Þjóðviljinn - 26.07.1980, Page 21
HELGIN 26.-27. júli ÞJÓÐVILJINN — StÐA 21
Umskurður á konum í þriðja heiminum
74 miljónir kvenna í Afríku
eru kynferðislega limlestar
Eitt af þeim málum sem mikið
hefur verið til umræðu á alþjóð-
legri ráðstefnu kvennasamtaka f
Kaupmannahöfn (Forum’80) er
hinn s.k. umskurður á konum.
Umskurðurinn er útbreidd aðgerð
I ýmsum Afrfkurikjum s.s.
Kenýa, Tanzaniu, Etiópfu,
Sómalfu, Súdan, Nfgeríu, Zaire,
Úganda og Gambfu, en einnig eru
þess dæmi að hann sé stundaður f
ýmsum rfkjum Asiu og Suður—
Ameriku. Er taliö að i Afrfku
einni saman séu um 74 miljónir
kvenna með meira eöa minna
eyðilögö kynfæri af þessum sök-
um.
Hugtakið umskurður er í raun-
inni mjög villandi fyrir þá aögerð
sem kwiur þessara rlkja gangast
undir, því hiin á litið sem ekkert
skylt við þann umskurð sem
framkvæmdur er á körlum. I dag
eru framkvæmdar þrjár gerðir af
umskurði, en þær eru:
1) Sunna-umskurður sem er
vægastur og felst í þvf að forhúðin
er fjarlægö og fremsti hluti
klftoris.
2) K li t o r is a f s ku r ð u r
(Excision), sem eins og nafnið
bendir til felst f þvi að klitoris er
skorinn burt, auk hluta af innri
skapabörmum.
3) Faraólskur umskurður eða
limlesting (Infibulation). í þess-
ari aögerð er klitoris skorinn
burt, innri skapabarmar og hluti
af ytri skapabörmum. Það sem
eftir er af kynfærum er saumaö
saman fyrir utan örlitið op fyrir
þvag og blæðingar.
Afleiðingar umskurðar
Yfirleitt eru þessar aðgerðir
framkvæmdar af ömmum eöa
þorpsljósmæðrum við léleg skil-
yrði, án deyfingar og með frum-
stæðum verkfærum s.s. rakvéla-
blaöi eöa skærum. Hafa þær allar
i för með sér ýmsar aukaverkanir
s.s. kröftugar blæðingar, bólgur,
Igerð o.fl. fyrir utan þær kyn-
ferðislegu og sálrænu afleiöingar
sem þeim fylgja. Sú stærsta
þeirra, Faraóiskur umskuröur,
veldur þvl oft, að tlöablóð kemst
ekki niður af konunni þar sem
legopið er orðið að ummáli eins
og ddspýta, auk þess sem skera
verður á það þegar hún giftir sig
og I hvert skipti sem hún fæöir
böm. Fæðingin er þessum konum
sem og börnum þeirra mjög erfiö
og getur valdið þeim marghátt-
uöum skaða, þvl útvikkun er
óeðlilega lltil. Það er nokkuð mis-
jafnt eftir löndum á hvaða aldri
stúlkumar eru þegar aögerðin er
framkvæmd, en yfirleitt fer
Faraólskur umskurður fram á 4-8
ára stúlkubörnum, en klítorisaf-
skuröur á stúlkum á aldrinum 12-
14 ára.
Konan eign karl-
mannsins
En hvers vegna er þessi aðgerð
framkvæmd? Vesturlandabúum
hættir til að líta á þetta sem ein-
skæra grimmd og glæpsamlegt
athæfi og taka þetta gjarnan sem
dæmi um kvenfjandsemi I islam.
Konur sem þekkja aðgerðina af
eigin raun segja hins vegar að að-
gerðin hafi ekkert með múham-
eðstrú að gera, heldur eigi hún
sér miklu dýpri rætur I menningu
þeirra þjóða sem hana fram-
kvæma. Máli slnu til stuönings
benda þær á, að jafnt kristnar
konur sem múhameðstrúar láti
framkvæma aðgerðina, auk þess
sem ekki sé staf um hana aö finna
IKóraninum. Sá hluti múhameðs-
trúarmanna sem nefnist shi’itar
framkvæmir t.d. engan umskurð
á konum og þ.a.l. eru konur I íran
ekki umskornar.
Sú menning sem elur af sér
kynferöislega limlestingu á kon-
um er auðvitaö mótuð af karl-
veldinu og til þess gerö að halda
konum á sfnum bás sem eign
karlmannsins. Sá siður að um-
skera konur á rætur slnar að
rekja til þess, að karlmennirnir
vilja koma I veg fyrir kynferöis-
lega löngun hjá konunum og
tryggja sig gegn því aö þær séu
þeim ótrúar eöa of krefjandi kyn-
feröislega. Meydómurinn skiptir
miklu máli I þessum samfélögum
og Faraóumskuröurinn kemur
m.a. I vegfyrir aö konurgeti haft
samfarir án þess að skoriö sé á
legopiö, sem er fyrst gert þegar
konan giftir sig. Sú trú er einnig
rikjandi í þessum samfélögum að
sé klitoris ekki fjarlægður þá geti
hann stækkað og konan orðiö að
karlmanni. I flestum þessara
samfélaga er umskuröurinn
mikilvæg athöfn I llfi hverrar
stúlku og tákn um það aö hún sé
orðin kona og hafi ákveðnu hlut-
verki að gegna sem slik. Athöfnin
er einnig tekjulind fyrir fjöl-
skyldu stúlkunnar þvl henni eru
færðar gjafir og peningar I tilefni
hennar.
Afriskar konur verða að
stjórna baráttunni
Mjög stutt er slöan konur I
Afríkurlkjunum tóku sjálfar upp
umræðu um umskuröinn I þeim
tilgangi að berjast gegn honum.
Nýlenduveldin reyndu það á sln-
um tlma og settu m.a. lög sem
áttu að banna umskurð, en varö
ekkert framgengt. Sllk lög voru
t.d. sett I Súdan árið 1946 og ljós-
móðir handtekin fyrir aö fram-
kvæma umskurð. Fólkið leit þá á
þetta sem hverja aðra nýlendu-
kúgun, mótmælti harkalega og
krafðist þess að hún yrði látin
laus. Þegar sá orörómur hefur
breiöst út að banna eigi umskurð
hefur fólkið yfirleitt tekið sig til
og látið umskera öll stúlkubörn,
jafnvel nýfædd. Vesturlandabúar
geta ekki útrýmt þessari aðgerð,
og það veröur heldur ekki gert
með valdboöi. Barátta gegn henni
verður aö vera f höndum afrfskra
kvenna sem gjörþekkja þann
jarðveg sem hún er sprottin úr. A
kvennaráðstefnunni I Kaup-
mannahöfn hafa afriskar konur
bent á, að I þeirra heimalöndum
sé öll umræða um umskurö, og
kynferðismál yfirleitt, mjög viö-
kvæm og mál sem engin sómakær
kona tali um. Þær sem það gera
séu yfirleitt ásakaöar fyrir þjónk-
un við vestræna menningu og
heimsvaldastefnu. Segja þær að
ákaflyndi vestrænna kvenna I
baráttunni gegn umskurðinum
geti lagt stein I götu þeirra og
komiö I veg fyrir að á þær sé
hlustaö. Ekki svo að skilja að þær
séu á móti aöstoö frá konum á
Vesturlöndum, en eins og egypsk
kona sagði á fundi um þessi mál:
,,Við viljum hjálp ykkar, en verið
svo vænar að leyfa okkur að biðja
um hana”. Telja afrlsku kon-
urnar aö eina leiðin eins og er, til
að þoka þessu máli áfram, sé að
fá trúarleiðtoga og höföingja ætt-
flokka til að fallast á réttmæti
þess og leggja þvl lið.
Hluti af stærra vanda-
máli
Allar þær afrísku konur sem
rætt hafa um umskurö á Forum
’80 hafa lagt mikla áherslu á að
ekki sé hægt aö llta á umskurðinn
sem einangrað vandamál, heldur
sé hann bein afleiðing af efna-
hagsástandinu I Þriðja heim-
inum. Bítur þar hvert atriðið I
halann á ööru. Lélegt efnahags-
ástand og frumstætt atvinnullf
veldur þvl, að ekki er þörf fyrir
menntað vinnuafl, og meðan sú
þörf er ekki fyrir hendi þá eru
konur jafnt sem karlar ofurseldar
ómanneskjulegri vinnubyröi, al-
geru menntunarleysi og llfi á
hungurmörkunum. 1 sllku sam-
félagigeta konur ekki veriö efna-
hagslega sjálfetæöar. Llfsafkoma
konunnar er háð þvl, aö hún kom-
ist I hjónaband, en á þvl eiga þær
konur sem ekíd eru umskornar
litla möguleika. Þær eru útskúf-
aöar úr samfélaginu, og þá
áhættu og ábyrgð vill engin móöir
taka fyrir hönd dóttur sinnar. Þaö
eru þvi' litlar llkur á að takist að
útrýma umskuröi á konum nema
vítahringurÞriðja heimsins veröi
rofinn.
Sólrún Gisladóttir.
ORÐABOK
BLONDALS
ÁSKRIFTARTILBOÐ----
GILDIR TIL 1. SEPTEMBER N.K.
Islensk-dönsk orðabók eftir Sigfús Blöndal
kom út á árunum 1920-24 og var ljósprentuð
1952, en hefur nú verið ófáanleg um
langt árabil. Á þessu sumri verður bókin
ljósprentuð að nýju og kemur út í október.
Blöndalsorðabók er nauðsynjarit öllum
bókasöfnum, skólum og skrifstofum,
þarfaþing þeim sem íslensku skrifa eða
þýða á önnur norræn mál og kjörgripur öllum
þeim sem forvitnir eru um íslenskt mál.
Blöndalsorðabók bundin í tvö bindi:
Áskriftarverð kr. 49.400.-
Bókhlöðuverð u.þ.b. kr. 80.000.-
Áskrifendur að Ijósprentinu eiga þess
jafnframt kost að eignast VIÐBÆTI (1963)
á gömlu verði, bundinn í sams konar band
og nýja ljósprentið, eri upplag hans er
takmarkað, svo að vissara er fyrir þá
sem vilja eignast ljósprent frumbókarinnar
ásamt VIÐBÆTI að hafa fyrra fallið á
um greiðslu áskriftar.
Blöndalsorðabók + Viðbætir:
Áskriftarverð kr. 54.958.-
Bókhlöðuverð u.þ.b. kr. 95.000.-
Áskriftargjald skal greiða íslensk-dönskum
orðabókarsjóði, Háskóla íslands, á
gíróreikning nr. 67000-6 eða senda gjaldið
með öðru móti til gjaldkera sjóðsins,
Ólafs Magnússonar, skrifstofu Háskóla
íslands. Á sama stað er hægt að kaupa gjafa-
kort fyrir bókinni.
IIORNSHINN
ÍSIKiNSKIUR RITMENNINGAR
ÍSI i:\XK IUNSM H orðabókarsjóðór
HÁSKÓLA ÍSLANUS
SUMARFERÐ
Alþýðubandalagsfélagið i Hveragerði fer
sina árlegu sumarferð vestur i Hitarhólm
á slóðir BjörnsHitdælakappa i Hitardal á
Mýrum, laugardaginn 9. ágúst n.k.
Lagt verður af stað kl. 10 árdegis, ekið til
Þingvalla um Kaldadal og Borgarf jörð og
komið i áfangastað siðdegis.
Félagið hefur til umráða 15 svefnpláss i
fjallhúsi og veiðileyfi i Hitarvatni.
Til baka verður haldið siðdegis á sunnu-
dag og ekið um nývigða Borgarfjarðar-
brúna og troðnar slóðir heim.
Tekið á móti pöntunum og upplýsingar
veittar i simum 4259 4518 og 4332.
Aliir velkomnir.
Stjórnin.