Þjóðviljinn - 01.10.1980, Side 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVÍLJINN Miövikudagur 1. október 1980.
skák
Umsjón: Helgi ólafsson
Margeir
meðal þátt-
takenda
á Haust-
móti TR
Haustmót Taflfélags Reykja-
víkur hófst siöastliöinn sunnudag
með keppni i öllum flokkum sem
fram eiga að fara. Haustmótiö
hefur um alllangt skeið fariö
fram með sama sniöi, þ.e. mönn-
um er raöaö niöur i riöla eftir
skákstigum og er ekki annaö aö
heyra en almenn ánægja sé meö
þá skipan mála, þóenn séu þeir til
sem tala hátt um ágæti Monrad-
kerfisins og yrki jafnvel léttan
brag máli sinu tii stuönings.
Hjá þeirri staðreynd verður þó
ekki gengið að jafnan þurfa
sterkir skákmenn að láta sér
lynda að tefla i B-riðli þar sem
stig þeirra geta i sumum tilvikum
gefið mjög óraunsæja mynd af
styrkleika þeirra. I a-riðli. en
keppnin i þeim riðli vekur að
sjálfsögðu langmesta athygli, eru
samankomnir margir ágætir
skákmenn og meira að segja einn
alþjóðlegur titilhafi, Margeir
Pétursson. Hann hlýtur að teljast
sigurstranglegasti keppandinn þó
ýmsir geti veitt hinum harða
keppni.
Þannig tekur Sviinn Dan
Hanson þátt i mótinu, en hann
mun vera i metum i heimalandi
sinu. 1. umferð var tefld á sunnu-
daginr^en áöur en farið verður að
krukka f einstök úrslit skal hér
rakin töfluröðin:
1. Bragi Halldórsson
2. Jóhann ö. Sigurjónsson
3. Elvar Guðmundsson
4. Björn Þorsteinsson
5. Stefán Briem
6. Margeir Pétursson
7. Sævar Bjarnason
8. Dsn Hansson
9. Július Friöjónsson
10. Karl Þorsteins
11. Gunnar Gunnarsson
12. Asgeir P. Ásbjörnsson.
i 1. umferð vann Björn Þor-
steinsson Július Friðjónsson og
Gunnar Gunnarsson vann Jóhann
ö. Sigurjónsson. Jafntefli gerðu
Bragi Halldórsson og Ásgeir P.
Ásbjörnsson. Skákir Stefáns
Briem og Dans Hanssonar og
Elvars Guðmundssonar og Karls
Þorsteins fóru i bið, en skák Mar-
geirs og Slvars var frestaö.
Eins og vera ber var hart barist
á sunnudaginn. Björn slapp út úr
verri stöðu gegn Júliusi og vann
eftir mikinn barning. Gunnar
vann Jóhann örn hinsvegar ákaf-
lega örugglega, en úrslitin i skák
Braga og Asgeirs voru i meira
lagi merkileg. Bragi fékk unnið
tafl út úr byrjuninni, en lék illi-
lega af sér og kom upp staða þar
sem Asgeir haföi gefið drottningu
fyrir fjóra menn sem i flestum til-
vikum þætti kappnóg. Bragi hafði
engin umtalsverð gagnfæri og
hefur þvi sjálfsagt orðiö undrandi
þegar Asgeir bauð jafntefli. Þvi
tilboði var þegar tekið.
Dan Hansson hefur tvö peð yfir
i skák sinni viö Stefán Briem, en
þó eru ýmis ljón i veginum. Bið-
staöan i skák Einars og Karls er
ákaflega athyglisverð en hún er
þessi:
Elvar — Karl
Það er Elvar sem á biðleik.
Þaö væri náttúrlega sérlega
ósmekklegt af greinarhöfundi að
vera-gaspra eitthvað um þessa
biðstöðu, en þó má benda á að
stöðum sem þessum má oft gera
tæmandi skil eða svo gott sem.
Skák dagsins er úr deildar-
keppninni i Munaðarnesi en þar
sýndu piltarnir i TR mikla hæfni
og töpuöu ekki nema einni skák.
Sökudólgurinn var Sævar Bjarna-
son en hann lék herfilega af sér
gegn Þór Valtýssyni frá Akur-
eyri. TR-sveitin saknaði nokk-
urra sterkra skákmanna en hún
var engu að siður jöfn og að sama
skapi sterk á pappirnum. Jóhann
Hjartarson tefldi á 1. borði, As-
geir Þór á 2. borði og Bragi
Kristjánsson á 3. borði. Hann
hefur ekki mikið sést á mótum
undanfarið en tefldi mjög vel uppi
i Munaðarnesi og vann allar sinar
skákir. Hér kemur eitt dæmiö um
yfirvegaða taflmennsku hans:
Hvitt: Jón Björgvinsson
Svart: Bragi Kristjánsson
Ilollensk vörn
1. d4-f5
2. c4-gtí
3. Rf3-Bg7
4. g3-Rftí
5. Bg2-0-0
6. O-O-dtí
7. Rc3-Rctí
8. d5-Re5
9. Rd2
(9. Rxe5 kemur sterklega til
greina).
9. ...-g5!
10. f4?-gxf4 12. Rf3-Ctí
11. gxf4-Rgtí 13. Db3?
(Þarna hefur drottningin ekki
neinu hlutverki að gegna. 13. Bd2
var betra).
13. ...-Dc7
14. Bd2-htí
15. Hael-Re4!
(Og nú strandar 16. Rxe4 á 16. —
fxe4 og riddarinn á f3 fellur).
16. e3-Rxd2
17. Rxd2-Kh8 19. dxe6-Bxe6
18. Rf3-e5 20. Rd4-Bg8!
(Með hótun á borð við b7-b5).
21. Hf2-Hae8
(21. — b5 strax kom einnig til
greina en Bragi ákveður að
styrkja tök sin á miðborðinu
fyrst).
22. Rf3-b5
23. Bfl-bxc4
24. I)C2
(24. Bxc4 strandar á 24. — d5 og
25. — d4.)
24. ,..-d5 27. exf4-Hxel4-
25. Bh3-d4 28. Rxel-dxc3
26. Hg2-Rxf4 29. bxc3-Dxf4
(Einfaldast). 30. Hf2-De3
— Hvitur gafst upp.
+
Hjartans þakkir færum við öllum fjær og nær, sem sýndu
okkur vináttu og samúð við andlát og útför eiginmanns
mins, föður, tengdaföður og afa,
Gunnlaugs Jóhannessonar,
Skálageröi 15.
Guð blessi ykkur öll.
Olga Sigurðardóttir,
Guðmunda Gunnlaugsdóttir, Marinó Friðjónsson,
Elisabet Gunnlaugsdóttir, Hlöðver Jóhannsson,
Málfrfður Gunnlaugsdóttir, Sigmar Holbergsson.
og barnabörn.
Opið bréf til Viðars Ólafssonar
Rafhitun
varmaveita
Hrafn Baldursson Stöðvatfirði skrifar
Fjar
Þar sem undirritaöur er einn -
þeirra sem eru um það bil að
byrja að gjalda starfa þins vegna
orkusölu til fjarvarmaveitna og
vegna þess að undirritaður les
allt sem um orkumál er skrifað og
hann nær i, hér á hjara veraldar,
sér hann sig knúinn til að senda
þér þessar linur þar sem þú hefur
nú stigið fram úr samheitinu VST
i þeim tilgangiað andmæla
skrifum Heimis Sveinssonar. (Sjá
grein Viðars Ölafssonar, verk-
fræðings i Þjóðviljanum 19.9 s.l.)
Undirritaður ætíar ekki að fara
að svara fyrir Heimi, enda
ástæðulaust þar sem skrif hans
standa enn fyrir sinu og hann er
einfær um að svara fyrir sig. Hins
vegar langar mig að fara
nokkrum orðum um málflutning
þinn og röksemdarfærslur, vegna
þess að þú ert að fjalla um lifs-
hagsmuni, hvorki meira né
minna, ekki aðeins Norðfirðinga
og Seyðfirðinga heldur allra
þeirra sem versla við Rafmagns-
veitur rfkisins i smásölu. Það
verða nefnilega að teljast lifs-
hagsmunir þegar um þriöjung
ráðstöfunartekna heimila er aö
ræða.
Þar sem þú býrð á hitaveitu-
svæði og hefur þar að auki bæri-
leg laun trúlega, skilur þú
kannski ekki muninn á þvi að
borga 80% og 96% af beinni hitun
og ruglar þessu saman ásamt tali
um mat ykkar og óvisst verðlag.
Er visst verðlag á svartoliu?
Þú talar um að varmaveitan
við Skutulsfjörð gangi vel og þar
sé orkan seld á 90% af verði
beinnar hitunar. Hefur kannski
einhver lofaö ykkur hjá VST að
tryggja þá verðlagnigaaðferð
sem dugi til þess að verö til
beinnar rafhitunar verði i fram-
tiðinni 25% dýrara en orkuverð
frá fjarvarmaveitum?
Þú eyðir tæpum fimm linum i
að tala um ókosti varmaveitna og
gerir það eins lauslega og frekast
er kostur þó vafalaust vitir þú að
þar i felast vegamestu rökin gegn
þeim, sem sé, orkutap þeirra er
eitthvað meira en beinnar þil-
ofnahitunar, þetta eitthvað veistu
að eru 30%, m.ö.o. Það þarf 30%
meiri orku út úr varmaveitunni
en fyrir þilofnahitun, enda væri
það meiri verkfræðingurinn sem
viöurkenndi að honum væru
þessar staðreyndir ekki kunnar
eftir að vera búinn að gera athug-
un á málinu. Undirritaður skal
samt rifja það upp fyrir þér á
hverju þetta byggist. Þ.e. rýmd
vatnskerfis annarsvegar móti
rýmd þilofna og hinsvegar næmni
stýringar á hita.
Annan hlut hýtur þú lfka að vita
og hann er sá að hægt er að selja
umframorku til hitunar beint til
notenda, meö stýribúnaði sem
ekki kostaði nema brot af varma-
veituframkvæmdunum. Slikur
búnaður er til i Hafnarfirði og
hefur verið notaður notaður. Af
hverju heldur þú að hann hafi
ekki verið valinn? Að þessu
tvennu athuguðu ætti að vera
óþarft að leyta eftir lánum og
kanna kostnað við R/O kerfi, en
það sakar kannski ekki að geta
þess að áætlanir um fjárfestingu
standast ekki eftir þvi sem þú
sjálfur segir, samkvæmt reynslu-
tölum frá Seyðisfirði. Hvernig er
með Höfn.
Raunar skiptir þetta ekki máli
þvi allt dæmið var svo upp sett að
ekkert mátti útaf bera til þess að
ekki væri orðiö stórfellt tap á
fyrirtækinu, nema já, nema þvi
aðeins að gerðar væru sérstakar
ráðstafanir i orkumálum, þ.e.
gjaldskrármálum Rafmagns-
veitna rikisins t.d. til þess að geta
látið dæmið ganga upp.
Þetta er þvi ekki tæknilegt mál-
efni og heldur ekki hagfræðilegt,
heldur pólitikst og veröur að
ræðast sem slikt. Það þjónar þvi
pólitiskum tilgangi að setja fram
fullyrðingar eins og þá að
nýtingartimi hámarksafls al-
mennrar notkunar og húshitunar
sameiginlega sé að meðaltali
nálægt 55%, takandi það trúlega
upp úr kennslubókum ykkar,
þegar reynsla okkar er sú að
þetta séu aldrei undir sextiu og
þrem prósentum.
Ég undirritaður er einn þeirra
sem telja umræður yfirleitt gagn-
legar og þvi betri sem þær eru
hreinskilnari og opinskárri og
mér rennur til rifja að lesa skrif
manna sem kannað hafa mál og
hafa til þess þekkingu, eða i öllu
falli, eiga menntunar sinnar
vegna að hafa hana, skrif þar sem
visvitandi er sneitt hjá að ræða
opinskátt um hlutina. Það hentar
vafalaust einnig fyrir þá menn
sem þannig skrifa aö kalla öll
andmæli dylgjur og and-
mælendurna ofstopamenn.
1 annan staö má kannski benda
á aö þeir sem vit hafa á hestum á
búinu hafa leyfi til að skipta skapi
þegar hestaprangarar eru að
pranga afsláttar drógum á
gæðingsverði upp á annars sauð-
glögga bústjóra þvi öllu búinu
mun ætlað að borga, ekki einasta
þeim.
Sem sagt, þegar atvinnubæjar-
stjórar eru farnir að leggja sig
eftir að fá ódáminn keyptan og
gera jafnvel ráðstafanir til að að-
varinar sem þeim eru sendar
komi ekki fyrir almenningssjónir,
svona eftir þvi sem þeir eru menn
til. þvi þessum viðskiptum sem
öðrum slikum va'r vitaskuld ætlað
að fara svo leynt sem unnt væri,
þá hlýtur þeim sem sjá i gegnum
hlutina að leyfast að taka upp i
sig, bæði hvað varðar meinta ein-
feldni bústjóranna og illa fenginn
gróða prangaranna. Þegar svo
við þetta bætist að Rafmagns-
veitur rikisins, rikisfyrirtæki, er -
farið að þjarma að viðskipta-
vinum sinum i þeim tilgangi að
gera gripinn kræsilegri, þá tekur
steininn úr.
Ef þú ekki þegar veist það, þá
var til hjá rafmagnsveitunum
söluskilmáli sem kallaður var
númer 23 eða heimilis- og
búrekstrarmarktaxti. Eftir
þessum gjaldskrárlið gat fólk út-
rýmt hjá sér oliunni i áföngum og
tekið upp hina hagstæðu þilofna-
hitun hjálparlaust ef frá er talin
uppsettning neysluvatnsgeymis.
Allmargir raffróðir Austfirðingar
fóru þessa leið og að sjálfsögðu
miklu fleiri, en nú er verið að
kippa út þessum taxta nema
handa ábúendum bújarða og
hækka á honum verðið, að þessu
hefur verið unnið i allt sumar og á
bara eftir að reka á þetta enda-
hnútinn. Annar söluskilmáli var
einnig inni I gjaldskrá Rarik, svo
kallaður hitunarmarktaxti, og
einnig hann var afltakmarkandi,
það stendur einnig fyrir dyrum að
kippa honum út. Þessar aðgerðir
eru áberandi vitlausar fyrir
dreifiveiturnar, það er ljóst, en
þær geta verið hagkvæmar til að
fylla upp i götin á forsendum fjar-
varmaveitumanna.
1 fyrstalagi er ekki lengur hægt
að breyta yfir i þilofnahitun öðru-
visi en kaupa sér viðbótarraflögn
og breytingar á rafmagnstöflu. 1
annan stað gætu áður umtöluð
55% nálgast raunveruleikann
með þvi að afltakmarkandi
taxtar eru farnir út, og ekki nóg
með það, öll gjöld af uppsettu afli
eru farin úr gjaldskránni. Að
siöustu er svo þægilegra að hafa
alla hitunarkaupendur á einum
Framhald á bls. 13
Minning:
Guðmundur Kristinn
Helgason
Fæddur L april 1955 —
Dáinn 21. september 1980
Sviplegt slys hefur dregið ský
fyrir sólu. Vinur minn og starfs-
félagi.urn hálfan tug ára, er fall-
inn frá I blóma lifsins, aðeins 25
ára. Menn setur hljóða á slikum
stundum, og tregt tungu að
hræra.
Leiðir skildu fyrir hálfu ári, er
viðhurfum báðir frá þeim starfa,
sem batt vináttuböndin. A vinnu-
staðnum gerðust postular rétt-
lætis og siögæðis.að eigin dómi,
skjöpuleygir á almenn mannrétt-
indi. Þá var vor í lofti, og við
; gengum út á lifsins torg, með
I fyrirheit hinna óþekktu, i mann-
grúann. Þótt hurðin að baki okkur
væri dökkmáluö, og fölva slægi á
veröldina, hugöumst við stikla
hin skreipu sker i hverfulum
heimi.
Guömundur Kristinn hafði
] aflað sér nokkurrar menntunar á
sviði þess handverks er við störf-
i uðum aö. Hann ætlaöi sér stærri
hlut I þá veru, enda með viötæka
starfsreynslu og afar hugkvæmur
ásamt miklu listfengi.
Guðmundur Kristinn kvæntist
Ester Kristjánsdóttur, hinni ljúf-
ustu stúlku, þau eiga einn son,
Helga. Sólargeislann i tilverunni,
er oft þurfti á liðveislu pabba að
halda. Nú er strengur brostinn, og
röðull hausts sendir geisla hins
torræða yfir storð.
Það mun ávallt verða litt eða
aldrei skihð, hvi menn á morgni
lifsins eru hrifnir burt úr jarðvist-
inni; þvi kunnum vér að spyrja
með barnslegu hugarfari: Hvers-
vegna?
En minningin um einstaklega
hjálpfúsan, fjölhæfan og góðan
dreng mun verða hið græðandi
balsam, er stundir liða.
Lifiðereinsog sálmasöngur, og
ómurinn svar kærleikans, en sólin
blundar, llkt og skáldið segir i
hinum ljóðrænu linum:
„Blundar nú sólin
i bárunnar sæng,
húmskuggar læðast
frá haustnætur væng,
sveipa I svörtu
hinn sofandi dag.
En andvarinn kveður
hans útfararlag.”
Jónas Guðlaugsson.
Ég kveð hinn unga og greinda
vin minn, með virðingu og þökk,
aðstandendum votta ég samúð
mina. Hjalti Jóhannsson.