Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 5
HELGIN 26 —27. júll ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Málverkarammar Ljósmyndarammar SPARIÐ Blóm og myndir Laugavegi 53. Simi 20266 Ferðavörur - Garðhúsgögn Beltiog hringur, sem voru I eigu frúar Finns biskups Jónssonar. Mynd: Ella. Þór Magnússon, þjóöminjavöröur, heldur á kaleik úr platinu frá Staö- astaö, eftir Björn Magnússon frá Gvendareyjum, Lilja Arnadóttir meö silfurausu, eftir Sigurö Vigfússon og Ole Villumsen-Krog meö Viö- eyjarkaleikinn og patlnu eftir Sigurö Þorsteinsson. Mynd: Ella. Um þessar mundir er veriö aö ljiíka viö aö skrá islenska silfur- muni og þá aö fá um leiö, svo sem föng eru á, upplýsingar um þá tslendinga sem lagt hafa fyrir sig þessa listgrein. Aö þessari skrán- ingu og könnun hafa þau unniö Ole Villumsen Krog, Lilja Arna- ddttir og Inga Lára Baldvinsdótt- ir, auk Þjóöminjasafnsins og ýmissa góöra aöstoöarmanna, læröra og leikra. Villumsen kemur Upphaf þessa máls er þaö, aö Daninn, Ole Villumsen Krog, sneri sér til Þjóöminjasafnsins og óskaöi eftir samvinnu viö þaö um aö leita uppi og skrá danska silf- urmuni á íslandi. Þjóöminja- safnsmenn tóku vel þessari mála- leitan og hétu sinu liösinni. Villumsen kom hingaö til lands 1977 og hóf þegar, I samvinnu viö Þjóöminjasafniö, aö leita uppi, skrá og mynda þá dönsku silfur- muni, sem finnanlegir voru hér. Kom brátt á daginn aö hér var aö finna mun meira af sllkum mun- um en fyrirfram var búist viö, einkum kirkjumunum. Þegar leiö aö lokum þessa starfs ákvaö Þjóöminjasafniö aö freista þess aö fá Villumsen Krog til samstarfs um aö gera Islensk- um silfurmunum sömu skil, og vékst hann vel viö. Kom hingaö til lands I fyrra, hófst þá þegar handa meö aöstoöarmönnum sln- um — sem þegar hafa veriö nefndir — og er nú verkinu aö ljúka. Um suma er vitað, aðra ekki I tilefni af þvl aö þessum áfanga er nú náö aö kalla boöaöi Þór Magnússon, þjóöminjavöröui; til blaöamannafundar sl. fimmtu- dag. Þar greindi hann frá þvl, aö ekki heföi fyrr veriö unniö aö skipulegri skráningu allra Islenskra silfurmuna, sem til heföi náöst, en til væri skrá yfir kirkjugripi, sem Matthías Þórö- arson, fyrrv. þjóöminjavöröur, heföi tekiö saman. Væri þetta I fyrsta sinn, sem eitt ákveöiö sviö heföi veriö tekiö þannig fyrir og rannsakaö nákvæmlega á skipu- legan hátt. Þór Magnússon kvaö marga Is- lendinga hafa lagt fyrir sig silfur- smlöi. Ýmsirþeirra væru þekktir en þó trúlega fleiri óþekktir. Aö þessari könnun lokinni væri vitaö um gripi eftir 130 Islenska silfur- smiöi. A daginn kom, aö fleiri þessara islensku listamanna höföu numiö i Kaupmannahöfn en álitiö var. Sumir settust þar aö og stunduöu silfursmlöina sem atvinnugrein. tslendingar læröu svo gjarna list- ina hjá þessum löndum sinum úti. Aörir komu heim og höföu smíö- ina þá í hjáverkum. Voru slikir menn viöa um land. Fá nöfn af fjölmörgum Sem dæmi um mikla völunda i þessari listgrein nefndi þjóö- minjavöröur Sigurö Þorsteins- son, f. 1714, d. 1799. Hann Ilentist I Danmörku og var um skeiö formaöur danska gullsmiöafé- lagsins. Þótt hann dveldi I Dan- mörku eru margir gripir til eftir hann hér heima, sem kann aö stafa af þvl, aö ýmsir ættmenn hans voru auöugir og hafa þvi ekki látiö sig muna um aö fá frá honum dýra gripi. Meöal dýr- mætra kirkjugripa eftir Sigurö má nefna kaleikinn I Dómkirkj- unni I Reykjavík og annan úr Viö- eyjarkirkju, ásamt patinu. I ráöi er aö efna til sýningar á verkum Siguröar næsta vetur. Asbjörn Jacobsen af Vatns- leysuströnd, 1813—1879, þekktur silfursmiöur og eftir hann er til margt gripa. Þá nefndi þjóö- minjavöröur Daniel SchWartskoff, fööur Apollonlu, sem kemur viö sögu Bessastaöa meö nokkuö harmrænum hætti. Hann var góöur silfursmiöur og eru gripir eftir hann á Þjóöminja- safninu. Atti Apollónla þá ef til vill? Jafnvel fátæklingar áttu sinar silfurskeiðar Ekki veröur fullyrt um höfunda ýmissa gripa en eftir aö kemur fram á 18. öld voru þeir yfirleitt merktir og kennir þar e.t.v. er- lendra áhrifa. Silfur var löngum i hávegum haft á lslandi, m.a. sem kirkju- skraut, I sambandi viö búninga o.fl. og jafnvel fátækt fólk átti sin- ar silfurskeiöar. Vonandi tekst aö varpa ennþá skýrara ljósi á Islenska silfur- smíöi en ennþá er oröiö, en þaö starf, sem nú hefur veriö unniö, er alger forsenda þess, aö þaö sé hægt, sagöi Þjóöminjavöröur. Hann kvaöst og vilja nota tæki- færiö til aö koma á framfæri alúö- arþökkum til forráöamanna kirknanna fyrir ágætt samstarf svo og til þeirra einstaklinga, sem lánaö heföu gripi. Og svo aö endingu tvær ábend- ingar: LátiöÞjóöminjasafniö vita um gripi, sem kunna aö vera óskráöir, ef þiö komist á snoöir um þá og seljiö ekki gamalt silfur til bræöslu nema athuga verö- mæti þess fyrst, Þjóöminjasafniö er reiöubúiö til aö kaupa gripi, vilji eigendur farga þeim. — mhg. Göngutjöld......................Verð 32.100 Sænsk tjöld, 180x200 cm.........Verð 54.900 Sænsk tjöld, 200x250 cm.........Verð 66.900 Tjalddýnur......................Verð 13.280 Svefnpokar.................... Verð 28.000 Svefnpokar, dúnn................Verð 82.600 Sóltjöld........................Verð 15.530 SÓIbekkir.....................Verð frá 23.780 Svefnstólar.................... Verð frá 24.900 Garðstólar...................Verðfrá 8.511 Stranddýnur..................Verðfrá 6.915 Ennfremur: Bakpokar, grill, pottasett, kælitöskur, barnastólar og búsáhöld úr plasti. STÓRMARKAÐURWN CmZ JSkemmuvegi 4A, CAjjO Kópavogi Silf urmunir faerdir til bókar Tfl herstöðva- andstæðinga Herstöðvaandstæðingar á Norðurlandi hvetja félaga sina um land allt til að taka þátt i sumarmótunum, sem fram fara i Hrisey og á Hallormsstað helgina 1.—4. ágúst n.k.. Upplýsingar og skráning á Hriseyjarmótið i simum 96-21788, 96-25745 og 91-17966 (Tryggvagata 10). Hriseyjarnefndin. T Orðsending tfl — launagreiðenda Samkvæmt heimild i lögum no. 65/1980 hefur bæjarsjóður Hafnarfjarðar ákveðið að innheimta sem útsvarsgreiðslu i ágúst- mánuði hjá útsvarsgreiðendum, fjárhæð sem nemur 20 prósent af fjárhæð fyrir- framgreiðslu, sem greiða bar á fyrri hluta ársins. Þeir launagreiðendur sem hafa i vinnu hjá sér starfsmenn búsetta i Hafnarfirði eru beðnir að halda eftir þessari fjárhæð af launagreiðslu starfsmanna. Innheimta Hafnarfjarðarbæjar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.