Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 11
Helgin 12,-13. J«UI. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Böövar Guömundsson skrifar: Um daginn fór ég i bió aó sjá islenska mynd sem heitir óöal feftranna. Hún er eftir Islenskan mann sem heitir Hrafn Gunn- laugsson. Ég les nvl ekki mikió ritdóma og svoleiðis en ég hafði séð aö það var veriö að tala um þessa mynd i blöðunum. Það var að minnsta kosti oft búið að minnast á hana i Þjóðviljanum. Myndin fjallar um margt milli himins og jarðar og er stundum ákaflega sorgleg. Hún byrjar eftir jarðarför heima á bænum. Það var bóndinn sem verið var að jarða. Svo fer ein- hver maöur að halda ræðu og þá hætta allir að tala og drekka kaffiö. Svo fara bræöurnir út að gá aö traktornum, fyrst sá eldri og svo sá yngri. Traktorinn reynist vera alveg i lagi og þá fá þeir lánaðan rangerover hjá einhverjum manni og keyra i Húsafell. Svo hitta þeir ein- hverjar stelpur sem vilja endi- lega hafa parti i hlöðunni en það vill mamman ekki og þá fer eldri sonurinn upp á þak eftir að vera búinn að drekka vinið sem stelpurnar komu meö og dettur ofanaf þakinu sem var allt of bratt. Eftir að hann er dottinn missir hann vitiö og er lamaður. Svo fer yngri strákurinn i skóla suöur og það kemur maður meö rútunni til að moka heima á bænum. Maðurinn verður hrif- inn af stelpunni en mamman á bænum vill ekki að hann eigi hana. Svo fer hún, mamman, út að keyra með kaupfélagsstjór- anum og á meðan gefur maður- inn stelpunni ástardrykk og þau fara að sofa saman og loka að sér en á meðan kemur mamm- an heim og bankar á dyrnar hjá þeim. En stúlkan er heyrnar- laus og heyrir ekki svo mamm- an kemst ekki inn. Mamman veröur voða reið og lætur gelda folann á bænum, en það þurfti hvort sem er aö gera, þvi það er alltaf gert á vorin. Strákurinn sem fór suður að læra lendir i voða ævintýrum. Fyrst fer hann að hitta konu sem bróðir hans þekkti sem datt ofan af þakinu. Svo kemur hann til konunnar og þá á hún enga peninga og viö drykkjuvandamál að striða. Svo lætur strákurinn hana hafa peningana sem kaupfér lagsstjórinn hafði látiö hann hafa, en það finnst mér að hann hefði ekki átt að gera þvf svona konur gefa áreiöanlega ekki til baka heldur drekka fyrir afganginn. Svo fer strákurinn á ball og á bar en hann þekkir engan af þvi hann á svo litla peninga og er svo óvanur að tala. Svo fer hann heim og þá eru einhverjir menn búnir aö finna veiði i ánni á stað sem heitir Barnafossar og er á Loftleiöaplakatinu og marg- ir útlendingar vita alveg um.Svo vill mamman ekki selja manninum sem fann veiðina veiðistaðinn eða jörð- ina alla svo maðurinn veröur aö tala viö kaupfélagsstjór- ann sem er voða rlkur og á sundlaug og unga dóttur. Svo talar kaupfélagsstjórinn viö mömmuna og segir henni að hún skuldi og sonurinn sé i skóla fyrir sunnan og sonurinn fer með systur slna sem er heyrn- arlaus til læknis sem er voða góöur viö þau og segir að hún sé komin marga mánuði á leið eftir manninn sem átti að moka. Stelpan heyrir þetta ekki af þvi hún er heyrnarlaus svo læknir- inn talar bara við bróður hennar og segir honum að hún gangi með heilbrigðan strák. Bróöir- inn verður voöa góður við systur sina og svo selur mamman jörð- ina þeim sem fann veiðina. Svo fer hann að byggja veiðihús sem er alveg nýtt þvi hann er voða rikur. Strákurinn sér nú að mamman hafði ekki selt nógu dýrt þvi þau skulduöu alveg voöa mikiö i kaupfélaginu. Strákurinn fer á traktornum að hitta kaupfélagsstjórann og biðja hann að gefa þeim skuld- irnar eða eitthvað svoleiðis en þá er kaupfélagiö farið á haus- inn og dóttir hans er aö læra að synda i voða finni sundlaug I húsinu svo strákurinn stelur bilnum og keyrir á simastaur og skemmir vatnskassann. Svo lætur kaupfélagsstjórinn setja strákinn I fangelsi en bróöir hans sem er alþingismaöur og hélt ræðuna I jarðarförinni nær honum úr fangelsinu, sem mér finnst ekki gott, þvi strákurinn hefði alveg mátt sitja lengur innieftir aðhafa skemmt bilinn, en bróðirinn er bara svona góð- ur og ræður öllu um lögin. Svo fer strákurinn heim að mála gamla húsið og horfa á rútuna keyra um veginn og ætl- ar alltaf að vera góður. Mér finnst þetta góð mynd og miklu meira gaman að sjá svona myndir heldur en ein- hverjar ádeildur. Það voru auö- vitað dálitið hroöalegir staðir eins og þegar maðurinn sem kom að moka svaf hjá stelpunni sem var heyrnarlaus og þegar að þeir geltu folann, en það var samt spennandi á meðan að vita hvort mamman kæmist inn til þeirra og að folinn slyppi. Svo fannst mér gaman að sjá lands- lagið og lika hvað var fint hjá kaupfélagsstjóranum. og ég er alveg viss um að myndin verður góö landkynning þegar hún verður sýnd I útlöndum þvi landiö er svo faliegt og það þekkja svo margir útlendingar Flugleiöaplakatið og svo er gott að útlendingar sjái hvað var fint hjá kaupfélagsstjóranum þvi það halda sumir útiendingar að það sé ekki eins fint hjá okk- ur og það er hjá þeim. Svo er allt fólkið svo voöa islenskt og ljós- hært og islenski hesturinn og íslenski hundurinn koma báðir fram I myndinni. Og svo er alltaf svo voöa gaman aö heyra Islensku i bió, en þaö hefði verið gaman að þekkja svolitiö fleiri leikara sem léku, þó þeir sem gerðu það gerðu það voða vel. Mér finnst þessi mynd orð I tima töluð og ég vil þakka Hrafni Gunnlaugssyni fyrir að búa hana til og islenskum kvik- myndahúsum fyrir að sýna hana. Fyrir tveimur árum keypti Landssamband Isl. útvegs- manna jörðina Skjaldartröð á Hellnum i þvi skyni aö reisa þar sumarbústaöi. Hellnabúar eru mjög óánægðir með þessar sumarbústaöabyggingar og hafa mótmælt þeim frá þvi að málinu var fyrst hreyft. AB þvi er Gunnlaugur Haii- grlmsson á Hellnum sagði okk- ur setti jarðanefnd það skilyrði fyrir kaupum L.í.Cr. að jörðin yrði byggð ábúanda til llfstiðar. Það samþykktu kaupendur. Þegar jörðin var seld, vildi einn þriðji hreppsbúa að hrepp- urinn keypti hana. Abúandinn lýsti sig reiöubúinn að ganga inn I kaupin svo áhætta hreppsins væri ekki mikil. Nú hefur L.I.ú. Sumarbústaöastríöiö á Yfir byggðinni á Hellnum „hvflir sérstæður blær friðar og öryggis”. Mynd: G.H. Viljum varöveita gefiö i skyn aö ýmsir fleiri vilji fá þarna land undir sumrbú- staði svo Hellnamenn telja sig eiga það á hættu, að fá yfir sig heilt sumarbústaðahverfi. Spilda sú, sem L.I.C. vill reisa sumarbústaðina á, hefur alltaf veriö nýtt sem hluti af túninu I Skjaldartröö. Fariö er að leggja veg yfir plássið, m.a. yfir tótt- irnar að býlinu Neöri-Keldu. Vatnsból staðarins, sem verið hefur þarna frá ómunatiö, — vlgður Gvendarbrunnur, — hef- ur nú verið ræstur fram og eyöi- lagöur. Þangað var vatn sótt öldum saman er annaö þraut, þar til vatnsveita var lögð fyrir 17 árum. Þegar svo L.Í.Ú.-menn hófu þarna framkvæmdir á dögun- um, og þá I skjóli meiri hluta hrew)snefndar, þá mótmæltu Hellnabúar þessum aðförum allir sem einn. Þeir bentu á samþykkt sýslunefndar um það, aö þar sem bygging sumar- bústaðaséáannaö borð leyfð, þá sé tekiö fullt tillit til þeirra ibúa, sem fyrir eru. Afhent var bréf frá bygginganefnd og bygginga- fulltúa, þar sem skorað var á L.I.tJ. aö hætta framkvæmdum þar til séð yrði fyrir enda málsins. Fyrir liggur að jarða- nefnd og Landnám rikisins eru andvig þvi, að þarna sé byggt,en hafa bent á aðra spildu ofar. Sýslufulltrúi óskaði þess þá, að framkvæmdir yröu stöðvaðar I bili og var svo gert. Gunnlaugur Hallgrimsson sagði að búskapur hefði haldist óbreyttur á Hellnum frá ómuna- tiö, þrátt fyrir öll rassaköst i þjóðfélaginu; smábúskapur og smábátaútgerð. Yfir þessari litlu byggð viö jökulræturnar hvildi sérstæður blær friðar og öryggis. Þann blæ vildu Ibúarn- ir varðveita,en ekki láta eyði- byggðina leggja með einhverjum inn- rásarher. ,,Við erum reiðubúin til þess að verja þessa byggð okkar hverskonar ágangi,” sagði Gunnlaugur Hall- grimsson. Lögfræðingur þeirra Hellna- manna er Stefán Pálsson. Við spurðum hann hvernig staðan væri i þessu striöi nú Stefán sagði að biðstaða væri nú I taflinu, en á það myndi trú- lega reyna næstu daga hvort leyft yrði að byggja á hinni um- deildu spildu eða ekki. Það er ákveðin torfa þarna, eiginlega i túninu, sem L.l.ú. hefur viljað reisa bústaðina á. en Hellna- menn hafa mótmælt þvi alveg frá upphafi að sumarbústaðir yrðu settir þarna alveg ofan I byggðina. Þeir óttast að fá mikla umferð þarna I gegn, eins og ævinlega fylgir sumarbústaða- hverfum. Landnám rikisins er búið að benda á svæöi, litlu ofar, undir þessa bústaði og raunar miklu fleiri, ef óskaö er. Aö mati bygginganefndar og bygginga- fulltrúa hafa L.I.ú-menn ekki tilskilin leyfi til að hefja þarna framkvæmdir, sagði Stefán Pálsson. — mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.