Þjóðviljinn - 01.10.1980, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 1. október 1980.
FLUGLEIDIR
Hluthafafundur
Boðað er til almenns hluthafafundar i
Flugleiðum hf. miðvikudaginn 8. október
n.k. kl. 14.30 i Kristalsal Hótels Loftleiða i
Reykjavik.
Dagskrá:
1. Umræður og ákvörðun um framhald
Norður-Atlantshafsflugs Flugleiða hf.
milli Luxemborgar og Bandarikjanna.
2. Tillaga til breytingar á 4. gr.
samþykkta félagsins um heimild til
aukningar hlutafjár félagsins.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða
afhentir hluthöfum á aðalskrifstofu
félagsins Reykjavikurflugvelli, frá og
með 1. október n.k. og lýkur afhendingu
þriðjudaginn 7. október.
Þeir hluthafar, sem hafa i hyggju að láta
umboðsmann sækja fundinn fyrir sina
hönd, skulu leggja fram skrifleg og dag-
sett umboð. Fyrri umboð gilda ekki.
Stjórn Flugleiða hf.
DANSSKOLI
Sigurðar
Hákonarsonar
BÖRN — UNGLINGAR — FULLORÐNIR
Kenndir allir almennir dansar, svo sem:
BARNADANSAR — SAMKVÆMISDANSAR —
DISCODANSAR — GÖMLU DANSARNIR O. FL.
BRONS-SILFUR og GULLKERFI DSÍ
KENNSLUSTAÐIR:
Reykjavík: Þróttheimar, ný og glæsileg
æskulýðsmiðstöð v/Sæviðarsund
Kópavogur: Félagsh. Kóp. (Kópavogsbíó).
örstutt frá skiptistöð SVK.
Ath. Barnakennsla laugard. í Kópavogi
Innritun og allar nánari upplýsingar
daglega kl. 10.00—19.00 í síma 41557
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS DSÍ
Utboð — uppsteypa
Barnavinafélagið Sumargjöf óskar eftir
tilboðum i að steypa upp nýbyggingu við
Eiriksgötu.
Gögn verða afhent hjá Arkitektastofunni
s.f. Ármúla 11, Rvik, frá og með 30. sept.
n.k..
Tilboð verða opnuð 14. okt. n.k.
Fjölmenni á Lœkjartorgi:
Gerum Gervasoni
að landa okkar
og félaga!
Á föstudaginn i siöustu viku
gengust stuöningsmenn Patrick
Gervasonis fyrir útifundi á
Lækjartorgi til áréttingar kröf-
unni um aö honum veröi veitt
landvist á tslandi og I mótmæla-
skyni viö þá ákvöröun dóms-
málaráöuneytisins aö visa
honum úr landi. Mikið f jölmenni
var á fundinum og greinilegt aö
sá málstaöur mannhelgi og
mannúbar sem þar var varinn,
á fylgi að fagna jafnt hjá ungum
sem öldnum. A fundinum töluöu
menn úr öllum stjórnmálaflokk-
unum en fundarstjóri var Páll
Skúlason, prófessor. t fundarlok
var lesin kveöja og þakkar-
ávarp frá Patrick Gervasoni,
sem á fimmtudeginum var lát-
inn laus úr Siöumúlafangelsinu
og heimilað að dvelja hér á
ábyrgö lögmanns sins fram til 2.
desember n.k. Ræöum manna
svo og þakkarávarpinu var vel
fagnaö og fara ágrip af fyrstu
þremur ræöunum hér á eftir.
Við eigum að gæta
þessa bróður okkar
Guömundur J. Guömundsson,
formaöur Verkamannasam-
bands Islands talaði fyrstur.
Hann lagði áherslu á að mönn-
um bæri að gæta bróður sins.
Hér ætti i hlut verkamanns-
sonur af snauðri fjölskyldu i
Frakklandi. örbirgð fjölskyld-
unnar var slik, sagði Guð-
muftdur, að strax á tveggja
ára aldri var drengurinn settur
á þriöja flokks upptökuheimili.
Hrakningar og skortur voru
hlutskipti hans i bernsku. Getur
það verið að hann hafi farið veg-
villt þegar hann leitar hingað
hundeltur og heldur að þessi
vopnlausa þjóð myndi ekki telja
það til saka að hafa neitað að
bera vopn? Hvenær varð þaö að
sök á tslandi? spurði Guð-
mundur. Hann benti á að sakir
Patricks Gervasonis væru
engar, afbrot hefði hann engin
framið. Þá minnti hann á aö
þegar hingað kom nylega rúss-
neskur flóttamaður var honum
tekið eins og vera bar og rétti-
lega á málum hans haldið.
Guðmundur sagði aö þó hann
gæti ekki talað i nafni verka-
lýðshrey fingarinnar sem
slikrar, þá gæti hann fullyrt að
yfirgnæfandi hluti islensks
verkafólks hefði samúð með
lifshlaupi þessa unga manns og
vildi ekki að hann yrði hrakinn
úr landi. Guðmundur sagði að
þó ákvörðuninni um brottvisun
heföi verið frestað i bili, lægi
ekkert fyrir um það hver hlut-
skipti Gervasonis yrði eftir 2.
desember. Við eigum að gæta
þessa bróöur okkar, sagði Guð-
mundur og hindra þá skömm
sem tslandi yrði gerð ef þessi
ungi maður rotnar i frönsku
herfangelsi. Við eigum að sam-
einast um það, þó við séum
ósammála um allt annað, — við
eigum aö gera hann að landa
okkar og félaga!
Sæmd okkar liggur við
Haraldur ólafsson, lektor
minnti á það i upphafi aö á sögu-
öld var það talið mönnum til
sæmdar á tslandi að halda
sakamenn og þó þeir sem væru
samankomnir á torginu væru
ólikir og ósammála um margt
þá væri þeim sameiginleg sú
réttlætiskennd sem hvetur
menn til aö biöja hraknings-
manni, sem enginn vill taka við,
griða.
Hann sagði aö viö tslendingar
Guömundur
llaraldur
Jón
Erna
Hvenær varö þaö
sök á íslandi
aö neita
aö bera vopn?
værum svo vel settir, að enginn
okkar gæti orðið sakamaður
vegna laga um herþjónustu og
við ættum erfitt með að skilja
lagabókstafi sem þvinga menn
til þess að drepa aðra menn.
Hann lagöi áherslu á að Gerva-
soni hefði ekki beitt neinum
undanbrögöum heldur neitað
herþjónustunni af nær þvi
barnslegri einlægni og
þrjósku. Nú héti það að hann
hefði komið ólöglega inn i landið
og þess vegna ætti samkvæmt
reglum að visa honum á braut.
Það er átakaminna að fara eftir
reglunum og segja siðan — ég
gerði abeins skyldu mina, sagði
Haraldur, en reglur mega aldrei
snúast upp i að vera kúgunar-
tæki. Hvernig gat hann sem
pólitiskur flóttamaður komið
öðru visi inn i landiö en skil-
rikjalaus með vegabréf sem
ekki var löglegt? Er það ekki
einmitt einkenni á pólitiskum
flóttamönnum?
Sæmd okkar liggur við, sagði
Haraldur. Við eigum að virða
rétt þeirra sem ofsóttir eru af
pólitiskum ástæðum og við
megum ekki mismuna mönn-
um. Látum ekki þá skömm
henda okkur að sparka i hönd
sem biður griða, tökum i fram-
rétta hönd þessa manns og segj-
um: Lika þú ert bróðir okkar,
vertu hér og þiggðu grið okkar.
Mannúðarmál sem
skiptir okkur ekki í
flokka
Jón B. Hannibalsson ritstjóri
hóf mál sitt meö tilvitnun i
Lenin og sagði að þó hann hefði
litlar mætur á þeim manni og
kenningum hans þá væri hann
honum sammála um eitt:
Stundum væri það ekki aðeins
réttur manna heldur skylda að
bera vopn. Af þessu mætti ráða
að hann væri sjálfur ekki friðar-
sinni eins og Patrick Gervasoni
og þeir timar kæmu i lifi
hverrar þjóðar að menn þyrftu
að gripa til vopna til að berjast
gegn kúgunaröflum sem ekki
virtu annað en valdbeitingu.
Tók hann dæmi frá Afganistan
máli sinu til stuðnings og sagð-
ist vera þeirrar skoðunar að
lýðræöisriki ættu ekki annan
kost en að binda sig saman i
hernaðarbandalagi. Þar væri
hann lika ósammála Gervasoni.
Ég er hér, sagði Jón, til að
bera þvi vitni, að þó okkur
greini á um afstöðuna til
heimsmála og stjórnmála, þá
eigum við skilyrðislaust að
virða rétt manna til að halda
fram skoöunum sinum og rétt
þeirra til að lifa i samræmi við
sina sannfæringu. Jón lét þess
getið að hefði hann á sinum tima
verið ungur Bandarikjamaður i
Viet-Nam striöinu, þá hefði
hann neitaö að bera vopn á viet-
namska bændur. Þá hefði ég
veriö nauðbeygður til þess að
leita hælis utan heimalands
mins,þá hefði ég staðið á landa-
mærum Kanada i svipuðum
sporum og Gervasoni stendur
nú hér, sagöi hann.
Þó ég sé ekki friðarsinni, þá
neita ég þvi aðnokkurt rikisvald
geti neytt menn til að bera vopn
i þágu málstaöar sem menn
trúa ekki á, sagði Jón. Frakkar
sjálfir virða þennan rétt manna
til að neita vopnaburði og þús-
undir Frakka hafa notfært sér
hann. Þaö gat Patrick Gerva-
soni ekki,og hann hefur tekið af-
leiðingum gerða sinna. Hér er
þjáður einstaklingur sem biður
Framhald á bls. 13
1