, eftir Edward Grey. Kl. 5 — Hertoginn á túr —um Duke Ellington og hljómsveit. Kl. 7 — Hertoginn á túr. Kl. 9 — Slöasti blái djöfullinn. Kl. 11 — Siöasti blái djöfullinn. Mánudagur: Þjóöfélagsmy ndir. Kl. 3 — óróagemsar (The Wobblies). Um verkalýös- samtökin International Workers of the World, sem stofnuð voru 1905 og lamin niöur meö harðri hendi rúmum áratug siöar. Samtökin sem Joe Hill var félagi I. Athyglisverö mynd um sögu bandariskrar verkalýöshreyf- ingar. Stjórnendur Stewart Bird. og Deborah Shaffer. Kl. 5 — óróagemsar. Kl. 7 — Amerlka glötuö og heimt. Um kreppuárin I Banda- rikjunum og fyrstu styrjaldar- árin. Myndin er unnin úr mynd- efni frá þessum tima öryggis- leysis og erfiöleika. Stjórnendur: Tom Johnson og Lance Bird. Kl. 9 — Amerlka glötuö og heimt. Kl. 11 — Harlan héraö USA. Á þríhjóli í Lindarbæ Nú um helgina verða for- sýningar i Lindarbæ á leikritinu Þrihjóliö eftir Arrabal. Sýningar veröa á sunnudag kl. 20.30 og siðan á þriöjudag og miövikudag kl. 20.30. Leikritið fjallar um utangarösmenn sem lifa i eigin heimi,. Þetta er sérkennilegt fólk sem örugglega vekur bæöi hlátur og grát, þar sem þau sofa á bekkjum, hringsóla á þrihjóli og óttast lögregluna eins og pestina, enda ógnun viö þeirra litla sam- félag sem þróast I afkima skemmtigarös einhvers staöar á vorri jörö. —ká Rauður Skoda pardus árg. 1976 til sölu. Ekinn 42.000 km. Vel með farinn bill. Upplýsingar i sima 71891, laugardag og sunnudag. Flugkabarett að ljúka Flugkabarett veröur sýndur á Hótel Borg I siöasta sinn I kvöld, laugardag, kl. 10. Þaö er Júlileikhúsiö sem sýnir kabarettinn. Höfundar hans eru Erlingur Gislason, Þórunn Siguröardóttir og Brynja Benediktsdóttir, sem jafnframt er leikstjóri. Gestum Borgarinnar er boöið I klukkutima flugferö til New York og heim aftur, og gerist ýmislegt á þeirri leið. Leikendur eru Gisli Rúnar Jónsson, Edda Þórarinsdóttir, Edda Björg- vinsdóttir, Guölaug Marla Bjarnadóttir og Saga Jóns- dóttir. Og svo er einn leikandi enn, sem aö visu sést ekki, en heyrist þeim mun betur: ólafur Ragnar Grimsson. Margir hafa velt þvi fyrir sér á sýningum, hvort þetta væri i raun og veru rödd Olafs, og nú höfum viö fengiö þaö staöfest. Þaö er ekki illa til fundiö, aö fá Ólaf til að leika hlutverk forstjóra Loftferða- félagsins”. Flugkabarett er m.a. ádeila á Flueleiði. ih Tónleikar í Skálholts- kirkju Nú um helgina er efnt til sumartónleika I Skálholts- kirkju einsog fimm undan- farin sumur. Tónleikar þess- ir, sem standa yfir I u.þ.b. klukkutima, eru i dag, laug- ardag, og á morgun og hefj- ast kl. 15 báöa dagana. Aögangur aö tónleikunum er ókeypis og eru þeir eink- um ætlaöir feröamönnum og velunnurum staöarins, aö þeir geti notið hvildar og hressingar dagstund I Skál- holti. Hægt er aö fá kaffiveit- ingar á staönum aö loknum tónleikum. Messaö er I Skál- holtskirkju sunnudaga kl. 17. Sumartónleikar hefjast aö þessu sinni meö samleik Ing- vars Jónssonar lágfiöluleik- ara og Helgu Ingólfsdóttur semballeikara. Ingvar Jónasson starfar I Sviþjóö en kemur nú gagngert til lands- ins til aö leika i Skálholti. Ingvar og Helga munu á tónleikunum frumflytja nýtt verk eftir Jónas Tómasson. Nefnist verkiö „Notturno” og er samið meö kirkjuna og Skálholtsstaö i huga. Á tón- leikaskrá þeirra eru einnig verk eftir Jón Asgeirsson, M. Reger, M. Corrette og J. S. Bach. Sýningu Daða að ljúka Sýningu þeirri, sem staöiö hefur á Mokka-kaffi undan- fariö, á teikningum Daöa Halldórssonar, fer senn aö ljúka. Daöi er Húsvikingur og notar hann eingöngu blý- ant og kolkrit, viö gerö mynda sinna. Efni myndanna sækir hann gjarnan i hringavitleysu neysluþjóðfélagsins og lýsir fáránleika margs, er þar má sjá. (Fréttatilkynning) T ónlistarkennarar Tónlistarskólinn i Stykkishólmi óskar að ráða til starfa fyrir næsta skólaár eftir- talda starfsmenn: Skólastjóra, aðalkennslugrein blásturs- hljóðfæri. Kennara, aðalkennslugrein tónfræði og ýmis hljóðfæri. Allar upplýsingar gefa Bjarni Lárentinus- son form. skólanefndar i sima 93-8219 og Sturla Böðvarsson, sveitarstjóri Stykkis- hólms i sima 93-8136. Skólanefnd Tónlistarskóla Stykkishólms Hitaveita Akureyrar auglýsir hér með lausa til umsóknar stöðu TÆKNIFULLTRÚA. Starfið felst i umsjón með öllum tæknileg- um málum, þe. rekstri og viðhaldi alls veitukerfisins og daglegri stjórnun verk- stjóra, vélgæslu o.fl. Krafist er vélaverkfræði- og véltæknifræði menntunar, þekking á dælubúnaði æski- leg. Umsóknum skal skila fyrir 20. ágúst n.k. til hitaveitustjóra eða fulltrúa hans, sem veita allar nánari upplýsingar. Hitaveita Akureyrar. Skrifstofustarf: Arkitektafélag íslands óskar eftir manni til að reka skrifstofu félagsins hálfan dag- inn. Byrjunarlaun skv. 16. launaflokki BSRB. Vélritunar- og bókfærslukunnátta nauð- synleg. Umsóknir sendist til Arkitektafélags Is- lands, Freyjugötu 41,101 Reykjavik, fyrir 30. júli n.k. Hitaveita Reykjavíkur óskar eftir að ráða rafeindaverkfræðing eða tæknifræðing til starfa við stjórnkerfi og annan rafeindabúnað veitunnar. Skriflegar umsóknir sendist skrifstofu Hitaveitunnar Drápuhlið 14, fyrir 10. ágúst n.k. Nánari upplýsingar gefur skrifstofan i sima 25520. Skrifstofustarf við Raunvisindastofnun Háskólans er laust til umsóknar. Þekking á meðferð banka- og tollskjala æskileg ásamt góðri tungumálakunnáttu. Upplýsingar veittar i sima 21340 kl. 10—12 næstu daga. Umsóknir sendist Raunvis- indastofnun Háskólans Dunhaga 3 fyrir 31 júli 1980.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.