Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 26.07.1980, Blaðsíða 19
HELGIN 26.-27. júH ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 19 Sigriður Björnsdóttir mynd- listarmaöur kom fyrir skömmu frá Skotlandi, þar sem hún sýndi þrjár myndir sinar á mjög óvenjulegri sýningu: Listahátiö Tilraunadeildar Barlinnie-fang- elsisins i Glasgow. Hér i Þjóövilj- anum hefur áöur veriö sagt frá þessari tilraunadeild (12. nóv. 1978 og 28. jan. 1979), sem er ein- stök i sinni röö. Þar eru nokkrir lifstiöarfangar i endurhæfingu, og þetta er eina fangelsiö i heimin- um þar sem endurhæfingin bygg- ist á skapandi listrænni tjáningu, samábyrgö og samstarfi fanga og fangavaröa. Listahátlö tilraunadeildarinnar var nú haldin i annaö sinn, og stóö yfir dagana 18.—20. júni. Sett var upp sýning á verkum fanganna, og áttu þeir allir nema einn verk á sýningunni. Þetta voru högg- myndir, málverk, teikningar, vatnslitamyndir ofl. Einnig var nokkrum listamönnum sem heimsótt hafa fangelsiö boöiö aö sýna þar verk sin, og var Sigriöur ein þeirra, en hún hefur kynnt sér tilraunadeildina og heimsótt hana reglulega slöan 1975. Á dagskrá listahátiöar var einnig tónlist, ljóöalestur, leik- sýningar og ballettsýning, og sáu utanaökomandi listamenn um flutning þessara atriöa. A lista- hátiöina var boöiö ýmsu fólki sem á einn eöa annan hátt hefur látiö fangelsis- og endurhæfingar- mál tilsin taka, svo og listamönn- um, sálfræöingum og stjórnmála- mönnum. Auk þess buöu fang- arnir ættingjum sinum og vinum. . Dagskráin var tviskipt á hverj- um degi, og gestunum var einnig skipt i tvo hópa, og voru 75 gestir á hátiöinni i einu, eöa 150 manns á dag. Undirbúning hátiöarinnar annaöist sérstök nefnd, sem i voru fangar, starfsmenn og Joyce Laing, sem hefur mikiö komiö viö sögu tilraunadeildarinnar og á áreiöanlega stærstan þátt i þeim góöa árangri sem fangarnir hafa náö I listrænni sköpun. Hún hefur yfirumsjón meö „art therapy” eöa listrænni endurhæfingu á nokkrum sjúkrahúsum og fang- elsum I Skotlandi. Gagnkvæmt gildi Hátiöin fór mjög vel fram aö sögn Sigriöar, og voru fangarnir á einu máli um aö þeim þætti af- skaplega mikill fengur i aö fá þetta tækifæri til aö sýna verk sin og kynnast listamönnum „aö utan”. Allir myndlistarmenn þarfnast þess aö fá raunhæft yfir- lit yfir þaö sem þeir eru aö gera, sýna verk sin og fá viöbrögö og gagnrýni, og þaö á ekkert siöur viö um listamennina i Barlinnie. Gestunum þótti einnig mjög lærdómsrikt aö kynnast föngun- um og list þeirra. — Ég fann þaö sjálf, — segir Sigriöur, — aö þaö er afar lær- dómsrikt aö kynnast þessum myndlistarmönnum, sem tjá sig ofboöslega sterkt og hafa mikiö aö segja. Þeir eru mjög einangr- aöir, hafa mikinn tima og næöi til aö hugsa um sina list, og þeir eiga auövelt meö aö tjá sig um hana. Gildi listahátiöarinnar er þvi gagnkvæmt, fyrir gesti og heima- fólk. Hneykslismál Blaöamönnum var ekki boöiö á listahátiöina, og telur Sigriöur aö þaö hafi veriö mistök. En yfir- menn fangelsisins hafa mjög slæma reynslu af blaöamönnum, sem hafa hvaö eftir annaö ráöist meö lygum og óhróöri gegn starf- semi tilraunadeildarinnar. Þaö kom lika á daginn núna, aö lista- hátiöin féll I skuggann af hneykslismáli, sem kom upp dag- inn eftir aö hátiöinni lauk. Einn fanganna, John Elliott, fannst þá I klefa sinum meövit- undarlaus eftir of stóran skammt af eiturlyf jum. Hann var fluttur á sjúkrahús og þaöan i annaö fang- elsi, og fær ekki aö koma aftur á tilraunadeildina. Taliö er aö ein- hver kunningi hans hafi notaö tækifæriö til aö smygla lyfjum inn til hans meöan á hátiöinni stóö. Blööin voru ekki sein á sér aö blása þetta mál út yfir aliar for- siöur, og rifjuöu i leiöinni upp gamlar lygasögur um heimsóknir „gleöikvenna” og „ljúft líf” i til- raunadeildinni. John Elliott haföi aöeins veriö i Barlinnie i nokkra mánuöi. Hann var sá eini af föngunum, sem ekki átti verk á sýningunni, enda var endurhæfing hans rétt Jimmy Boyle, einn af föngunum I tilraunadeiid Barlinnie-fangelsisins, hannaöi þennan leikskúlptúr fyrir börnin i Craigmillar-hverfi I Edin- burgh. Skúlptúrinn heitir Gúlliver. LISTAHÁTÍÐ BAK VIÐ LÁS OG SLÁ nýbyrjuö. Þetta slysalega óhapp veröur nú sennilega til aö loka fyrir honum þeim dyrum sem voru aö opnast. — Ég talaöi viö John á hátiö- inni, segir Sigriöur, og spuröi hann m.a. hvaö hann áliti um til- raunadeildina. „Ég heföi átt aö koma hingaö um leiö og deildin var opnuö” — sagöi hann. Hann sagöist hafa oröiö háöur eiturlyfj- um I fangelsum, enda hefur hann dvalist á „betrunarhælum” og I fangelsum frá 14 ára aldri, en nú er hann 39 ára. Hann sagöi mér lika aö yfirvöld virtust beinlinis stefna aö þvi aö stofna til vand- ræöa i tilraunadeildinni, og sem dæmi um þaö nefndi hann, aö maöurinn sem sendur var þangaö næst á undan honum heföi myrt besta vin hans. „Ég veit aö ég má ekki láta þaö hafa áhrif á sam- skipti min viö þennan mann, þvi hér byggist allt á samskiptum fanganna sin á milli, en þetta er mjög erfiö aöstaöa” — sagöi hann. Járnfrúin Tilraunadeildin I Barlinnie hef- ur átt erfitt uppdráttar frá byrj- un, en aldrei þó einsog undanfariö ár, eöa siöan „Járnfrúin” Marga- ret Thatcher komst til valda. Sem kunnugt er byggist „leiftursókn” hennar á stórfelldum niöurskuröi félagslegarar þjónustu, og aö sjálfsögöu veröa fangelsin fyrir baröinu á þeim niöurskuröi. Thatcher hefur sagt um tilrauna- deildina I Barlinnie, aö hún muni ekki „höggva hana niöur”, en nauösynlegt sé aö breyta deildinni, endurmeta reglurnar og formiö. Eitt stærsta áfalliö sem deildin hefur oröiö fyrir er brottrekstur Ken Murray, sem starfaö haföi viö deildina frá upphafi og var einn helsti hugmyndafræöingur hennar. I fyrra var Ken boöiö til Ástraliu til aö halda fyrirlestra um tilraunadeildina, og þegar hann kom aftur beiö hans tilkynn- ing um aö hann heföi veriö færöur i annaö fangelsi. Þessi ráöstöfun var liöur I vaxandi hörku yfir- valda gegn tilraunadeildinni. Ken Murray hefur mjög ákveönar skoöanir á þvi hvernig best sé aö vinna aö endurhæfingu dæmdra glæpamanna. Samstarf og samhjálp eru undirstööuatriöi I þeirri endurhæfingu. Fangarnir og starfsliöiö mynda hóp, sem ræöur sameiginlega fram úr þeim vandamálum sem upp koma, og sinnir daglegum rekstri deildar- innar, svo sem matseld, ræsting- um, þvotti osfrv. Deildin er þvi einskonar „kommúna” eöa fjöl- skylda, þar sem allir eru samá- byrgir og skipta meö sér störfum á jafnréttisgrundvelli. Gagnkvæmt traust er forsendan fyrir þvi aö þessi starfsemi nái tilætluöum árangri. Einnig í Ástraiiu Tilraunadeildin i Barlinnie hef- ur vakiö mikla athygli meöal þeirra sem viö fangelsismál fást i heiminum. Þaö er margsannaö mál, aö venjuleg. fangelsi hafa ekki bætandi áhrif á þá sem þar dvelja, enda reynslan sú aö yfir- gnæfandi meirihluti þeirra tekur aftur til viö fyrri iöju, þegar þeir losna úr fangelsi, og eru þar meö lentir inni I vitahring sem þeir losna ekki úr. Astraliumenn hafa sýnt til- raunadeildinni sérstakan áhuga, og nú er I bigerö aö setja tvær slikar deildir á laggirnar þar I landi. — Þegar ég var I Astraliu 1978 var mikiö rætt um fangelsismál þar, — segir Sigriöur, — vegna uppreisnar sem gerö var i fang- elsi I Sydney. Þessi mál virtust vera I ólestri þar, og þaö hlýtur þvi aö vera gleöiefni aö þeir skuli vera aö leita nýrra leiöa. Kemur okkur við Nú stendur til aö reisa rlkis- fangelsi á Islandi og væri sannar- lega ekki vanþörf á aö taka þaö mál til rækilegrar umræöu pg velta þvi t.d. fyrir sér hvort rétt sé aö fara út i aö reisa grjótbákn aö bandariskri fyrirmynd, þar sem aöaláherslan er lögö á „öryggisráöstafanir” en litiö eöa ekkert skeytt um endurhæfingu afbrotamanna. Ég spuröi Sigriöi hvaö henni fyndist aö hægt væri aö gera i þessu sambandi. — Viö þurfum fyrst og fremst aö taka afstööu til þess, hvaöa til- gangi fangelsi eigi aö þjóna. Er þaö eingöngu til þess aö vernda þjóöfélagiö fyrir hættulegum mönnum, taka þá úr umferö, eöa ber aö stefna aö þvi aö bæta þá, fá þd inn I samfélagiö? Þetta kemur okkur öllum viö, vegna þess aö fangelsi eru þung fjárhagsbyröi, sem viö stöndum undir sem skatt- greiöendur. Mér finnst þó aö fjár- hagshliöin sé ekki þyngst á met- unum, heldur hljóti þyngsta byröin aö vera sú staöreynd, aö þessir meöbræöur okkar skuli vinna gegn okkur, I staö þess aö vinna meö okkur. Reynslan af tilraunadeildinni i Barlinnie hefur þegar sýnt, aö þær aöferöir sem þar eru notaöar geta njálpaö jafnvel forhertum glæpamönnum til aö gjörbreyta lifsviöhorfum sinum. Ég held aö Islensk yfirvöld ættu aö kynna sér starfsemi deildarinnar, áöur en ráöist er I byggingu fangelsis af þvi tagi sem þegar hefur sýnt sig aö er gagnslaust og úrelt. Ég er sannfærö um aö ef ráöamenn dómsmála hér á landi sýndu sama skilning og áhuga og starfs- bræöur þeirra I Astraliu og byöu Ken Murray aö koma hingaö og ræöa viö þá sem máliö stendur næst, yröi þaö til góös. Ken Murray hefur viötæka þekkingu og reynslu af fangelsismálum og er sannkallaöur brautryöjandi á sviöi endurhæfingar. En reynslan af starfsemi tilraunadeildarinnar hefur lika sýnt aö viö ramman reip er aö draga. Fjölmiölar og yfirvöld i Bretlandi hafa oftar en ekki sýnt deildinni fullan fjandskap og skilningsleysi. Þaö segir sig sjálft aö slik afstaöa hlýtur aö breytast meö timanum. Allar nýjungar mæta mótspyrnu i fyrstu. Og þvi veröur ekki trúaö aö óreyndu aö islensk yfirvöld láti hjá liöa aö kanna þaö sem nýjast er og at- hyglisveröast I fangelsismálum, áöur en hafist veröur handa viö byggingu rikisfangelsisins. — ih

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.