Þjóðviljinn - 10.09.1980, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 10.09.1980, Blaðsíða 6
^ .. * /?\ -SWfí svíwatojví. Jl vvvs&awíf'Píi*? 6 StOA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 10. september 1980 Sölusamband ísl. fiskframleiðenda mótmælir blaðafréttum Alltí Greinargerð um fisksölumál í Portúgal 1 blööum undanfarnar vikur, einkum Þjóöviljanum og Timan- um, hafa birst fréttir um fisksölu- mál i Portúgal. Sölusamband isl. fiskframleiö- enda hefur veriödregiö inn i þess- ar fréttir. SIF hefur fram aö þessu ekki elt ólar viö þessar fréttir, enda hafa þær veriö i æsifréttastil og dylgjur og fullyröingar á svo lágu plani aö ekki hafa þótt svara- veröar. Ennfremur er fullljóst, aö allir þeir, er starfa aö fiskvinnslu og útgerö i þessu landi, hafa ekki látiö blekkjast af þessum frétt- um. Þessi fréttaflutningur keyröi þó um þverbak i siöasta Sunnudags- blaöi Timans, 7. sept. sl., þar sem umbúnaöur fréttar um þetta mál er slikur, aö nær öll baksiöa blaösins er undirlögö. 1 þessum fréttum gætir mikilla rang- færslna og misskilnings um starf- semiSIF og fisksölumál almennt, bæöi innanlands og utan, svo aö ekki veröur lengur viö unaö. Sölumál SÍF SIF er eins og nafnið gefur til kynna sölusamband þeirra u.þ.b. 250 fiskframleiöenda, sem þar eru félagar. StF hefur það megin- markmiö aö tryggja öllum félög- um sinum sölu á öllum saltfiskaf- uröum sinum, á besta fáanlega verði meðbestu i afhendingar- og greiðsluskilihálum, sem völ er áV hverju sinni. Til aö sjá um þessi mál kýs árlegur aöalfundur ' fjórtán manna stjórn úr sinum hópi, sem tekur ákvaröanir i sölu- málum og öörum hagsmunamál-, um félagsheildarinnar. Þá liggja fyrir upplýsingar um allar sölur á vegum SIF, söluverö, erlend um- boðslaun, o.fl., hjá þeim opinberu aöilum, sem fjalla á einn eöa ann- an hátt um útflutnings- og gjald- eyrismál. Af þessu er ljóst, aö um sölur á vegum SIF rikir engin ein- kennileg leynd eins og haidiö hefur verið fram, en upplýsingar um söluverö á einstökum afurðum eru ekki f jölmiölaefni af eðlilegum viöskiptaástæöum. Einn af meginkostum samtaka fiskframleiöenda um fisksölumál er aö hafa heildaryfirlit yfir alla framleiösluna hverju sinni og geta visvitandi beint einstökum tegundum og gæðaflokkum aö hinum mörgu mörkuöum á þann hátt, sem skilar framleiöendum og þjdöarheildinni mestu. Sölur og útflutningur 1980 Söiur og afskipanir á saltfiski á þessu ári hafa gengiö vel. SIF hefur samiö um sölur á um 45- 47.000 tonnum af blautsöltuöum saltfiski af hinum ýmsu stæröar- og gæöaflokkum. Af þessu magni' voru um 20.000 tonn af þorski seld til Portúgai auk nokkurs magns af öðrum ódýrum tegundum, sem vart finnst markaöur fyrir annars staöar. Eins og öllum, er aö fisk- vinnslu vinna, er kunnugt, var þar fyrst og fremst um iægri gæöa- og veröflokka aö ræöa, vegna þess aö portúgölsk yfir- völd telja sig ekki hafa efni á að kaupa bestu gæöi á því háa veröi, sem fyrir þann fisk fæst. Afskip- anir upp i þessa samninga hófust strax i ársbyrjun og til loka ágúst hefur veriö afskipaö af 1980 fram- leiðslu til Portúgal 19.600 tonnum, tilSpánar 10.000 tonnum, til Italiu rúmiega 5.000 tonnum og til Grikklands 2.300 tonnum. Auk þess hafa fariö um 1.000 tonn af soltuöum ufsaflökum á V-Þýska- land og rúmlega 1.000 tonn af söltuöum þorskfiökum, einkum á Italíu og þó einnig á Spán, en grundvöliur fyrir þessari fram- leiöslu skapaöist aö nýju I lok siö- asta árs. Verömæti þessa útflutnings fyrstu átta mánuöi ársins er ná- lægt 50 milijöröum Isl. króna. sómanum Samningar SIF viö Portúgal fyrir áriö 1980 voru geröir i lok febrúar sl.. Aðrir samningar viö þá hafa ekki verið geröir á þessu ári. Villandi verðsamanburður T áragas Bubbi Morthens Utangarðsmenn Inn í fjölbreytta tónlistardagskrá kvöldsins fléttast leikatriði og ýmsar óvæntar uppákomur sem örugg lega eiga eftir að vekja mikla athygli. Höllinverður svo að sjálfsögðu skreytt í anda Rokksgegnher Forsala aðgöngumiða er í Bóksölu Stúdenta, Bókaverslun Máls og menningar og hljómplötu verslunum Kamabæjar; Austurstræti 22, Laugavegi 66 og Glæsibæ. Miðaverð kr. 7000 Látiöhefur verið að þvi liggja I blaöafréttum, aö Island hafi verið hlunnfariö i viöskiptum viö Portúgal með þeim sölum, sem SIF hefur samiö um þangaö. Er jafnvel gengið svo langt aö sagt er, aö þar geti veriö um aö ræöa nokkur hundruö dollara fyrir hvert tonn. Gefið hefur veriö upp eins og um sé aö ræöa eitthvert stórvirki, að hægt sé aö ná $2.600 meöal- veröi fyrir hvert tonn af blaut- verkuðum stórþorski með eftir- farandi gæöasamsetningu: 50% fiskuraf fyrsta gæöaflokki, 25% af öörum gæðaflokki, eöa samtals 75% af fyrsta og öörum gæöaflokki, og 25% af lakari flokkum. Enda þótt engin sölu- verð veröi gefin upp af áður- greindum ástæöum, er þó skylt aö skýra frá þvi, aö söluverð, sem SIF hefur samið um fyrir þessa samsetningu fisks, eru hærri en meðalverðið $2.600. I sölum SIF frá þvi i vor viö Portúgalier samiö um alla stærö- arflokka og alla gæöaflokka, en um þá er þaö aö segja, aö í samn- ingunum er aöeins gert ráö fyrir um 25% af fyrsta og öörum gæöa- flokki og 75% af þriöja og fjórða gæöaflokki, og ætti því aö vera augljóst aö samanburöur á þessu tvennu í 20 flokka verötöflu, án magnsetningar, er út i hött. Fréttir um samninga SIF við Portúgal I júli sl. eru eins og fleira i þessu máli getsakir einar. Hráefnisverð Miklu moldviöri hefur sömuleiö- is veriö þyrlað upp um að unnt væri aö greiöa útgeröar- og sjó- mönnum mun hærra hráefnis- verð en þessir aöilar ásamt fisk- kaupendum hafa samiö um i Verðlagsráöi sjávarútvegsins. Dylgjur um sjóösmyndun „ein- hverra aöila” vegna mismunar á söluveröi erlendis annars vegar og umsömdu hráefnisveröi innan- lands hins vegar eru svo hjákát- legar og lýsa svo mikilli van- þekkingu á undirstöðuatvinnu- vegi þjóðarinnar aö undrum sætir. Þeim til uppiýsingar sem opinberaö hafa vankunnáttu sina á þessum málum skal á þaö bent, aö um 4 kg af hráefni (fiskur upp úr sjó) þarf til aö gera 1 kg af þurrkuöum saltfiski eins og hon- um er dreift til neytenda i salt- fiskneyslulöndum og þar meö i Portúgal. Hvern er reynt aö blekkja? Er veriö að gera gys aö fiskvinnslufólki eöa skiptir at- vinna þess engu máli lengur? Þaö er vitað mál, aö f jölmargir erlendir aðilar hafa sýnt þvi brennandi áhuga aö ná meö bein- um eöa óbeinúm hætti fótfestu i útgerö og fiskvinnslu á Islandi i kjölfar útfærslu landhelgi ts- lands. Islensk stjórnvöid hafa einarölega neitaö mörgum áköf- um tilraunum i þessa átt. Þaö er full ástæöa fyrir allt fiskvinnslufólk, útgeröarmenn og sjómenn aö standa fast að baki stjórnvöldum i þessum málum og láta ekki blekkjast af siendur- teknum gylliboöum hálf-erlendra fyrirtækja eða jafnvel opnum auglýsingum erlendra sam- keppnisaöila, sem nýleg dæmi eru um. Lokaorð Allt frá árinu 1974 hefur aðeins eitt fyrirtæki, rikisfyrirtækiö Reguladora, haftleyfi til saltfisk- innfiutnings i Portúgal og stjórn- ar jafnframt dreifingu vörunnar þar i landi. Siöan þessi skipan komst á hefur porúgalska rikiö eitt séö um innflutning á saltfiski. Allar saltfisk-útflutningsþjdðir hafa orðiö, hvort sem þeim hefur þótt það ljúft eöa leitt, aö lúta þeirri skipan mála. Þessu fyrir- komulagi hefur áöur i fjölmiölum i fréttum um þetta mál réttilega veriölikt viö verslun meö áfengi á tslandi. Aö lokum mótmælir SIF harö- lega og visar til fööurhúsanna endurteknum aödróttunum um „sviðsetta glæpi”, „óeðlilega há umboöslaun”, „Stirönaö sölu- kerfi” og flejjiri ásökunum i líkum dúr, sem bornar hafa verið á borö fyrir blaðateftendur siöustu vikur. ROKK «* Tonleikar I Laugardalshöllinni n. k. laugardag kl. 21.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.