Þjóðviljinn - 01.10.1980, Qupperneq 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 1. október 1980.
Skipuð framkvæmda-
nefnd Alþjóðaárs
fatlaðra
Á ad gera
tillögur um
heildar-
stefnu
Svavar Gestsson, félagsmála-
ráðherra hefur nýiega skipað sér-
staka framkvæmdanefnd i tilefni
aiþjóðaárs fatlaðra 1981, en
heistu verkefni hennar veröa
annarsvegar aö gera tillögur um
heildarstefnu i málefnum fatl-
aðra og hinsvegar að beita sér
fyrir kynningu á málefnum fatl-
aöra i skólum landsins og fjöl-
miðlum.
Heildarstefnuna á að móta ma.
með samræmingu gildandi laga
og reglugerða sem snerta málefni
þessara þjóöfélagshópa og með
tillögugerðum átak iatvinnumál-
um, umhverfismálum, kennslu-
málum o.s.frv. Grundvöllur
stefnumótunarinnar er að fatlaðir
öðlist jafnrétti á við aðra þjóð-
félagsþegna.
Með skipun framkvæmda-
nefndar, sem á aö starfa til loka
ársins 1981, er jafnframt leyst frá.
störfum þriggja manna undir-
búningsnefnd sem skipuð var
haustið 1979.
Með stofnun framkvæmda-
nefndarinnar hafa verið tryggð
tengsl við stjórnsýslu, sveitar-
stjórnir og samtök fatlaöra á Is-
landi, en i framkvæmdanefndina
hafa eftirtaldir einstaklingar
verið skipaðir:
Margrét Margeirsdóttir
deildarstjóri fulltrúi félagsmála-
ráöuneytisins og er hún jafn-
framt formaður neíndarinnar,
Guðni borsteinsson yfirlæknir
fulltrúi heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins, Magnús
Magnússon sérkennslufulltrúi til-
nefndur af menntamálaráðuneyt-
inu, AlexanderStefánsson al-
þingismaður tilnefndur af Sam-
bandi Isl. sveitarfélaga og Unnar
Stefánsson ritstjóri til vara, Ólöf
Rikharðsdóttir fulltrúi tilnefnd af
Endurhæfingarráði, Sigriöur
Ingimarsdóttir tilnefnd af
öryrkjabandalagi Islands,
Friðrik Sigurösson þroskaþjálfi
tilnefndur af Landssamtökunum
Þroskahjálp og Theódór A. Jóns-
son forstöðumaöur tilnefndur af
Sjálfsbjörg, landssambandi fatl-
aðra. Ritari nefndarinnar er
Þórður Ingvi Guðmundsson
stjórnmálafræöingur.
77/ orkusparnaðar:
Námskeið
Iðnaöarráðuneytið hefur falið
Byggingaþjónustunni að halda
námskeið i stillingu hitakerfa
fyrir pipulagningamenn og aðra
aöila, sem geta tekiö þessa þjón-
ustu að sér.
Markmiö námskeiðsins er aö
kenna stillingu vatnshitakerfa og
miðla upplýsingum um stýri-
búnað, mikilvægi hans og still-
ingar með tilliti til orkusparn-
aðar.
Námsskrá er i mótun, en eink-
um verður fjallað um þætti eins
og 1) orkuþörf húss, 2) fyrir-
komulag og nýtni hitakerfa, 3)
stjórntæki (í kyndiklefa, stofu og
við ofna), 4) hvernig hitakerfi er
stillt. Mestum tima veröur variö i
3. og 4. lið, þ.e. umfjöllun, sýni-
kennslu og verklegar æfingar
varöandi stýritæki, ofnloka og
stillingaraðgerðir, sem haldið
veröur i samvinnu við samtök
sveina og meistara i pipulagn-
ingaiön.
Námskeiðið verður haldiö i
húsakynnum Byggingaþjónust-
unnar, Hallveigarstig 1, Reykja-
vik, dagana 20. til 22. október n.k.
og þarf að tilkynna þátttöku
þangaö i sima 29266, fyrir 10. okt.
Þess er getið i frétt Bygginga-
þjónustunnar aö hún hefur samið
viö Flugleiðir um svokallaöan
helgarpakka fyrir þátttakendur
utan af landi þannig að afsláttur
fæst frá venjulegu fargjaldi.
á dagskrá
>Hvaðan koma réttar hugmyndir?
Falla þær af himnum ofan?
(Maó Tse-Tung, Rauðakverið bls. 207)
óskar
Guðmundsson
Himinloftaima úr-
lausn—Flugleiða-
vandinn levstur
Þaö bar til ekki alls fyrir löngu,
að vængjuð fyrirmynd frjálsrar
samkeppni á Islandi magalenti á
móðurjörö sinni blessaöri, skap-
endum sinum nokkuð aö óvörum.
Einhvern tima eða annars staöar
hefði óvæntara sjónarhorn veriö
tekið á rústir Flugleiða en gert er
i raunalegri umfjöllun borgara-
legra fjölmiöla þessa dagana.
Dæmi um þetta er sú uppþemba
þröngsýninnar sem sjónvarpið
flutti fyrir par vikum i ógnarlöng-
um og leiðinlegum sjónvarps-
þætti undir stjórn Helga Helga-
sonar. Gagnrýnendur á pólitik
fyrirtækisins voru þarna hvergi
nærri enda þá þegar úthrópaðir i
moggunum fyrir guðlast gegn
„heilbrigðum fyrirtækjarekstri”.
t fljdtu bragði virtust hér vera á
feröinni fulltrúar skáta-
hreyfingarinnar aö ráðskast um
næsta Botnsdalsmót. Forstjórinn
og fylginautar hans náðu þvi að
fylla hálfan annan tima með
vandræðalegu og innantómu
rausi um litiö sem ekki neitt. Var
erfitt að sjá hver var hvaðj full-
trúi verkalýðs- eöa feröamála,
spyrill, ráðherra eöa forstjóri.
Skjaldan hefur aulalegri þáttur á
skjá komiö.
Málgagnið góða
Við leikmenn höfum auðvitað
takmarkaö vit á hvar auð-
hringurinn teygir klær sinar.
Merkilegt nokk, þá hefur hann
notiö litillar umfjöllunar okkar
málgagns. Sama má segja um
stjórnmálamenn hreyfingar-
innar, þeir hafa nú ekki hingaö til
farið itarlega I saumana á bram-
bolti fyrirtækisins á undanfömum
árum. í þessum frumskógi
þagnarinnar hefur þó Ólafur
Ragnar Grimsson ómað einsog
hjalandi skógarlind. Mætti manni
leyfastað þakka honum fyrir það.
Það er e.t.v. eingöngu þess
vegna, sem við höfum örlitinn
grun um hvar illfyglið flögrar i
fjármagnspólitlkinni. Sini.uleysi
Þjv. hefur sem betur fe. ekki
verið algjört. Gallinn er bara sá
aðsú litla rifa sem blaðið opnaði á
Flugleiöatjöldin svalar hvergi
forvitni okkar lesenda, heldur
eykur fróðleiksþorstann. I stór-
merku blaðaviötali Þjv. sl.sumar
viö einn frumkvööla Loftleiöa, Al-
freð Eliasson kom tilaömynda i
ljós, að forstjórinn Sig. Heigason
hefði á sinum tima komið inn i
fyrirtækið sem fulltrúi fjármagns
Sveins Valfells (sem yfirleitt þá
sjaldan sem hann er nefndur á
nafii er titlaður umsvifamaður).
Þessar upplýsingar heföu nú
fleirum en mér þótt tilefni til
frekari eftirgrennslana i anda
„rannsóknarblaðamennsku’'. Er
þeirri hugmynd hérmeö komiö á
framfæri. Slik rannsókn gæti
m.a.s. fariö fram hér á Islandi,
sem er vist meira en hægt er að
segja um fjárreiður fyrirtækisins
i Bandarikjunum og fasistarikj-
um Suður-Ameríku.
Hver étur hvern?
Það er ljótt að segja það — en
er ekki grátbroslegt.aö þetta stolt
ogstærilætiislenskskapitalisma i
öllum gögnum ihaldsins um ára-
tugaskeiö skuli nú verða „raun-
verulegri” samkeppni að bráö? I
ljóskom um siðir, að velsældin og
velgengnin hvildi aldrei á traust-
um stoöum frjálsrar samkeppni.
Ekki var Carter kallinn fyrr bú-
inn aö gefa frjálsri samkeppni
yfir Atlansála lausan taum-
inn en flugleiðir misstu flugið
einsog íkarus forðum Flugleiðir
urðu frjálsri samkeppr.i að bráö
hvaösem leiftursóknarliðið tautar
og raular, umsnyr og afbakar.
Enda fer litiö fyrir þvi um þessar
mundir, að burgeisamiðlar tiundi
hver éti börnin sin! Þrátt fýrir
þetta áfall er frjálsi samkeppnis-
dansinn stiginn áfram af slikum
djöfulmóð i málgögnum borgar-
anna aö viö veröum aö fara langt
aftur til að muna aðra eins
hnykki. Og þeir sem neita að stiga
sporið i þessum hrunadansi kapi-
talsins á þeim bæjum eiga ekki
annaö yfir höfði sér en útskúfun
og kommastimpil. Þeir hljóta lika
aösofa vært sem láta sig dreyma
um félagslegan rekstur á flug-
samgöngum þessa daga.
Þú skalt liggja í lofti
Þaö hefur lengi verið plagsiður
burgeisanna að réttlæta munaö
sinn og hóglifi meö þvi að þeir
taki meiri áhættu en þorri fólks i
hvunndeginum. Blómlegu fyrir-
tæki fylgi áhættusamur rekstur i
höndum útsjónarsamra, snjallra,
viturra og fórnfúsra forstjóra. A
þeim hvili þess vegna meiri
ábyrgð en á meðaljóni — og bur-
geisinn eigi því aö bera meira úr
býtum. Þvi miöur er þetta
borgarabull oröiö lenska alltof
viða og alltof margir launaþrælar
láta sér misréttiö i léttu rúmi
liggja. Auövitaö er annað uppi
þegar i haröbakkann slær. Þegar
afrakstur áhættunnar gerir vart
viö sig f formi hallæris eða gjald-
þrots gripa greifarnir til annarra
ráöa. Þá þykir sjálfsagt að knýja
dyra hjá rikisvaldinu. Flugfurst-
um ferst enda nú viö rfkið einsog
Gunnhildi kóngamóöur þegar hún
forfærði Hrút Dala-Kollsson um
árið: „Þú skalt liggja I lofti meö
mérlnótt ....”• Svoá almenningur
aö borga næturgreiöann einsog
standi best i bólið hans!
Starfsfólki Flugleiða er nú sagt
upp störfum einsog fara gerir.
Þaö hefur kynnst miskunnarleysi
kapítalsins og frjálsrar sam-
keppni. Vonandi að það hafi
safnað þrótti og mundi nú kraft-
ana til félagslegra átaka sjálfu
sérog samfélaginu til heilla I nýtt
flugfélag, hvort sem það mun nú
heita Flugafl, Alþýöuflug eða
eitthvað annað.
Að axla ábyrgð
Rétt er að benda á áður en
austur almannafjár hefst i botn-
lausa taphit flugforystunnar að
hugsanleg séu önnur úrræði:
1) Að fyrirtækiö geti selt hluti
sina eða dregið fé út úr fjárfest-
ingum sinum i Evrópu eöa Ame-
riku.Eða hvort má ekki spyrja þá
flugbændur hvar var fjárfest á
feitu árunum fyrir þau mögru?
2) Hinn kosturinn er sá að eig-
endur/hluthafar standi i raun við
ábyrgöina af rekstrinum og borgi
sinn hlut af tapi eigin fyrirtækis.
Eftirlitsmannaþáttur
Hér er kominn nýr vettvangur
fyrir eftirlitsmenn rikisins. Þeir
þyrftu nú ekki annað til að byrja
meö en dusta rykið af hluthafa-
skrá fyrirtækisins. Og sjá; mikið
undur væri ef þeir reyndust á
vonarvöl. Altént eru þeir ekki
eins illa settir og einstæðu mæö-
urnar sem fengu fyrir skemmstu
hærri opinber gjöld en oftast
áður. Né blasa viö þeim óþægindi
atvinnuleysis einsog margur
starfsmaður Flugleiöa má þola.
Til tilbreytingar skulum við
leyfa okkur smá bjartsýni i
kreppunni — og reikna meö að
eignakönnun hluthafa leiöi i ljós
að þeir gætu vandræðalaust aur-
að saman upp I tapiö. Ef ekki I
Framhald á bls. 13
i